Morgunblaðið - 17.07.1973, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.07.1973, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGU'R 17. JÚLÍ 1973 Hin nýja tæknimiðstöð Volvo í Gautaborjf, sem kostar um 5000 miHj. ísl. krónur. • • Oryggi og aftur öryggi — litið inn hjá Volvo í Gautaborg og m.a. skoðuð tæknimiðstöð, sem kostaði 5000 millj. ísl. kr. — Volvo býr starfsmönnum sínum tómstundaaðstöðu FYRIR skömmu tók Volvo verk smiðjan í Svíþ.jóð í notkun nýja tæknimiðstöð i Gautaborg og kostaði mannvirkið hvorki meira né minna en 5000 millj. isl. kr., eða 220 millj. sænskra kr. Við ' skoðuðum hinar feikilegu verksmiðjur Volvo þe*:ar Voivo kynnti blaðamönn um tækn'miðstöðina, en stuttii eítir að blaðamenn höfðu skoð að hana var hún lokuð öllum ut anaðkomandi. Yfir 600 þús. manns vinna hjá Volvo í Sviþjóð hjá þessu stærsta véliðnaðarfyrirtæki í Skandinavíu og Volvo er stærsti útfiytjandi Svíþjóðar með varksmiðjur á yf r 20 stöð um í iandinu og selur til 120 landa. Á hverju ári framleiðir Volvo nokkur hundruð þúsund b:f- reiðar og t.d. árið 1971 liðlega 200 þús. fóiksbíla, 16000 flutn ingabíla auk rútubra og ann- ars. Volvo ieggur ákaflega mikið upp úr öryggi ásamt þægindum og tæknimiðstöð n á að veia f-ullkomnasta tilraunastöð í heiminum til þess að kanna ör ygigi bifre ða. Verksmiðjan er með ýmsar tilraunir sem varða öryggi og m.a. eru þeir nú að prófa nýjan örygg'sbíl, sem á að þoia feikileg högg án þess að leggjast nokkuð saman. >á sá um við t.d. Volvobiia sem hafði ver ð ekið beint. á steinvegg á fullri ferð og þrátt fyrir það haggaðist ekkert inni í bíinum þó að hann iegð'st svo að segja saman að framrúðunni. Hvar sem við komum í þessu risafyrirtæki var áberand hvað öll skipulagning var góð og allt var hreiniegt. Þá hefur Volvo lagt mikið uþp úr því að hafa góða aðstöðu fyrir starfsmenn siina, bæði vinnuaðstöðu og einnig aðstöðu til tóm- stundaiðkana utan vinnutíma. Þeir byggja heii tómstundahús og jafnvel sundlaugar. Verksmiðjan skipt'r fram- ieiðslunni niður í deildir. Sum- ar deildir hafa t.d. aðeins vöru bíia á sínum snærum og má nefna að í Skove er ein af vöru b íreiðaverksmiðjum Volvo sem hefur um 4000 starfsmenn. 1 tæknimiðstöð'nni var okkur leyft að skoða ýmsar deildir, en aðrar ekki, því þar er fjall að um „hernaðarleyndarmál" Volvo-verksmiðjanna, atriði sem þeir vilja halda leyndum fyr r öðrum aðilum í bifreiða- framleiðslunni. Ein deildin t.d. kannar hæfni hjóiaútbúnaðarins, önnur þol hurðanna oig er þeim skellt þar aftur allt upp í 100 þús. sinnum t:i athugunar og þannig má telja lengi lengi. Svo til allir hiutir b freiðarinnar eru reynd ir og ef eitthvað sýnir veik- ieika eru sérfræðingar til þess að leysa vandamálin. Þá hefur Volvo lagt upp úr ákaflega öruggri varahlutaþjcin ustu og það eins og annað er skipulagt t 1 hins ítrasta. Endurnýjun á véium Volvo- verksmiðar.na er mjög mikil Frá einni af verksmiðjum Volvo í Svíþjóð. og eru verksmiðjurnar taldar búa við tæknilegasta útbúnað í ailri Evrópu. Nýverið hafa Volvo-verksmiðj urnar tekið upp á því að byggja ibúðarhús fyrir starfsmenn sína og fjöl'býlshús, ein margir starfsmenn þeirra koma frá Balkanlöndunum. Það er stórbrotið að skoða verksmiðjur eins og Volvo . er með og ekki nokkur le!ð að líkja því saman við neitt í okk ar iandi. Það væri þá helzt það að ailir v nnufærir nienn í Reykjavík myndu ekki duga til þess að sinna þörfum verksmiðj anna. Framleiðsla hjá Volvo hefur aukizt stöðugt ár írá ári og er söluaukn'ng mjög rnikil um alla Evrópu. Sama er að segja um Island, en Gunnar Ásge rs son hefur umboð á Islandi fyrir verksmiðjurnar. —- áj. Öryggisbíll, sem verið er að gera tilraunir meó Volvo í einni af fjölmörgum prófunum. Volvo leggur mikið upp úr góðri aðstöðu fyrir starfsmenn sína. Þeir byggja' sérstök tómstiindahús fyrir starfsmennina með margs konar aðstöðu fyrir íþróttir, smíðar og sitthvað fleira. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.