Tíminn - 02.06.1964, Síða 5
Hér sækir Skúli Hákonarson að marki Kofiavíkur. Kjartan markvörð-
ur var með á nótunum og varði skot frá honum.
Keflvíkingar erfið-
ir heim að sækja
Sigruðu Akurnesinga á sunnudag í 1. deildinni með 2-0
PJ—Keflavfk 1. júni
Aldrei hafa fleiri áhorfendur verið samankomnir á Njarðvíkurvellinum og s.l. sunnn-
dag, líklega um 2 þúsund talsins, þegar Keflvíkingar mættu Skagamönnum í 1. deildar
keppninni. Þegar leik lauk, voru það ánægðir áhorfendur, sem héldu heim, því heima-
menn höfðu krækt í tvö stig með 2:0 sigri. — Það var hæg vestan gola og 1. flokks knatt-
spyrnuveður, þegar dómarinn, Hannes Þ. Sigurðsson, blés til leiks á sunnudaginn, en
knattspyrnan var ekki að sama skapi góð, lítið um það, sem kalla mætti „toppknattspyrnu“
en mikið um ónákvæmar sendingar og leikmenn voru kyrrstæðir. Hér réði taugaspenna
greinilega ríkjum og hvorugu liðinu tókst nokkurn tíma að ná eins góðum samleik og efni
standa til.
Upphlaup fyrstu 20—30 mínút-
urnar einkenndust öll af tilviljun
um, en engu aS síður sköpuðust
stórar liættur uppi við bæði mörk
in. Lítum aðeins á minnisblaðið:
0 Á 15. mín. komst Karl Her-
mannsson, vinstri útherji
Keflavíkur í mjög gott færi,
en skaut yfir markið.
0 Á 21. mín. gaf Ríkliarður Jóns
son vel fyrir Keflavíkurmark
ið til bróður síns, Þórðar. —
Þarna var Þórður í góðri að-
stöðu, en hörkuskot hans hafn
aði í þverslá.
0 Á 25. mín. er Kcflavíkursókn
á dagskrá, sem endaði með
hættulegri þvögu við mark
Akraness. Á síðustu stundu
tókst hægri bakverði Akra-
ness að bjarga á línu.
Á 34. mín. kom svo loks
fyrsta mark leiksins. Karl
Hermannsson gaf vel fyrir
markið til Hólmberts, sem af-
greiddi knöttinn af markteig
fram hjá Helga Dan. 1:0.
0 Á 40. mín. var dæmd auka-
spyrna á Kjartan markvörð
Keflavíkur á vígateigslínu. —
Donni framkvæmdi spyrnuna
og spyrnti glæsilega að marki
hægra megin (nákvæm end-
urtekning á aukaspyrnum
hans frá leik Rvík—Akranes).
En Kjartan í markinu reikn-
aði knöttinn rétt út og tókst
að bjarga naumlega í horn.
0 Á 44. mín. bjargaði Helgi Dan.
naumicga með réttu úthlaupi,
er Jón Jóhannsson, miðhcrji
ÍBK, var kominn einn inn fyr-
ir og átti aðeins Helga eftir.
Þannig lauk sem sé fyrri hálf-
leik. Síðari hálfleikur var keim-
líkur þeim fyrri um flestar að-
gerðir. Þó náði Keflavík betur sam
an, sérstaklega þegar á leik leið.
Það eftirtektarverðasta var þetta:
0 A 4. mín. átti Eyleifur gott
skot á Keflavíkui-markið, en
knötturinn smaug yfir þver-
slá.
0 Á 22. mín. gerði Jón Leóson
stóra skyssu, sem næstum
liafði kostað Akranes mark.
En Einar Magnússon nýtti
ckki ekki sem skyldi þessi
mis-tök Jóns.
Á 32. mín. var svo gert út
um leikinn, þegar Jón Ólafur
spyrnti vel fyrir mark Akra-
ness til Einars Magnússonar,
sem skallaði viðstöðulaust 1
mark, 2:0.
Það sem eftir var leiksins höfðu
Keflvíkingar greinilega yfirburði
og hefðu átt að bæta mörkum við,
en þeir áttu upplögð tækifæri á
37. mín, 38. og 44. mín., en öll
runnu þau út í sandinn. Á þessum
síðustu mínútum gáfu Skagamenn
verulega eftir.
Þannig lauk þessum leik með
réttmætum sigri heimamanna, er
voru áberandi leikglaðari en Skaga
menn. Og jafnt er lið þeirra
sunnanmanna, því vart er hægt að
tala um, að einn sé öðrum betri.
Þó má segja, að Högni Gunn-
laugsson, miðvörður, sé öruggasti
maður liðsins. Högni hefur sýnt
skínandi lcik í undanförnum Ieikj
^ um og hér er vissulega maður, sem
landsliðsnefnd ætti að hafa í huga.
Annars var vörnin sterkari hluti
Framhald á bls. 6.
eftir Friðrik Ólafsson
M. Tal slapp aftur
7. umferS.
Evans—Portisch 0—1
Larsen—Berger 1—0
Ivkov—Lengyel 1—0
Tal—Foguelman 1—0
Vranesic—Reshevsky 0—1
Quinones—Benkö 1—0
Bronstein—Gligoric i/2—%
Stein—Pachman y2—Vz
Dárga—Perez y2—%
Tringov—Porath y2—Vz
Rosetto—Bilek i/2—Vz
Spassky—Smyslov biðskák
Með þessari umferð lýkur innby-ð
is „meistaramóti" sovézku . skák-
mannanna. Af 9 skákum, sem tefld
ar hafa verið, hefur 8 þegar lokið
með jafntefli og allt útlit er fyrir,
að þeirri síðustu (Spassky-Smyslov)
lykti einnig með jafntefli. Þetta gæti
gcfið ýmsum tilefni til að álykta, að
sovézku meistararnir hafi samvinnu
sín á milli, en annað held ég að
verði uppi á teningnum, þegar skák
irnar eru rannsakaðar. Hver einasta
þeirra er tefld af mikilli hörku og
sigurvilja og ekkert gefið eftir, fy/r
en í full'a hnefana. Hin tíðu jafn-
teflisúrslit sanna kannske þvert á
móti gæði skákanna, þ. e. að fingvr
brjótar hafa ekki verið margir.
í 7. umferðinni koma engin úr-
slit sérlega á óvart, nema vera skyldi
tap Benkö gegn Quinones. Benö átti
aldrei að þurfa að tapa þeirri skák,
en í viðsjárverðri stöðu reyndi hann
að knýja fram vir.ning og það varð
hans banabiti. — Þá mátti TAL
þakka sínum sæla fyrir að slepo.i
lifandi úr viðureigninni við Foguel-
man. Hann var gjörsamlega glatað
ur, þegar fram í miðtafl var komið,
en þá varð andstæðingnum á stór
kostleg skyssa og Tal tókst að
rétta úr kútnum:
Hv.: Tai.
Sv.: Foguelman.
Caro-Kann.
I. e4,c6 2. d4,d5 3. Re3,dxe4 4. Rx
e4,Bf5 5. Rg3,Bg6 6. Rge2,Rf6 7.
h4,h6 8. Rf4,B]i7 9. Bc4,e5 10. De2
(Ef 10. dxe, þá annaðhvort :—, Daðf
ásamt 11. —,Dxe5 eða 10. —,DxDr
11. KxD,Rg4) 10. —,Rbd7 (10.—,
Dxd4 er varhugavert (a. m. k. á
á móti Tal) enda þótt ekki sé fylli
lega ljóst, hvernig hvitur fær hag
nýtt sér stöðu drottningarinnar á
miðborðinu.) 11. 0-0 (Eða 11. dxc5,
Da5f) 11. —,De7 12.dxe5, Rxe5 13.
Hdl,Rfd7 14. Bd2,0-0-0 15. Bc3,He8 16.
Hel,g5 17. hxg5,hxg5 18.
Re6,f6! 19. Hadl,Bg6 20. f4 (Óneitan
lega glæfralegur leikur, en livernig
átti hvítur' að svara 20. —,Dh7>)
20. —gxf4 21. Rxf4,Dh7 22. Beí,
Bc5f 23. Bd4,Dh2f 24. Kf2,Dh4! 25.
Bxd7f,Rxd7 26. Dd2,Bb6! 27. HxHL
BxH?? (Svartur átti um tvo mögu-
leika að velja: Annar leiðir auðve' 1
lega til vinriings, hinn til taps. Auð-
vitað velur hann þann seinni! — í
stað 27. —,BxH?? var sjálfsagt 27.
—,HxH og hvítur á ekki viðreisnar
von. T. d. 28. Be3,Hxe3 og vinnur.
Eða 28. Rfe2,Hxe2f og vinnur. Að
síðustu 28. Kf3,f5! og hvítur er glat
aður). 28. Hhl! (Svarti hefur vafa-
laust yfirsézt þessi sterki leikur.
Hvítur fær nú drottningu svarts í
skiptum fyrir hrók og riddara og
öll spenna hverfur úr skákinni.) 28.
—,Bxf4 29. Hxh4,Hxh4 30 Be3,Bxe3f
31. Dxe3,Bg6 32. c3,a6 33. Kgl,Hg4 24
Df3,Hh4 35. Re2,Be4 36. Dg3,Hh5
37. Dg8f,Kc7 38. Rf4,He5 39.
c4,c5 40. Re6f,Kd6 41. Rd8,Ke7 42.
Rf7,He6 43. Dg7,Ke8 44. g4,Bd3 45.
b3,b5 46.g5,fxg5 47. ' Dg8f,Rf8 48.
Rxg5,Hf6 49. Dd5,bxc4 50. De5f, gef
ur.
Bent Larsen átti ekki i miklu.u
erfiðleikum með Berger, sem tefldi
byrjunina af lítilli forsjálni og Ivkov
tókst að sigra Lengyel í vel tefldri
harvítugri skák. Evans lék af sér
skiptamuni i fremur jafnri stöðu á
móti Portisch og eftir það varð
taflinu ekki bjargað. Skákirnar
Stein—Pachman og Bronsteln—
Giigoric voru talsvert tilþrifamikla",
en jafnvægið haggaðist aldrei í
þeim. Reshevsky vánn öruggan sig-
ur á móti Vranesic, sem sótti af
fullmiklu kappi, en bæði Darga
og Trlngov urðu að sætta sig við
jafntefii í sínum skákum, eftir að
hafa byggt upp yfirburðastöðu <
byrjuninni. Rosetto tókst að jafna
metin í endatafli, eftir að hafa stað
ið höllum fæti frá upphafi.
Hér birtist svo að síðustu fjörlega
tefld skák úr 6. umferð.
Hv.: Smyslov.
Sv.: Stein.
Enski leikurinn.
1. c4,g6 2. Rc3,Bg7 3. g3,c5 4. Bg2,
Rc6 5. a3,Rf6 6. d3,0-0 7. Hbl,a5 8.
e3,e6 9. Rge2,d5 10. 0-0,He8 11. Dc2,
d4 (Djarfleg ákvörðun.) 12. Ra4!,Rd7
13. exd4,cxd4 (Skárra var væntan-
lega 13. —,Rxd4 14. Rxd4,cxd4) 14.
b4,axb4 15. axb4,e5 16. b5,Rb8 (Sbr.
athugasemd við 13. leik.)17. Bd2,e4l
(Það var annaðhvort að duga eða
drepast.) 17. Rf4 (17. Bxe4 er hæp-
ið vegna —,Hxe4 18. dxe4,Re5! og
svartur hefur mótvægi vegna veik
leikanna f kóngsstöðu hvíts.) 18.—
exd3 19. Rxd3,Re5 20. Rxe5,Hxe5 21.
Bf4,Bf5 22. Db3,He2 23. Rc5,Bxbl 24.
Dxbl ,Rd7! 25. Rxb7,De7 26. c5,Ha2
27. c6,Rb6 28. Dd3,Be5 29. Bf3,Heb2
30. Hel,f6 31. Bxe5 fxe5 32. He2,
Kg7 33. HxII.HxH 34. Kg2. Hér
sömdu keppendur um jafntefli, enda
var erfitt að gera sér grein fyrir,
hvor stæði betur, auk þess sem
tímahrakið var að komast í algleym
ing.
Nýjustu fréttir
Kaupmannahöfn 1.6.-A(5ils. — Bent Larsen vann Lengyel í níundu
umferð í langri skák og er efstur með 7 V-z vinniiig, eða heilum vinn-
ing á undan næstu mönnum, þeim Ivkov, Bronstein og Reshcvsky,
sem hafa 6V2 vinning. Tal, Spassky og Smyslov hafa 6 vinninga og
Gligoric og Darga 5Vj vinning.
Til viðbótar því sem birt var í sunnudagsblaðinu, er blaðinu kunn-
ugt um þessi úrslit í 8. umferð. Darga vann Benkö óg Spassky
vann Packmann. 9. umferð. Tal vann Poralli, Bronstein vann Pcrez,
Reshevsky vann Rosettó, Darga vann Berger og Stein vann Gligoric.
Jafntefli gerðu Ivkov og Evans.
T í M I N N, þriðjudaginn 2. júní 1964
5