Morgunblaðið - 19.04.1979, Síða 15
1
I
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
15
Ályktanir aðalfundar Kaupmannasamtakanna:
hún leggur af mörkum vegna
innheimtu hans.
Smásölu verzlunin fái
fulltrúa í verðlagsnefnd
AÐALFUNDUR Kaupmannasam-
taka íslands var haldinn hinn 20.
marz eins og getið hefur verið í
frétt í Morgunblaðinu. Fundur-
inn samþykkti allmargar álykt-
anir, sem hér fara á eftir:
Breytingar á
verzlunarlöggjöfinni
Aðalfundur Kaupmannasam-
taka Islands haldinn að Hótel
Sögu 20. marz 1979, beinir því til
viðskiptaráðherra, að fullt samráð
verði haft við Kaupmannasam-
tökin um breytingar á verzlunar-
löggjöfinni.
Fundurinn bendir á, að
nauðsynlegt er, að ákvæði um
aðildarskyldu verzlana að
samtökum verzlunarinnar verði
lögfest.
Fulltrúi í
Verðlagsnefnd
Fundurinn leggur áherslu á, að
Kaupmannasamtök Islands
(smásöluverzlunin fái fulltrúa í
Verðlagsnefnd. Fundurinn telur
algjörlega óviðunandi, að smásölu-
verzlunin skuli ekki eiga mann í
nefndinni, þar sem svo mjög er
fjallað um hagsmuni hennar á
þeim vettvangi, og segja má, að
það sé algjörlega á valdi Verðlags-
nefndar, hver afkoma verzlunar-
innar er, hverju sinni.
Lokunartímareglugerð
Fundurinn mótmælir harðlega
framkomnum hugmyndum um
afnám reglugerðar um
afgreiðslutíma verzlana í Reykja-
vík o.fl. frá 26. júlí 1971.
Fundurinn álítur, að á meðan
álagning er bundin sé ekki raun-
hæft að afnema reglugerðina, því
það mundi leiða til mikillar
hækkunar á reksturskostnaði
verzlana, sem ekki fengist bættur.
Hins vegar álítur fundurinn, að
reglugerðinni mætti breyta í
einstökum atriðum, með tilliti til
breyttra aðstæðna frá því að hún
var sett. Forsenda fyrir slíkum
breytingum yrði að vera algjört
samkomulag um þær, milli
Kaupmannasamtakanna og
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur.
Nýja verð-
lagslöggjöfin
Fundurinn hvetur eindregið til
þess, að hin nýja verðlagsslöggjöf,
sem samþykkt var á Alþingi á s.l.
vori, taki gildi óbreytt hið allra
fyrsta, og eigi síðar en 1. sept. n.k.
Fundurinn átelur harðlega þann
drátt, sem orðið hefur á gildistöku
hennar, og mótmælir bollalegging-
um um breytingar á henni í póli-
tískum tilgangi.
Hækkun
verzlunarálagningar
Fundurinn lýsir sig samþykkan
framkominni tillögu verðlags-
stjóra um hækkun verzlunarálagn-
ingar í smásölu, enda þótt hún
bæti ekki nema að hluta til þá
álagningarskerðingu, sem varð á
s.l. ári. Fundurinn mælist
eindregið til þess, að tillagan verði
samþykkt í Verðlagsnefnd. Ef
einhverjir Verðlagsnefndarmenn
treysta sér ekki til að samþykkja
tillöguna í heild, mælist fundurinn
til þess, að þeir beiti sér fyrir því,
að tillagan verði borin upp í
tvennu lagi í nefndinni, þannig að
leiðrétting á smásöluálagningu
fáist, án tillits til annarra sjónar-
miða.
Skattahækkunum
mótmælt
Fundurinn mótmælir harðlaga
þeim miklu skattahækkunum, sem
lagðar hafa verið að verzlunar-
atvinnu í landinu, svo sem með
hækkun fasteignagjalda, lóðar-
leigu, sérstökum álögum á
verzlunarhúsnæði, hækkun tekju-
skatts, hækkun aðstöðugjalda og'
nýbyggingargjaldi. Þá mótmælir
fundurinn skertum fyrningar-
reglum. Fundurinn bendir á, að
þessar auknu skattaálögur draga
úr athafnafrelsi einstaklingsins og
drepa í dróma einkaframtak, sem
er undirstaða þess frjálsa
þjóðfélags, sem við höfum búið við.
Fundur hvetur alla félagsmenn
Kaupmannasamtaka íslands og
aðra, er við verzlun vinna, að
standa vörð um hagsmunamál
verzlúnarinnar, þjóðfélaginu til
hagsbóta, minnugir þess að eining
er afl.
Innheimta
söluskatts
Fundurinn bendir á, að
kostnaður smásöluverzlunarinnar
við innheimtu söluskatts hefur
stóraukist í tíð núverandi ríkis-
stjórnar, og beinir því þeim
tilmælum til ríkisstjórnarinnar,
að verzlunin fái nú þegar endur-
greiddan þann mikla kostnað, sem
Misræmi
í lánamálum
Fundurinn vekur athygli á því
misræmi, sem ríkir í lánamálum
atvinnuveganna í landinu, og
telur, að allir aðalatvinnuvegir
þjóðarinnar eigi að sitja við sama
borð í þessu efni. Fundurinn beinir
því þeim tilmælum til stjórnvalda,
að sett verði nú þegar löggjöf, sem
trygg' framgang tillagna
Kaupmannasamtaka Islands um
lánasjóð verzlunarinnar. Með lög-
gjöfinni verði sjóðnum tryggður
öruggur tekjustofn til frambúðar.
Ályktun Verzlunar-
ráðsins mótmælt
Fundurinn mótmælir eindregið
ályktun framkvæmdastjórnar
Verzlunarráðs Islands frá 14. marz
s.l., þar sem segir um opnunartíma
verzlana:
„Verzlunarráðið telur af sömu
ástæðum, að opnunartími
verzlunarfyrirtækja eigi að vera
frjáls, en nú er hann takmarkaður
í kjarasamningum og bæjarsam-
þykktun.
Verzlunarráðið fagnar því frum-
kvæði Björgvins Guðmundssonar
og Markúsar Arnar Antonssonar í
borgarstjórn Reykjavíkur um að
opnunartími verði gefinn frjáls."
Ljóst er, að ályktun þessi er sett
fram í fljótfærni og vegna
vanþekkingar á málefnum
smásöluverzlunarinnar.
Gjaldeyris-
réttindi fyrir
Verzlunarbankann
Fundurinn beinir þeim til-
mælum til Alþingis og ríkisstjórn-
ar, að Verzlunarbanki Islands h.f.
fái nú þegar rétt til sölu erlends
gjaldeyris.
Aukakostnaður
dreifbýlisverzlunar
Fundurinn beinir því til
verðlagsyfirvalda, að verzlunum
verði heimilt að taka inn í álagn-
ingu sína aukakostnað, sem hlýst
af staðsetningu verzlana fjarri
innflutningshöfn, s.s. flutnings-
kostnað, símakostnað og annan
sannanlegan kostnað vegna fjar-
lægðar.
Bílasýning.
€fln®rfd®B®fl €Sfl<aflfl®nn
Hin nýja kynslóð fra General Motors.
Kynnt samtímis 1 Evrópu og Ameríku, hér Ármúla 3.
Fimmtudaginn 19. apríl til sunnudagsins 22.apríl.
OpiÖ alla dagana kl.10-17.
S VÉLADEILD SAMBANDSINS