Morgunblaðið - 24.07.1956, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.07.1956, Blaðsíða 12
12 MORCUNRL 4Ð1Ð T>riðjudagur 24. júll 1956 Þ rír niisiii Framhaldssagan 47 Mann vantar orð til að lýsa slíku“. „Einkum fannbreiðurnar", full yrti ungi maðurinn. Hilde leit á- minnandi á hann. Julchen frænka vaknaði til veruleikans. Andlit hennar var eldrautt. Hún gapti og nuddaði augun. Hilde settist og sagði: „Komdu Fritz. Það er pláss hérna við hlið- ina á mér“. Frænkan tók kipp eins og und- an rafmagnsstraumi: „Hvað hef- ur eiginlega komið fyrir?“ „Ekki neitt sérstakt", svaraði unga stúlkan. „En þú segir samt þú við hann“, hrópaði gamla konan. „Það tek ég frænku þinni alls ekki neitt illa upp“, sagði Hage- dorn. „Hann segir líka þú við mig“, sagði Hilde. „Já“, sagði Fritz. „Við Hilde höfum ákveðið að þúast í næstu fimmtíu árin“. „Og hvað svo?" spurði Julchen íiænka. „Þá skiljum við“, upplýsti frænka hennar. „Mínar hjartanlegustu ham- ingjuóskir", hrópaði Kesselhuth glaður. Meðan frænkan stóð enn á önd- inn, spurði Schulzc: „Kæra ung- frú, þér skylduð þó ekki eiga for- eldra eða aðra nána ættingja?" „Jú, svo undarlega vill nú til“, svaraði unga stúlkan. „Ég á föð- ur á lífi“. Hagedorn virtist falla þessi frétt ekki sem bezt í geð: „Er hann góður?“ spurði hann eftir- væntingafuliur. „Það er hægt að komast af við hann“, sagði Hilde. „Hann hefur sem betur fer marga galla. Það hefur algerlega grafið und- an hans föðurlega áhrifavaldi". „Og ef hann getur nú alls ekki þolað mig?“ spurði ungi maður- inn áhyggjufullur. „Kannski vill hann að þú giftist bankastjóra, eða dýralækni úr nágrenninu. Eða skólakennara, sem hann sit- ur andspænis í sporvagninum á hverjum morgni. Þannig vill nefnilega svo oft til. Og svo þeg- ar hann heyrir, að ég hef ekki einu sinni neitt fast starf, hvað segir hann þá?“ „Þú færð það nú kannski bráð- lega“, sagði Hilde nughreystandi við hann. „Og ef hann setur sig samt upp á móti þessum ráðahag, þá hættum við alveg að heilsa honum á förnum vegi. Það þolir hann nefnilega verst af öllu“. „Eða við gerum hann svo fljótt sem mögulegt er að tíföldum afa“, sagði Fritz íhugandi. „Það mun sigra hann algerlega, sannið þið bara til“. Julchen galopnaði munninn og hélt höndunum íyrir eyrun, en kom ekki upp neinu hljóði. Schulze sagði: „Það er rétt. Þið munið áreiðanlega sigra and- spyrnu hans, gamla karlsins". Hr. Kesselhuth lyfti hendinni mótmælandi: „Hr Schulze, þér ættuð ekki að tala svona niðrandi um hr. Schulze“. Þetta var meira en Julchen frænka þoldi. Hún reis á fætur og vildi fara aftur til Bruckbeur- en: „En með svifbrautinni fer ég ekki“. „Ferðin er mikið hættulegri fótgangandi mönnum". sagði Hagedorn. „Þess utan er það fjögra tíma ganga“. „Þá verð ég hérna eftir og bíð þar til vorar", yfirlýsti frænkan hín ákveðnasta. „En ég er þegar búinn að kaupa farseðlana heim“, sagði Kesselhuth. „Eiga þeir þá að verða ónýtir?" Julchen frænka háði harða innri baráttu. Það var átakanlegt að horfa á. Að lokum sagði hún; „Það er auðvitað allt annað mál“. Og svo gekk hún í fararbrooai niður til stöðvarinnar. Sparsemin skapar hetjur. 17. kafli Eftir hádegið, þegar eldra fólkið fékk sér ofurlítinn hress- ingarblund, fóru þau Hilde og Fritz í skemmtigöngu inn í skóg- inn. Þau leiddust. Öðru hverju litu þau brosandi upp, stönzuðu, kysstust og struku blíðlega vanga hvors annars. Þau töluðu ekki mikið og helzt hefðu þau viljað í fögnuði sxnum og hamingju faðma hvert einasta grenitré. Hamingjan hvíldi þungt á herð um þeirra, eins og heill tunnu- sekkur af brjóstsykri. Fritz sagði hugsandi: „Eigin- lega erum við nú bæði tiltölu- lega skynsamar manneskjur. Það held ég að minnsta kosti. Hvernig má það svo vera, að við skulum haga okkur jafn heimskulega og aðrar ástfangnar manneskjur? — Við höldumst í hendur eins og krakkar. Við hrösum í faðmlög- um gegnum hina nöktu náttúru. Er þetta ekki beinlínis asnalegt? Ungfrú, má ég biðja um yðar fræðilega sjónarmið í þessu máli?“ Hilde krosslagði handleggina, hneigði sig þrisvar sinnum og sagði: „Náðugi soldán, leyfið yð- ar mjög svo undirgefnu ambátt að taka það fram, að hingað til hefur vizkan aldrei verið fyrsta fiðla í mannlegum ástarhljóm- leikum". „Rísið á fætur, dýrlega greifafrú", hrópaði hann ákafur, enda þótt hún krypi alls ekki. „Rísið á fætur. Hver sú, sem er svo vitur að hún þekkir takmörk vizkunnar, henni ber að launa að verðleikum. Ég útnefni þig hér með sem einka-herbergisþernu mína á la suite“. Hún hneigði sig djúpt og glæsi- lega: „Ég hlýt að gráta af hrifn- ingu, yðar hátign og bið um leyfi til að gráta hreinum hamingju- tárum“. „Leyfið er þegar veitt“, sagði hann. „En gætið þess að ofkæiast ekki“. „Verið alveg óhræddur, mcist- ari“, sagði hún. „Þótt ég baði mig í tárum mínum, er samt ekkert að óttast, því að hiti tára minna VefnaðarvoruverzKun tiS soflu Til sölu er Verzlun Gísla Wíum, Vestmannaeyjum. Vörulager allt nýtt og seljanleg vara, enda er veizlunin í fullum gangi. Til mála getur komið að selja húsið líka, stærð þess er 130 fermetrar. — Fyrsta hæð er verzlun og lager, ðhnur hæð er íbúð 5 herbergi og eldhús og baðherbergi, þriðja hæð rishæð 3 herbergi. Húsið allt er í mjög góðu standi. Húsinu fylgir bifreiðar og vörugeymsla. Stærð 12x4 m., þar er sjálfvirkt olíukyndingartæki. Húsinu getur fylgt 1000 ferm. lóð, öll ræktuð og girt. Allar nánari upplýsingar hjá undirrituðum GÍSLI WÍUM, Pósthólf 55, Vestmannaeyjum. Ról ega!... Því aðeins lítið eitt nægir til rakstursins af Gillette rakkreminu. Nafnið eitt er vðar bezta trvgging. Inniheldur K34, bakteríueyðandi efni. Rakkrem Verð kr. 12,00 Latber og Brushless G L O B U S h.f. — Hverfisgötu 50, sími 7148 VeggfSísar hvítar og mislitar. "yrirliggjandi Sighvatur Eirtarson & Co. Garðastræti 45 og Skiphoíti 15, Sími: 2847. Þýsltu náttföffeU komin aftur — í öllum stærðum M A R K Ú S Eftir Ed Dodd GO&H, WHAT'LL WH DC?...5MS. GLENMORE SAID WE'D HAVE NO TKOUBLE GETTING TO THE GORILLA FOREST BSCAUSE THE PYGMIES WOULD, WELL,YOU CAN' SEE WHY...THE PYGMIES THINK. SHE'S THE GREATEST I THINK THIS IS FUNNV... THE WKOLE EXPEDITION BEING HELD UP BY A BLASTED OLD JERSEY That NIGHT A BEAUTIFUL AND TERRIBLE CREATURE OF THE SHADOWS SOFTLY PROWLS TOvYARD THE PYG-VYV CAMP 1) — Hvað eigum við nú að gera. Gilmore sagði okkur, að það væri enginn vandi fyrir okk- ur að komast um Gorillu-skóg vegna þess, að hottintottarnir myndu fylgja okkur. 2) — Nú ætlar þessi kýr alger lega að eyðiieggja áætlunina fyr- ir okkur. — Það er þó ekkert undarlegt. Hottintottarnir telja hana þann dásamlegasta grip, sem til er í veröldinni. 3) — Þetta er alveg furðulegt. Allur leiðangurinn stöðvaður af einni kusu. 4) — Þetta kvöld er fallegt en hrséðilegt dýr á ferli í skóginum skammt frá bækistöðvum hott- intottanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.