Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
Arnarflugs-
vél leigð
til Englands
ARNARFLUG hefur leigt
brezka flugfélaginu Britannia
Airways aðra Boeing 720 flug-
vél sína frá 1. maí til
septemberloka n.k. Nemur
leigusamingurinn um 600
milljónum króna.
Flugvélin verður í flugi milli
Englands og sólarlanda með
enska ferðamenn og verða um
20 fiugliðar frá Arnarflugi við
vélina fyrst, en síðan koma
brezkar flugfreyjur og leysa
þær íslenzku af hólmi.
Hin flugvél Arnarflugs flýg-
ur á heimamarkaði í sumar.
Tvennir
tónleikar á
Akureyri
Á ÞESSU vori ljúka tveir
nemendur efsta stigi í píanóleik
frá Tónlistarskólanum á Akur-
eyri en það eru Sólveig Jóns-
dpttir og Örn Magnússon.
Áfangi í því prófi er að þau
leika á tónleikum í Borgarbíói
laugardaginn 21. apríl og hefj-
ast tónleikarnir kl. 13 (kl. 1
e.h.). Á efnisskránni verða verk
eftir Bach, Beethoven, Chopin
og Greeg.
Föstudaginn 20. apríl verða
gestatónleikar. Tveir nemendur
úr tónlistarskólanum í Reykja-
vík, Gunnar Gunnarsson á
flautu og Sigurður Marteinsson
á píanó, leika saman verk eftir
Bach, Rachmaninoff, Faré,
Berkeley. Auk þess leikur Stg-
urður einleik í ballöðu nr. 4
eftir Chopin. Þeir tónleikar eru
í sal tónlistarskólans og hefjast
kl. 8.30.
Ráðstefna um
skrúðgarðyrkju
Ráðstefna um skrúðgarð-
yrkju verður haldin að Ölfus-
borgum dagana 20.—21. apríl
n.k. Efni ráðstefnunnar er tví-
þætt. Annars vegar verður
fjallað um jarðveginn,
jarðvegsmeðhöndlun og verktil-
högun, hins vegar um stöðu
skrúðgarðyrkjunnar. Fyrir-
lesarar verða bæði innlendir og
erlendir.
Kirkjan í Ytri-
Njarðvík vígð
YTRI-Njarðvíkurkirkja verður
vígð á sumardaginn fyrsta.
Biskup Islands, herra Sigur-
björn Einarsson, vígir kirkjuna
og kirkjukór Ytri-Njarðvíkur-
sóknar syngur undir stjórn
Helga Bragasonar, en á efnis-
skrá verður m.a messa í G-dúr
eftir Schubert, sem flutt verður
með aðstoð einsöngvara og
hljómsveitar.
Að kirkjuvígslu lokinni
verður almennt kaffihóf í
félagsheimilinu Stapa.
Nafn mannsins
sem lézt
MAÐURINN, sem beið bana í
vinnuslysi í Tungufossi í fyrra-
dag, hét Guðmundur Árnason,
Hverfisgötu 28, Reykjavík,
fæddur 1926. Guðmundur heit-
inn var fjölskyldumaður.
Rannsókn fer nú fram á
orsökum slyssins. Vitað var um
tólun í bómunni sem féll á
Guðmund og stóð viðgerð fyrir
dyrum. Er nú í rannsókn hvort
sú .bilun ollí því að bóman féll
miður eða önnur skyndibilun
Iha'fi valdið þvi.
Atvinnumálanefnd Suðurnesja:
Kvótafyrirkomu-
lag milli landshluta
ATVINNUMALANEFND Suður
nesja, sem nýlega var stofnuð af
Sambandi sveitarfélaga á Suður-
nesjum, hefur sent frá sér álykt-
un, þar sem m.a. er skorað á
sjávarútvegsráðuneytið að beita
sér fyrir því að tekið verði UPP
kvótafyrirkomulag milli lands-
hluta og verði þá t.d. miðað við
afla síðustu 10 ára.
Ályktunin fer í heild hér á eftir:
„Atvinnumálanefnd Suðurnesja
telur að þær harkalegu aðgerðir,
sem sjávarútvegsráðuneytið hefur
nú beitt með því að stöðva fyrir-
varalítið netaveiðar 1. maí n.k.,
muni hafa alvarlegar afleiðingar
fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum.
Nefndin bendir á að á undanförn-
um árum hafi afli á vetrarvertíð
stórminnkað og hafi keyrt um
þverbak 1978. Þar af leiddi að
fiskiskipaflotinn og fiskverkunar-
stöðvarnar voru komnar í
greiðsluþrot enda viðurkennt að
Suðurnesjasvæðið hefur hin síðari
ár stórlega dregist aftur úr hvað
varðar endurbyggingu fiskveiði-
flota og fiskvinnslu. I vetur hefur
Vestfjardaleid opnud
eftir 4 mánaða lokun
Vestf jarðaleið var opnuð í gær, en
hún hafði verið ófær frá áramót-
um eða í tæpa 4 mánuði. Er nú
fært öllum bílum frá Reykjavík
vestur í ísafjarðardjúp.
Mikill klaki er í jörðu víðast
hvar á landinu og ef þýða verður
áfam má búast við aurbleytu í
vegum og þungatakmörkunum í
næstu viku, að sögn Hjörleifs
Ólafssonar vegaeftirlitsmanns.
Hjörleifur sagði, að vegagerðar-
menn ynnu nú fyrirbyggjandi
starf úti á vegunum til þess að
koma í veg fyrir að úr þeim rynni
og vatn flæddi yfir vegina.
afli glæðst lítillega, sérstaklega
vegna góðra gæfta en sá ávinning-
ur hverfur nú sem dögg fyrir sólu.
Atvinnumálanefnd Suðurnesja
telur engan ávinning að því að ala
á sundrungu milli landshluta og
skorar á sjávarútvegsráðuneytið
að beita sér fyrir því nú þegar, að
gerðar verði ráðstafanir til að
tekið verði upp kvótafyrirkomulag
á milli landshluta og þá tekið
viðmiðun t.d. af afla síðustu 10
ára.“
Atvinnumálanefnd Suðurnesja
var nýlega stofnuð af Sambandi
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
skipa nefndina formenn atvinnu-
málanefnda aðildarsveitarfélaga á
Suðurnesjum. Eiga sæti í henni
eftirtaldir menn: Formaður
Jóhann Einvarðsson, Keflavík,
varaformaður Guðbergur Ingólfs-
son, Garði, Eiríkur Tómasson,
Grindavík, Jósef Borgarsson,
Höfnum, Kristinn Lárusson, Sand-
gerði, Oddbergur Eiríksson,
Njarðvík og Hafsteinn Snæland,
Vogum.
o
Sjómenn ræða við viðsemjendur sína:
Z Verðurverkfallfrá
og með 25. apríl?
INNLENT
SAMNINGANEFNDIR
f sjómanna og viðsemjenda
þeirra hittust hjá Torfa
Þrotabú Breiðholts hf:
Lýstar kröfur
420 milljónir
- auk vaxta og kostnaðar
FUNDUR var haldinn í gær með
kröfuhöfum í þrotabú Breiðholts
hf og öðrum aðiium, sem aðild
eiga að fyrirtækinu og gjaldþroti
þess.
Að sögn Unnsteins Beck skipta-
ráðanda var á fundinum gerð
grein fyrir stöðu gjaldþrotamáls-
ins. Að sögn Unnsteins kom fram
á fundinum að lýstar kröfur í búið
nema nú 420 milljónum króna auk
vaxta og kostnaðar en upphæðin
myndi hækka verulega ef kostnað-
ur og vextir yrðu meðreiknaðir.
Ekki hafði Unnsteinn handbærar
upplýsingar um það hve há
upphæðin yrði þá. Varlega áætlað
mun talan líklega hækka um
100—200 milljónir.
Nýlega var lýst allstórri kröfu í
búið. Var það 36 milljóna króna
bótakrafa íbúðaeigenda í
Krummahólum 8 í Breiðholti
vegna vanefnda. Þessi krafa er 54
milljónir með kostnaði og vöxtum.
Innköllunarfrestur rennur út í
júní.
Hjartarsyni sáttasemjara í
gær klukkan 14 og stóð
fundurinn fram undir
klukkan 19. Þá höfðu verið
skipaðar undirnefndir og
var ætlunin að halda
eitthvað áfram viðræðum
milli undirnefndanna fram
eftir kvöldinu
Deiluaðilum ber mikið í
milli og hefur Farmanna-
og fiskimannasamband
íslands boðað verkfall
klukkan 24 hinn 24. apríl.
Það var samninganefnd
sjómanna, sem vísaði deil-
unni fyrir páska einhliða til
sáttasemjara ríkisins og
segja samningamenn, að
um erfiða deilu sé að ræða.
Seldi í Hull
RÁN úr Hafnarfirði landaði 130
tonnum í Hull í gærmorgun.
Skipið fékk 38.2 miiljónir fyrir
aflann, meðalverð 293 krónur á
kfló. Þá landaði Ársæll hluta afla
síns.
Bílasýning og vörukynning
Sendiherrá Frakkiands S. Desbans flytur ræðu við opnun bflasýningar
og vörukynningar frönsku vikunnar. Ljðsm.: Kristján
BÍLASÝNING og vörukynning
frönsku vikunnar hófust í gær í
Sýningahöllinni í Bfldshöfða. Egill
Skúli Ingibergsson borgarstjóri
opnaði sýninguna að viðstöddum
fulltrúa viðskiptaráðherra og
sendiherra Frakklands, F. Desbans,
sem auk Egils flutti ræðu við
opnunina. Ræddi borgarstjórinn
aðallega um samskipti íslendinga
og Frakka í menningarlífi og á
sviði viðskipta.
42 fyrirtæki kynna franskar vörur
á sýningunni, þar af kynna 4 þeirra
16 bifreiðar, en tvær þeirra hafa ekki
áður verið fáanlegar hér á landi. Auk
þessara vörukynninga munu á
sýningunni verða sýndar kvikmyndir
um framkvæmdir og rannsóknir
franskra fyrirtækja.
Að lokinr.i opnunarathöfninni var
gestum boðið upp á veitingar en
síðan var sýningin skoðuð.
„Andóf 79”
berst gegn
samkomulagi
BSRB og ríkis
ANDSTÆÐINGAR samkomu-
lags ríkisstjórnarinnar og
stjórnar BSRB innan samtak-
anna hafa myndað með sér
samtök, sem kölluð hafa verið
„Andóf ’79“ og er ætlunin að
halda fundi í félögum innan
BSRB og hafa uppi áróður fyrir
því að menn felli samkomulagið
um að falla frá 3% áfanga-
hækkun gegn auknum
samningsrétti.
í gær var fundur haldinn
meðal símamanna og sam-
kvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í gær, var
gerður góður rómur að ræðum
ræðumanna og fulltrúa
„Andófs ’79“ enda hafa síma-
menn áður ályktað mjög
ákveðið gegn samkomulaginu
við ríkisstjórnina.
Góður afli háta
frá Höfn í fyrsta
róðri eftir páska
Hornafirði 18. apríl
ÞEIR fjórir Hornafjarðar-
bátar, sem fyrstir reru eftir
páskana, fengu allir mjög
góðan afla og voru þeir væntan-
legir með um 25 tonn hver í
gærkvöldi. Samtals koma þess-
ir bátar því með um 100 tonn og
aflinn i trossu var á bilinu frá
2—5 tonn. Á öllu svæðinu við
Ingólfshöfðann virtist vera
mikill og góður fiskur. Hvanney
er komin með mestan afla
bátanna héðan, liðlega 700
tonn. — Jens.
Kókaínmálið:
Konan laus
úr
einangrun
ÍSLENZKU konunni, sem setið
hefur í gæzluvarðhaldi vegna
kókaínmálsins síðan i marz-
byrjun, var sleppt úr einangrun
i gær. Hún mun áfram sitja í
fangelsi í Kaupmannahöfn en
væntanlega verður felldur dóm-
ur í máli hennar innan
skamms, samkvæmt þeim upp-
Iýsingum, sem Mbl. fékk í gær í
Kaupmannahöfn.
Ganga og skáta-
messa í
Hafnarfirði
SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar í
Hafnarfirði fagnar sumri á
hefðbundin hátt með göngu á
sumardaginn fyrsta sem hefst
við skátaheimilið en lýkur með
skátamessu í Þjóðkirkjunni.
Klukkan 10 verður lagt af
stað frá skátaheimilinu Hraun-
byrgi og gengið niður Reykja-
víkurveg um Fjarðargötu,
Strandgötu og Suðurgötu að
kirkjunni. Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar leikur fyrir göngunni.
Klukkan 11 hefst svo skáta-
messa í þjóðkirkjunni. Sr.
Gunnþór Ingason þjónar fyrir
altari, Sigurður H. Þorsteins-
son skólastjóri predikar en
skátar annast söng og undirleik
að nokkru.
Jóhann G. sýn-
ir á Akureyri
JOHANN G. Jóhannsson opnar
í dag málverkasýningu í Háhól
á Akureyri. Sýningin verður
opin frá kl. 15—22 um helgar en
20—22 virka daga til 30. þessa
mánaðar. Jóhann sýnir þar um
60 olíu- og vatnslitamyndir og
er rúmlega helmingur mynd-
anna nýr. Þetta er fyrsta sýn-
ing Jóhanns á Akureyri.