Vísir - 07.05.1952, Side 8
LÆKNAR O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Ingólfsapóteki, sími 1330.
Miðvikudaginn 7. maí
MJb* líWmúúiwvelAi °
SnmaB'ffagiiaðMi' IsSend-
inga i London.
ÉsleifiílMEgafélagisS vinnur verls..
Félag íslendinga í London
gekkst fyrir því föstudaginn 25.
apríl, að íslendingar búsettir í
London fiignuðu sumri. Var hóf
með borðhaldi og dansi á
Criterion veitingahúsinu við
Piccadilly.
Formaður félagsins, Björii
Björnsson, stórkaupmaður, bao
menn að rísa úr sætum og
minnast hinna látnu þjóðhöfð-
inga, forseta íslands, Sveins
Björnssonar, og Georgs VI.,
Bretakonungs, en félagið hafði
ekki haldið samkomu síðan
þeir létust.
Að íslenzkum sið var sung-
ið „Vorið er komið“ eftir Árna
Thorsteinsson. Kristinn Hall-
son söng einsöng þessi lög:
Áfram og; Rósin, hvorttveggja
eftir Árna Thorsteinsson, Die
beiden Grenádiere, eftir
Schuman og Fyrir sunnan frí-
kirkjuna, eftir Jakob Hafstein.
Jóhann Tryggvason annaðist
undirleik af smekkvísi. Kristni
var ákaft fagnað og varð hann
að syngja aukalög. Hann er
hér við söngnám, en kennari
Kristins er Norman Allen, rosk-
inn nú, en var mjög þekktur
söngvari. Kristinn hefir blæ-
fallega bassarödd og beitir
henni vel. Hann hefir verið hér
um þriggja mánaða skeið og
mun dvelja hér enn um hríð.
Hófið stóð ekki lengi, en
menn skemmtu sér þar hið
þezta.
Islendingafélagið hér í Lon-
don vinnur þarft verk alveg
styrktarlaust, og væri starf
tess fyllilega þess vert að t. d.
þjóðræknisfélag á íslandi gæfi
r— ---- ----------..........
Allir bjóða fram
á ísafirði.
1 Allir flokkar bjóða fram við
jaukakosninguna í ísafirði, eins
<og Vísir gat um á sínum tíma.
Síðan Sjálfstæðisflokkurinn
Og Alþýðuflokkurinn ákváðu
framboð sín, hefir það gerzt, að
Framsókn og kommúnistar hafa
ákveðið frambo'ð. Frambjóðandi
'Framsóknar verður Jón A. Jó-
hannsson, og kommúnista
Haukur Helgason.
----—4------
Itfaður drukkn-
>m aft wélbáti.
Enn hefir slys orðið á ein-
iiirí báti Vestmannaeyinga —
J>ar tók út mann í fyrrinótt.
Var vélbáturinn Vörður; að
jfara í róður, þegar einn skip-
iverja, Lúðvík Ingibjörn Valdi-
inarsson, 26 ára, ættaður ,af
Austfjörðum, féll fyrir borð.
JUrðu skipverjar þess þegar
fvarir, en ekki tókst samt að
lajarga Lúðvík.
því gaum. Fjárskortur er
Þrándur í Götu félagsins, allt
dýrt hér, en yfirgnæfandi
meirihluti íslendinga í London
eru stúdentar, sem ekki hafa
mikið af mörkum að leggja.
Einn liður í starfsemi félags-
ins er að halda árlega jólatrés-
skemmtanir fyrir íslenzk börn
hérlendis, en mörg þeirra hafa
aldrei ísland séð. Á þessúrn
skemmtunum, sem eru vinsæl-
ár bæði meðal barna og mæðra,
kynnast börnin hvert öðru,
sem og íslenzkum venjum og
siðum.
Mikill hugur er í íslendingum
hér búsettum, að auka starf-
semi félagsins.
Bjak.
^®99Ía sawít
sfeti norður.
Aætlunarbílar með yfir 40
farþega lögðu af stað norður
héðan í morgun, þrátt fyrir
fremur slæmar horfur á, að
koinist yrði yfir Holtavörðu-
heiði í dag.
Var stórhríð á heiðinni í
norðangarranum í fyrradag og
gær, og skóf svo að traðir
fyllti. Reynt mun verða að
komast yfir heiðina í dag með
aðstoð ýtu.
Fólk sem flutt var suður ýf-
ir heiði að Fornahvammi í
fyrrakvöld í snjóbílnum gamla,
Var veðurteppt þar í gær.
Þýzki listmálarinn dr. Haye
W. Hansen, sem dvalizt hefir
nokkur undanfarin ár á íslandi,
opnaði nýlega málverkasýningu
í fæðingarbæ sínum, Cuxhaven.
Sýningin virðist hafa vakið
töluverða áthygli, því að í Cux-
haven, sem er nokkuru minni en
Reykjavík, sóttu hana 3000
manns.
í blaðaúrklippu sem Vísi hef-
ir borizt um sýningu þessa, er
frá því skýrt að val myndanna
gefi góða hugmynd um ísland
og íslendinga. Þá er á það drep-
ið að myndir listamannsins gefi
manni hugboð um óvenjuleg
birtuskilyrði og tært loft I
þessu norðlæga landi, sem dæmi
er bent á það að auðvelt sé að
mála Snæfellsjökul frá Reykja-
vík, en fjarlægðin milli stað-
anna sé 120 km.
Myndunum er yfirleitt hælt
og ekki hvað sízt þykir lista-
maðurinn vera öruggur og góð-
ur teiknari. En höfuðáherzlan
er samt lögð á það að myndirn-
ar gefi góða innsýn í ísieiizkt
þjóðlíf og landslag og að sýnt
Veracruz. (A.P.). — Vöruhíll
með 75 pílagríma á palíi ók í
byrjun vikunnar ofan í 7 míetra
djúpt gil.
Stóðu pílagrímarnir á bíln-
um og þeyttust þeir í allar átt-
ir, er- bíllinn ók með miklum
liraða fram af gilbrúninni. Alls
biðu 40 manns bana þegar, en
20 meiddust, sumir hættulega.
Löndon (AP). — „Flying
Enterprise 11“ er nýkomið til
Le Havre í Frakklandi, að af-
lokinni fyrsíu ferð sinni yfir
Atlantshaf.
Skipstjóri er Kurt Carlsen,
sem frægur varð í januar sl., er
hann vildi í engu hvika frá að
koma skipi sínu „Flying Enter-
prise“ til hafnar. —■ Við kom-
una til Le Havre sagði Carlsen
við blaðamenn, að „Flying
Enterprise 11“ væri „betra
skip“.
Gin- og kíayfavefki íer í
vöxt í EngSaodi.
í Norður-írlandi og Eire ótt-
ast menn nú, að gin- og klaufa-
veikin berist frá Bretlandi.
Flefir því verið bannaður inn
flutningur á nautgripum fvá
Bretlandi, en þar hefir verið
gripið til enn víðtækari varríar-
ráðstafana en áður vegna vax-
andi útbreiðslu veikinnar.
megi þykja að hér sé um ó-
venjulega og mikilúðlega nátt-
úrufegurð að ræða.
Þann 4. þ. m. átti að opna
sýninguna í litlum bæ, Stade,
sem tekur um 30 þúsund íbúa.
Þaðan fer hún svo víðar um
Þýzkaland.
Byssai átti ai
eeida ðli stríi.
London (AP). — í To-
wer-kastala liefir verið opn-
uð sýning á fornum vopnum,
sem eru í eigu hertogans af
Brunswick. Meðal sýningar-
gripanna er hermannabyssa,
sem smíðuð var fyrir Georg
I. konung á fyrsta fjórðungi
18. aldar, og var það Huge-
notti — flóítamaður frá
Frakklandi — sem smíðaði
hana. Lét hann svo uin mælt
í hréfi því, sem hann sendi
konungi með byssunni, að
hún væri svo skæð, að hún
mundi binda endi á öll stríð!
Fjölsótt iiáSwerkasýsiÍKi
ðslandsvina í Þýzkalandi.
Sýninguna sóttu um 3600 manns í Cuxhauen.
LJÓSATÍMI
bifreiða og annarra ökutækja er kl. 22.35—
4.05. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 16.55.
60 Skodabílar fluttir ti!
landsins á næstunni.
Líii hefir fengih imiflutningsíeyfi fyrir heim.
Eins og aímenningur lsefir
séð og heyrt af tilkynningum,
verða 60 Skodabílar fluttir til
landsins á næstunni.
Tíðindamaður frá Vísi hefir
því fundið að máli fram-
kvæmdastjóra . Tékkneska bif-
reiðaumboðsins á íslandi h.f.,
þá Gottfreð Bernhöft og Ragn-
ar Jóhannesson og spurt þá um
bifreiðainnflutning þann frá
Tékkóslóvakíu, sem stendur
fyrir dyrum, og fekk hjá þeim
eftirfarandi upplýsingar.
60 Skoda-
bifreiðar.
Uni áramót síðastliðin veitti
ríkisstjórn íslands Landssam-
bandi íslenzkra útvegsmanna
sérstakt innflutnings- og gjald-
eyrisleyfi fyrir bifreiðum
frá Tékkóslóvakíu, að upphæð
1 millj. kr., og var leyfið ekki
háð neinum verðlagsákvæðum
Vai'ð svo að samningum milli
L.Í.Ú. og Tékkneska bifreiða-
umboðsins á íslandi h.f., sem
hefir einkaumboð fyrir allar
tékkneskar bifreiða- og bif-
hjólaverksmiðjur, að samband-
ið keypti þær 60 bifreiðar, sem
það hefir leyfi fyrir, hjá Tékk-
neska bifreiðaumboðinu. Bif-
reiðarnar eru af Skoda-Station-
gerð.
Úthlutað
af L.Í.Ú.
Einnig varð það að sam-
komulagi milli þessara fyrir-
tækja, að bifreiðum þeim, sem
voru á þessu sérstaka leyfi,
skyldi úthlutað af sambandinu,
en að sjálfsögðu mun Tékk-
neska bifreiðaumboðið á ís-
landi h.f. nú og framvegis sem
til þessa taka við pöntunum á
íékkneskum bifreiðum gegn
nauðsynlegum leyfum.
Tékkneska bifreiðaumboðið
hefir gert samninga við eitt af
kunnustu bifreiðaverkstæðum í
bænum, P. Stefánsson h.f.,
Hverfisgötu, um að annast við-
gerðir á tékkneskum bifreiðum
og hafa með höndum vara-
hlutasölu.
Nánar um
bifreiðarnar.
Bifreiðarnar, sem nú verða
fluttar inn, eru allar af sömu
g.erð og hafa rúrrí fýrir 4 far-
þega. Aftursætin eru með sér-
stökum útbúnaði til þess að
fella þau niður í gólfið, og er
þá hægt að nota bifreiðina til
flutninga. Burðarmagn hennár
er 500 kg,- — Smábifreiðar
þessar eru víðkunnar ög hafa
náð mikilli útbreiðslu á megin-
landi álfunnar og vföar.
Skoda-bifreiðar eru einnig
þekktar hér á landi og hafa áð-
ur verið fluttir inn nokkrir
tugir tékkneskra bifreiða af
þeirri gerð, er hafa náð mik-
illi hylli, þykja öruggar, traust-
ar og þægilegar.
Bifreiðasending sú, sem að
ofan um getur, er væntanleg
til landsins innan tíðar.
-----------
Með gagnkvæmd
slstel mi ná
siarkiaiu.
Ávarp lí. J. McGaíw
liersliáifiðÍMgla.
E. J. McGaw hershöfðingi,
foringi varnarliðsins, hefir birt
ávarp af því tilefni, að ár er
liðið frá.því, að varnarliðið kom
til íslands.
í ávarpinu ræðir hershöfð-
inginn aðdraganda þess, að
varnarliðið var sent hingað. —-
N.A.-ríkin hefðu_ gert sér ljóst,
að „varanlegan frið væri eigi
hægt að tryggja, nema með
sameiginlegum vörnum. í þessu
skyni lögðu Bandaríkin til
nokkurt varnarlið, en ísland
lét því í té aðstöðu í landinu,
samkvæmt samningi, er gerður
var 5. maí 1951, til þess að
koma í veg fyrir árás í þessum
hluta heims.“
í niðurlagi ávarpsins segir:
„Vér Bandaríkjamenn erum
þess fullvissir, að með gagn-
kvæmum trúnaði og aðstoð
muni takast að koma á heil-
brigðu samstarfi allra frjálsra
þjóða, þrátt fyrir mismunandi
siði, tungur og venjur. Takist
oss að verðveita góða sambíð
í hvívetna, mun engri árásar-
þjóð takast. að sundra oss r.é
öðrum þjóðum um heim allan.“
------------♦-----
Igyptar elnhuga
í Nílarmálinu.
Hilaly pasha, forsætisráð-
herra Egyptalands, flutti ræðu
í gær í tilefni af því, að Farouk
liafði verið við völd í 16 ár. Var
þess minnst með hátíðahöldum
um allt landið.
Hilaly pasha sagði egypzku
þjóðina einhuga um sameiningu
Nílarlandanna, því máli væri
lrún staðráðin í að koma fram.
í London ræddi Churchill við
egypzka sendiherrann og sner-
ust viðræður þeirra um árang-
urinn af fundunum, sem Eden
hélt með serídiherranum. Sir
Ralph Stevenson sendiherra
Breta í Kairo, og Howe land-
stjóra Breta í Sudan, er þeir
komu saríian í Londón nýverið.
Howe muri bráðlega flytja grein
argerð í sudanska þinginu í
Khartoum.