Morgunblaðið - 30.06.1977, Page 13
|'jo$siuo(0gi
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNI 1977
—
13
■ ■■ m *
m - 4.1 *
Samkór Trésmiðafélagsins
SAMKÓR Trésmfðafélags
Reykjavíkur var stofnaður 1972
og hefur síðan 1973 starfað
undir stjórn Guðjóns Böðvars
Jónssonar. Fyrir skömmu hélt
kórinn sína fyrstu tónleika i
Menntaskólanum við Hamra-
hlfð, en eins og stendiir i efnis-
skrá eru tónleikarnir undirbún-
ingur að þátttöku kórsins í sam-
norrænu tónlistarmóti alþýðu-
kóra, sem fyrirhugað er i Ósló
um mánaðamótin júni—júlí.
Efnisskrá tónleikanna var því
sniðin við þetta verkefni og við-
fangsefnin íslenzk alþýðulög,
raddsetningar á þjóðlögum og
norræn alþýðulög. Það er út-
breiddur misskilningur að al-
þýðulög sé auðvelt að syngja og
nægir að benda á að fáum kór-
um hefur tekist það vel, þó
reynt hafi. Rétt er að mörg
þessara laga eru þann veg út-
færð til flutnings eða raddsett
að þau eru erfið í söng.
Verkefnunum var skipt i 5
flokka og f þeim fyrsta voru
ættjarðarlög eftir Sigfús
Einarsson, Pál ísólfsson, Frið-
rik Bjarnason, Jóhann O.
Haraldsson og Jónas Helgason,
en lag hans, Sólu særinn skýlir,
var laglega sungið. Næst komu
ísl. þjóðlög i raddsetningum
eftir Róbert A. Ottósson, Emil
Thoroddsen og Sigfús Einars-
Tónlist
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
son. Raddsetning Emils á Undir
bláum sólarsali, var sérlega vel
sungin.
Á eftir alþýðulögum, einu frá
hverju norðurlandanna, söng
kórinn enn nokkur ísl. þjóðlög,
m.a. þrjú sem voru raddsett af
kórstjóranum.
Síðast á efnisskránni voru
svo ættjarðarlög eftir Árna
Thorsteinsson, Emil
Thoroddsen, Þórarinn
Guðmundsson, Sigvalda Kalda-
lóns og Jón Þórarinsson. Lag
Jóns, I skógi, var bezta lag kórs-
ins. Það er greinilegt að stjórn-
andinn, sem sjálfur hefur lagt
stund á söng, hefur auðheyri-
lega þjálfað söngfólk sitt af
mikilli alúð. Það sem mætti
benda á til bóta, er að söngur-
inn i heild er of sterkur, en
einmitt í veika söngnum komu
fram gæði raddanna, sérstak-
lega i sópran og altröddunum.
Þessi söngskemmtun var mjög
menningarleg og yfir henni
skemmtilegur blær. Agnes
Löve pianóleikari aðstoðaði
kórinn i nokkrum lögum. Það
væri óskandi að fleiri verka-
lýðsfélög en Trésmiðafélag
Reykjavikur létu sig einhverju
skipta menningarumsvif félaga
sinna og þekktu sitt fólk einnig
í öðru gervi en eingöngu sem
pólitiskt afl.
Jón Ásgeirsson.
Giænland
Feró til Grænlands - þó stutt sé - er engu lík. í
Grænlandi er stórkostleg náttúrufegurö og sér-
kennilegt mannlíf, þar er að finna hvor tveggja í
senn nútíma þjóðfélag eins og við þekkjum það -
og samfélagshætti löngu liðins tíma.
Eæieyjar
Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri er hin
mikla náttúrufegurð, ásamt margbreytilegum
möguleikum á skemmti- og skoðunarferðum um
eyjarnar, og síðast en ekki síst hið vingjamlega
viðmót fólksins.
Ef þú ert einhvers staðar velkominn erlendis - þá
er það í Færeyjum.
Stórskemmtilegar ferðir
sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa
og félagasamtök.
Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn eða
ferðaskrifstofurnar um nánari upplýsingar.
FLUCFÉLAC
ISLANDS
LOFTLEIDIR
,\®Uunar
KEFLAVl
i s\niu
RSHUFN
, viW'
rferövr
Áætlunarferðir 4 sínnum i viku