Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 27
21
er sagt, hann sé fæddur 1777. Hann var vígðnr 1799
til Klausturhóla í Áruessýslu. 1806 íékk hann Mos-
fell í sömu sýslu, 1817 Stóruvelli í Rangárvallasýslu,
1836 Saurbæjarþing í Dalasýslu og 1843 Stafholt í
Mýrasýslu, íékk lausn frá embsetti 1847 og dó 13.
Júlí 1856, 85 ára að aldri, eptir 48 ára prestsþjónustu.
I Þjóðólfi er sagt, að hann hafi verið „stakur ráð-
vendnismaður og ástsæll, fjör- og hraustmenni, en
einginn sérlegur vísindamaður11. Þetta mun satt vera,
og má bæta því við, að eg heyrði fólk segja, sem til
þekti, að hann hafi verið svo léttlyndur, að ekkert
mótdrægt hefði beygt hann; hefði þó verið mæðumað-
ur mestan hluta æfi sinnar, en hvað það mótlæti helzt
var, er mér ekki kunnugt, og yfir höfuð er eg ófróð-
ur um heimilislíf hans, nema eg heyrði sagt, að fjár-
kagurinn hefði optast verið þraungur.
Síra Eggert fékst, að sagt er, talsvert við lækning-
ar með góðri hepni, var talinn snarmenni mikið og
gliminn, aaungmaður og nafntogaður hesta- og reið-
maður, og hafði optast átt ágæta hesta. Þegar síra
Eggert var prestur á Stóruvöllum, þá var kveðið um
hann og reiðhest hans, er Þokki hét:
Lipurt Þokka liðkar sá
leika vanur sköllum,
gelur haninn glaður frá
góðu Stóruvöllum.
Ekki hafði honum ætíð verið ljúft að lána hesta
sína, og er ein sagan um það þessi:
Þegar Skúli Thorarensen kom frá Höfn, að afloknu
námi við háskólann, hitti hann síra Eggert í Reykja-
vík, sem var þar staddur, og eptir venju vel hestaður.
Bað Skúli móðurbróður sinn að lána sér hest austur í
Eljótshlíð, þar sem þeir áttu samleið austur yfir Þjórsá,
þvi að þá var síra Eggert á Stóruvöllum. Síra Eggert
taldist undan að lána hest, Hugsaði Skúli sér þá að