Morgunblaðið - 16.10.1957, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.10.1957, Blaðsíða 19
MiSvikudagur 16. obt. 1957 MORC.TTNBl 4Ð1Ð 19 Stjörnubíó sýnir um þessar mundir sænsku kvikmyndina „Stúlka í regni" (Flickan i regnet). Er hún byggð á sögu eftir Sune Stigsjö. Aðalhlutverkin leika Alf Kjellin, Annika Tretow og Marianne Bengtsson. Komiim til ára sinna NEW YORK 15. október — Þrír eðlisfræðingar frá Bandaríkjun- um, Sviss og V-Þýzkalandi skýrðu frá því í dag, að fundizt hefði í Bandaríkjunum loftsteinn, sem þotið hefði um geiminn í 240—280 milljónir ára áður en hann féll til jarðarinnar. Segja þeir, að rannsóknir hafi leitt í ljós, að loftsteinn þessi sé moli úr hnetti, sem fyrir 4.200 millión- um ára hafi splundrazt við árekst ur við stjörnuþoku. STRASSBORG, 15. okt. — Ev- rópuráðið mun koma saman hér á morgun. Aðalumræðuefni fund- arins verða vandamál þau, sem skapazt hafa vegna flóttamanna- straumsins frá Ungverjalandi og sameiginlegur Evrópumarkaður. Félagslíi Ferðafélap Islands heldur kvöldvöku í Sjálfstæðis- húsinu föstudaginn 18. okt. 1957. Húsið opnað kl. 8,30. — 1. D.r Sig urður Þórarinsson segir frá Rínar löndum og fleiru úr Þýzkalands- ferð og sýnir litskuggamyndir. — 2. Myndagetraun. — 3. Dansað til kl. 1. — Aðgöngumiðar eru seldir í bókaverzlunum Sigfúsar Ey- mundssonar og Isafoldar. A fjérða þús. manns bólir selfir við Asíu-inflúenzunni Handknattleiksdeild Árinai.ns Aðalfundur deildarinnar verður í Grófin 1, í kvöld kl. 8,30. Mætið öll yngri sem eldri. — Stjórnin. Ármann Æfingar í kvöld í íþróttahús- inu, Lindargötu. EINS og kunnugt er framleiddi tilraunarstöðin á Keldum nokk- urt magn af bóluefni gegn Asíu- inflúenzunni. Ákvað landlæknir og heilbrigðisyfirvöldin að það skyldi gefið því fólki sem inflú- enzan gæti orðið hættuleg, og eins ýmsum starfsmannahópum, sem gegna ýmiss konar störf- um í þágu almennings. í Heilsu- verndarstöðinni er nú þessari bólusetningu lokið þ.e.a.s. fyrri bólusetningu og voru á fjórða þúsund manns bólusettir. Hér á landi er fólk tvíbólu- sett og er siðari bólusetningin hafin. I Heilsuverndarstöðina hefur komið fjöldi fólks eftir tilvísan lækna þess. Hér er aðallega um að ræða fólk sem eitthvað er heilsuveilt. — Þá hafa sem fyrr segir, ýmsir starfsmannahópar verið bólusettir svo sem bruna- verðir, lögreglumenn, veðurstofu starfsfólk, tollverðir, símastarfs-' fólk, strætisvagnastjórar o. fl. Á spítölunum hafa læknar verið bólusettir ásamt starfsfólki og sjúklingum. Nú eru það mikil brögð orðin að inflúenzunni hér, en nokkur tími þarf að líða frá því að bólu- sett er unz bólusettir eru ónæmir — Mykle Framhald af bls. 1. eilífðina. Þetta er eitt andartak“. Mykle skrifar: „Hvert andar- tak er ávöxtur tvö hundruð milljóna ára. Dagurinn líður áfram mínútu eftir mínútu, eins og flugur, sem fljúga suðandi heim til að deyja, og hvert and- artak er eins og gluggi út í eilífð- ina. Þetta er eitt andartak“. Blaðamaðurinn bætir síðan við, að ástæðan til þess, að árin séu fleiri hjá Mykle en Wolfe sé sú, að verðbólgan hafi aukizt mikið síöan Wolfe skrifaði þetta! Eiginkona Mykle hefur verið innt eftir ferðum hans, en hún hefur ekki skýrt frá því, hvenær hann muni væntanlegur heim. Hins vegar muni hann ekki svara þessum ásökunum fyrr. Segir hún hann hafa verið mikinn að- dáanda Wolfe — allt frá unga aldri — og ekkert sé athugavert Við það, að áhrif þau, er Mykle hefur orðið fyrir, komi fram í ritverkum hans. orðnir, að bólusetning nú getur jafnvel ekki orðið að gagni, því sá sem bólusettur væri gæti veikzt áður en hann er ónæmur orðinn. Dregið í A-flokki happdr. ríkiujóðs DREGIÐ var í A-flokki Happ- drættisláns ríkissjóðs í gær. Hæstu vinningar komu á eftir- talin númer: 75 þús. kr. á 104631, 40 þús. kr. á 8860, 15. þús. kr. á 112231, 10 þús. kr. þrír vinningar á nr. 10234, 29194 og 80141. Hreinsað til BÚKAREST, 15. okt. — Tilkynnt var í Búkarest í dag, að miklar hreinsanir hefðu verið gerðar í nokkrum ráðuneytum stjórnar- innar — svo sem áætlunarmála- ráðuneytinu og raforkumálaráðu neytinu. Segir í tilkynningu stjórnarinnar, að menn þeir, sem hafi haft með raforkuframkvæmd ir að gera hafi sóað miklu fé í óarðbærar framkvæmdir — og einnig hafi þeir tekið meiri laun en þeim bar. Fréttir i stuttu máli DAMASKUS 15. september — Talið er fullvíst, að Sýrlands- stjórn muni fara þess á leit við S. þ., að tekið verði til athugun- ar hve hernaðarviðbúnaður Tyrkja við sýrlenzku landamær- in sé víðtækur. WASHINGTON, 15. okt. — öld- ungadeildarþingmaður, sem sæti á í þingnefnd þeirri, er fjallar um samskipti Bandaríkjanna við erlend ríki, hefur hvatt Dulles utanríkisráðherra til þess að leita nánari samvinnu við bandamenn Bandaríkjanna um framleiðslu gervihnatta og langdrægra eld- flauga. Leggur öldungadeildar- þingmaðurinn það til, að komið verði á samvinnunefnd vísinda- manna á þessu sviði — og eigi Bandaríkin og nánustu vinaríki þeirra fulltrúa í nefnd þessari. Stóri salurinn: ki. 7 handknattl. drengja, 4. fl. kl. 8 körfuknattl. drengja; kl. 9 körfuknattl. karla. Minni salur: kl. 7, fitnl. telpna yngri fl.; ki. 7,40 víkiv.og þjóðd., yngri fl.; kl. 8,20 víkiv. og þjóðd., eldri fl. — Byrjendur eru innrit- aðir á æfingu. — Stjórnin. Handknattleiksmenn Þróttar Æfing í kvöld hjá 3. flokki kl. 7,40. — Áríðandi að allir mæti. — Þróttur — Handknattleiksdcild Kvennafiokkar, athugið, að æf- ing fellur niður í kvöid. — Þjálfarinn. III. flokks æfing kl. 6,50 en ekki 7,40. Þjálfarinn. Þjóðdansafélag Reykjavíkur Miðvikudagur 16. okt. — Skálalieimilið við snorrabraut: kl. 3,20—4,00 börn 6—8 ára, framhaldsflokkur. Kl. 4,05—4,45, börn 9 ara og eldri, byrjunarflokk ur. Kl. 4,50—5,35 börn 6-—8 ára, byrjendaflokkur. Kl. 5,35—6,15, börn 9—10 ára, framhaldsflokkur. Kl.6,20—7,00, börn 11—12 ára, framhaldsflokkur. Edduhús við Lindargötu, kl. 20,00—21,00 Þjóðdansar, byrjenda flokkur fyrir fullorðna. Kl. 21,00 —23,00, sýningarflokkur. Sunnudaginn 20. okt. —— Skátaheimilið: kl. 20,30—21,30 Gömlu dansarnir, byrjendaflokkur fyrir fullorðna. Kl. 21,30—22,30 Gömlu dansarnir o. fl. Framhalds- flokkur fyrir fullorðna. Kl. 22,30 —23,30 Þjóðdansar, framhalds- flokkur fyrir fullorðna. — Innritun í Skátaheimilinu á mið vikudag 16. okt. kl. 15,00—19,00. Nánari upplýsingar í síma 12507 eða 50759. — Stjórnin. I. O. G. I. Stúkan Einingin nr. 14 Fundur I kvöld kl. 8,30. Yngri félagar skipa embætti. — 1. skemmtiflokkur kemur öllum í gott skap.. Mætum öll. — Æ.t. Stúkan Sóley nr. 242 Fundur í kvöld kl. 8,30 í Templ arahöllinni. — Félagsvist. — Æ.t. Samkomur KrÍ8tniboð»hÚ8Íð Betanía, Laufásvegi 13 Fórnarsamkoma 1 kvöld kl. 8,30. Allir velkomnir. 50 hafa farizt í flóðum MADRID, 15. okt. — Að minnsta kosti 50 manns hafa látið lífið í flóðum í Valencia-héraðinu. Meira en 20 hafa látizt í sjálfri Valencia-borg. Geysilegar skemmdir hafa orðið á mann- virkjum af völöum flóða og storms — og eru þess jafnvel dæmi, að við sjávarsíðuna hafi heil íbúðarhús tekið á loft — og vindurinn feykt þeim langt út á sjó. Borgin og bæirnir í kring hafa að miklu leyti rofnað úr tengslum við umheiminn. — Þar er hvarvetna rafmagnslaust — og einnig skortir drykkjarvatn og gas. Á mörgum götum er vatnið meira en metersdjúpt og dagblöð hafa ekki verið gefin út í þessu héraði síðustu sólarhring- ana vegna þess, að skrifstofur blaðanna hafa stórskemmzt af vatnsaganum — og útburðar- kerfið er allt í molum sem vænta má. Sambandsslil við iúgóslava! BELGRAD, Bonn og Washington, 15. okt. — Júgóslavneska stjórnin hefur tekið upp stjórnmálasam- band við a-þýzku stjórnina. Seg- ir í tilkynningu frá júgóslavneska utanríkisráðuneytinu, að þetta hafi í og með verið ákveðið til þess að reyna að draga úr spenn- unni milli austurs og vesturs. Stjórnin í Bonn hefur setið á fundi í dag og rætt hvort ráðlegt sé, að v-þýzka stjórnin slíti stjórn málasambandi við Júgóslavíu vegna þessarar ákvörðunar júgó- slavnesku stjórnarinnar. V-þýzka stjórnin hefur enn ekki tekið upp stjórnmálasamband við neitt það ríki, sem viðurkennt hefur a- þýzku stjórnina — að Ráðstjórn- arríkjunum undanskildum. Sama sagan þar HELSIN GFORS, 15. okt. — Finnsku stjórnarvöldin hafa skip- að svo fyrir, að „Sangen om den röde rubin“ skuli upptæk gerð í Finnlandi. — Sagan hefur ver- ið þýdd og gefin út á finnsku og liefur mál verið höfðað á hend ur útgefandanum. Upplag finnsku útgáfunnar var 10.200, en auk þess hafði verið flutt inn töluvert af sænsku út- gáfunni. Lögreglan gerði í dag upptæk 5 þús. eintök, sem for- lagið hafði enn ekki sent til bók- sala. Finnskir rithöfundar hafa látið í ljós megna óánægju vegna ákvörðunar stjórnarvaldanna. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins í Washington lét svo um mælt í dag, að Bandaríkjastjórn teldi ekki, að ráðstöfun júgó- slavnesku stjórnarinnar hefði aukið líkurnar fyrir lausn vanda- málsins um sameiningu Þýzka- lands. Esi«in sprengja faimst KAUPMANNAHÖFN, 15. okt. — í dag var vígt í Kaupmannahöfn „Frelsissafn Danmerkur“. Meðan á vígsluathöfninni stóð barst til- kynning þess efnis, að sprengja myndi springa í safninu. H. C. Hansen, forsætisráðherra, bað konungshjónin, sem voru við- stödd athöfnina, að yfirgefa safn- ið hið bráðasta án þess að skoða það nánar — og var vígsluathöfn- inni síðan flýtt. Engin sprengja fannst í safninu. í tvennu lagí? CAMBRIDGE, 15. okt. — Banda- rískur vísindamaður, sem fylgzt hefur með ferðum rússneska gervihnattarins og rakettunnar, sagði í viðtali við blaðamenn, að allt benti nú til þess, að rakett- an hefði brotnað í tvennt — og myndi brotna enn smærra á næstu stundum. Sennilegt væri, að hún myndi falla til jarðar á þessum eða næsta sólarhring. Sendisveinn Röskur sendisveinn óskast nú þegar. Vinnutími frá 9—6. Móðir mín ÓLÍNA ELÍSABET ÓLADÓTTIR andaðist að heimili sínu Finnbogastöðum, Strandasýslu, hinn 14. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda Ragnar Guðmundsson. Móðir okkar og tengdamóðir ÁSTRÍÐUR PETERSEN, f. STEPHENSEN verður jarðsett fimmtudaginn 17. þ. m. kl. 1,30 frá F ossvogskirk j u. María Petersen, Ólafía Petersen, Ragnar Petersen, Adolf Petersen. Innilega þökkum við öllum nær og fjær, sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför konu minnar og dóttur okkar ÞORGERÐAR SIGFÚSDÓTTUR Guðmundur Þorláksson. María Kristjánsdóttir, Sigfús Guðfinnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.