Morgunblaðið - 10.10.1989, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LAlMDSMANNA
''(
*
mf iH
i
1989 ■ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER BLAÐ B
KNATTSPYRNA || KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
IÞROTTAMANNVIRKI
Ejjert B. Schram, formaður KSÍ:
Útilokað að tilkynna
þátttöku í HM-keppni
Stærsta vandamálið sem blasir við KSÍ og
knattspyrnuhreyfingunni nú er, að útilokað
er að tilkynna þátttöku f næstu Heimsmeistara-
keppni við óbreyttar aðstæður á Laugardaisleik-
vanginum. Undankeppni HM hefst væntanlega unr
vorið 1992 og tilkynna þarf þátttöku á miðju
sumri. Þetta segir Ellert B. Scliram, formaður
Knattspyrnusambands íslands, í bréfi sem hann
nýverið sendi forystumönnum íþróttamála hjá ríki
og Reykjavíkurborg. Skv. nýlegum reglum er ein-
ungis heimilt að selja miða í númeruð sæti á ai-
þjóðlegum leikjum, eins og komið hefur fram hér
í blaðinu.
Bréf Ellerts í heild/B 7.
Teitur
„njósnar“ i
Hollandi
Teitur Þórðarson, þjálfari
Brann, fer að öllum líkindum
til Hollands í dag til að sjá íslenska
landsliðið leika gegn Hollendingum
í Evrópukeppni 21 árs landsliða.
Leikurinn fer fram í Rotterdam í
kvöld. „Ég hef hug á að sjá strák-
ana leika,“ sagði Teitur, en að hans
sögn er hann að leita eftir nýjum
miðjumanni og markaskorara.
Hörður Magnússon úr FH var hjá
Brann í sl. viku. Teitur hefur hug
á að sjá Eyjólf Sverrisson, leikmann
Tindastóls. „Ég hef heyrt talað um
Eyjólf, en ekki séð hann leika,“
sagði Teitur.
■ MAGNÚS Jónatíuisson verður
áfram þjálfari Þróttar í Reykjavík.
Mikill liugur er í herbúðum Þrótt-
ara, sem hafa staðið í ýmsum fram-
kvæmdum á félagssvæði sínu við
Sæviðarsund. Allir þeir leikmenn
sem léku með Þrótti í 3. deildar-
keppninni í sumar, hafa ákveðið að
vera áfram.
■ SEX leikmenn vestur-þýska
landsliðsins (U-21) í handknattleik
hafa verið dæmdir í sex mánaða
bann með landsiiðinu og styrktar-
greiðslur til þeirra hafa verið felldar
niður. Ástæðan er sú að þeir virtu
ekki re^lur um komu á hótelher-
bergi sín eftir lokahófið, sem haldið
var að lokinni HM á Spáni í síðasta
mánuði.
Pétur á samning
hjá Minnesota
PÉTUR Guðmundsson hefur
skrifað undir samning við
Minnesota Timberwplves, ann-
að nýja liðið í NBA-deildinni.
Pétur lék með San Antonio
Spurs í fyrra en var sagt upp
í vor eftir að hafa verið lengi
frá keppni vegna meiðsla. Nú
hefur Pétur skrifað undir
samning við Minnesota en
keppni í NBA-deildinni hefst í
nóvember.
o
Pétur er í æfingabúðum með lið-
inu en þar munu 19 leikmenn
beijast um 12 sæti í liðinu. Tim
Bryant, fjölmiðiafulltrúi liðsins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann gæti ekki gefið upp smáat-
riði í þessum samningi: „Það er
hart barist fyrir hveiju sæti. Við
erum með 19 ieikmenn og notum
aðeins 12. Þrátt fyrir það er líklegt
að Pétur fái samning," sagði
Biyant.
Minnesota Timberwolves er
§órða lið Péturs í NBA-deildinni.
Hann byijaði hjá Portland Trail-
blazers en hefur síðan leikið með
Los Angeles Lakers og San An-
tonio Spurs.
Minnesota hefur verið að byggja
upp nýtt lið og fengið til liðs við
sig marga sterka leikmenn. Einn
þekktasti leikmaður lisðins, Rick
Mahorn frá Detroit, hefur neitað
að skrifa undir samning við liðið
en hann leikur sömu stöðu og Pét-
ur. Pétri er því líklega ætlað að
leysa hann af hólmi og taka stöðu
miðheija, ásamt Mahorn, þegar
samningar takast.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Ómar til Ölafsfjarðar
Njáll Eiðsson hefurverið ráðinn þjálfari ÍR-liðsins
Pétur Guðmundsson.
ÓMAR Torfason, landsliðs-
maður úr Fram, hefur verið
ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Leifturs á Ólafsfirði. Ómar mun
einnig leika með Leiftursmönn-
um. „Við erum mjög ánægðir
að fá Ómar til okkar. Hann
hefur mikla reynslu og verður
góður liðsstyrkur fyrir okkur,“
sagði Rúnar Guðlaugsson,
formaður Leifturs í viðtali við
Morgunblaðið.
Omar mun byrja á því að stjórna
æfingum í Reykjavík, en átta
til tíu leikmenn okkar verða á
Reykjavíkursvæðinu eftir áramót.
Hann mun síðan koma hingað
ásamt leikmönnunum með vorinu,“
sagði Rúnar.
IMjáll til ÍR
Njáll Eiðsson var ráðinn þjálfari
2. deildarliðs ÍR um helgina, en
Njall hefur þjálfað Einheija á Vopn-
arfirði undanfarin tvö ár. Áður var
hann leikmaður með KA og Val.
Njáll tekur við af Theódóri Guð-
mundssyni.
Njáll.
Omar.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
„Færeyingar orðlausir“
- sagði Axel Axelsson í Færeyjum eftirfyrri Evr-
ópuleikinn. „Undirbúningur Kyndils í molum"
MorgunblaSið/BjBrni
Jakob Sigurðsson, nýskipaður fyrirliða Vaismanna, skorar eitt marka liðsins í gærkvöldi gegn
í sigurleiknum gegn Kyndli. Nánar um Evrópukeppnina/B 3.
„FÆREYINGAR eru orðlausir.
Kyndil hefur misst sjö leikmenn frá
síðasta keppnistímabili, liðið var í
frii í sex mánuði og undirbúningur-
inn í molum fyrir leikina gegn Val.
Menn hefðu sætt sig við tiu til
fimmtán marka tap, en sigur var
ekki til umræðu,“ sagði Axel Axels-
son, fyrrum landsliðsmaður, sem
þjálfar Neistan í Færeyjum, að-
spurður um viðbrögð Færeyinga
vegna sigurs Kyndils gegn Val í
Evrópukeppni meistaraliða í hand-
knattleik á sunnudag.
Axel sagði að leikmenn Kyndiis hefðu
enga reynslu. ,,Liðið er með fjóra
sterka einstaklinga, en hinir eru nánast
til uppfyllingar. Því er sigurinn enn sæt-
ari, en menn hér skilja ekki hvað hefur
gerst. Ég sagði í sjónvarpsviðtali tyrir
skömmu að Kyndil ætti enga möguleika
gegn Val, en eftir leikinn var hlegið að
mér — og íslenskum handknattleik, sem
er öllu verra,“ sagði Axel.
„Við Íslendingar þekkjum það að
fagna glæstum sigrum gegn stórþjóðum,
vera montnir, þegar vel gengur. Færey-
ingar hafa ekki kynnst þessu fyrr, en
þeir höfðu svo sannarlega ástæðu til að
gleðjast. Fyrir Val og íslenskan hand-
knattleik er þetta hins vegar rnikil
skömrn," sagði landsliðsmaðijrinn fyrr-
verandi.