Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 2
2 MORGl’NBLAÐIÐ Flmmtuclagur 25. sept. 1958 Japanska stjórnin óftast alvarlegar afleiðingar Formósudeilunnar Vill búa Japan nýtizku varnarvopnum TOKYO, 24. sept. — Uggur er í mönnum í æðri stöðum í Tokyo vegna atburðanna við Formósu. Eru á prjónunum ráðagerðir um að búa Japan nýtízku verndar- vopnum þegar í stað vegna ófrið- arhættunnar — og fá hjá Banda- ríkjamönnum fjarstýrðar eld- flaugar til loftvarna. Áætlað er, að í janúar n. k. sendi Bandaríkjamenn fyrstu eldflaugarnar til Japan, en frjáls- lyndir, sem hafa stjórn Japans í Fyrirmæli AMMAN, 24. sept. — Talsmaður brezkni herstjórnarinnar í Jórd- aníu skýrði svo frá í dag, að inn- an fárra daga mundi brezka stjórnin gefa nánari fyrrimæli ■m væntanlegan brottflutning brezka hersins frá Jórdaníu. sínum höndum, óttast, að jafnað- armenn beiti sér af alefli gegn slíkum ráðstöfunum. Einn af talsmönnum stjórnar- innar hefur látið svo um mælt, að þess sé vænzt, að Bandaríkja- menn noti hernaðarlega aðstöðu sína í Japan til hins ýtrasta vegna hinna alvarlegu atburða við Formósu — og grípa verði til róttækra ráðstafana til þess að efla varnír Japans, Rússarnir séu skammt undan — og þeir hafi ásamt Kínverjum mjög mikinn herstyrk við Kyrrahaf. Björgunarverðlaun úr verðlaunasjóöi Cunnars H afbergs STJÓRN Hafbergssjóðs, sem er í vörzlu Slysavarnafélags ís- lands, hefur ákveðið að veita 14 ára pilti í Stykkishólmi, Jakobi Sigurbjörnssyni, kr. 1000.00 úr sjóðnum í viðurkenningarskyni fyrir það er hann 22. marz sl. bjargaði 10 ára dreng, Snæbirni Jóhannssyni, er fallið hafði út af Snérist gegn vegna N asser BAGDAD, 24. sept. — Réttar- höldunum yfir Jamali, fyrrum forsætisráðherra fraks, hélt áfram í dag. Hann er sakaður um að hafa átt þátt í samsæri gegn stjórn Sýrlands. Jamali neitaði sakargiftinni. Hann sagðist hafa kosið samstöðu STEF annast réttindagæzlu ritverka Á AÐALFUNDI Alþjóðasam- bands höfunda í Belgíu nýlega var íslenzka STEF kjörið sem varanlegur aðili 1 rithöfunda- deild sambandsins til að annast gagnkvæma réttindagæzlu rit- verka, endurprentunar, opinbers flutnings, hljóðritunar og annarr ar hagnýtingar ritverka, sem höf- undarnir sjálfir geta ekki annazt hver fyrir sig. Fréttir i stuttu máli BREZKA Alþýðusambandið mun fara þess á leit við Mac- millan, að haldin verði ráðstefna um Formósumálið. Brezku stjórn inni beri að gera allt, sem í henn ar valdi stendur til þess að af- stýra frekari átökum á Formósu- sundi. A 12 MENN hafa verið hand- teknir í Antwerpen í sambandi við dauða allmargra manna vegna neyzlu tréspírituss. * UTANRÍKISRÁÐHERRAR 20 Ameríkurikja hafa setið á rök- stólum í Washington og komizt að samkomulagi um, að nauðsyn bæri til nánari efnahagslegrar samvinnu Ameríkuríkjanna allra. ÍC GOMULKA hefur gagnrýnt kaþólsku kirkjuna harðlega og sagt hana vinna gegn hagsmun- um ríkisins. 95% Pólverja eru kaþóiskir. if ENN hafa orðið átök með Alsírmönnum og frönsku lög- reglunni í Frakklandi. ic TILKYNNT hefur verið í Kairo, að furstadæmið Kuwait, sem framleiðir meira en helm- inginn af olíu þeirri, sem Bretar nota, muni sækja um inngöngu í Arababandalagið. i( í TOKYO er tilkynnt, að í undirbúningi sé endurskoðun varnarsamnings Japans og Banda ríkjanna. með Vesturveldunum vegna þess að nú á tímum væri aðeins um tvennt að ræða fyrir smáríkin: Að vera sterk, eða standa með stórveldi. Ég kaus vestrið af því að heimsvaldastefnan er að deyja út, en kommúnisminn er vaxandi ógnun, sagði hann. Jamali sagði ennfremur að Nasser hefði engan rétt til þess að þröngva sinni stjórn yfir önn- ur ríki. Hann hefði snúizt gegn Nasser vegna hins gegndarlausa áróðurs hans, sérstaklega útvarps áróðursins. Frekari yfirheyrslum var frest- að. Ræðismannimim barstgjöf frá borgarstjórninni EINAR B. Pálsson yfirverkfræð- ingur hjá Reykjavíkurbæ, kom í fyrradag frá Þýzkalandi. Hafði Einar komið við í Lúbeck, á leið- inni heim og verið gestur í af- mæli Árna Siemsens ræðismanns, er var sjötugur síðastl. mánudag. Margt gesta heimsótti Árna þennan dag. Meðal þeirra var fulltrúi borgarstjórnar Lúbeck- borgar, er færði ræðismanninum sérstakar kveðjur og árnaðarósk- ir borgarstjórnarinnar og færði honum gjöf frá henni í tilefni af afmælinu, og þakkaði fulltrúinn Árna í nafni borgarinnar fyrir vel unnin störf um hálfrar aldar skeið, sem hann hefur búið þar, og það hve miklu ástfóstri hann hefur tekið við hina þýzku borg. Var setið í góðum fagnað á heimili Árna langt fram á kvöld. Var ljóst að Árni nýtur trausts og virðingar samborgara sinna. hafskipabryggjunni í Stykkis- hólmi. Var Snæbjörn litli á reið- hjóli en fremst á bryggjunni rak hann hjólið í og steyptist á höf- uðið í sjóinn, þar sem lágsjávað var, var þetta mikið fall og hlaut drengurinn allmikinn skurð á höfuðið og missti þegar meðvit- und. Jakob, sem bar þarna að hafði engin umsvif heldur fleygði sér til sunds eftir piltinum og tókst honum að bjarga drengnum meðvitundarlausum að landi. Þykir Jakob hafa sýnt hið mesta snarræði og fórnfýsi við þessa björgun og því maklegur þessar- ar viðurkenningar. Hafbergssjóður er stofnaður af Engilbert Hafberg kaupmanni, til minningar um son hans, Gunnar Hafberg, sem fórst af slysi 25. júlí 1943. Tilgangur sjóðsins er að veita unglingum innan 18 ára aldurs viðurkenningu fyrir að bjarga mannslífum á sjó eða landi, og fyrir að sýna sér- stakan dugnað og snarræði til hjálpar er slys ber að höndum. Stjórn sjóðsins skipa 3 menn og er forseti Slysavarnafélags ís- lands ávallt formaður hans, en auk hans skipa sjóðstjórnina, for- maður Slysavarnadeildar Ingólfs og formaður ungmennadeildar- innar í Reykjavík. Þegar ástæða þykir til að veita verðlaun úr sjóðnum skulu þau ávallt af- hent viðkomandi 25. sept., sem er afmælisdagur Gunnars heitins Hafbergs. Ur sjóðnum hefir áður verið veitt viðurkenningum eft- irtöldum ungmennum: Þórði Ól. Þorvaldssyni, Reykjavík, 13 ára pilti fyrir að bjarga 3ja ára telpu úr eldsvoða 9. marz 1947, Stein- dóri Arasyni, 17 ára pilti á ísafirði fyrir að bjarga 6 ára dreng er fallið hafði fram af bryggju á ísafirði 1948, og var sá drengur einnig búinn að missa meðvitund er honum var bjarg- að. — Umsóknir um verðlaun úr Hafbergssjóði skulu sendar stjórn sjóðsins fyrir lok hvers árs og skal fylgja þeim staðfest skýrsla um hin unnu afrek. symr v Sjálfsmynd, eitt af verkunum á sýningu Ágústs. r Agúst F. Petersen erk sín í Sýningarsalnnm KLUKKAN 1 á morgun verður almenningi opnuð málverkasýn- ing í Sýningarsalnum við Hverf- isgötu. Er það Ágúst F. Petersen, listmálari frá Vestmannaeyjum, sem heldur þar sína fyrstu sjálf- stæðu sýningu. Á sýningurmi eru 20 málverk, landlagsmyndir, úpp stillingar, mannamyndir og kon- kret-málverk. Ágúst byrjaði að mála í æsku án nokkurrar tilsagnar. Siðar hef- ur hann notið handleiðslu list- málaranna Þorvalds Skúlasonar og Harðar Ágústssonar og einnig farið námsferðir til Parísar. Hann var á sínum tíma einn af stofn- endum Myndlistarskólans í Reykjavík og hefur verið leið- andi maður í þeim félagsskap frá fyrstu tíð. Ágúst heíur sýnt verk sín á samsýningum hér heima og erlendis á árunum 1947 til 1955. 'Sýningin verður opin til 9. októ- ber nk. Eins og áður segir verður hún opnuð almenningi kl. 1 á morgun, en hún er opnuð kl. 8,30 í kvöld fyrir boðsgesti Sýning- arsalarins. Neðansjávnr á annan mánuð WASHINGTON, 24. sept. — Bandaríski kjarnorkukafbáturinn Seavolf hefur sett nýtt met í köfun. Hann fór í kaf hinn 5. ágúst s. 1. — og er enn í kafi. Fyrra metið átti kafbáturinn Skate, sem er af sömu gerð. Hann var í kafi 31 dag og 5 stundir. Samkvæmt tilkynningu fiota- stjórnarinnar bandarísku er þessi köfunartilraun ekki gerð til þess að setja nýtt met, heldur til þess að reyna þolgæði áhafnarinnar og hæfni mannsins til þess að lifa í „tilbún«“ andrúmslofti. — Sea- wolfe er á Atlantshafi. Fallinn í ónáð BERLÍN, 24. sept. — Grotewohl, forsætisráðherra A-Þýzkalands, skýrði frá því í dag, að Fritz Selbmann, hagfræðisérfræðingur, hefði venð leystur frá stöðu sinni sem aðstoðarforsætisráðherra. — Selbmann hefur sætt harðri gagn rýni að undanförnu. Er hann sak- aður um að hafa vitað um skipu- lögð samtök til þess að varpa Grotewohl fyrir borð, en ekkl ljóstrað upp um samsærið. Meistaraprófs- fyrirlestur LAUGARDAGINN 27. septemhw flytja tveir kandídatar fyrir- lestra við Háskóla íslands sem lokaþátt í meistaraprófi í ía. lenzkum fræðum: Fyrirlestrarnlr verða fluttir í I. kennslustofu og er öllum heimill aðgangur. Cand. phil. Nanna Ólafsdóttir flytur fyrirlestur um Eiðinn eftir Þorstein Erlingsson. Hefst nann kl. 2 e. h. stundvíslega. Cand. phil. Baldur Jónsson flytur fyrirlestur um Björn Þor- leifsson hirðstjóra. Hefst hann kl. 4 e. h. stundvíslega. Bretar setja Boeing 707 LONDON, 24. sept. — Allt bendir til þess, að bandaríska flugfélag- ið Pan American hafi þegar tap- að í samkeppninni við brezka flugfélagið BOAC um að verða fyrst með þotur á Atlantshafs- leiðinni. Bandaríska félagið ætlar að hefja ferðir með Boeing 707 hinn 26. okt. eins og kunn- ugt er, en BOAC ætlar að taka Comet IV í notkun hið fyrsta. Formósumálið rœtt Allsherjarþinginu NEW YORK, 24. sept. — For- ógna mósumálið var rætt á Allsherj- arþinginu í dag. Tóku margir til máls — og réðust fulltrúar kommúnistaríkjanna harkalega á Bandaríkjastjórn og sögðu hana Spaak flutti fastaráðinu skýrslu PARÍS, 24. sept. — Fastaráð Atlantshafsbandalagsins ræddi í dag Kýpurmálið. Paul Henri Spaak, framkvæmdastjóri banda- lagsins, gaf skýrslu um viðræður sínar við gríska leiðtoga. Meðlim- ir ráðsins munu ráðgast við ríkis- stjórnir sínar í kvöld, en á morg- un verður haldinn annar fund- ur — og að honum loknum mun Spaak halda til Bandaríkjanna, í þriggja vikna heimsókn. Ástandið er orðið alvarlegt, því að Grikkir hafa hótað því að slíta stjórnmálatengslum við Bretland og Tyrkland, ef Bretar láta verða af ráðagerð sinni um að senda sérlegan ráðgjafa land- stjóranum á Kýpur til aðstoðar. f brezku áætluninni um framtíð- arstjórn Kýpur var tyrknesku og grísku stjórninm boðið að senda fulltrúa landsstjóranum til að- stoðar. Spaak lét svo um mælt í dag, að yfirlýsing Makariosar um til- lögu hans um sjálfstæði Kýpur væri „athyglisverð", en Spaak neitaði að gera frekar grein fynr SKoðunum sinum á tillögunm. heimsfriðinum, en aðrir fulltrúar lögðu áherzlu á það, að koma ætti í veg fyrir að vald- beiting yrði notuð til landvinn- inga — jafnt við Kínastrendur, sem annars staðar í heiminum. Formósumálið setur svip sinn á allar viðræður manna í aðal- stöðvum S. Þ. Mikið er rætt um sendiherraviðræðurnar í Varsjá, því að ljóst er, að Bandaríkja- stjórn skýtur málinu til S. Þ. ef þær viðræður bera engan árang- ur. í kvöld bárust þær fregnir frá Washington, að viðræður þess ar væru svo gott sem farnar út um þúfur. Lloyd, utanríkisráðherfa Breta, og Gromyko, utanríkisráðherra Rússa, snæddu saman í dag — og sagt er, að þeir hafi mikið rætt Formósumálið. M. a. hafi Lloyd sagt Gromyko, að Russar yruð að sjá svo um, að samkomu- lag næðist, en Gromyko hafði talið öll vandkvæði á því, ef Bandaríkjamenn flyttu her sinn ekki fra Formosu. fótinn fyrir Búizt var við harðri samkeppni, en nú blæs ekki byrlega fyrir Bandaríkjamönnunum. Gert var ráð fyrir, að í fyrstu yrði aðeins flogið milli New York, Parísar og Rómaborgar, því að yfirstjórn Lundúnaflugvallar hafa enn ekki veitt Boeing lendmgarleyfi. — Sama máli gegnir um Parisar- flugvöllinn, en flugfélagið batt miklar vonir við að Frakkarnir mundu gefa sig fyrir tilsetlan tíma. Svo virðist pó ekkl ætla að verða. Frakkarmr fara að dæmi Breta og telja hávaðann fra Boe- ing 707 allt of mikinn. Viö hávaðamælingar, sem nýlega voru gerðar á Lundúnaflugvelli, þegar Boeing var þar, kom í ljós, að sú þota mun valda miklu meiri truflunum á jörðu niðn en Com- et. Ekki einungis í nánd við flug- völlinn — heldur og víðs fjarri honum. Astæðan er sú, að Boeing er miklu þyngri en Cómet — og getur ekki hækkað flugið jafn skjótt. Ekki er laust við að hlakki í Bretunum, því að ailt bendir nú til þess, að Comet verði ein um hituna. Furðufréttir LONDON, 24. sept. — Franskur vísindamaður kvaðst nafa grætt hornhimnu úr hundi við manns- auga. Sami víslndamaður segir, að þetta sé í þriðja sinn, sem slík tilraun heppnist. Jafnframt hafi verið fundin aðferð til þess að geyma hornhimnu óendanlega lengi í lífrænu ástandi. Þá er skýrt frá því í Moskvu, að rússneskum vísindamanni hafi tekizt að græða haus af hvolpt vlð búk fullvaxins hunds.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.