Tíminn - 20.06.1952, Page 3
135. blaS.
TIMINN, föstudag'inn 20. júní 1952.
3.
Enn gerast stórir atburðir á [
sviði frjálsíþrótta í heiminum;
og mjög glæsilegur árangur hef I
ir náðst víðast hvar. Einkum j
eru það þó Þjóöverjar og Banda :
ríkjamenn, sem virðast skara;
framúr. í síöustu yfirlitsgrein í
fyrri viku var lítið getið um
árangur í Bandaríkjunum og er
því bezt að byrja þar núna:
Bandaríkin.
Bandaríkjamenn hafa oftast
skarað mjög framúr í sprett-
hlaupunum og hinum teknisku
greinum og það sama virðist
ætla að verða uppi á teningn-
um mú. Sérsl^akt úrtökumót er
háð í Bandaríkjunum fyrir Ólym
píuleikana, sem algerlega er far
ið eftir. Þetta mót hefir enn
ekki verið háð, svo að það þarf
ekki að vera, að þeir menn, sem
hafa náð beztum árangri þar
að undanförnu, komi til með að
keppa á Ólympíuleikunum. Við
höfum gott dæmi frá úrtöku-
mótinu 1948, er Harrison Dillard,
sem þá var methafi í 110 m.
grindahlaupi og skaraði framúr,
misheppnaðist í mótinu og varð
ekki valinn í sína „special“grein,
en komst aftur á móti í 100 m.
hlaupið (varð þriðji á mótinu)
og sigraði í því á Ólympíuleik-
unum með glæsileik.
Árangurinn nú.
James Fuchs, methafinn í
kúluvarpi, er enn ósigrandi í
þeirri grein. Litlu munaði ný-
lega að hanm bætti heimsmet
sitt, varpaði 17,81 m., svo að þar
vantaði aðeins 14 cm. upp á.
Fuchs er einn af fáum, sem
alveg virðist öruggur með að
sigra í grein sinni í Helsingfors.
Á sama móti stökk Don Laz 4,40
m. í stangarstökki, Miller kast-
áði spjóti 72,74, Andersson hljóp
120 yards grindahlaup (sama og
Fyrir Ólympíuleikana
FEftclas Iseflr varpað kiílu 17.81 — Brown síokkið 8.01 í
laiagstökki — Sekade veTðuf Zateisek og Sielff crfiSur keppinai&tur
110 m.) á 13,9 sek., Mal. White-
field hljóp 880 yards á 1:49,6
mín. og Andy Stanfield (sem
mynd birtist af í síðasta yfirliti)
hljóp 220 yards á 20,4 sek., að-
eins 2/10 frá heimsmetinu. Á
öðru móti tókst svertingjanum
George Brown að stökkva 8.01
m. í langstökki, og þar kom einn
ig fram nýr maður, Ollie Matson,
sem hljóp 440 yards á 46,9 sek.,
, sem er bezti tími þar í landi í
! ár. (Rhoden hefir hlaupið á 47,0
og McKenley á 47,7 sek., en þeir
munu keppa fyrir Jamaika á
næstu leikum, og eins Wint og
Laing, ósigrandi sveit í 4x400 m.
boðhlaupi?, þar sem ekki er
leyfilegt að keppa nema fyrir
eina og sömu þjóðina á Ólym-
píuleikum, og 1948 kepptu þessir
rnenn fyrir Jamaika). í kringlu
kasti hefir náðst mjög góður
árangur. Þar eiga þeir sterkt
tríó, Fortune Gordien, Dick
Doyle og Sim Iness, sem eiga
jafnan árangur um og yfir 55 m.
Já, meira að segja hefir Iness
kastað 56,14 m. Það verður erfitt
að eiga við Bandaríkjamennina
á þessum Ólympíuleikum eins og
þeim fyrri.
Þýzkaland.
En nú skulum við snúa okkar
kvæði í kross og líta á Evrópu,
og enn eru Þjóðverjar efstir á
blaði. Hinn ágæti langhlaupari
Herbert Schade hljóp nýlega
sína fyrstu 5000 m. í ár, og náði
undraverðum árangri 14:06,6
mín., og bætti þýzka metið sitt
á vegalengdinni um 9 sek. Skort
17
11 HtS
ií’-
Tjekkinn Zatopek fær erfið-
ari keppinauta í löngu hlaup-
unum, en reiknað hafði verið
með. . . í
ir hann nú aðeins annað eins
á heimsmet Gunders Hágg. Það
hefir verið álit sérfræðinga er-
lendis að keppnin í löngu hlaup
unurn muni standa á milli Reiff
og Zatopek, en þessi árangur
Schade setur áreiðanlega scrik
í reikning þeirra. Schade er tví-
mælalaust maður til að gefa hin
um vélræna Zatopek harða
keppni, og jafnvel maður til að
sigra hann, ekki aðeins í 5000 m.
heldur einnig í 10000 m.
Af öðrurn árangri frá Þýzka
landi má nefna, aö Ulzheimer
hefir hlaupið 800 m. á 1:51,2
min. og Karl Fr. Haas 400 m. á
47,7 sek. Þýzkar konur sigruðu
hollenzkar í frjálsíþróttakeppni
með 59—32 stigum og þýzka sveit
in í 4x100 m. boöhlaupi, náði
47,2 sek.
Frjálsíþróttamótið
17. júní
Þrátt fyrir að tíminn til Ólym
píuleikana styttist óðum, virðist
enn ríkja sama kyrrstaðan hjá
frjálsíþróttamönnum okkar. Á
17. júní-mótinu voru aðeins ör-
fáir ljósir punktar, en yfirleitt
var mótið frekar lélegt og varla
keppni í einni einustu grein. Þaö,
sem hæst bar, var 100 m. hlaup
Ásmundar Bjarnasonar 10,5
sek., en meðvindur var innan
! við 3 stig. Fyrir þetta afrek hlaut
Ásmundur konungsbikarinn fyr
ir bezta afrek mótsins. Þá má
geta þess, að Jngi Þorsteinsson
hljóp 110 m. grindahlaup, einn
og samkeppnislaust, á mjög góð
um tíma 14,8 sek., sem er bezti
árangur hans í þeirri grein. Guð
mundur Hermannsson frá ísa-
firði, sem nú keppti í fyrsta
skipti í kúluvarpi í Reykjavík,
sigraði með yfirburðum, varpaði
14,65 m. í sleggjukasti var keppn
ín mjög hörð og var það eina
grein mótsins, þar sem um ein-
hverja keppni var að ræða.
Gunnlaugur Iúgason átti cgild
köst, sem voru yfir metinu. Það
er aðeins tímaspursmál, hvenær
nýtt met verður sett í sleggju--
kasti, en hver verður til að setja
það, er erfiðara að spá um.
Helztu úrslit í mótinu urði
þessi:
100 m. hlaup:
Ásm. Bjarnason KR 10,b
Pétur Sigurðsson KR 11,(
Guðm. Guðjónsson Á 11,8
Stangarstökk:
Torfi Bryngeirsson KR 3,7L
Kolb. Kristinsson Self. ,3,6(
Jóh. Sigmundsson 3,4.7
Kúluvarp:
Guðm. Hermannsson ísaf. 14,6i
Friðrik Guðmundsson KR 14,08
Örn Clausen ÍR 12,91
400 m. hlaup:
Þórir Þorsteinsson Á. 53,8
Svavar Markússon KR 53,(
Böðvar Pálsson Keflavík 54,8
1500 m. hlaup:
Kristján Jóhannsson ÍR 4:14,4
Eiríkur Haraldsson Á. 4.:27,i
100 m. hlaup konur:
Margrét Hallgrímsd. UMFR 12,',
Sleggjukast:
Vilhj. Guðmundss. KR 46,1''
Gunnl. Ingason Á. 46,0i
Sigurjón Ingason Á. 43.64:
Langstökk:
Sig. Friðfinnsson FH 6,98
Örn Clausen ÍR 6,6t:
Torfi Bryngeirsson KR 6,6V
4x100 m. boðhlaup:
Sveit KR 44,7
1
fó
Willys Sedan Delivery
með drifi á öllum hjólum, er bifreið,
sem hentar íslenzkum staðháttum
ILJk
i r-.v' i Á
II 1
Willys Sedan Delivery
er tilvalin bifreið fyrir þá, sem ferð-
ast um landið með mikinn farangur
- ALLT Á SAMA STAÐ -
WILLYS SENDIFERÐABIFREIÐ
væri t. d. mjög hentug fyrir Iækna út á Iandi, sem
notað gætu hana til sjúkraflutninga í viðlögum, auk
þess að vera hin þægilegasta einkabifreið
%
15 »
t 31% 1
-15-
fi r=t
-— 1« 4
FJQRHJÚLA-DRIF
6 gírar áfram 2 aftur á bak, ásamt hinni
krafimiklu vél, gera yður alla vegi færa
HURRÍCANE-VÉLÍN
cr 72 hestöfl og knýr því bílinn
léttiíega
Stærðir allar gefnar upp í tommum
ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR GEFA EINKAUMBOÐSMENN WILLYS OVERLANÐ Á ÍSLANDI:
Jle^iíi Viíhjáinóáony oCauacwea 118