Morgunblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978 5 Samsöngvar Fóst- bræðra í næstu viku í N.-ESTU viku, nánar tiltekið dagana 20., 21. og 22. marz n.k., efnir Karlakórinn Fóstbræður til samsöngva fyrir styrktarfélaga sína og verða þeir í Háskólabíói. Á efnisskrá Fóstbræðra að þessu sinni eru m.a. lög eftir Árna Björnsson, Gunnar Reyni Sveins- Skeifurall- ið hefst kl. 23 í kvöld son, S. Palmgren, Edvard Grieg, Ole Bull o.fl. og þjóðlög frá ýmsum löndum, Japan, Englandi, Færeyj- um auk íslenzkra þjóðlaga. Gunn- ar Reynir Sveinsson hefur útsett og samið allmörg lög fyrir kórinn og verður hluti þeirra fluttur nú. Samsöngvarnir hefjast kl. 19:00 og geta þeir sem óska að gerast styrktarfélagar svo og styrktarfé- lagar snúið sér til Friðriks Ey- fjörðs í Leðurverzlun Jóns Brynj- ólfssonar. Einsöngvarar verða Hákon Odd- geirsson, Hjalti Guðmundsson og Kristinn Hallsson. Undirleik ann- ast Lára Rafnsdóttir og stjórnandi er Jónas Ingimundarson. Karlakórinn Fóstbræður SVONEFNT Skeifurall Bifreiða- ípróttaklúbbs Reykjavíkur hefst kl. 23 í kvöld og er rásmarkið við bílasöluna Skeifuna. Stendur Þessi keppni yfir fram á sunnudag, en gert er ráð fyrir að keppendur komi í mark uppúr kl. 14 á sunnudag á sama stað og keppnin hefst. Klukkan 10 í morgun eru keppnisbíl- arnir skoðaöir og gengið úr skugga um að þeir standist þær kröfur sem gerðar eru til þeirra og að henni lokinni hefst hringakstur um bæinn kl. 14. Verður ekið um Árbæ, Breiðholt, Bústaða- hverfi, Miðbæinn og endaö í Voga- hverfi Reykjavíkur. Eftir hringaksturinn verða bílarnirxtil sýnis viö bílasöluna Skeifuna, þar til Ellert B. Schram alþingismaður ræsir fyrsta bílinn. Leiðin, sem farin verður er rúmlega 587 km löng og liggur hún m.a. um uppsveitir Árnessýslu, framhjá Lauga- vatni, upp aö Miödal og Haukadal, austur að Búrfelli, yfir Þjórsá viö virkjunina og niöur Rangárvelli um Hellu og með ýmsum útúrdúrum er ekiö til Selfoss og Krisuvíkurleiö til Reykjavíkur. [ frétt frá Bifreiöaíþróttaklúbbnum segir að keppendur aki um Hafra- vatnsveg tvisvar sinnum, fyrst kl. um 23:15 á laugardag og síðar um hádegið á sunnudag og verður þá líklega spennandi að fylgjast með keppendum á þeirri leið. Þeir eru alls 28. Allar upplýsingar og tölur um gang keppninnar verða sendar í miðstöð keppninnar í bílasölunni Skeifunni. Á sunnudagskvöldinu verða afhent verö- laun í hófi að Hótel Loftleiðum sem hefst kl. 20. Jakob V. Hafstein sýn- ir í Grindavík Á PÁLMASUNNUDAG verður opnuð málverkasýning í félags- heimilinu Festi í Grindavík á myndum eftir Jakob V. Hafstein. Verður hún opin alla páskavik- una nema á föstudaginn langa. Á sýningunni eru 47 myndir, 20 olíumálverk, 15 vatnslitamyndir, 7 pastelmyndir og 4 svartbleks- myndir með lit. Flestar eru þær landslagsmyndir en auk þess margar blóma- og fuglamyndír. Flestar eru þær málaðar frá árinu 1975 og til þessa dags. Mappa tapast SÍÐDEGIS í gær, föstudag, varð maður fyrir því óhappi að glata lítilli brúnni möppu með rennilás. I möppunni voru aðallega teikn- ingar, sem eru eigandanum mjög mikilvægar. Líklegt er að þetta hafi annaðhvort gerst við GM-búð- ina á Ártúnshöfða eða við Sölu varnarliðseigna við Grensásveg. Nafn mannsins, heimilisfang og sími eru á möppunni og er finnandi beðinn að skila henni til mannsins eða á lögreglustöðina eða þá til Morgunblaðsins. blóonouol ffnig markaðstorq á íslandi Nýtt grænmeti Vorlauka- markaður á Græna Torginu Dahlíur Begóníur Anemónur Liljur Gladíólur Bóndarósir íris Fressíur 300 ferm. blóma- og grænmetismarkaður Heimilisblómavöndurinn þessa helgi er: 5 stk. túlípanar á aðeins kr. 700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.