Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 330
322
l>etta sama haust fæddiat honum dóttir, hét Sigríður.
Ljósmóðir hennar var madama Guðrúu Halldórsdóttir á
.Þingvöllum, og var hún víst mánuð á Leirá, áður
barnið fæddist. Tók hann þá barnfóstru ekkjuna Sig-
ríði Vigfúsdóttur, áður gipta Pétri vefara Kolbeins-
syni, og var þeirra sonur Vigfús með tréfótinD, seinna
i Keykjavik. — JÞennan vetur tók Stephensen til lær-
dómsiðkana bræðurna mága sína; átti Stefán að læra
reikning, þvi honum ætlaði stiptamtmaðurinn að veita
Stapaumboð, eptir sýslumann Jón Arnórsson, þá hon-
um var vikið írá vegna skulda. Hafði Stefán verið 2
vetur á Innrahólmi, en litið numið, því hann var mjög
tornæmur, en átti nú að læra til hlítar, eu bróðir hans
Jónas átti að menntast, bæði í lærdómi og siðferði, því
hann ætlaði að sigla til háskólans vorið eptir1 2). Sjálf-
ur var Stephensen i miklum önnum með að fala vinnu-
fólk og búa undir sér til hagnaðar, því hann ætlaði
að stækka búið og taka við allri jörðinni um vorið.
Einu sinni sem optar reið móðir min að Leirá á rúm-
helgum degi; voru þau góðir vinir, því hann mundi
til hennar frá barndómi, þá hún var hjá afa hans á
Leirás), og sagði hann, að hún hefði opt borið sig-
Hún reið þangað, sem áður er sagt, fann hún hann
úti, og íór hann með hana inn. Hún lét mig ríða með
sér, og átti eg að gæta hestanna, og var eg á hlað-
1) Jónas Scheving var útskrifaður af Geir Vidalín 1790*
en óvíst er um, livort Stefán bróðir hans fékk stúdents-
vottorð, en hafi það verið, hefur það verið hjá Hannesi
biskupi.
2) Með þvi að M. St. er fæddur síðast á árinu 1762, en
Þórdís mun hafa farið frá Leirá til búskapar um 1763, er
nokkuð tæpt, að M. hafi munuð eptir henni þar, en veri
getur, að hún hafi verið eitthvað á Leirá við og við, eða
komið þar opt, þangað til amtmaður fluttist til Bessastaða
1766, og haldið þá á Manga litla.