Morgunblaðið - 28.08.1966, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.08.1966, Qupperneq 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 195. tbl. — Sunnudagur 28. ágúst 1966 Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins málsins á Seyðisfirði MÁLFLUTNINGI um lög- bann gegn lokun bæjarstjóm- ar fyrir vatn til síldarverk- smiðja og þriggja söltunar- stöðva á Seyðisfirði hefur verið frestað til kl. 1 á mánu- dag, svo sem kom fram í Mbl. í gær. Lét bæjarráð opna fyrir vatnið til síldarverk- smiðjanna, og ábyrgðist bæj- arstjórn að ekki yrði lokað fyrir vatnið á meðan aðilar reyndu sættir. Talsverðar æsingar eru vegna máls þessa á Seyðis- firði nú, að sögn fréttaritara Mbl. á staðnum. Var jafnvel rætt um misþyrmingar á gagnaðilum og að vinna spell- virki á vatnsveitunni, en til þess hefur að sjálfsögðu ekki komið. HÉR á myndinni sjást, Jskemmdir, sem urðu á brúnni' iyfir Kaldaklifsá undir Eyja-1 Lfjöllum í stórrigningunni sl. | í fimmtudag. Samkvæmt upp- ( Jlýsingum Helga Hallgrims- Isonar, verkfræðings hjá vega I | gerðinni, hófst viðgerð [ föstudagsmorguninn og stóð , ' enn yfir í gær. Búizt er við, | að viðgerð ljúki í dag. Helgi' | kvað erfitt að athafna sig við | , brúna, vegna vatnagangs, en i nauðsynlegt var að setja ] stöpla undir brúna. Eins og' sjá má af efri myndinni, hef-1 ur mið-stöpull brúarinnar i horfið í vatnsflauminn. í gær . var nokkuð mikið vatn enn í' | ánni, en stórir bílar gátu far-1 l ið yfir á vaði rétt fyrir ofan ( brúna, en vaðið er bæði vand ( 1 ratað og erfitt yfirferðar. Samstilling og kunnátta bjargaði litla drengnum Geir litli Sigurðsson með björgunarmönnum sínum. Asgrím- ur Björnsson heldur í hönd hans, en t.v. stendur Erlingur Jóhannsson forstjóri Sundlaugar Vesturbæjar og t.h. Maríus Sigurbjörnsson sundlaugarvör ður. Ljósm. Sv. Þorm. EINS og frá var skýrt í frétt blaðsins í gær var fjögurra ára dreng Geir Sigurðssyni, Ásvallagötu 46 (ekki þirggja ára eins og sagt var) bjargað í Sundlaug Vesturbæjar og varð hin svonefnda blást- ursaðferð honum til lífs. Við brugðum okkur í gær vestur á Ásvallagötu 46 þar sem þau hjónin frú Ásta Erlingsdóttir og Sigurður Geirss. fulltrúi búa með tveim ur börnum sínum, dóttur Sigríði tveggja ára og dreng fjögurra ára. Þangað komu með okkur þeir menn, sem heiðurinn eiga af bjórgun drengsins litla, þeir Asgrím- ur Björnsson stýrimaður. Erlingur Jóhannsson for- stjóri sundlaugarinnar og Marius Sigurbjörnsson sund- laugarvörður. Fengum við að taka mynd af Geir litla og björgunarmönnum hans. Er slysið bar að höndum hafði frú Ásta verið með börn sín í baði í heitu ker- um sundlaugarinnar og hafði Geir litli verið úti í lauginni með stelpu, sem gætti hans. Hafði hún látið hann upp á laugarbakkann og sagt hon- um að hlaupa til mömmu sinnar, en hann ekki hlýtt. Skömmu síðar kom teipan til frú Ástu og spurði um dreng inn og fór hún þá að kalla á hann og sá hann fljóta í lauginni, hentist út í og náði honum. í sama mund bar þar að Ásgrím Björnsson, stýri- mann og hóf hann lífgunartil raunir á drengnum með blást ursaðferðinni á sundlaugar- bakkanum. Um leið kom einn ig að Maríus Sigurbjörnsson og hélt áfram blástursaðferð inni, en Ásgrímur hof lijarta- hnoð. Drengurin var orðinn blár í framan. Forstjóri sund laugarinnar kom siðan á vett vang með öndunarbelg og var hann síðan notaður við lífgun ína. Frú Ásta kraup niður á sundlaugarbakkann og bað Drottin að gefa sér dreng- inn sinn aftur, fór síðan inn í sundlaugarhúsið og íékk Ján aðan síma og hringdi til Guð rúnar Jónsdóttur bænakonu í Hafnarfirði, sem sagði henni að vera rólegri. Diott inn myndi gefa drengnum líf aftur. Frú Ásta bað blaðið að færa henni þakkir sínar, ennfremur þakkaði hún Ás- grími og kvað drottin hafa sent sér hann á neyðar- stundu. Einnig þakkaði hún starfsmönnum sundlaugar- innar fyrir þeirra hlut. Ásgrímur Björnsson lét þess getið að samvinna þeirra hans og sundlaugar- starfsmanna, hefði verið með slíkum ágætum, að ekki hefði verið á betra kosið. Fyr ir það tókst svo giftusamlega sem raun varð á, því allir kunnu sitt verk. Æsingar vegna vatns Líkamsárás SÁ atburður gerðis aðfaranótt laugardags 20. ágúst sl. í Hafn- arfirði, að 17 ára gamall piltur féll yfir handrið af völdum ann- ars manns, og hlaut mikla á- verka. Kl. 4 um nóttina mun hafa Jarðhrær ingar í komið til iilinda milli piltsins og mannsins, sem er 26 ára gam- all. Kom til handalögmála milli þeirra, en eldri maðurinn var drukkinn. Lauk svo að piltur- inn hljóp að húsinu við Reykja- víkurveg 22 og bað sér þar hjálp- ar. Réðist þá maðurinn að hon- um og veitti honum þvílíkt högg, að pilturinn steyptist yfir handrið og féll 2ja metra hæð niður á gangstétt. Stórskaddaðis hann á höfði og handleggsbrotnaði auk fleiri áverka. Lögreglan var þegar kvödd á vettvang og setti hún árásarmanninn í sólarhrings gæzluvarðhald. Rannsókn í mál- inu er senn lokið, Surtsey Ennþá er mikið og stöðugt hraungos í Surtsey, að því er Árni Johnsen gæzlumaður í eynni tjáði Mbl. í gær. Jarð- hræringar eru miklar í eynni og sagði Árni, að húsið þar sem hann hefur aðsetur léki stundum á reiðiskjálfi. Hrauntungan nær nú 70-00 metra í sjó fram og hraunið hefur færst lengra norður á bóginn og hækkað. Er Árni og hús hans óhult fyrir hraun- inu, enn sem komið er a.m k. Þjóöfundarskildi M.R. stolið S.l. föstudag kærði rektor Menntaskólans í Reykjavík, Ein- ar Magnússon, stuld á kopar- skildi til rannsóknarlögreglunn- ar. Reykvíkingafélagið gaf kop- arskjöldinn í tilefni aldarminn- ingar Þjóðfundarins 1951 og var skjöldurinn í tréramma, 20x25 cm., við aðaldyr Menntaskólans. Magnús Eggertsson rannsóknar lögreglumaður, sem fengið hefur málið til meðferðar tjáði blað- inu í gær að til sín hefði hringt maður og sagt sér, að hann hefði veitt því eftirtekt 17. ágúst s.l. að skjöldurinn var horfinn. Þá kom Lárus Sigurbjömsson skjalavörður að máli við blaðið og líkti þessum stuldi við það, að Norðmenn stælu koparskild- inum á Eiðsvöllum. Taldi Lárus að hér væri líklegast um sömu óþokka að ræða og frömdu helgi- spjöll í Krísuvíkurkirkj'U og stálu þaðan kirkjuklukkum og ýms- um koparmunum á dögunum. Lárus sagði ennfremur, að nú í sumar hefði borið óvenju mik- ið á smáhnupli í Árbæ, m.a. hvarf þaðan koparlykil'l af skrúðaskáp prestsins. Þá var í Árbæ stolið spónalöðum Guð- mundar Guðmundssonar smiðs, bæði unnu og óunnu efni, en spónaJöð eru mjög sjaldgæf. Svo rammt hefur kveðið að þessum smáþjófnuðum, að óútfylltu gift ingarvottorð, sem lá frammi í Árbæ, var stolið. Öllum þeim, sem kynnu að hafa orðið varir koparskjaldar M.R., eða manna sem hafa grun- samlega koparmuni undir hönd- um er bent á að gera rannsókn- arlögreglunni þegar viðvart.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.