Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 1
20 síður 45 árgangur 218. tbl. — Fimmtudagur 25. september 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins ískyggilegt ástand í Beirut Foringi uppreisnarmanna myndar stjjórn BEIRUT, 24. september: — I dag sló í bardaga með kristnum og múhameðskum í hafnarhverfum Beirut. Lög- reglan réð ekki við neitt og kvaddi herlið á vettvang. — Tókst að koma á kyrrð eftir allmikið þóf — og lágu þá a. m. k. 10 menn í valnum. Herinn hefur nú tekið varð- stöðu á öllum mikilvægum stöðum í borginni, svo og á mörkum borgarhluta krist- inna og múhameðskra og hef- ur fengið skipanir um að skjóta tafarlaust hvern þann óbreyttan borgara, sem sést bera vopn. Jafnframt hefur hernum verið fyrirskipað að beita léttum fali- byssum gegn sveitum skotliða, sem kynnu að taka sér stöðu í húsum —. og skjóta á vegfar- endur. Ástandið þykir nú mjög alvarlegt — og að sögn frétta manna eru líkurnar fyrir meiri háttar óeirðum nú meiri en nokkru sinni síðan óeirðirnar brutust út 9. maí sl. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefur Chehab, hinn nýkjörni forseti, sem nú hefur tekið við stjórnartaumum, falið Karami, leiðtoga múhameðskra uppreisnarmanna, að mynda stjórn. O-Á-O Falangistar og yfirleitt kristn- ir menn eru þessu mjög andvígir og vilja leggja lífið í sölurnar til þess að koma í veg fyrir að múhameðskir nái undirtökum í stjórn landsins. Hafa Falangistar boðað „friðsamlegt“ verkfall til að mótmæla þessu, en þátttakan hefur ekki verið almenn. Við- búnaður kristinna og múham- eðskra er nú mikill og reisa hvor- ir um sig götuvígi í borgarhlut- um sínum. Algert útgöngubann var sett í borginni í kvöld og hafði ekki dregið til neinna frekari tíðinda, þegar síðast fréttist. Bandaríski herinn hafði sett strangan vörð um bandaríska sendiráðið — og svo virtist, sem við öllu mætti búast. Síðustu fréttir: SEINT í gærkveldi bárust þær fregnir frá Beirut, að hinn 37 ára gamli múham- eðski uppreisnarforingi, Ras- hid Karami, hefði myndað stjórn samkv. beiðni Cheh- abs forseta. Karami er bæði forsætis-, varnarmála- og innanríkisráðherra. í ríkis- stjórninni eiga sæti 8 ráðherr- ar — 4 kristnir, 3 múham- eðskir og einn Drúsi. Halda fast við 12 mílur KAUPMANNAHÖFN, 24. september. — í kvöld var gef- in út yfirlýsing í Þórshöfn að afloknum fundi landsstjórn- arinnar færeysku, sjö manna nefndar Lögþingsins og dönsku stjórnarnefndarinnar. Sagði þar, að allir stjórnmála- flokkarnir í Færeyjum héldu fast við kröfuna um 12 mílna fiskveiðilandhelgi. Hins vegar eru Færeyingar ekki mót- fallnir frekari viðræðum við brezku stjórnina og meiri hluti sjö manna nefndarinn- ar er fylgjandi því, að reynt verði að komast að samkomu- V.-íslendingur fulltrúi Kanada á þingi S.Þ. VESTUR-ÍSLENDINGURINN G. S. Thorvaldsson hefur verið skipaður einn af aðalfulltrúum Kanada á allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna. Blaðið Winnipeg Tripune skýrir nýlega frá þessu og hefur það eftir honum, að aðaláhugamál hans sé landhelgis- málið, einkum ef umræður verða varðandi þá ákvörðun Islendinga að stækka landhelgi sína úr fjórum í tólf sjómílur. G. S. Thorvaldsson er lögfræð- ingur að menntun og hefur sak- ir ágætra hæfileika komizt til mikils frama í Kanada. Fyrir tveimur árum var hann kjörinn formaður lögfræðingafélags Manitoba og í kosningunum í vetur var hann kjörinn til öld- G. S. Thorvaldsson ungadeildar Manitoba. Það eru um 80 ár síðan foreldrar hans fluttu frá íslandi, en sjálfur hef- ur hann aldrei heimsótt ætt- land sitt. Sendinefnd Kanada er undir forustu utanríkisráðherra lands- ins, Sidney Smith, sem um lángt árabil var rektor Myni- tobaháskóla og er því persónu- lega kunnugur mörgum Vestur- íslendingum, er starfa við þann háskóla sem prófessorar. Skipun G. S. Thorvaldssonar í sendi- nefndina ætti og að vera fyrir- heit um náið og vinsamlegt sam- starf íslands og Kanada í bar- áttunni fyrir 12 mílna fiskveiði- landhelgi. lagi, sem ógilt gæti samning- inn frá 1955. Ráðherrafundiir í Washington WASHINGTON, 24. sept. — Ut- anríkisráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag, að Atlantshafs- bandalagið hefði þegið boð Banda ríkjastjórnar um að vorfundur utanríkisráðherra bandalagsríkj- anna yrði haldinn í Washington á næsta ári. Verður fundurinn haldinn 2.—4. apríl n. k. Boðið er fram komið í tilefni þess, að hinn 4. apríl á næsta ári eru lið- in 10 ár. síðan 12 aðildarríki bandalagsins undirrituðu stofn- skrá þess í Washington. Sett baim á Rússa BELGRAD, 24. sept. — Samkv. áreiðanlegum heimildum hefur júgóslavneska stjórnin lagt bann við kvikmyndasýningum rúss- neska sendiráðsins í „rússneska menningarhúsinu“. Þetta rúss- neska kvikmyndahús er hliðstætt starfsemi upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna í Belgrad. LITTLE ROCK, 24. sept. — í dag kom til alvarlegra átaka í Little Rock milli hvítra og svartra. — Hófst bardaginn með því að 10 negrar réðust á 3 hvíta skóla- stráka — og slösuðust tveir hinna hvítu alvarlega í viðureigninni. Einn negri var handtekinn. Frú útför forsetafrúarinnar Georgíu Björnsson í gærdag í Fossvogs kirkju. Virðulegur blœr yfir útför frú Ceorgíu Björnsson HÁTÍÐLEGUR og í senn virðu- legur blær var yfir útför frú Georgíu Björnsson forsetafrúar, er fram fór frá Fossvogskirkju í gærdag, að viðstöddu fjölmenni. Einn elzti vinur Sveins forseta Björnssonar og frú Georgíu, séra Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti minningarræðuna. Meðal nærstaddra voru Ásgeir Ásgeirs- son forseti og frú Dóra Þórhalls- dóttir. Athöfnin hófst klukkan 1,30 með því að þeir dr. Páll ísólfsson og Björn Ólafsson léku sorgar- lag. I kórnum þar sem kista frú Georgíu Björnsson stóð var mik- ið blómskrúð. Mátti greina þar marga blómsveiga. Kransar voru m.a. frá forsetahjónunum, frá ríkisstjórninni, frá Alþingi, frá sendiráði íslands í Kaupmanna- höfn, frá ræðismönnum í Reykja- vík, frá sendiherra Breta hér, frá tékkneska sendiráðinu, frá Sjóvá Kommúnistar misstu 10 þotur Alvarleg vistaþurrð á Quemoy TAIPEI 24. september. — f dag kom til loftorrustu yfir Formósu sundi, 32 þotur frá Formósu voru á flugi þar í 35,000 feta hæð, .er 100 þotur kommúnista, af gerð- inni MIG 17, komu aðvífandi. Sló í bardaga, sem stóð í 10 mín- útur. Flugmenn þjóðernissinna segjast hafa skotið niður 10 þot- ur kommúnista, laskað nokkrar, en enga misst sjálfir. Talsmaður bandaríska hersins á Formósu vildi hvorki neita né staðfesta fréttina, en sagði upp- lýsingar þjóðernissinnahersins hafa reynzt réttar undanfarna daga. Ástandið á Quemoy er nú orð- ið alvarlegt, því að undanfarna daga hafa eyjaskeggjum aðeins borizt stjötti hluti þeirra vista, sem venjulega hrökkva til dag- legra þarfa. Stórskotahríð komm únista á eyjuna linnir ekki. Talið er, að meira en 350,000 sprengjum hafi verið skotið á eyjuna síðan „stríðið" hófst hinn 23. ágúst sl. Talið er, að þjóðernissinnar tengi vonir sínar við að komm- únistar bjóði vopnahlé. Hins vegar munu þjóðernissinnar verja Quemoy til síðasta manns. Talsmaður þjóðernissinna sagði í dag, að kommúnistar yrðu að hætta skothríðinni að fyrra bragði, þeir hefðu hafið hana. Engan veginn er talið líklegt, að kommúnistar ætli að bjóða vopnahlé. Ekkert bendir til bess nema síður sé. Við það bætist, að veðráttan er þeim hagstæð. Haustvindarnir eru farnir að blása — og ekki eykur það mögu leikana á því að þjóðernissinnar geti flutt nægar birgðir til Que- moy. r Arangurslausar viðræður? VARSJÁ, 24. sept. — Sendiherrar Bandaríkjanna og kommúnisku stjórnarinnar í Kína hittast á morgun í Varsjá í fjórða sinn. Samkvæmt góðum heimildum í borginni eru Kínverjar nú þeirr- ar skoðunar, að fundir þessir muni engan árangur bera. tryggingafélagi íslands, frá Helga P. Briem sendiherra og konu hans, ísafoldarprentsmiðju og frá starfsfólki prentsmiðjunnar. Auk þess voru stórir fallegir blóm- vendir í gólfvösum, og sjálf var hin hvíta kista öll fagurlega skreytt. Skömmu eftir að séra Bjarni Jónsson vígslubiskup, hóf ræðu sína, braust sólin fram úr skýj- unum og varpaði geislum sínum á ská gegnum gluggana inn í kór- inn. Séra Bjarni Jónsson sem var mikill vinur Sveins Björnssonar forseta, en þeir voru fjóra vetur skólabræður í Latínuskólanum, flutti mjög hugnæma minningar- ræðu um frú Georgíu. Séra Bjarni sem einnig jarðsöng Svein Björnsson, valdi honum texta úr Fjallræðunni, en hann vitnaði tíðum í Fjallræðuna, þá er hann flutti ávörp og ræður. Textinn er sr. Bjarni valdi er hann flutti minningarræðuna um Svein, var: „Þar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera“, Sr. Bjarni valdi einnig þennan texta úr Fjallræðunni er hann í gær flutti minningarræðuna um frú Georgíu, svohljóðandi. „Ekki kveikja menn Ijós og setja það undir mæliker, heldur á ljósstik- una og þá lýsir það öllum sem eru í húsinu". — Út frá þessu talaði séra Bjarni Jónsson um ævi og starf forsetafrúarinnar. Meðal nærstaddra voru ráð- herrar ásamt konum sínum, fjöldi embættismanna, sendiherr ax erlendra ríkja og þar var og margt vinafólk frúarinnar. Dr. Páll ísólfsson stjórnaði kór söngnum en sungnir voru þessir sálmar: Ó blessuð stund og á eftir minningarræðunni Hve sæl, óhve sæl og Fögur er foldin. Minnigarathöfninni lauk I sjálfri kirkjunni er vígslubiskup séra Bjarni Jónsson kastaði rek- unum. Að því búnu dróst hið himinbláa tjald fyrir kórinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.