Morgunblaðið - 28.08.1966, Síða 12

Morgunblaðið - 28.08.1966, Síða 12
12 MORGUHBLAÐIÐ SunnudagUr 28. ágúst 1966 W I ff. : i I 1 Þ.IÐ var einn daginn, áður en byrjaði að rigna, að blaða- maður Morgunblaðsins átti leið um Garðastrætið og varð þá í forvitni litið sem snöggv ast inn í Hallveigarstaði. Þaðan bárust hljóð, sem vel gátu átt heima í kjarnorku- aldar tónverki og þar inni gat að líta glæringar miklar. • Kom fljótt í ljós að þar voru ekki tónsmiðir að verki, held ur jámsmiður og myndasmið- ur, þau Magnús Pálsson og Eyborg Guðmundsdóttir. Var verið að setja upp stigahand- rið mikið og sérkennilegt, sem Eyborg hefur teiknað og virtist mér, sem það mundi verða til mikillar prýði í þessu myndarlega húsi. Er þetta hringstigi úr smíðajárni Unnið að stiganum í Hallveigarstöðum. Myndirnar mínar þurfa góða birtu — Rabbað smástund við Eyborgu Guðmundsdóttur, listmalara aði sterkt kaffi og horfði á Eyborgu bjarga bókunum sínum úr vatnselgnum, sem streymdi inn um gluggann. Eitthvað hlaut undan að láta í öðru eins veðri. Á meðan röbbuðum við um það, hversu ágætt væri, að listamönnum væri nú í æ meiri mæli falið að skreyta byggingar héi á landi — þó því færi enn fjarri, að nóg væri að gert í þeim efnum. Við þyrftum að fá sett lög eins og eru víða í Evrópu, til dæmis Frakklandi, Þýzka- landi, Hollandi og víðar, þar sem skylt er að verja ákveð- inni upphæð, c.a. 1% af heildarkostnaði við opinber- ar byggingar til listrænnar skreytingar í einhverri mynd. Eyborg sagði mér, að hún hefði gert stigann í Hall- veigarstöðum að tilhlutan frú Sigríðar J. Magnússon, for- manns byggingarnefndar. — ,,það var eftir sýninguna mína í fyrra, að þetta kom til, sagði Eyborg. „Ég gerði teikn ingu og sendi frú Sigríði sem bar hana síðan undir arki- tektinn Skarphéðin Jó- hannsson. Voru þau ánægð með teikninguna og ákváðu að taka hana. í vor var svo byrjað að koma stiganum upp — en eins og ég sagði þér um daginn, á ýmislegt eftir að gera við hann, meðal annars mála hann svartan, en það er ekki hægt að gera fyrr en um leið og alveg er gengið frá húsinu að innan. — Mér þykir afar ánægju- legt að hafa fengið tækifæri til að vinna þetta verk, hélt Eyborg áfram eftir stutta stund, — þetta er fyrsta verk- efni mitt hér heima, en ég hef mikinn áhuga á því, að vinna með arkitektum — hef knnzt því mikið í Frakklandi í gegnum félagsskap, sem ég er aðili að þar og nefnist „Groupe Mesure". — Er það fjölmennur fé- lagsskapur? — Við erum nálægt þrjátíu og höldum sýningar sameig- inlega. Höfum við sýnt víða, oftast þó í Þýzkalandi — átta sinnum. Nú er fyrirhuguð mikil sýning í París, eins fljótt og við verður komið, en hvenær veit ég ekki fyrir víst. — En slitnar ekki samband þitt við þennan félagsskap úr því þú ert komin heim? — Nei, alls ekki, ég er nú einmitt á förum til Parísar til þess að taka þátt í þremur sýningum með félögum mín- um þar. Tvær þeirra verða í listasafninu í París, nefnist önnur „Salon des Réalites Nouvelles“ og hin er kirkju- listasýning, er nefnist „Sal- on d'art Sacré“. Sú þriðja verður rétt utan við París, í Juvisy og nefnist „Salon international de Juvisy". — Þú hefur tekið þátt í þeirri sýningu áður, er það ekki — og það með góðum árangri? — Jú, jú, tvisvar áður og haustið 1964 fékk ég þetta viðurkenningarskjal, sem mér þótti vænt um. Og Eyborg sýnir mér skjalið, Diplome d’Honeur. — Hvað sýnirðu mörg mál- verk núna? — Ætli þau verði nema þrjú að þessu sinni, eitt á hverri sýningu, en á kirkju- listarsýningunni í París mun ég auk þess sýna kross, sem ég er að láta smíða hér. Það er, eins og þú veizt, ýmsum vandkvæðum bundið og dýrt að flytja listaverk milli landa. — Þessir listamenn, sem þú hefur unnið með i „Groupe Mesure“ — mig minnir þú segðir einhvern tíma, að þeir fengjust fyrst og fremst við geometríska og optíska mynd list. Er hún ekki einmitt hvað efst á baugi um þessar mund ir? — Jú, en hún er umdeilt listform — sem betur fer! Um stund virtist hún ætla að hverfa í skuggann fyrir ýms- um tízkufyripbrigðum listar- innar, — en hún hefur stað- ið þau öll af sér. Góðkunn- ingi minn, Le Parc, sem vinn ur eingöngu að þessu list- formi, fékk t.d. fyrstu verð- laun á Biennale-sýningunni í Feneyjum í ár, en það er sú alþjóðasýning, sem um lang- an aldur hefur vakið hvað mesta athygli. — Le Parc er frá Argentínu, liðlega þrítug ur og tilheyrir listamanna- hópi, sem kallar sig „Groupe de recherohe d’art Visuel". Þessir listamenn, sem eru fimm talsins, hafa unnið í París síðustu árin. Ég kynnt- ist þeim strax og ég kom þangað. Meðal þeirra er son- ur Vasarelys, míns góða kennara, sem fékk Guggen- heim-verðlaunin fyrir nokkr- um árum. — Það kom jafnvel til tals, að ég slægist í þennan hóp, þeir buðu mér það, en af því varð ekki, vegna þess, að mér fannst ekki eiga beint við mig að vinna ásamt öðr- um að sama verkinu, eins og þeir gjarna gera. En þetta er mjög skemmtilegur hópur og hefur vakið mikla at- hygli, bæði í Evrópu og Ameríku. Frarmhald á bls. 23. Eyborg að starfi. þar sem saman leika línur og ferhyrndir fletir mismun- andi stórir. Eyborg sagði mér, að stiginn yrði málaður svart ur, en ekki væri hægt að ganga frá honum endanlega fyrr en innrétting hússins væri betur á veg komin — málning og annað þess hátt- ar. Svo talaðist til með okkur Eyborgu, að við hittúmst heima hjá henni og röbbuð- um saman smástund — „komdu og fáðu þér kaffi- sopa“, sagði hún og lofaði að eiga með því kex og ost — og þar sem þá stundina virtist svo stutt að skreppa í Mjó- strætið frá Morgunblaðshús- inu, tók ég hana á orðinu og sagði „takk, ég kem á morg- un". En dagarnir liðu hver af öðrum og það var ekki fyrr en nú í vikunni, að úr samtali okkar varð. Þá var komin grenjandi úrhellisrigning og rok. Sjónvarpsstengurnar og símalínurnar dönsuðu yfir gömlu húsunum, sem blasa við úr ritstjórnarskrifstofun- um okkar og þó aðeins væri miður dagur, var þegar búið að kveikja á rafljósum. Brátt mundi haustdrunginn leggjast yfir eins og hetta. — Því ekki að bregða sér til Eyborgar í kaffi í áag, hugsaði ég, það hristir kannski af mér drungann — og skömmu síðar sat ég í rauðum stól, sem helzt ekki er hægt að standa upp úr, þamo Tvö af verkum Eyborgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.