Morgunblaðið - 26.05.1989, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C
116.tbl. 77. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Heimildir erlendra sendimanna í Kína;
Sij órnmálaráðið
snýst gegn Zhao
Peking. Reuter.
VESTRÆNIR stjórnarerindrekar sögðust í gærkvöldi hafa heimildir
fyrir því að stjórnmálaráð Kína hefði komið saman og sakað Zhao
Ziyang, formann kommúnistaflokks Kina, og þijá aðra umbótasinn-
aða ráðamenn um að my«da valdaklíku i andstöðu við flokkinn.
Þessar fregnir virðast staðfesta að harðlínumenn í kommúnista-
flokknum hafi nú undirtökin. Li Peng, forsætisráðherra Kína, birtist
brosandi í sjónvarpi í gær og sagði kínversku sfjórnina „stöðuga“.
Þetta var í fyrsta skipti sem háttsettur kínverskur leiðtogi kemur
fram frá því herlög voru sett á laugardag.
Um það bil 100.000 manns voru
samankomnir á Torgi hins him-
neska friðar í Peking í gær og
kröfðust afsagnar Li Pengs. Voru
margir æfir vegna fréttar sem lesin
var í kínverska útvarpinu í fyrra-
dag. Þar sagði að námsmenn væru
gagnbyltingarsinnar. Um það bil
300 fulltrúar námsmanna sem verið
hafa í fararbroddi undanfarnar
fimm vikur ræddu hvert framhald
Páfí messar í
Þrándheimi:
7 biskupar
sitja heima
Ósló. Reuter.
SJÖ af ellefii lúterskum biskup-
um í Noregi hafa haftiað því að
vera viðstaddir guðsþjónustu Jó-
hannesar Páls páfa í næstu viku.
Páfi kemur til Noregs 1. júní þar
sem heimsókn hans til Norður-
landa hefst. Frá Noregi heldur
páfi til íslands.
Að sögn starfsmanna lútersku
kirkjunnar í Noregi hafa sex bisk-
upanna sagst vera uppteknir 2. júní
þegar páfi messar í Þrándheimi.
Sá sjöundi, Per Lönning, sakar páfa
um að hafa torveldað sameiningar-
viðleitni kristinna manna og mætir
ekki af þeim sökum. Fjórir norskir
biskupar hafa þekkst boðið um að
vera viðstaddir messu páfa. Einn
þeirra, Kristen Kyrre Krerper, sagð-
ist í gær vera þeirrar skoðunar að
starfsbræður sínir ættu að koma
til messunnar.
skyldi vera á aðgerðum en þegar
síðast fréttist höfðú þeir ekki kom-
ist að niðurstöðu.
í gær skipuðu stjórnvöld lögreglu
og embættismönnum utan höfuð-
borgarinnar að koma í veg fyrir að
fleiri námsmenn kæmu til höfuð-
borgarinnar. Flestum ber saman
um að harðlínumenn hafi nú tögl
og hagldir innan kommúnista-
flokksins en ekki eru nema nokkrir
dagar síðan umbótasinnum var spáð
sigri í valdabaráttunni. Þess varð
vart í gær að embættismenn, sem
undanfarið hafa talað ftjálslega um
atburðina í Kína við fréttamenn,
voru þöglir. Óstaðfestar fregnir
segja að Deng Xiaoping og Li Peng
hafi sett saman lista með 100 nöfn-
um manna sem til standi að fang-
elsa. Umbótasinnar binda þó vonir
við að hin öfluga lýðræðishreyfing
verndi þá gegn slíkum hreinsunum.
Aðrir spáðu því í gær að Deng
myndi aflétta herlögum til að koma
í veg fyrir að hersveitir hliðholiar
Zhao Ziyang réðust inn í Peking.
Reuter
Mótmæli pólskra stúdenta
Stúdentar í Háskólanum í Varsjá, þar sem þessi mynd var tek-
in, og víðar i Póllandi hafa efnt til setuverkfalls vegna þess að
dómstóll í landinu hafiiaði lögleiðingu námsmannasamtakanna
NZS. Það var hluti af samkomulagi verkalýðsfélagsins Samstöðu
við stjórnvöld, sem gert var fyrir skemmstu, að NZS yrði lög-
leitt en yfirvöld bera því við að námsmennimir haldi í þann
rétt að mega eftia til verkfalla og því sé ekki hægt að lögleiða
samtök þeirra.
Færeyjar:
Stjórnin
völt í sessi
Kaupmannahöfh. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgnnblaðsins.
SEINT á miðvikudagskvöld vom
feereyskir þingmenn sendir heim
af aukafundi Lögþingsins er í ljós
kom að stjórnarflokkamir fjórir
gátu ekki komið sér saman um
umfangsmiklar aðgerðir í skatta-
og tollamálum. Sljóm Jogvans
Sundsteins úr Fólkaflokknum
hugðist leggja fram tillögur sínar
í Lögþinginu en Sjálfstýriflokk-
urinn og Kristilegi þjóðarflokk-
urinn neituðu að samþykkja nýj-
ar álögur á skattgreiðendur; sá
fyrmefndi vill skera niður opin-
ber útgjöld.
Fjórði stjórnarfiokkurinn, Þjóð-
veldisflokkurinn, sem ræður emb-
ætti fjármálaráðherra, tekur ekki
lengur þátt í viðræðum stjómar-
flokkanna. Ætlun stjómvalda er að
afla 150-200 milljóna d.kr. (1.100-
1.500 milljóna ísl.kr.) í ríkissjóð og
skal veija fénu til að styrkja hráefn-
issjóð sjávarútvegsins sem sagður
er í miklum kröggum. Hækkun
tekjuskatts er ein af tekjuöflunar-
leiðum stjórnarinnar.
Stjórnin er nú að vinna að tiilög-
um um róttækar breytingar á skipu-
lagi atvinnugreinarinnar, m.a. verði
fiskverð látið fylgja breytingum á
markaðsverði í meiri mæli en áður.
Jafnframt ákveði stjórnvöld verð-
bætur sem hráefnissjóðurinn hefur
greitt til að tryggja sjómönnum og
útgerðarmönnum lágmarksverð á
ýmsum fisktegundum.
Fulltrúaþing Sovétríkjanna kýs Gorbatsjov í embætti forseta:
Flokkshollur meirihluti
leyfír ekki mótframboð
Sovétieiðtoginn verst fimlega harðri gagnrýni
Moskvu. Reuter og Daily Telegraph.
Fulltrúaþing Sovétríkjanna
valdi Míkhaíl S. Gorbatsjov, aðal-
ritara sovéska kommúnistaflokks-
ins, í nýtt embætti forseta í gær
eins og búist hafði verið við. Hinni
nýju vegsemd fylgja mun meiri
Sprengingin í orrustuskipinu Iowa:
Athygli beinist að ástar-
sambandi tveggja sjóliða
Washington. Reuter.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
NBC heldur því fram að opinber
rannsóknarnefnd telji mögulegt
að ástarsamband tveggja sjóliða
hafi átt þátt í sprengingunni í
orrustuskipinu Iowa i síðasta
mánuði. 47 manns létu lífið er
fallbyssuturn sprakk í loft upp.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur hvorki viljað neita né
játa fréttinni en segir ljóst að glæp-
samlegt athæfi komi þarna við
sögu og sprengingin sé ekki af
völdum gallaðs púðurs eins og talið
var.
NBC segir að hugsanlegt sé tal-
ið að Clayton Hartwig, 24 ára gam-
all fallbyssuliði er var eitt fórnar-
lambanna, hafi framið sjálfsvíg eða
verið myrtur. Hann er sagður hafa
átt í ástarsambandi við mann úr
áhöfninni en snurða hafi hlaupið á
þráðinn fyrir hálfu ári þegar elsk-
huginn kvæntist. Ættingjar Hart-
wigs segja hann hafa tekið það
mjög nærri sér. Elskhuginn var
eini erfingi 100 þúsund Banda-
ríkjadala (5,7 milljóna ísl.kr.)
líftryggingar Hartwigs en neitar
öllum sakargiftum.
völd en forseti Sovétríkjanna hef-
ur haft hingað til en því embætti
heftir Gorbatsjov einmitt gegnt.
Gorbatsjov hlaut stuðning 2.123
þingmanna í leynilegri kosningu
en 87 voru á móti. Komið höfðu
fram tillögur um tvo aðra fram-
bjóðendur. Margir stungu upp á
Borís Jeltsín, fyrrverandi flokks-
formanni í Moskvu og áköfum
umbótasinna, en hann gaf ekki
kost á sér. Það gerði Alexander
Obelenskíj, 46 ára gamall verk-
fræðingur frá Múrmansk, hins
vegar en þingið hafhaði framboði
hans í atkvæðagreiðslu með 1.415
atkvæðum gegn 689. Þykir sú nið-
urstaða gefa nokkra hugmynd um
styrkleikahlutföll róttækra um-
bótasinna og flokkshollra þing-
manna.
Andrei Sakharov, eðlisfræðingur
og einn kunnasti andófsmaður í Sov-
étríkjunum, hélt fyrstu þingræðuna
eftir að formlegri setningu var lokið
og krafðist þess að fulltrúaþingið
fengi aukin völd. Hugmynd stjórn-
valda er sú að þingið kjósi;500 manna
Æðsta ráð úr sínum hópi til að ann-
ast löggjöf.
Þinghaldið einkenndist af opin-
skárri umræðu áður en gengið var
til kosninga um nýjan forseta og
mátti Gorbatsjov sitja undir þungu
ámæli. „Getur það talist rétt að beita
hernum til að refsa eigin þjóð?“
spurði þingkona frá Eistlandi. „Er
það rétt að þér hafi verið reist sveita-
setur á Krímskaga?" spurði annar
þingmaður frá Leníngrad og sá þriðji
líkti leiðtoganum við Napóleon „sem
tók of mikið mark á viðhlæjendum
og eiginkonu sinni“. Margir við-
staddra tóku andköf þegar slíkar og
þvílíkar athugsemdir komu fram sem
kostað hefðu menn fangabúðavist
fyrir nokkrum árum. Eftir tveggja
stunda heitar umræður þar sem
margir höfðu snúist Gorbatsjov til
varnar tók hann sjálfur til máls og
viðurkenndi að við framkvæmd um-
bótastefnunnar hefðu mörg mistök
verið gerð sem koma hefði mátt í
veg fyrir. Síðan bætti hann því við
að það sem væri að gerast í þingsaln-
um sýndi að perestrojka sækti í sig
veðrið og hlaut drynjandi lófatak að
launum.
Sjá „Róttækir . . “ á bls. 20,