Jólablað Skátafélagsins Fylkir - 22.12.1945, Blaðsíða 1

Jólablað Skátafélagsins Fylkir - 22.12.1945, Blaðsíða 1
JOLABLAÐ skátafélagsins Fylkir Siglufjarðarprentsmiðja laugardaginn 22. desember 1945 1. tölublað VÖKUMENN Hin einfalda frásögn jólaguðspjallsins um fæðingu Jesú, vekur jafnan lotningu og helgiáhrif í huga vorum. Vér sjáum at- burðina fyrir oss. Vér sjáum Jósef og Maríu á leið til Betlehem. Vér sjáum fá- tæklega f járbyrgið, þar sem þau urðu að láta fyrirberast og vér sjáum nýfædda barnið, sem vafið hefur verið reifum og lagt í jötuna. Og loks nemum vér staðar hjá fjárhirðunum úti í haganum, þar sem þeir gættu hjarðar sinnar í næturkyrrð- inni. Hirðarnir voru vökumenn, þeim hafði verið falið að vaka og gæta hjarðarinnar, svo að engin óhöpp kæmu fyrir. Þeir urðu alltaf að vera viðbúnir, hvað sem að höndum bar. Á þessari kyrrlátu nótt áttu vökumenn- irnir frá Betlehemsvöllum að vera vitni hinna dýrlegustu atburða, er skeð hafa á þessari jörð, og nú átti að biðja þá fyrir mikilverðustu skilaboðin, sem mannkyninu höfðu verið flutt, þessi skilaboð: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Þegar vér höldum jólin, þá minnumst vér þessara trúu vökumanna, er fluttu oss mönnunum boð engilsins um fagnaðar- efnið mesta, fæðingu frelsarans. v Fjárhirðum fluttu fyrst þann söng Guðs englar , unaðssöng, er aldrei þverr: Og í þeirri byggð voru fjárhirð- ar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. (Lúk: 2,8) Friður á foldu, fagna þú maður Frelsari heimsins fæddur er. Eg hugsa um þesa vökumenn, þegar ég sendi skátunum jólakveðju. Skátarnir hafa í vissum skilningi valið sér það hlut- verk að vera vökumenn, þroska sig í dáð- riku starfi og drengilegri þjónustu, vera öðrum til hjálpar og liðsinnis, vera alltaf viðbúnir til góðra verka, þegar á þarf að halda. Vér þurfum á slikum vökumönum að halda nú og máske aldrei fremur en á komandi árum, vökumönnum, sem hafa opinn hug fyrir sannleika og dyggð, rétt- læti og kærleika, í einu orði sagt, þeim hugsjónum, sem Jesús Kristur kom til þess að flytja og felast í fagnaðarboðskap jólanna. Það er jólaósk mín til skátanna, að þeir mættu verða slíkir vökumenn, að það yrði öðrum mönnum dýrlegur vitnisburður, að það yrði til þess að vekja enn til umhugs- unar um gildi alls þess, sem gott er og fagurt gildi kærleiksþjónustunnar í lífinu. Skátar! Verið viðbúnir í þeirri þjónustu! Gleðileg jól ! Óskar J. Þorláksson. i60702 ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦

x

Jólablað Skátafélagsins Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólablað Skátafélagsins Fylkir
https://timarit.is/publication/1960

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.