Blanda - 01.01.1923, Blaðsíða 191
185
holtsskóla þá fyrir 3 árum1), 22 ára gamall, lágur
maður vexti, fölleitur, nokkuð óstyrkur til burða og
keilsu, en næmur vel og hvass i skilningi, bæði til
lærdóms og skáldskapar, og góður skrifari. Hann
hafði þá um veturinn verið þénari Eggerts, og fór
nú með honum. Valgerður Jónsdóttir, 17 ára
gömul þjónustustúlka frú Ingibjargar, fór og með, vel
siðað ungmenni; hún var svo frumvaxta, að á þeim
aldri jafnaðist hún að vexti við flestar rosknarj konur,
°g nærri því var hún jafn gjörfuleg í þeim handiðn-
nm, sem hún hafði numið. Eormaðurinn Gissur Pálsson
fór og á skip með Eggert og þessir af fyrrnefndum
liðsmönnum: Guðmundur Gunnlaugsson, Guðmundur
Jónsson, Jón Þorsteinsson og Jón Guðmundsson.
Hæði skipin lögðu svo frá landi í Keflavík um kveld-
^ð, en logn og hitasólskin hafði verið allan daginn. Marg-
lr óskuðu byrjar. Ilóldu skipin bæði fyrir framan Rauða-
sand og suður í Skor. Það minna skipið gekk miklu hrað-
sra,hversformaður JónArason var, en stýriþað,sem fylgdi
þvi og keipar þess þótti Jóni lítt nýtt. Lenti hann í Skor
um elding nætur; kom þá brátt hið stærra skipið, og
lenti þar líka. Plestallir fóru þar á land, líka kon-
urnar. Eggert tók þar nokkrar bur(k)nirætur
hlómgvaðar og lét bera á skip handa konuuum að
þefa af, ef þeim yrði óglatt á sjónum. Jón Arason
gekk á tal við hann, og afsagði að hafa þann útbún-
lng, sem fylgdi skipinu því, er hann átti með að fara,
en Eggert sagði það skyldi bætt verða, sem um þætti
verða. Um það mund, er þeir lentu i Skor, sáu menn
veðrabrigði í lopti, dró upp myrkva og mistur úr
Gilsfjarðarbotni og Breiðafjarðardölum, líka var þá
farið að hvessa. Jón Arason leit til lopts og mælti:
»Nú er uppgangsveður í loptinu, og væri betra að
1) Ófeigur var útskrifaður 1763, og var 25 ára, er hann
fórst.