Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.09.1958, Blaðsíða 18
18 MORGVISBLAÐIÐ Flmmíudagur 25. sept. 1958 Ti! sölu er matvöruverzl un í Austurbænum. — Uppl. gefur: Málflutningsstofa Sigurðar Ólasonar og Þorvaldar Lúðvíkssonar, Austurstr. 14, sími 15535. AfgreiÖslumann Samband ísl. samvinnufélaga óskar að ráða afgreiðslumanen sem fyrst að verzlun í Reykjavík. Upplýsingar (ekki í síma) í starfs- mannahaldi StS, Sambandshúsinu við Sölvhóls- götu, III. hæð. Uppboð á íbúðarskúr á lóðinni nr. 62 við Skipasund, hér í bænum, með leigulóðarréttindum, eign dánarbús Sesselju Haraldsdóttur, fer fram eftir ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur á eigninni sjálfri laugar- daginn 27. september 1958, kl. 2,30 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík. Heildsölufyrirtæki óskar að ráða stúlkur til enskra, danskra bréfaskrifta og bókhalds- starfa. Got kaup. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „7751“. i Tilkynning Veitingastofan VEGA hættir störfum í dag, 25. sept. um óákveðinn tíma. Þakka öllum viðskiptavinum ánægjuleg viðskipti. Friðsteinn Jónsson Stúlka ekki yngri en 20 ára óskast til afgreiðslu- starfa. Einnig unglingur 14—16 ára til aðstoðar við ýmiss störf. — Upplýsingar í síma 16808. Flintkote fyrirliggjandi í 5 I. G.-brúsum. Pantanir óskast sótta»r sem fyrst. Olíufélagið Skeljungur hf. Verzlun, Ægisgötu 10 Sími 2-44-20 — / Norðurleit Framh. af bls. 8 menn. Allt fór þetta samt vel að lokum og vona ég að ekki hafi orðið mikið eftir, því oft sá ég næsta leitarmann austan við Spánverjann og mun hann hafa tekið við fénu sem hraktist und- an okkur Jóni. Um nónbilið var meginhluti gangnamannanna kom inn niður í Gljúfurleit, en þar skyldi áð næstu nótt. Safnið var rekið fram yfir Gljúfurá en áður voru allar ær og gimbrar merktar með bláu merki milli hornanna. Þetta er gert til þess að bændur setji frekar á þær gimbrar, sem fylgt hafa mæðrum sínum fremst fram á afrétti. Eins og kunnugt er, er fjárstofn þeirra Hreppa- manna tiltölulega nýr og ókunn- ugur á afréttinum og tekur því nokkurn tíma að venja hann í efstu grös. Hátíð í Gljúfurleit Það var hátíð í Gljúfurleit um kvöldið. Fjallkóngur okkar var sóttur heim í gangnakofann í til- efni þess að á þessu hausti skipar hann í 30. sinn í leitir sem fjall- kóngur þeirra Gnúpverja. Var söngur og gleði í gangnakofanum. Jón Ólafsson bóndi í Geldinga- holti ávarpaði fjallkónginn fyrir hönd gangnamanna og þakkaði honum störf hans sem fjallkóngs. Jóhann þakkaði heimsóknina og bað- menn syngja og vera káta. Aður en ég gekk til náða um morgun við fyrstu skímu dags- ins. Sama sagan endurtók sig, búið var upp á trússhesta og nátt staður yfirgefinn. Jóhann skip- aði í leitir, en nú var ég annar þeirra, sem lengst þurftu að fara þann daginn. Vestastur var skip- aður Jón í Geldingaholti, en ég við hlið hans. Fórum við því fyrstir af stað, enda áttum við langa leið fyrir höndum vestur yfir Öræfin og inn fyrir svonefnt Lambafell, inn í Fossárdrög. Þar hittum við landmælingamenn. Meðal þeirra voru gamlir skóla- félagar, en sökum þess að okkur lá á, gafst tími til lítils armars en að heilsast og kveðjast. Við héldum nú niður með Lambafelli að vestan og urðum engrar kind- ar varir fyrr en við vorum komn- ir fram undir Kistu. Segir fátt af göngunum þennan daginn ann að en að þær gengu allvel, og veður var gott. Víða er góður reið vegur og gátum við vestustu mennirnir farið greitt yfir. Þó koma slæmar grjóturðir á milli. Niður undir Háafoss komum við um 2-leytið um daginn, en þar var okkur gert að bíða, þar til safnið tæki að renna yfir Sand- fellið, austur undan okkur. Leitað í Fossgili Sem kunnugt er, fellur Háifoss niður í djúpt og hrikalegt g)l. Þangað höfðu tvær kindur ólpast og urðum við að klöngr- ast niður tii þess að sækja þær, því enga kind má skilja eftir, ef þess er nokkur kostur að ná henni. Gekk þetta allsæmilega, en síðan tókum við okkur um það bil klukkutíma hvíld. Þennan dag hafði ég tvo til reiðar og þurfti nú ekkj lengur að leggja minn þunga skrokk á Blesa einan. Jón í Geldingaholti hafði fært mér jarpa hryssu, liðlegt og skemmti- legt hross og gat ég því skipt byrðinni milli þeirra. Upp úr nóni rann safnið fram yfir Sandafellið og niður í Hóla- skóg. Hér má segja, að mestum hluta gangnanna sé lokið. Féð er allt rekið í gerði í Hólaskógi. Undir myrkur um kvöldið er því síðan hlaypt fram íyrir girðing- una og dreifir það sér þá um Stangárfjall. Er það einasti biett- urinn, sem smala þarf næsta dag. í Hólaskógi er svo síðasti nátt- staðurinn í óbyggð. Næsta dag nálgumst við menninguna á ný, fram undan fer reksturinn, um 10 þúsund fjár, um hinn fræga Þjórsárdal. tm ííSgPsf^ii Úr Hólaskógi eru trússhestarnir reknir lausir, en baggarnir settir á stóran flutningabíl, eins og myndin sýnir. nóttina gekk ég afsíðis, eins og gengur. Virtist mér þá sem tveir hestar hoppuðu í höftum eftir brúninni fyrir ofan tjaldstaðinn. Kolsvart náttmyrkur var á. Ég hljóp upp á brúnina og bjóst við að ná þar strokuhestunum. Þetta reyndist þó misskilningur. Ég var þó ekki ánægður með þetta, heldur gekk ég norður fyr ir tjaldstaðinn í áttina til nátt- hagans, sem er all-langt frá tjöldunum. Og þar mæti ég fimm hestum, sem sýnilega höfðu strok í huga. Ég brá mér heim að tjö’d- unum, náði 'í einn félaga minna og við handsömuðum gripina og bundum á streng. Um nóttina yfir gáfu fleiri hestar nátthagann, en sem betur fór stönzuðu þeir allir hjá bundnu heStunum. Eins og jafnan áður vöknuðum við næsta STLLKLR ÓSKAST til verksmiðjustarfa Skógerð Kristjáns Guðmundssonar hf. Spítalastíg 10 Til sölu notaður Moskvich '57 Bifreida- og landbúnaðarvélar Brautarholti 20 — Sími 10386 Atvinna Okkur vantar mann til að vinna við hreinsun og ræsting bifreiða. Bifreiðastöð Steindórs Sími11588 Þessi mynd er tekin austan við Háafoss og sést ofan í Fossdal- inn. Neðst til vinstri á myndinni eru tveir hvítir deplar og eru það Kindur, sem hafa lagt niður í brattann til þess að leita sér kjarngóðra grastoppa á syllunum. —vig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.