Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983 37 Aðalmál bæjarstjórnar Akureyrar; Rekstur leiktækjasala heimilaður — og þó!! --j-^ . -r. ----- OS „GOURMET' PÍÝJA UNDRATÆKIÐ í ELDHÚSIÐ FRÁ Leiðrétting: Fjölbreyttu, ekki gerbreyttu SLÆM villa slæddist inn í frásögn Mbl. á fimmtudaginn af ræðu Guð- rúnar Agnarsdóttur alþingismanns við útvarpsumræður á Alþingi sl. þriöjudag. Rétt er setningin þannig: „Þess vegna er henni miklu vert að nota féð til að tryggja börnum sínum samfelldan skóladag með fjöl- breyttu, viðeigandi námsefni til að búa þau undir lífið, heldur en að reisa stórhýsi í heimreiðinni." í stað orðsins fjölbreyttu, stóð gerbreyttu. Mbl. biðst velvirðingar á þessum mistökum. 1. Örtölvustýrt að öllu leyti. 2. Tölvustýrð klukka 7 daga fram í tímann. 3. Með 7 mismunandi dagskrárstundum. 4. Þráðlaus fjarstýring með 8 möguleikum. 5. Sjálvirkur dagsrárleitari (APLD) „Index skanner“. 6. Rafstýrðir snertirofar. 7. Framhlaðið. 8. Gefur nákvæmlega til kynna hversu margar mínútur eru eftir óspilaðar af kasettunni. 9. Möguleikar á V2 hraða, tvöföldum hraða og ramma fyrir ramma „Frame by frame“. Aðeins39.900“ HLJOMBÆR ■— Hrærir deig, sker niður grænmeti, hakkar kjöt, saxar grænmeti, býr til franskar kartöflur, þeytir rjóma og ótal m.fl. Mjög auðvelt og fljótlegt er að hreinsa tækiö eftir notkun. * „GOURMET" undratækið er knúið af jafnöruggum mótor eins og notaður er í stóra bróðurinn „Kenwood Chef" og hefur hann þrjár hraðastillingar. Mótorinn er þeim eiginleikum búinn að hann slær út ef tækið er yfirfyllt. Komið og kynnist nýja undratækinu frá Kenwood. RAFTÆKJADEILD [hIHEKLAlHF LAUGAVEGI 170 - 172 SIMAR 11687 21240 Akai 84 hljómtækjaúrvalið er (einu orði frábært. — íþróttafélögin fara fram á einkarétt til slíks rekstrar Akureyri. 19. október. VERULEGUR hluti tíma bæjar- stjórnar á fundi sínum í gær fór í umræður um rekstur leiktækjasala í bænum. Mál þetta er búið að velkj- ast í bæjarkerfinu alllengi og sér ekki enn fyrir endann á því. í bænum hefur verið rekinn leiktækjasalur og billiardstofa í Kaupvangsstræti til nokkurra ára og hefur rekstur hennar verið til fyrirmyndar og fáum til ama. Síð- an gerðist það, með tilkomu nýj- ustu gerðar spilakassa, að opnuð var önnur stofa, Las Vegas, sem rekin var í bænum í nokkra mán- uði við misjafnan fögnuð bæjar- búa. Foreldrar unglinga höfðu ýmsilegt við þann rekstur að at- huga en unglingarnir virtust sækja þangað töluvert. Gekk á ýmsu með veitingu leyfis fyrir þessum rekstri. Ekki virtist aug- jjóst hver ætti að veita leyfi til slíks reksturs, bæjarfógeti eða bæjarstjórn, engar reglur virtust fyrirfinnast um slíka staði. Varð það til þess að bæjarráð settist niður og samdi reglugerð um „leyfi til reksturs leiktæjastofa" sem hlaut loks samþykki í bæjar- stjórn fyrir hálfum mánuði, eftir mikið japl, jaml og fuður. í reglugerðinni er kveðið svo á, að bæjarfógetinn á Akureyri veiti leyfi til slíks rekstrar, að fenginni umsögn bæjarstjórnar. Á fundin- um í gær voru lögð fram tvö bréf frá bæjarfógeta, þar sem leitað er samþykkis bæjarstjórnar til út- gáfu leyfa til tveggja einstaklinga í bænum til reksturs leiktækja- stofa. Munu báðir þessir einstakl- ingar hafa haft verulegan undir- búning að þessum umsóknum sín- um, aflað sér leiktækja og hafa húsnæði undir slíkan rekstur. Það hefur verið ljóst lengi, að Kvenna- framboðið og Alþýðubandalagið hafa verið því andvíg að einstakl- ingar fengju heimild til slíks rekstrar og tókst þeim að þæfa málið í bæjarráði um langt skeið áður en það náði samþykki bæjar- stjórnar. Töldu fulltrúar þessara stjórnmálasamtaka, að fela ætti æskulýðsráði bæjarins að sjá um slíkan rekstur. Þegar ekki náðist meirihluti fyrir því í bæjarstjórn að svo yrði, þá komu þeir því til leiðar að inn í reglugerðina var sett heimild til niðurfellingar á leyfisgjöldum til bæjarsjóðs, ef íþrótta- eða æskulýðsfélög væru með slíkan rekstur á sínum snær- um. Nú gerðist það, eftir að þessi tveir einstaklingar sóttu um leyfi samkvæmt reglugerðinni, að bréf barst til bæjarstjórnar frá íþróttafélögunum KA og Þór, þar sem þess var farið á leit við bæjar- stjórn, að hún veiti félögunum leyfi til reksturs leiktækjastofa og jafnframt er til þess mælst að fleiri aðilum verði ekki veitt slíkt leyfi í bænum. Á fundi bæjarstjórnar f gær kom fram, að sitt sýnist hverjum bæjarstjórnarmanni í þessum efn- um. Frestur er á illu bestur og einn ganginn enn var allri af- greiðslu málsins frestað, þannig að í raun er það svo nú, að leik- tækjasalurinn í Kaupvangsstræti situr einn að því að veita ungling- unum þessa mjög svo eftirsóttu þjónustu, þar sem hann byggir leyfi sitt á reglum frá fyrri árum, sem ekki er mögulegt að taka af honum. GBerg Vörður ræðir nýjar leiðir í verðmyndun landbúnaðarafurða Á þriðjudagskvöld efnir Lands- málafélagið Vörður til fundar um nýjar leiðir í verðmyndun landbún- aðarafurða. Verðlagning landbúnað- arafurða og fyrirkomulag á þeim hefur verið mjög til umræðu að undanförnu og hyggst félagið fá um- ræður um það í Valhöll á Háaleitis- braut 1 sem hefjast kl. 20.30. Framsöguræður flytja Björn Matthíasson og talar um verð- myndunarkerfi landbúnaðarins og afleiðingar þess, Gunnar Jóhanns- son, bóndi á Ásmundarstöðum, fjallar um nýjar leiðir í landbún- aði og Eyjólfur K. Jónsson, alþing- ismaður, talar um ný stjórnunar- viðhorf í landbúnaði. Tækifæri gefst til umræðna að framsögu- erindum loknum. Fundarstjóri er Elín Pálmadóttir og fundarritari Guðmundur Jónsson. Fundurinn er öllum opinn og má búast við gagnlegum og fróð- legum erindum og umræðum. HUOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.