Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 6
e MORGUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 25. sept. 1958 SL. íimmtudag gafst tíðinda- mönnum blaðsins tækifæri til að sjá merkilega sýningu á logsuðu- og logskurðartækjum í samkomu sal Landssmiðjunnar í Reykja- vík. Sýningin fór fram á vegum Harris Calorific Co. í Bandaríkj- unum og umboðsmanna firmans hér G. Þorsteinsson & Johnson h.f. Safnazt höfðu saman á annað hundrað logsuðumenn úr Reykja- vík og víðar að, til að sjá Roy Rasmunsen sýna nýjar gerðir af Harris logskurðartækjum og hit- ara, sem nota Propane-gas í stað Accetylen-gass. Þessi breyting hfur það í för með sér, að kostn- aður við logskurð getur lækkað um allt að 60%. Notkun á Propane-gasi hefur ekki þekkzt hér áður við log- skurð, en hefur rutt sér mjög til rúms erlendis. Auk þessa sýndi Roy Rassmun- sen mönnum nýja gerð af Harris þrýstijöfnurum. Að lokum svar- aði hann margvíslegum fyrir- spurnum, sem fyrir hann voru lagðar. Þessi sýning tókst vel og mátti heyra á undirtektum að iðnaðar- mennirnir meta mikils svona kynningarstarfsemi og væri æski legt að meira væri gert að slíku. Bretar hafa áhyggjur af því að mega ekki leita hafnar á Islandi BREZKA blaðið Daily Telegraph velti því fyrir sér í fyrsta skipti á laugardaginn, hvað brezku land helgisbrjótarnir skyldu til bragðs taka, ef einhver af áhöfn togar- anna slasaðist eða yrði alvarlega sjúkur. Enn sem komið er, segir blaðið að.ekkert slíkt hafi komið fyrir um borð í brezku togur- unum. Virðist það álit fréttarit- ara blaðsins, að þeir geti ekki leitað til íslenzkrar hafnar. Skýrt er frá því að nýlega hafi Farþegar til Græn- lands koma hér v/ð MEÐAL farþega frá Kaupmanna- höfn-með Gullfaxa s. 1. föstudags- kvöld voru Höjgárd verkfræð- ingur, Thorsen verkfræðingur, Hans C. Christiansen forstjóri hinnar Konunglegu Grænlands- verzlunar og Eske Bruun, ráðu- neytisstjóri í Grænlandsmála- ráðuneytinu. Einnig voru í fylgd með þeim tvær skrifstofustúlkur. Hópurinn fór héðan með Sólfaxa á laugardaginn til Syðri-Straum- fjarðar en þaðan verður haldið til Badaríkjanna með viðkomu í Thule. í Bandaríkjunum munu fara fram samningar um áframhald- andi framkvæmdir Bandaríkja- manna í Grænlandi, en verkfræð- ingarnir Höjgárd og Thorsen eru framarlega í fyrirtækinu Nor- rænum heimskautaverktökum, sem haft hefir með höndum mikl- ar framkvæmdir þar nyrðra. Nú liggja fyrir áætlanir um byggingu nýrrar hafnar á Vest- ur-Grænlandi á eyju nálægt Godtháb og er byggingarkostnað- ur áætlaður um 300 millj. danskra króna. Þess má geta í þessu sambandi að fyrirtæki Höjgárds verkfræð- ings byggði á s'ínum tíma raf- stöðina við Ljósafoss og höfnina í Gdynia í Póllandi. EGGERT CLAESSEN og GÚSTAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögmenn. Þórshamn við Templarasund 14 ára léttadrengur, Johnny Calcoen á belgískum togara slas- azt. Togarinn, sem heitir Breug- hel frá Ostende 810 tonn hefur verið að veiðum utan 12 mílna1 landheigi, virðist því óskiljanlegt,, hvers vegna hann leitaði ekki til íslenzkrar hafnar með hinn slas- aða mann. Þess í stað setti togarinn sig í sambandi við brezka eftirlits- skipið Russel og skýrði frá því að léttadrengurinn hefði hand- leggsbrotnað um olnboga. Russel sagði Belgíumanninum að búlka veiðarfærin og koma með full- um hraða. Þegar togarinn var kominn til Russels fór enskur læknir um borð í hann og hugaði að meiðslum drengsins. Síðan hætti togarinn veiðum ,en sig.'di utan. Var það ætlunin að setja drenginn í land í Færeyjum, en Brueghel ætlaði að sigla til Ostende. Þá skýrir Daily Telegraph frá því að Grimsby togarinn Derby County, sem er 400 smálestir hefði komizt í hann krappann við landhelgisbrot undan íslands- ströndum. Það var aðfaranótt föstudagsins, sem vél hans bilaði í þungum sjó. Vélamenn úr Russ- ell fóru yfir í hann og voru heila nótt að gera við skemmd- irnar. Alla nóttina lá brezka eftirlitsskipið hjá togaranum til þess að hindra að íslenzka land- helgisgæzlan notaði tækifærið — Eftir viðgerðina hélt togarinn áfram veiðum innan 12 mílna markalínunnar. Hún litla á Brú NÝKOMNAR eru 4 plötur hjá Fálkanum, sungnar af Hauki Morthens. Við þekkjum öll Hauk, en samt finnst mér ég ekki geta látið hjá líða, að hripa niður nokkrar línur um þessar prýðisplötur. Undirleikinn á öllum plötunum annast hljómsveit Jörn Grauen- gárds, og er hann fágaður að vanda og öllu stillt í hóf. Fyrst skal frægt telja kvæðið um hana Catarinu litlu: hægan vals eftir Jón frá Hvanná. Þetta er mjög vel samið lag, sungið af tilfinningu og smekkvísi af Hauki, fiðlustrengirnir í bak- grunninum spilla ekki. Takið eft- ir, þetta er íslenzkt lag við ís- lenzkt Ijóð. Á hinni síðunni er lagið „Lipur- tá“ (Lollipop), létt og leikandi, eins og Lipurtá á að vera. Hauk- ur syngur lagið af glettni, og er vel viðeigandi. Þeir, sem ekki hafa þarfara við tímann að gera, geta skemmt sér við að telja hvað oft orðið Lipurtá kemur fyrir í textanum. Annars er óþarfi að amast við endurtekningunni á titilorðinu, hún spillir hér engu. Þá komum við að „Rock- Calipso í réttunum“ (When Rock’n-Roll came to Trinidad). Þetta er ágætt calipso-lag, með gríntexta eftir Jón Sigurðsson. Ég verð að vísu að játa það, að ég á bágt með að ímynda mér þá Húnvetninga og Skagfirðinga í Rock-Calipso dansi norður í Stafnsrétt, að vísu má líkja stympingunum við stóðið við Rock’n-Roll dans. Textaframburð ur Hauks er skýr og réttur. Hann syngur pilsunum, réttunum, en ekki pilsonum, réttonum, eins og einn ágætur söngvari söng hér um árið. Ásta Sveinsdóttir og Tólfti september, eiga þarna valsana Ný leib SVR Fimmtudaginn 25. þ.m. verður hafinn akstur. á nýrri strætis- vagnaleið, sem ber nafnið Bú- staðahverfi og verður nr. 20. Akstur á þessari leið hefst í Lækjargötu, fyrir neðan Mennta- skólann og verður ekið um Frí- kirkjuveg, Sóleyjargötu, Miklu- braut, Sogaveg, Tunguveg, Bú- staðaveg, Grensásveg, Miklubraut, Lönguhlíð, Laugaveg í Lækjar- götu. Ekið verður á hálftíma fresti, 15 mín. yfir og íyrir heilan tíma. skrifar ur daglegq iífiriu VELVAKANDA hefur borizt eftirfarandi bréf um flug- póstþjónustuna: „Nýlega var frá því skýrt, að með bættum húsakynnum og ýms um nýjungum mætti nú búast við stórbættri póstþjónustu. Það er rétt, að húsakynnin hafa verið bætt, ýmsar skipulagsbreytingar átt sér stað og góð tæki verið tekin í notkun. Hitt er svo annað mál, að allir munu mjög óánægð- ir með styttan frest, þegar skila- skal flugpóstsendingu fyrir næstu flugferð til útlanda. Bréf skilist 14 klst. fyrir brottfarartíma AÐUR var það svo, að bréf þurftu að vera komin í póst- stofurnar fyrir kl. 6.00 (að morgni) — eða yfirleitt 2 klst. fyrir brottför flugvélar. Nú er það víst hins vegar svo, að flug- póstsendingum, bréfum sem öðr- um, ber að skila fyrir kl. 18.00 (að kvöldi) — eða 14 (fjórtán) klukkustundum fyrir venjulegan brottfarartíma á algengustu flugleiðum til útlanda. Sú skýring hefur verið gefin af starfsmanni pósthússins, að póst- stjórnin vildi helzt ekki þurfa að greiða eftir- og næturvinnu. Á laugardögum mun ekkj vera átt Við að afgreiða flugpóstsend- ingar eftir kl. 13.00. Við slík störf virðist og ekki vera unnið á sunnudögum. Flugpóstbréf, sem t. d. kemur í póstkassa aðalpóst- stofunnar kl. 14 á laugardögum, nær ekki sunnudagsvél til út- landa, væntanlega þá ekki heldur mánudagsvél, sem leggur af stað kl. 8.00, heldur bíður þriðju- dagsvélar, ef flogið er þá. Eftir þessu er möguleiki á 68 klst. töf, þar til bréfið kemst af stað. Fimmfalt burðargjald NÚ er það svo, að á bréfi frá Danmörku er 0,30 d. kr. frí- merki. Það samsvarar 71 eyri á skráðu gengi. Póststjórnin hér heimtar aftur á móti kr. 3,50 fyrir sína þjónustu, þ. e. fimmfalda upphæð. Frá Sviss koma bréf í flugpósti með 0,40 Fr. frímerki — samsvarandi kr. 1,50 ísl. — fyrix sömu þjónustu er krafizt hér kr. 4,00, sem er 2,7 falt gjald. Hvað segja kaupsýslumenn um ofangreint, og hvað segja bankar og ýmsar opinberar stofnanir? Hverju hefur póstmeistarinn í Reykjavík og Póst- og símamála- stjórnin til að svara? í allri kurt- eisi væri æskilegt að fá skýring- ar, því póstþjónustan hérlendis er áreiðanlega orðin það dýr, að beztu þjónustu má krefjast.“ Að sj álfsögðu fá þessir aðilar rúm fyrir svar sitt í þessum dálk Símastúlkurnar sérlega liprar ÞAÐ er rétt að geta þess sem vel er gert engu síður en hins. „Sjómaður af Suðurnesj- um“ skrifaði fyrir skömmu og vildi koma á framfæri hrósi um símastúlkurnar á Siglufirði, sem hann segir að hafi sýnt einstaka lipurð í allri afgreiðslu í sumar. Sé það þó enginn leikur að af- greiða samtöl þarna, þegar land- lega sé hjá síldarbátunum og allir sjómenn vilji síma heim til sín á sama tíma. Segir hann að stúik urnar hafi jafnvel setið fram yfir lokunartíma, til að geta veitt sem flestum úrlausn og viljað leysa hvers manns vanda á sem skemmstum tíma. „Bláu augun“ og „Frostrósir", ágæt lög og vel raddsett. Stefnumót (Buzz-Buzz-Buzz) þykir mér einna minnst til koma, enda leikið fullhratt. Rúsínan í pylsuendanum er svo lagið Lóa litla á Brú. Hér er Haukur „í stuði“ og lætur gamm- inn geysa. Gítarsóló Grauengárds er líka mjög skemmtileg, og und- irleikur hljómsveitarinnar. Um söng Hauks Morthens á plötum þessum má segja að hann er góður og þær vandaðar að allri hljómsveitarraddsetningu og upp töku. Haukur er alltaf að vaxa, og á meira til í pokahorninu. Lög þessi mættu að skaðlausu heyrast oft- ar í óskalagaþáttum útvarpsins, og myndi auk þess spara um- sjónarmönnum þeirra þuluna: „Ég ætla lofa ykkur að heyra lag, sem hefur verið kosið eitt af tíu beztu“ o. s. frv. 19. september. Árni ísleifsson. Konráð Jóhannes- son flugmaður í Kanada í 49 ár í HEIMSKRINGLU, blaði Vestur- íslendinga, frá 20. ágúst s. 1., er frá því skýrt að Konráð Jóhannes son hafi átt 40 ára flugmanns- afmæli 10. ágúst. — Hafi þá Winnipeg Tribune birt grein um Konráð og farið viðurkenningar- orðum um hann. Konráð er nú 62 ára að aldri. Konráð Jóhannesson í Heimskringlu segir svo: „Blað ið telur Konráði margt til frægð- ar. Er eitt meðal annars það, að hann hafi verið flugkennari hóps flugmanna, sem vandasömustu flugstörf hafi hér á hendi. Að öðru leyti telur blaðið hann hafa verið þann frumherja flug- mála hér, að koma á fiski-flutn- ingi, náma flutningi og gripa, með flugvélum. Konráð Jóhannesson er fædd- ur 10. ágúst 1896 í Argyle-byggð, sonur Jónasar Jóhannessonar írá Geiteyjarströnd . í Mývatnssveit og Rósu Einarsdóttur frá Húsa- vík. Konráð gekk í herinn 18. marz 1916 og sigldi ári síðar til Englands. Þaðan var hann sendur til Egyptalands til að starfa þar við flugskóla. Hann kom heim aftur 19. maí 1919, stundaði hér háskólanóm og flugkennslu hjá hernum um skeið og síðar á eig- in spýtur, sem íslendingum er kunnugt. Þáttur þessa íslendings i flug- sögu Kanada, er honum og ís- lendingum til frama“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.