Tíminn - 13.11.1954, Síða 2
3
TÍMINN, laugardaginn 13. nóvember 1954,
257. blað.
i , n
Hinn ungi konungur Belgíú hefir
ekki alltaf átt sjö dagana sæla
Þöð var árið 1930. f Belgíu voru mikil hátíðahöld í tilefni
liess, að landið hafði þá verið sjálfstætt konungsríki í 100 ár.
Um gervallt landið ómuðu hinir þjóðlegu söngvar, sögur
Yoru sagðar ög bæirnir skreyttir í fegursta skrúða í tilefni
hátíðahaldanna. Og í Antwerpen fór fram glæsileg sýning
til að minnast afmælisins. Allir Belgíumenn voru í hátíða-
skapi. Þegar gleðskapurinn stóð sem hæst kom tilkynningin
um fæðingu ríkisarfans, og í sama bili hljómuðu hringingar
kirkjuklukkna og drunur heiðursskota um alla Belgíu og fólk
ið réði sér ekki fyrir fögnuði. Ákjósanlegri stnd hefði ungi
prinsinn ekki getað fengið fyrir komu sína í þennan heim.
En þetta andrúmsloft gleðinnar
átti ekki eftir að umlykja Baudouin
prins til langframa. Hann var ekki
nema 4 ára, þegar móðir hans, hin
glæsilega drottning Astrid, lézt, og
eftir það ólst hann upp móðurlaus
ásamt systkinum sínum hjá föður
þeirra, Lepold konungi, í Laeken
höllinni.
Hættulegur flótti.
Hinn ungi prins stundaði nám
ásamt nokkrum jafnöldrum sinum
hjá einkakennurum. Hann hafði
mikinn áhuga fyrir íþróttum, gerð
íst skáti og riddari. En ekki hafði
hann náð 10 ára aldri, þegar örlaga
nornirnar heimsækja hann á ný.
Þann 10. maí 1940 rigndi þýzkum
sprengjum yfir Briissel, og konungs
börnin verða að halda af stað eftir
hættulegum leiðum, og án föður
síns, til þess að flýja sprengjuregnið.
Þau dvelja um skeið í Frakklandi,
og þangað berast þeim fréttirnar
um uppgjöf belgíska hersins. Og
flóttinn heldur áfram til San Se-
bastian á Spáni, en þar dvelja þau
aðeins skamma hríð, þar til faðir
þeirra sendir boð til þeirra um að
hverfa aftur heim til Belgíu. Þegar
þau koma aftur til Laeken hallar-
innar er faðir þeirra fangi og þýzkir
hermenn halda strangan vörð um
höllina.
Um þessar mundir er ástandið í
Briissel svo varhugavert, að Leopold
konungur ákveður enn á ný að
koma börnum sínum undan
sprengjuregninu og senda þau í
burtu. Prinsessan er send í klaust
urskóla, en prinsarnir tveir fara
ásamt kennurum sínum til Ciergn-
on hallarinnar, þar sem þeir halda
námsiðkunum áfram af kappi,
stunda íþróttir og njóta útiverunn
ar í yndislegu umhverfi. Þýzkir her
menn halda einnig vörð um þessa
höll, en prinsarnir fá þó leyfi til
að hlusta á útvarp frá London, sem
þeim þykir mikill fengur í og einnig
mega þeir heimsækja föður sinn
við og við, en hann má ekki koma
til þeirra.
Börnin fá nýja mömmu.
Þarna dvelur Baudouin ásamt
bróður sínum í hálft annað ár og
með ástundun lýkur hann þar
fyrsta áfanga námsferils síns. En
þá eru systkinin kölluð heim á ný,
og nú hafa þau loks eignazt heimili
í BrUssel, því að faðir þeirra hefir
kvænzt aftur og börnin láta það
verða sitt fyrsta verk að biðja leyfis
ÚtvarpLð
til að kalla de Réthy prinsessu
mömmu. Og ekki líður á löngu bar
til hálfbróðir þeirra, Alexander
prins, kemur í heiminn.
Námið heldur áfram, Baudouin
er fermdur, og síðan fer hann smátt
og smátt að taka að sér alls konar
skyldur. En í maí 1944 fara sprengj
urnar aftur að falla nálægt höll-
Systkinin Baudouin prins og
Josephine-Charlotte, prins-
essa að leik.
inni, og aftur eru börnin send til
Ciergnon hallarinnar.
S fangelsi.
Sama dag og herir Bandamanna
léðust inn í Normandí, gaf Himmler
út fyrirskipun um að handtaka
Leopold konung, og var það fram-
kvæmt daginn eftir, og konungur-
inn fluttur undir sterkum herverði
til ókunnugs aðsetursstaðar. Hann
fékk þó leyfi til að koma við í
Ciergnon, en til allrar óhamingju
höfðu börnin þá nýlega lagt af
stað til Briissel. Pékk konungurinn
að vita þar, að einnig hefði verið
fyrirskipað að handtaka de Réthy
prinsessu og börnin, en síðan var
haldið áfram með hann til
Hirschtein hallarinar við Elbu, sem
hafði verið breytt í nokkurs konar
virki.
De Réthy, prinsess'a neitaði harð
lega handtöku sinni og barnanna,
en hvorki stoðuðu bænir né hótan
ir, og þann 9. júní voru þau flutt
af stað áleiðis til þýzku landamær
anna undir gæzlu 200 þýzkra her-
manna. Þau voru kvödd með tárum
og söknuði, en það átti ekki eftir
að liggja fyrir Baudouin prins að
sjá ættland sitt aftur næstu G árin.
Eftir ferðalag í ótta og óvissu komu
þau loks til Hirschtein, og varð
fagnaðarfundur, er þau hittu þar
Leopold konung.
Undir lás 02 slá.
Hirschteln var umkrlngd háum
múrveggjum og gaddavírsgirðing-
um. 70 stormsveitarmenn héldu stöð
ugan vörð allt um kring, og nokkr
ir Gestapo menn höfðu svo auga
með því að þeir ræktu skyldur sín
ar. Leitarljós ljstu upp hvern krók
og kima eftir að skyggja tók. Það
var því ekkert sældarbrauð fyrir
konungsfjölskylduna að búa þarna
í hinum lélegu herbergjum, sem
Feðgarnir Leopold, fyrrv. Belgíukonungur, og Baudouin, nú-
verandi konungur, á skemmtiferð í austurrísku Ölpunum.
Ingibjörg Ingvars
frá Siglufirði. Er stödd í bænum. Við frá 4—8,30 að
Engihlíð 8 (við Miklubraut).
hún fékk til umráða. Þýzkur ofursti,
sem tók að sér að biðja Hitler um
betri aðbúnað til handa fjölskyld
unni, var umsvifalaust lækkaður í
tign og sendur til vígstöðvanna í
Rússlandi.
En konungsfjölskyldan var ákveð
in í að láta engan bilbug á sér
finna og missa ekki kjarkinn. Kon-
ungurinn og þeir fáu menn, er hann
hafði sér til aðstoðar, klæddust ein-
kennisbúningum sínum hvern dag.
Pangarnir snæddu saman og það
(Pramhald á 6. síðu).
c««S5*5«S«5SÍ«í«S«53í«55í«««SÍSS5«5iS««í»*5«S4«ÍS!SS!í«S!ÍSS9í#5Seí«SSai
S.K.T. Gömlu dansarnir
í Góðtemiilarahiisiim í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Carl Billich
i|; Aðgöngumiðasala kl. 6—7 og eftir kl. 8. — Sími 3355
Ryö er mesti óvinur
bif reiðaeigenda
4ra manna fólksbifreið með ryðfrírri yfirbyggingu.
LEYFISHAFAR:
ÚtvegMm VOLVO fólksbifreiðir með fyrstu ferð.
Leitið wpplýsinga um
HJÁ
(YOLVS*
Sveinn Björnsson & Ásgeirsson
Símar 6175 — 3175.
Aðalf undur
ttvegsmaniiafélags Reykjavíkur
verður haldinn sunnudaginn 21. nóv. kl. 2 e.h. í fund-
arsal L.Í.Ú. í Hafnarhvoli.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Útvarplð í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 Óskalög sjúklinga.
18,0 Útvarpssaga barnanna.
18.30 Tómstundaþáttur barna og
unglinga.
20.30 „Glatt á Hjalla“. — Upplest-
ur, söngur og hljóðfæraleikur.
Sigfús Halldórsson tónskáld
sér um þennan dagskrárlið.
21,20 Upplestur: Ari Arnalds
um bæjarfógeti les
kafla úr nýrri bók sinni:
arsýn“. — Með lestrinum verð
ur flutt tónlist eftir Anton
Bruckner.
22,00 Préttir og .veðurfregnir
22,10 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.
ÍVAR HLÚJÁRN.
Saga eftir Walter Scott. Myndir eftir Peter Jackson 100