Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 118
112
Prá Hvitanesi fér Jón að Folafæti, og þaðan í Bol-
ungarvik á Hornströndum með Jónatan syni sinum,
er þá flutti norður þangað, og verður þess síðar getið;
þar var Jón ekki nema eitt ár, en fórþá að Efri-Saur-
um í Alftafirði og var þar eitt ár; fór svo að Fæti til
Þorvalds í Kolakoti, en svo í lieimabænum þar, á
veitum þeirra Einars og Jóninu dóttur sinnar; svo var
liann i svouefndum Eótartröðum; þaðan fór Jón að
Kolbeinseyri, svo út í Álptafjörð, en þaðan fóru þau
hjón aftur suður í Saurbæ. og voru þar þá 16 ár.
Það er sagt, að þegar Jón fór þá suður, hafi hann
sagt, að þá vildi hann helst hafa lokið veru sinni við
Djúp, þvi vera sín þar væri orðin ærið örlagarík, enda
voru þá flestir fyrri vinir hans þar fyrir löngu horfuir,
og mun Ásgeir Magnússon hreppstjóri á Kleifum hafa
verið með þeim síðustu, er dó 1878.
Alt af voru þau Jón og kona hans í kaupavinnu á
sumrum, oftast í Stórholti hjá Jakobinu Jónsdóttur,
prests Halldórssonar, ekkju séra Jóns Thórarensen;
þar næst voru þau á Staðarhóli, en síðast á Márs-
keldu um 3 ár. Eftir það buðu börn þeirra þeim
foreldrum sinum að koma vestur til sín, einkum Jón-
ina, en þá stóð ekki hagur þeirra hjóna Jóninu og
Einars svo, að þau gætu veitt þeim húsnæðí; en þó
þáði Jón boðið, sökum þess, að þá var hann og kona
hans farin að burðum og heilsu, og Ingibjörg þó enn
meira að heilsu; treystu þau sér ekki lengur að ganga
að vinnu. En þó Jón tæki þessu boði var það með
kviða. Honum þótti börn sín ekki svo sjálfstæð að
efnurn, að þau gætu ábyrgst boðið, enda leið ekki á
laungu, þar til hagur Kleifahjóna, Einars og Jónínu,
breyttist mjög. Björn veitti þá foreldrum sínum skýli,
þegar þau komu vestur; fóru þau þá til hans, og veitti
hann þeim alt, er hann framast mátti, og langt yfir
efni fram. Sagt er, að Jón hafi kunnað mjög vel við