Morgunblaðið - 23.10.1983, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
Ársþing Tannlæknafélags Islands
FYRSTA Ársþing Tannlæknafélags
íslands hefur staðið yfir á Hótel
Esju og lýkur í dag.
1 frétt frá Tannlæknafélagi fs:
lands, segir að þingið sé þáttur í
viðleitni félagsins að gera félags-
mönnum kleift að njóta faglegrar
fræðslu hér heima í stað þess að
þurfa að sækja hana til útlanda. í
sömu frétt segir ennfremur: „Fé-
lagið hefur að þessu sinni fengið
þrjá erlenda fyrirlesara, einn
Bandaríkjamann og tvo Dani, sem
halda munu fyrirlestra fyrir tann-
lækna og aðstoðarfólk þeirra
þessa daga. Síðdegis heldur félag-
ið aðalfund sinn. í tengslum við
þingið munu nokkur fyrirtæki,
sem sérhæfð eru í tannlæknavör-
um kynna ýmsar nýjungar á þessu
sviði."
Félagar í Tannlæknafélagi ís-
iands eru nú tæplega 200 talsins
og er formaður félagsins Gunnar
Þormar.
ÁVtÍXTUNSf^
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Flýttu þér hægt
íslendingar
Græddur er geymdur eyrir
ef ávaxtað er rétt.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
Gengi 24.10. ’83
Ár Fl. Sg./100 kr. Ár Fl. Sg./100 kr.
1970 2 16.343 1977 2 1.580
1971 1972 1 1 14.082 12.838 1978 1978 1 2 1.281 1.009 Óverðtryggð
1972 2 10.426 1979 1 873 veðskuldabréf
1973 1 7.890 1979 2 655
1973 2 7.575 1980 1 571 Ár 20% 37% 40%
1974 1 4.930 1980 2 431 1 74,8 85,4 87,2
1975 1 3.864 1981 1 369 2 66,1 79,8 82,2
1975 2 2.866 1981 2 272 3 59,2 75,2 78,0
1976 1 2.603 1982 1 259 4 53,8 71,3 74,3
1976 2 2.156 1982 2 191 5 49,5 67,9 71,2
1977 1 1.890 1983 1 147 6 45,9 65,1 68,5
Öll kaup og sala verðbréfa miðast við daglegan
gengisútreikning.
Ávöxtun ávaxtar fé þitt betur
ÁVÖXTUNSf^
LAUGAVEGUR 97 - 101 REYKJAVÍK
OPIÐ FRÁ10-17 - SÍMI 28815
/— >
Verðtryggð
Veðskulda-
bréf óskast í
umboðssölu.
__________J
f--------------N
Höfum
kaupendur
aó óverðtryggðum
veðskuldabréfum
20% og 40%
_____________-/
G('x)cm daginn!
Morgunblaðið/ KÖE.
Við májflutning í Hæstarétti á fóstudagsmorguninn. Vinstra megin má m.a. sjá Hjálmar Bárðarson, siglingamála-
stjóra. Á aftari bekk eru Guðmundur Kjærnested, skipherra hji Landhelgisgæslunni, Jón Magnússon, hrl., lögmaður
Landhelgisgæslunnar, og Bragi Steinarsson, vararíkissaksóknari.
Ríkissaksóknari sneri sókn í vörn fyrir Hæstarétti:
„Flutti frábæra varnarrædu
fyrir minn skjólstæðing“
— sagði Benedikt Blöndal, hrl. sem hafði
litlu við að bæta eftir ræðu ákæruvaldsins
„ÉG HEF aldrei orðið vitni að því
fyrr og aldrei heyrt þess getið, að
saksóknari hér á landi eða annars
staðar hafi haldið varnarræðu fyrir
sakborning, enda kom ræða ríkis-
saksóknara Benedikt Blöndal, verj-
anda ákærða, algjörlega í opna
skjöldu eins og mér. Guðmundur
Kjærnested, skipherra, hlustaði
einnig á málflutning ríkissaksókn-
ara og var hann engu minna hissa en
ég,“ sagði Jón Magnússon, hrl., lög-
maður Landhelgisgæslunnar, er
Mbl. leitaði álits hans á þeim at-
buröi er Þórður Björnsson ríkissak-
sóknari krafðist sýknu í eigin
áfrýjunarmáli gegn skipstjóranum á
Einari Benediktssyni BA fyrir
Hæstarétti á föstudagsmorguninn.
Þórður Björnsson, ríkissaksókn-
ari, sagði i samtali við Morgun-
blaðið að hann hefði, við gaum-
gæfilega yfirferð málsins, sann-
færst um að héraðsdómurinn, sem
kveðinn var upp í Vestmannaeyj-
um 12. mars sl., hafi verið réttur.
Því hafi hann ekki talið sér annað
fært en að krefjast staðfestingar
dómsins og sýknu yfir skipstjór-
anum, hann gæti ekki krafist refs-
ingar yfir saklausum manni.
Benedikt Blöndal, hrl., verjandi
ákærða, Níelsar Adolfs Ársæls-
sonar, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki geta neitað þvi, að
hann væri ánægður með afstöðu
ríkissaksóknara. „Skjólstæðingur
minn var sýknaður í Vestmanna-
eyjum og á því var ég ekki hissa,"
sagði Benedikt. „Það var svo
áfrýjað til sakfellingar og því bjó
ég mig undir að verja málið aftur.
Það kom mér óneitanlega mjög á
óvart í Hæstarétti að ríkissak-
sóknari skyldi óska eftir staðfest-
ingu hérðasdómsins. Hann flutti
frábæra varnarræðu fyrir minn
skjólstæðing og hafði ég sem verj-
andi litlu við að bæta.“
„Það er í rauninni ekkert um
það deilt að Landhelgisgæslan
hafi gegnt sínu hlutverki," sagði
Jón Magnússon. „Við höfum ein-
faldlega gert eins og fyrir okkur
var lagt. Við höfum bréf frá
Siglingamálastofnun, sem raunar
er afrit af bréfi til samgönguráðu-
neytisins, um að skipið sé 1095
hestöfl. Annað höfum við ekki,
enda tekur Landhelgisgæslan
mark á bréfum frá opinberum
stofnunum. Það var því augljóst
hlutverk Landhelgisgæslunnar að
stöðva togarann á sínum tíma
þegar hann var á veiðum á svæði,
sem ætlað var skipum með undir
1000 hestafla vél.“
Hjálmar Bárðarson, siglinga-
málastjóri, sagði að sér hefði kom-
ið afstaða ríkissaksóknara jafn
mikið á óvart og öllum öðrum. „Ég
hef að sjálfsögðu ekkert að athuga
við það, þótt um sýknudóm sé að
ræða í þessu máli,“ sagði Hjálmar,
„en það kom mér ýmislegt á óvart
í ræðu ríkissaksóknara. Skráning
Siglingamálastofnunar byggist á
því, að vélarorka sé sú mesta orka,
sem vél skipsins getur afkastað og
það er samkvæmt fyrirmælum frá
samgönguráðuneytinu. Það er svo
hægt að minnka orku með olíugjöf
eða skiptiskrúfu, þá er um að ræða
ÞESSI mynd var tekin í rakara-
stofu Sveins Árnasonar, Hárbæ,
fyrir nokkru, en þar eru nú til sýn-
is og sölu málverk eftir listmálar-
ann Benjamín Jónsson frá Bíldu-
dal. í Hárbæ hefur Benjamín sett
niðurfærslu á orku vélarinnar.
Spurningin er hvort vélarorka
skal skráð eftir mestri orku eða
hvort það skal vera samkvæmt
stillingu. Okkar upplýsingar um
að vélarorka skipsins væri 1095
hestöfl er fengin úr skipaskrá
Lloyd’s í Englandi og einnig sam-
kvæmt afsali. Eigendurnir segjast
hinsvegar aldrei hafa notað meira
en 910 hestöfl. Þetta er margþætt
og flókið mál, það er til dæmis
umhugsunarvert hvort við ættum
að láta nægja að lesa á skilti á
vélinni, eins og ríkissaksóknari
taldi í ræðu sinni. Hann taldi
meira að segja varhugavert af
Siglingamálastofnun að taka
mark á skipaskrá Lloyd’s," sagði
siglingamálastjóri.
Eins og fram hefur komið hafa
fleiri mál af þessu tagi komið til
kasta dómstóla. Auk skipstjórans
á Einari Benediktssyni var skip-
stjóri Sjóla RE sýknaður í Hafn-
arfirði fyrr á þessu ári og nýlega
voru skipstjórar Skipaskaga AK
og Hafarnarins GK dæmdir á
Akranesi og í Keflavík. Deilt er
um raunverulega vélarorku þess-
ara skipa. Þórður Björnsson, ríkis-
saksóknari, sagðist ekkert vilja
geta sér til um hvort væntanlegur
Hæstaréttardómur muni hafa for-
dæmisgildi. Benedikt Blöndal
sagðist telja að dómur Hæstarétt-
ar gæti haft fordæmisgildi ef rétt-
urinn telur skipstjórann sekan.
upp 15 málverk og sést hann á
myndinni hjá nokkrum þeirra.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 9.00—18.00 og laugardaga
frá kl. 9.00—12.00. Sýningarskrá
liggur frammi í stofunni.
Málverkasýning í Hárbæ