Morgunblaðið - 19.04.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
13
Aðalfundur Félags íslenzka prentiðnaðarins:
V erðlagning
endurskipulögð
við stjórn FII um aukna samvinnu
félaganna.
Fráfarandi stjórn var öll endur-
kjörin, en hana skipa: Haraldur
Sveinsson, formaður, Þorgeir
Baldursson, varaformaður, Páll
Vígkonarson, ritari, Magnús I.
Vigfússon, gjaldkeri og meðstjórn-
endur eru Geir S. Björnsson, Einar
‘Egilsson, Konráð R. Bjarnason,
Hörður Einarsson og Sveinn R.
Eyjólfsson.
Innan Félags íslenzka prentiðn-
aðarins eru nú 88 fyrirtæki innan
grafíska iðnaðarins, umbúðaiðnað-
arins og blaðaútgefenda. Fram-
kvæmdastjóri FÍP er Grétar G.
Nikulásson.
Hinn 30. mars 1979 hélt Félag
íslenska prentiðnaðarins áttunda
aðalfund sinn í félagsheimili FÍP
að Háaleitisbraut 58—60.
í skýrslu formanns, Haralds
Sveinssonar, kom m.a. fram, að á
árinu var haldið endurskipun iðn-
náms í grafískum iðngreinum og
er námið nú alfarið komið inn í
iðnskóla, utan verkþjálfunartíma í
lok námstíma. Þá er nú unnið að
því að endurskipuleggja verðlagn-
ingu í prentiðnaði. Mestar umræð-
ur á aðalfundinum urðu varðandi
aðild félagsins á Vinnuveitenda-
sambandi Islands og samvinnu við
Félag íslenzkra iðnrekenda. Mun
stjórn FÍP halda áfram viðræðum
Skagfirskur söng-
ur á Suðurlandi
Söngfélagið Harpa í Skagafirði
fer í söngferð til Suðurlands næst-
komandi föstudag, á morgun, og
mun kórinn syngja í Kópavogsbíói
kl. 21 á föstudagskvöldið, síðan
syngur kórinn í Félagsbíói í Kefla-
vík á laugardag kl. 16 og að kveldi
sama dags í Hlégerði kl. 21. Söng-
stjóri Hörpunnar er Ingimar Páls-
son.
Einsöngvarar: Inga Rún Pálma-
dóttir, Kristján B. Snorrason og
Þorvaldur G. Óskarsson.
Þetta er önnur söngferð kórsins
til Suðvesturlands en hann fór
söngferð þangað 1973. Auk þess
hefur kórinn sungið víðsvegar á
Norðurlandi á undanförnum árum.
A síðastliðnu ári fór kórinn meðal
annars til Grímseyjar. Kórfélagar
eru 30.
Að lokinni söngskemmtun í Hlé-
garði mun kórinn halda dansleik í
Hlégarði og mun skagfirska
hljómsveitin Upplyfting leika fyr-
ir dansi.
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Ragnar Guðmundsson, forstjóri Rfkisprentsmiðjunnar Gutenberg,
Sveinn R. Eyjólfsson, Magnús I. Vigfússon, Konráð R. Bjarnason, Grétar G. Nikulásson, framkvæmda-
stjóri FÍP, Haraldur Sveinsson, formaður FÍP, Þorgeir Baldursson, varaformaður FÍP, Einar Egilsson,
Páll Vígkonarson, Geir S. Björnsson og Hörður Einarsson. Ljósm. Mbl. Kristján.
fl^S® €Sflafln®m
Hin nýja kynslóó fm Geneial Motors.
Amerískur lúxusbfll, sem eydir aðeins um 10 lítrum á 100 km.