Morgunblaðið - 20.04.1967, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRIL 1967.
31
1 Belgrad. 19. apríl AP-NTB
í DAG var kveðinn upp dóm
ur yfir ungverska sagnfraeð-
ingnum og rithöfundinum
Mihajlo Mihajlov. Hann var
sekur fundinn um ali hafa
dreift áróðri, fjandsamlegum
Jugóslaviu og dæmdur í fjög
urra og hálfs árs fangelsi. Þar
fyrir utan var svo kveðið á,
að honum skyldi óheimilt að
birta nokkuð, sem hann hefði
skrifað og koma fram opinber
lega fjögur árin eftir að hann
hefur afplánað dóminn.
Grafarþögn ríkti í réttar-
salnum, er dómurinn var Sveð
inn upp. f réttarsalnum sjálf-
um komust aðeins fyrir um
sextíu manns og var hann
þéttskipaður, auk þess sem
fjöldi fólks stó'ð á göngum og
úti fyrir dómshúsinu og beið
úrskurðarins. Meðal við-
staddra var eiginkona Milov-
ans Djilas, sem nýlega var
látinn laus úr fangelsi eftir
margra ára dvöl þar vegna
gagnrýni á ríki Titos.
Mihajlov var sekur fundinn
um báða liði ákærunnar gegn
honum, þ.e. 1) að hafa skrif-
að þrjár greinar, sem sýndu
Mihajlov fyrir réttinum í Belgrad
neskum yfirvöldum. Ennfrem
ur sagði dómarinn sem kvað
upp dómsúrskurðinn, Lufcic
að nafni, að það skioðanafrelsi.
sem gert væri ráð fyrir í
stjórnarskrá Jugóslavíu næði
ekki til þess, að menn hefðu
frelsi til þess að láta í ljós
eða berjast fyrir skoðunum,
sem væru andstæðar sósial-
isma — né skoðunum, sem
miðuðu að því að grafa undan
þjóðfélaginu.
Haft er fyrir víst, að lög-
fræðingur Mihajlovs muni á-
frýja málinu. Mihajlov mun
hinsvegar halda áfram fanga
vist sinni. Hann hefur setið
inni í fimm mánuði, sem koma
til frádráttar þessum nýja
dómi
Mihajlov var sjálfur þögull
og virtist dálítið taugaóstyrk
ur, þegar dómurinn var lesinn
upp. Hann hefur hvað eftir
annað lýst því yfir i réttar-
höldunum, að hann hafi ekkert
skrifað sem brjóti í bága við
stjórnarskrá eða lög JúgósTa-
víu og staðhæft, að það sé
kommúnistaflokkurinn, sem
svo geri, með framkomu
sinni.
Mihajlov er 33 ára að aldri,
fæddur í Júgóslavíu en af
rússneskum foreldrum. Áður
en aðal dvalarstaður hans
varð fangelsi júgóslavnesku
stjórnarinnair. var hann há-
skólakennari i hafnarborginni
ihajlov fékk Vi árs fangelsi
- og má ekkert birta opinber lega eftir sig nœstu fjögur
árin eftir að hann hefur afplánað dóminn
stjórnmálaástandið í Júgósla-
víu í illgirnislegu og röngu
ljósi. 2) að hafa dreift flug-
ritum frá Júgóslövum erlend- annars, aið þessi starfsemi
is. Mihajlovs hefði haft þann til
í dómsorðum sagði meðal gang að grafa undan jugóslav
Zadar við Adriahaf. Síðustu
fimm mánuði hefur hann dval
izt í Posarevac — fangelsmu
70 km austur af Belgrad.
Hann hefur þrisvar sinnum
hlotið fangelsisdóm á sl. tveim
ur árum.
Samningar um Straum:-
víkurhöfn undirritaöir
Framkvœmdir hefjast í máíbyrjun
— Þinglausnir
1 Framhald af bls. 1
rædd. Fram voru bornar 52
þingsályktunartillögur og voru
13 samþykbtar, ein felld, en 38
urðu ekki útræddar. Fram voru
bornar 16 tillögur og urðu allar
ræddar nema fimm. Alls voru
201 mál til meðferðar í þinginu
og var tala prentaðra þingskjala
631.
Að loknu yfirliti þessu mælti
Birgir Finnsson, forseti samein-
aðs Alþingis:
Þetta yfirlit sýnir, að þingið
hefir verið athafnasamt, og veit
ég að allir þingmenn óska þess,
þrátt fyrir skoðanamun í ein-
stökum málum, að störf Aiþing
is verði þjóðinni til heilla og
farsældar.
Við lok þessa kjörtímabils er
þess að minnast, að meiri anna
sltipti hafa orðið í hópi þing-
manna en venjuiegt er. Hafa 5
þingmenn, sem hér áttu sæti
við upphaf kjörtímabilsins, horf
ið úr hópnum, en þeir eru þess-
ir:
Ólafur Thors, 1. þm. Reykn.,
lézt 31. des. 1964. Sæti hans á
Alþingi tók Axel Jónsson fuil-
trúi.
Gunnar Thoroddsen, 7. þm.
Reykv., afsalið sér þing-
mennsku eftir þinglok, 12. maí
1965. Sæti hans á Alþingi tók
Sveinn Guðmundsson véifræð-
ingur.
Guðmundur I. Guðmundsson,
4. þm. afsalið sér þingmennsku
22. sept. 196i. Sæti hans á þingi
tók Friðión Skarpheiðnssor.
bæjarfógeti.
Einar Ingt:nundarson 4. þ>n.
Norðurlv., aíftlið sér þing-
mennsku frá og með 1 febrúar
lf 66. Sæti hans á þingi toh Ósk
ar E. Levý bói.di.
Davíð Óiafsson, 6. iandk.þ.m.,
aísaiið sér þir.gmennsku frá og
mjð 12. aorn 1967. Sæti hans
á Alþingi tók Ragnar Jónsson,
skrjfstofustjc-TÍ.
Ilefir þannig komið maður í
ma.ons stað, og að afs'öðnum
þeim kosningum, sem í hönd
fara munu einnig verða veruleg
mannaskipti á þinginu.
Það hverfa héðan rnargir
þjóðkunnir menn, sem lengi
hafa haft forustu í stjórnmála-
baráttunni, og á fleiri sviðum
þjóðlífsins.
Sumir þeirra hafa um langt
árabil sett sterkan svip á störf
Alþingis, og verður þeirra ávallt
minnst sem merkra manna og
mikilhæfa. Veit ég, að ég mæli
fyrir munn allra, sem enn hyggj
ast halda áfram þingmennsku,
þegar ég óska hinum, er nú
draga sig í hlé, alls góðs í fram-
tíðinni og votta þeim þakkir fyr
ir samveru og samstarf hér á
Aiþingi.
Síðustu vikurnar hefir verið
mikið samríki á þinginu, eins
og oft vill verða í þinglok. Leyfi
ég mér fyrir hönd þingforset-
anna að þakka hv. alþm. hið
ágæta samstarf, sem hefur leitt
til þess, að unnt er að ljúka
þinginu 1 dag. Einnig þakka ég
hæstv. ríkisstj. og öllum hv. ai,-
þm. ágætt samstarf í hvívetna
á þingtímanum og kjörtímabil-
inu. Ég þakka það traust, sem
mér var sýnt með því að trúa
mér fyrir forsetastörfum. Einn-
ig þakka ég þihgheimi fyrir það
umburðurlyndi og hjáipsemi.
sem ég nefi oroið aðnjótand: við
störf min í þes?u sæti. Sérs^ak'.r
þakkir færi ég varaforsetari ' ;o,
sem jaxnan hafa fús'ega \eitt
mér hi:u ágænjs'.'i aðst ið Ég
þakka sk'ifuru -n þingsins e'iu-
semi og kostgæ u í störfum og
skrifstofustjóra og öliu starfs-
fólki Alþingis þalcka ég fyrir
mikið og gott starf ánægjulegra
samvinnu. öllum hv. þm. óska
ég góðrar hemferðar og góðrar
heimkomu. Megi þeim og fjöl-
kyldum þeirra vel farnast. Skrif
stofustjóra og starfsfólki Alþing
is færi ég sömu óskir. Fyrir
hönd Alþingis óska ég öllum
íslendingum heilla og farsældar
og gleðilegs sumars.
Eysteinn Jónsson mælti fyrir
hönd þingmanna og þakkaði
forseta hlýjar óskir í þeirra garð.
Hann þakkaði forseta gott sam-
starf og góða samvinnu við þing
haldið, og fluitti honum og fjöl-
skyldu hans beztu árnaðaróskir
og óskaði honum góðrar heim-
ferðar og gleðilegs sumars. Tóku
þingmenn undir orð Eysteins
Jónssonar með því að rísa úr
sætum. Forseti þakkaði og endur
tók árnaðaróskir sínar.
Þá las Gizur Bergsteinsson upp
bréf handhafa valds forseta ís-
lands:
„Handhafa valds forseta fs-
lands samkv. 8. gr. stjórnarskrár
innar, forsætisráðherra, forseti
sameinaðs Alþingis og forseti
Hæstaréttar gjöra kunnugt: Þar
sem Alþingi er nú situr, 87 lög-
gjafarþing, hefir samþykkt frv.
til stjórnskipunarlaga um breyt-
ing á stjórnarskrá lýðveldisins ís
land númer 33, 17. júni 1944, ber
samkvæmt 79. gr. stjórnarskrár-
innar að rjúfa Alþingi nú þegar
og stofna til almennra kosninga
að nýju. Samkvæmt þessu, er
Alþingi hér með rofið frá og
með 11. júní 1967. Jafnframt er
ákveðið, að almennar kosningar
til Alþingis skuli fara fram
nefndan dag, sunnudaginn 11.
júní 1967. Alþingi er nú situr
mun væntanlega ljúka störtfum
19. þ. m. Veitum vér hér með
forseta Hæstaréttar, Gizuri Berg
steinssyni, umboð til þess í voru
nafni að slíta Aliþingi, 87. lög-
gjafarþingi, er hefir lokið störf-
um.
Gjört í Reykjavík 19. apríl 1967
Bjarni Benediktsson,
Birgir Finnsson,
Gizur Bergsteinsson.
Bréf handhafa valds forseta
fslands um þingrof, almennar
kosningar til Alþingis og þing-
lausnir".
Samkvæmt þessu bréfi, sem ég
nú hef lesið, lýsi ég yfir þvi, að
þessu þingi, sem nú hefur lokið
störfum, er slitið. Ég óska þing-
mönnum veMarnaðar, þjóðinni
allra heilla og bið alþingismenn
að minnast forseta íslands og
f GÆR voru undirritaðir samn-
ingar um byggingu hafnar í
Straumsvík vegna fyrirhugaðrar
álbræðslu, sem þar á að rísa.
Samningsupphæðin er tæplega
155 milljónir króna. Verktakar
eru Véltækni hf., Reykjavík og
Hochtief A/G, Essen, Þýzkalandi.
Mbl. barst í gær eftirfarandi
fréttatilkynning um málið frá
vita- og hafnarmálastjóranum:
„í dag voru undirritaðir samn-
ingar milli vitamálastjóra f. h.
Hafnarfjarðarbæjar og verktaka-
samsteypu um byggingu hafnar
í Straumsvík vegna álbræðslu
þar.
Verktakar eru fyrirtækin Vél-
tækni hf Reykjavík, og Hochtief
A/G Eessen, Þýzkalandi.
Viðstaddir voru, auk þeirra er
undirrituðu. ráðuneytisstjóri sam
göngu- og iðnaðarmálaráðuneytis
ins, yfirverkfræðingur og skrif-
stofustjóri vitamálastjóra, bæjar-
stjórinn og hafnarstjórinn í Hafn
arfirði, fulltrúar fsal og fleiri.
Samningsupphæðin er krónur
154.834.701,00.
fósturjarðar vorrar með því að
rísa úr sætum.
Þá mælti forsætisráðherra:
Heill forseta íslands og fóstur-
jörð. Risu þingmenn úr sætum
og tóku undir með ferföldu
húrrahrópL " ''x
Verkinu skal lokið á miðju
ári 1969, um svipað leyti og ál-
bræðsla tekur til starfa.
Elr hér um að ræða byggingu
220 m viðlegukants með 120 m
dýpi um stórstraumsfjöru ásamt
brimbrjót og nokkurri dýpkun.
Allt að 60.000 rúmlesta skip
eiga að geta athafnað sig í höfn-
inni eftir að hún er fullbyggð.
Mannvirkin verða eign Hafnar-
fjarðarkaupstaðar, en forgangs-
notkun er leigð ísal, gegn föstum
árlegum vörugjöldum.
Að öðru leyti verður höfnin til
afnota fyrir aðra umferð sem
hluti af Hafnarfjarðarhöfn".
Af þessu tilefni náði Mbl. tali
af Aðalsteini Júlíussyni vitamála
stjóra og sagði hann m. a., að
þessi höfn komi til með að hafa
dýpzta viðlegukant á landinu.
Verður höfnin útbúin með sér-
stökum útbúnaði með tilliti til
losunar á hráefni til álbræðsl-
unnar. Verða tæki þessi raunar
óviðkomandi höfninni, sem verð-
ur algjörlega íslenzkt fyrirtæki.
— Haraldur
Framhald af bls. 32
kvæntist 6. nóvember 1915, hafa
gefið og stofnað marga sjóði.
M a. Elliheimilissjóð, Dagheimiiis
sjóð barna Verðlaunasjóð starfs-
manna o. fL
Aðalsteinn sagði að fram-
kvæmdir myhdu hefjast fyrstu
dagana í maí, en áður þyrfti að
fá þar suður eftir ýmis flutninga-
tæki, steypustöð, Dýpkunartæki
og annan útbúnað til þess að
steypa ker.
- ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 32.
hann átti 25 ára keppnisafmæli
á sl. ári, sem eitt útaf fyrir sig
er einstakt afrek.
Silfurkross ÍR, sem veittur er
fyrir gott starf í þágu ÍR í 10
ár hlutu: Karl Hólm, Gunnar
Petersen, Ólafur Guðmundsson,
Sigurður Einarsson. Gestur Sig
urgeirsson, Pétur Sigurðsson,
Jóna Kjartansdóttir, Þórarinn
Gunnarsson, Hörður B. Finns-
son, Jón Ö. Þormóðsson og
Helgi Hólm.
Eirkross ÍR hlutu: Kjartan
Guðjónsson, Erlendur Valdi-
marsson, Birgir Jakobsson, Þór
arinn Tyrfingsson, Agnar Frið-
riksson, Birgir Magnússon, Jón
H. Magnússon, Sólveig Hannan,
Þórarinn Arnórsson, Ólafur
Tómasson, Fríður Guðmunds-
dóttir, Sigríður Sigurðardóttir,
Ómar Ragnarsson, Gunnar Sig
urgeirsson, Halldór Ingvarsson,
Linda Ríkharðsdóttir, Elísabet
Brand, Mariía Hauksdóttir og
Ólafur Unnsteinsson.
7 N (Frá ÍR)/