Morgunblaðið - 24.02.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
45. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðvaranir um
ný fjöldamorð
^ Tel Aviv, 23. febrúar. AP.
ÍSRAELSKA herráðið tilkynnti í dag, að það hefði látið herða á
eftirliti í búðum palestínskra flóttamanna í Miye Ou Miye í Líbanon
vegna aðvörunar frá Bandaríkjamönnum um að fjöldamorð kynnu
að eiga sér þar stað. Sagði talsmaður herráðsins, að ekki þýddi að
koma upp varanlegri eftirlitsstöð í þessum búðum, sem eru í grennd
við Sidon, þar sem þau morð á Palestínumönnum, sem átt hefðu sér
stað að undanförnu, hefðu orðið utan þessara flóttamannabúða.
Blaðið Haaretz skýrði svo frá
í dag, að aðvörun Bandaríkja-
manna hefðí borizt, eftir fregn-
ir um að 12 manns hefðu verið
myrtir, sem strax hefði vakið
ótta um, að ný fjöldamorð
væru hugsanleg. Allt kapp yrði
lagt á að koma í veg fyrir svo
skelfilega atburði, enda lék
enginn vafi á því, að ísraels-
mönnum yrði kennt um, ef illa
færi.
Fyrirheit Reagans Banda-
ríkjaforseta um að ábyrgjast
öryggi landamæra lsraels-
manna í norðri, getur haft það
í för með sér, að bandarískir
hermenn verði sendir til þess
að gæta þeirra, og þá sennilega
ásamt hermönnum frá mörg-
um öðrum þjóðum. Skýrði tals-
maður forsetans frá þessu í
dag. Þetta væri þó aðeins einn
valkostur af mörgum, sem til
greina kæmu í þessu skyni.
Eins og er, þá eru 1.200 banda-
rískir hermenn í Beirút sem
hluti af alþjóðlegu friðar-
gæzlusveitunum þar.
Yitzhak Shamir, utanríkis-
ráðherra ísraels, sagði í dag, að
boði Reagans forseta um að
ábyrgjast landamæri ísraels
við Líbanon bæri vissulega að
fagna, en það væri ekki full-
nægjandi og gæti ekki komið í
stað ráðstafana ísraelsmanna
sjálfra til þess að tryggja
landamæri sín.
Bandaríska þingið hefur tek-
ið boði Reagans forseta fremur
fálega, sérstaklega með tilliti
til þess, að svo kynni að fara að
senda yrði bandarískt herlið til
ísraels til þátttöku í hernaðar-
aðgerðum þar, ef upp úr syði á
norðurlandamærunum.
Myndin sýnir, er einum af farþegunum í flugráninu á Möltu er hjálpað
niður úr flugvélinni. Flugræningjarnir, sem voru tveir, gáfust ekki upp
fyrr en Mintoff, forsætisráðherra Möltu, hafði heitið þeim, að þeir yrðu
ekki framseldir til Lfbýu.
Flugráni
lauk með
uppgjöf
ValetU, 23. febrúar. AP.
TVEIR flugræningjar frá Líbýu,
sem rænt höfðu líbýskri farþega-
þotu og neytt flugstjórann til þess
að fljúga til Möltu, gáfust upp í
dag og létu lausa alla 152 farþega
þotunnar og áhöfnina, sem þeir
höfðu haldið sera gíslura. Flugræn-
ingjarnir gengu út úr þotunni
óvopnaðir og voni strax handtekn-
ir af lögreglunni.
Dom Mintoff, forsætisráð-
herra Möltu, var til staðar til
þess að taka á móti gíslunum, er
þeir voru látnir lausir.
I hópi farþeganna voru tvær
þungaðar konur og tíu börn
yngri en 7 ára. Læknar rannsök-
uðu farþegana, eftir að þeir voru
látnir lausir og tilkynntu síðan,
að þeir væru við góða heilsu.
Sama máli gegndi með áhöfnina,
en í henni voru 7 manns.
Samkomulag sex ríkja í
OPEC um lækkað olíuverð
Kíyadh, Saudi-Arabíu, 23. febrúar. AP.
Blásýru
stolið
Kilston, Knglandi, 23. febrúar. AP.
LÖGREGLAN í Bilston í Englandi
rannsakar nú þjófnað á 177 kg af blá-
sýru, en svo mikið magn myndi nægja
til þess að verða hálfri milljón manns
að bana. Eitrið var geymt í þremur
stórum tunnum, sem hver um sig inni-
hélt um 59 kg. Þjófnaðurinn mun hafa
átt sér stað um síðustu helgi.
YAMANI, olíumálaráðherra Saudi-Arabíu skýrði frá því í dag að
náðst hefði samkomulag sex ríkja innan OPEC um að selja olíu
þeirra framvegis á lægra verði. Þá tilkynnti olíumálaráðherra Sam-
einuðu furstadæmanna við Persaflóa, að haldin yrði ný ráðstefna
olíumálaráðherra OPEC-ríkjanna í næstu viku til þess að ræða þetta
samkomulag nánar og yrði þessi fundur haldinn annað hvort í Génf
eða Vínarborg. Ekkert hefur þó enn verið sagt um, á hvað verði
þessi sex ríki hyggjast selja olíu sína.
„Ef önnur aðildarríki OPEC
fallast ekki á þetta samkomu-
lag, þá verða olíuríkin við
Persaflóa að lækka olíuverðið
enn meira en þau hafa fyrir-
hugað," sagði Oteiba, olíu-
málaráðherra Sameinuðu
furstadæmanna í dag og gaf
með því í skyn, að framundan
væri þá verðstríð, sem enginn
gæti séð fyrir endann á. Ríkin
sex, sem aðild eiga að þessu
samkomulagi eru Saudi-
Arabía, Sameinuðu fursta-
dæmin, Kuwait, Quatar, írak
og Indónesía. Ennfremur er
talið að tvö olíuríki til viðbót-
ar séu mjög fylgjandi þessu
samkomulagi en það eru Libýa
og Venezuela.
Yamani sagði, að verðlækk-
un á olíu væri framundan,
hvort sem hún yrði gert í
nafni OPEC sem heildar eða
af einstökum aðildarríkjum
samtakanna. Hann vildi samt
Cheysson líkir Yuri
Andropov við tölvu
París, 23. febrúar. AP.
CLAUDE Cheysson, utanríkis-
ráðherra Frakklands, sem ný-
kominn er heim til Frakklands úr
opinberri heimsókn til Sovétríkj-
anna, hefur líkt Yuri Andropov,
leiðtoga sovézka kommúnista-
flokksins, við tölvu. Sagði
Cheysson frönskum frétta-
mönnum, sem voru honum sam-
ferða flugleiðis heim frá Moskvu,
að sér hefði fundizt eftirmaður
Brezhnevs vera „hæglátur, ná-
kvæmur maður, sem ekki léti í
Ijós tilfinningar, en héldi sig við
staðreyndir og stærðfræðilegar
röksemdir".
Þegar Cheysson var spurður
að því, hvort sovézki leiðtoginn
væri „nútíma“-maður, svaraði
hann: „Já, hann er maður nú-
tímans en eins og tölva með til-
liti til nákvæmni í orðum og
framkomu. Hann var sérstak-
lega ósnortinn og skorti þá
mannlegu hlýju, sem ég varð
var við annars staðar, t.d. hjá
fólki í Leningrand og jafnvel í
viðræðum mínum við Grom-
yko.“
Cheysson er á meðal fyrstu
háttsettu stjórnmálamanna á
Vesturlöndum, sem fær tæki-
færi til þess að ræða við Andro-
pov persónulega eftir að sá síð-
arnefndi tók við stöðu leiðtoga
kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna í nóvember sl. Þeir ræddu
saman í eina og hálfa klukku-
stund. Cheysson ítrekaði and-
stöðu Frakka við tillögur And-
ropovs um að fækka meðal-
drægum kjarnorkueldflaugum
Rússa í Evrópu niður í sama
Yuri Andropov
fjölda og þær, sem Bretar og
Frakkar ráða yfir.
Þessum tillögum hefur verið
hafnað í London sem í París
með þeim rökum, að með þeim
væri verið að staðfesta yfir-
burði Sovétríkjanna á sviði
Claude ('heysson
eldflauga. Eldflaugar Frakka
lúta ekki stjórn NATO og hefur
franska stjórnin verið mjög
eindregið þeirrar skoðunar, að
eldflaugar Frakka verði ekki
samningsatriði í viðræðum
milli annarra landa.
ekki segja að svo komnu, hve
þessi verðlækkun ætti eftir að
verða mikil. Fyrri fréttir, sem
birzt hafa í fjölmiðlum í
Saudi-Arabíu hafa borið með
sér, að verðið á olíu þaðan
gæti lækkað um allt að 7 doll-
ara tunnan.
Talið er að Nígeríumenn
hafi varað arabísku olíu-
framleiðsluríkin við því, að
sérhverri lækkun á verði olíu
þeirra niður fyrir 28.50 dollara
á tunnu verði svarað „dollara
fyrir dollara" af hálfu
Nígeríumanna.
Nkomo neitað
um vegabréf
Rulawayo, 23. febrúar. AP.
JOSHUA Nkomo, leiötoga stjórnar-
andstöðunnar í Afríkuríkinu Zimb-
abwe, var í dag neitað um aö fá aftur
vegabréf þaö, sem lögreglan í land-
inu hafði svipt hann á laugardag.
Hefur Nkomo því ekki lengur frelsi
til þess að fara úr landi. Þrír aðstoö-
armenn Nkomos voru handteknir á
flugvellinum á laugardag, er þeir
ásamt honum voru í þann veginn að
stíga upp í flugvél til útlanda.
Nkomo hefur um langt skeið
verið helzti keppinautur og gagn-
rýnandi Robert Mugabes, forsæt-
isráðherra. Handtaka Nkomos og
svipting vegabréfs hans á vafalítið
eftir að auka mjög á fjandskap og
valdabaráttu milli þessara tveggja
helztu leiðtoga þjóðernissinna í
landinu, en þeir börðust fyrir þvl
sameiginlega í meira en áratug að
kollvarpa minnihlutastjórn hvítra
manna í landinu, á meðan það hét
Ródesía.