Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Skeiðarvogur 99 Opið hús í dag á milli kl. 15 og 17 Fallegt raðhús á þremur hæðum, alls 163,4 fm. Fjögur svefn- herbergi og hægt að fjölga. Stór og björt stofa. Eldhús með nýlegri innréttingu. Möguleiki á að útbúa neðstu hæð sem aukaíbúð ef áhugi er á því. Haraldur og Esther taka á móti gestum. V. 39,9 millj. 7535 ● 365 HF. hefur keypt allt hlutafé Innn hf. af Fons Eignarhaldsfélagi hf. Innn hf. ráðgjafa- og hugbúnaðarhús var stofnað 1997 og er eitt elsta fyr- irtækið á Íslandi á sínu sviði, að því er segir í tilkynningu. Innn hefur frá upphafi sérhæft sig í veflausnum með þróun vefumsjónarkerfisins LiSA. Velta ársins 2006 nam um 132 milljónum króna og EBITDA nam 27 milljónum króna. Áætlanir fyrir árið 2007 gera ráð fyrir að velta Innn hf. verði um 180 milljónir króna og EBITDA um 40 m.kr. Nettó vaxtaber- andi skuldir félagsins eru engar. 365 kaupir Innn + -  .     -/012  ")   $!!% 5  "                  !"  #   $ ## %   "&     ' #  ( ) # * + , - . /+ ' #  & -' # , -  0   0  "    1   2$3 4 "54'  6  4    2 0  )7  " +   8  -   (-+  8  -   9: 5  ;0< $ =>   =>+++ 3 %3  ? %3  6    14 * + 13 -   5   7 2 8  ( ($  -  ( 35     ("                                                                                     (- 2 3#  - + ='3 @ # - +A .  1                                              2 2 2    2 2                       2 2   2 2                      2    2 2   ?3#  @ #B =( C  +   "5%- 3#          2 2 2   2 2   1@3  3# 3 9 - D 1E       F F "=1) G<     F F HH  ;0< 1 ##      F F ;0< . % 9##       F F 8H)< GI J    F F ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísitalan lækkaði um 0,46% og 7.575 stig við lokun markaða. Bréf Atorku hækkuðu um 1,79%, bréf Atlantic Petrolium um 1,56% og bréf Tryggingamiðstöðvarinnar um 1,08%. Bréf Straums-Burðaráss lækkuðu mest, eða um 3,32% og bréf Mosaic um 1,82%. Hlutabréf lækka ● STJÓRN Íbúða- lánasjóðs hefur hækkað útláns- vexti af íbúða- lánum sjóðsins. Vextir af útlánum hækka úr 4,95% í 5,00%. Vextir af lánum sem eru með sérstöku uppgreiðsluálagi hækka hins vegar úr 4,70% í 4,75%. Þetta var ákveðið í kjölfar niðurstaðna úr útboði Íbúðalána- sjóðs, sem haldið var í fyrradag. Vegin ávöxtunarkrafa úr útboðinu án þóknunar var 4,35% og 4,36% með þóknun. Útlánsvextir eru byggðir á ávöxtunarkröfunni og vegnum fjármagnskostnaði upp- greiðslna ÍLS-veðbréfa og er nið- urstaðan 4,31%. Við ákvörðun á út- lánavöxtum leggst síðan 0,25% vaxtaálag vegna rekstrar Íbúðalána- sjóðs, 0,20% álag vegna varasjóðs og 0,25% vegna uppgreiðslu- áhættu, eða samtals 0,70%. Því er niðurstaðan 5,00% vextir af al- mennum útlánum en 0,25 pró- sentustigum lægri vextir af lánum sem eru ekki með uppgreiðslu- áhættunni. ÍLS hækkar vexti ● TAP Á rekstri Flögu Group eftir skatta árið 2006 nam 690 þúsund dölum (um 46,5 milljónir króna á nú- virði) en var 1,4 milljónir dala árið 2005. Tekjur ársins voru 32,5 milljónir dala en voru 34,7 milljónir dala á sama tímabili 2005, sem er lækkun upp á 2,2 milljónir dala eða 7%. Fram kemur í tilkynningu frá félag- inu, að það hafi gengið gegnum um- fangsmiklar skipulagsbreytingar á síðasta ári og áfram sé unnið að endurskipulagningu dreifikerfis fé- lagsins með nýjum dreifingaraðilum á Indlandi og í Evrópu og áframhald- andi viðræðum við aðra samstarfs- aðila um allan heim. Tap hjá Flögu Group HREINAR eignir feðganna Björg- ólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar eru metnar á 4,7 milljarða dollara, eða um 316 milljarða króna, samkvæmt banda- ríska tímaritinu Forbes, sem birt hefur nýjan lista yfir ríkustu menn heims. Björgólfur Thor lendir í 249. sæti á listanum með hreinar eignir upp á 3,5 milljarða dollara, eða um 235 milljarða króna. Fer hann upp um 101 sæti á listanum milli ára en í fyrra voru hreinar eignir Björgólfs Thors metnar á 2,2 milljarða doll- ara, jafnvirði um 148 milljarða króna. Björgólfur eldri er nýr á lista Forbes en þangað komast þeir ein- staklingar sem eiga meira en millj- arð dollara í hreinni eign. Hann er í 799. sæti á listanum en eignir hans eru metnar á 1,2 milljarða dollara, eða um 81 milljarð íslenskra króna. Á toppi Forbes-listans tróna fé- lagararnir Bill Gates og Warren Buffett, Gates með 56 milljarða doll- ara eignir og Buffett 52 milljarða dollara. Af öðrum nöfnum má nefna að Ingvar Kamprad í Ikea er í 4. sæti, Roman Abromovich í því sex- tánda, Google-stofnendur, þeir Larry Page og Sergei Brin, í 26. og Rubert Murdoch í 73. sæti. Björgólfur Thor er rétt fyrir ofan kappa eins og knattspyrnumanninn Freddy Ljungberg, kvikmynda- leikstjórann Steven Spielberg og Donald Trump. Björgólfsfeðgar með 316 milljarða hreina eign Morgunblaðið/Kristinn PENNINN hefur fest kaup á finnska fyrirtækinu Tamore, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á skrifstofuvörum. Í fréttatilkynningu segir að kaupin séu liður í sókn á mörkuðum við Eystrasalt og í Skandinavíu. Velta Tamore var um 33 milljónir evra á síðasta ári, eða rúmir þrír milljarðar íslenskra króna. Stofnandi Tamore, Erkki Mattila, mun láta af starfi forstjóra fyrirtækisins en verður nýjum eig- endum til ráðgjafar næstu mánuði. „Okkur hefur gengið vel við Eystrasalt og það var tímabært að taka næsta skref. Að vel athuguðu máli sáum við að kaup á Tamore var sniðugasta leiðin til að komast inn á finnska markaðinn og halda áfram að vaxa á þessu svæði,“ segir Krist- inn Vilbergsson, forstjóri Pennans. Hann bætir við að með kaupunum skapist enn sterkari samningsstaða við alþjóðlega birgja á sviði skrif- stofu- og rekstrarvöru, sem gagnist jafnt Pennanum sem dótturfélögum hans. Fjárfestir í Finnlandi Penninn sækir inn á finnska mark- aðinn með kaupum á Tamore Í HNOTSKURN » Hjá Tamore starfa um 100manns, en fyrirtækið býð- ur til sölu um 6.500 vöruliði frá um 280 alþjóðlegum birgj- um. » Þar að auki selur fyrir-tækið skrifstöfuvörur und- ir eigin vörumerki, Talex. Gengið frá samningum Kristinn Vilbergsson, forstjóri Pennans, og Erkki Mattila, stofnandi Tamore, handsala kaup Pennans á finnska fyrirtækinu. VIÐSKIPTATÍMARITIÐ CNBC European Business hefur útnefnt ís- lenska fyrirtækið Industria sem eitt af fimmtíu framsæknustu fyrirtækj- um Evrópu. Kemur þetta fram í út- tekt sem birt er í marshefti tímarits- ins. Í umsögn dómnefndar er Industria sagt geta reynst eitt mikilvægasta fyrirtækið í samruna sjónvarps og stafrænna miðla í Evrópu, og hlaut fyrirtækið útnefningu í flokki fram- sæknustu tæknifyrirtækja ásamt Skype Technologies, Tiscali, Aresa og Icera. Umsjón með matinu hafði breska ráðgjafarfyrirtækið PRTM, en meðal þeirra þátta sem litið var til við matið var umsögn 60 annarra fyr- irtækja víðs vegar um álfuna. Kom þægilega á óvart Í umsögn tímaritsins segir meðal annars að metnað Industria megi sjá í staðsetningu skrifstofa þess, í Bret- landi, Írlandi, Búlgaríu og Kína. „Þetta íslenska fyrirtæki sérhæfir sig í hugbúnaði til tengingar breiðbands- neta og þráðlausra neta og lausnir þess fyrir stafrænt sjónvarp og aðra þjónustu – sem ganga undir nafninu Zignal – hafa vakið mikla eftirtekt.“ Guðjón Már Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Industria, segir viður- kenninguna hafa komið þægilega á óvart. „Það er ánægjulegt að sjá að heildarsýn Industria á samruna af- þreyingar- og fjarskiptageirans vek- ur þá athygli sem raun ber vitni í út- tekt breska ráðgjafarfyrirtækisins.“ Zignal-hugbúnaðurinn hefur verið á markaði í á annað ár. Industria útnefnt fyrir framsækni Morgunblaðið/Golli Glaður Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri Industria. Vinnur að samruna sjónvarps og staf- rænna miðla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.