Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
Mondale ásamt Ólafi Halldórssyni og Ragnarí Arnalds skoðar íslenzku handritin.
— Ljósm.: ÓI.K.M.
Útvarp og sjónvarp ræóa viö William P. Rogers, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, fyrir
tæpum 7 árum. — Ljósm.: ÓI.K.M.
„Þar er svo góður
gestur sem húsbóndinn”
TVISVAR á síðastliðnum 7 árum
hefur það gerzt, að bandarískir
ráðamenn, sem verið hafa í opin-
berri heimsókn á íslandi, hafi
ætlað að skoða hina íslenzku
kjörgripi í Árnagarði, handritin.
Móttökurnar, sem þeir hlutu á
þessum stað, voru þó mjög svo
tvenns konar.
Hinn 3. maí 1972 var William
P. Rogers, þáverandi utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, í opin-
berri heimsókn hér og ætlaði þá
ásamt Einari Ágústssyni, —
þáverandi utanríkisráðherra, að
skoða handritin í Stofnun Árna
Magnússonar. Frá þessum
atburði segir í Morgunblaðinu:
„Það var laust fyrir klukkan 13 í
gær, að bandaríski utanríkisráð-
herrann kom ásamt fylgdarliði
sínu að Árnagarði. Þegar ráð-
herrann hugðist ganga inn í
bygginguna, hafði hópur ungs
fólks — 150 að sögn lögreglu, en
fleiri að sögn mótmælenda —
tekið sér stöðu á göngum og í
fordyri Árnagarðs og neitaði
ráðherranum og fylgdarliði um
inngöngu. Þá átti að vísa
ráðherranum inn um suðurdyr
hússins, en þá kom í ljós að
mótmælendurnir höfðu bundið
hurðir þar aftur og meinuðu
forstöðumönnum handritastofn-
unarinnar aðgang til að opna
fyrir gestinum. Utanríkisráð-
herra, Einar Ágústsson, gekk þá
þar að og spurði þá, sem voru í
forsvari fyrir mótmælendum,
hvort þeir ætluðu í raun og veru
að neita gestinum um inngöngu í
stofnunina. Hann fékk þau svör,
að morðingjar færu þar ekki inn.“
í frásögn Morgunblaðsins hinn
4. maí 1972 segir að afráðið hafi
verið að hætta við heimsóknina í
Árnagarð og er Rogers ætlaði að
aka á brott í bíl sínum hefði
hópur ungmenna þyrpzt að bíln-
um og varnað því að hann kæmist
leiðar sinnar. Ungur piltur stökk
upp á vélarhlíf bílsins, þaðan upp
á þakið og niður á farangurs-
geymsluna og dældaði með þessu
bílinn.
Að loknum þessum atburðum,
var ætlunin að utanríkisráðherr-
ann færi til Bessastaða til fundar
við forseta Islands. Á veginum á
Álftanesi var þá um 40 til 50
manna hópur í tveimur lang-
ferðabifreiðum, sem hafði
meðferðis bensínbrúsa, nagla-
tappa og naglasaum til þess að
stöðva bifreiðarnar. Lögreglan
hafði spurnir af þessum
aðgerðum og beindi utanríkisráð-
herranum aðra leið til Bessa-
staða, gegnum Hafnarfjörð. Á
Álftanesveginum dreifðu mót-
mælendurnir bréfi, þar sem m.a.
sagði, að Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra hafi verið „furðu
djarfur, að ætla þjóð sinni annan
eins skriðdýrshátt og sæta
þessari heimsókn þegjandi og
hljóðalaust... og um leið og
mótmælt er þessari ögrun,
mótmælum við komu þessa út-
sendara heimsvaldastefnunnar
til Islands." I samtali við
Morgunblaðið harmaði Einar
Ágústsson að ekki hefði reynzt
unnt að halda dagskrá, sem
skipulögð hefði verið fyrir gest-
inn og fylgdarlið hans og kvaðst
Mótmælendur fylltu ganga Árnagarös, avo aö utanríkisráöherrann
komst ekki í stofnunina.
fremur hafa kosið að þetta unga
fólk hefði látið sitja við mótmæli
utanhúss eins og oft hefði tíðkast
í áþekkum tilvikum. „Ég harma
það, að ekki var hægt að sýna
William Rogers og fylgdarliði
hans íslenzku handritin," sagði
utanríkisráðherra.
Hinn 12. apríl 1979, á skírdag,
kom Walter Mondale, varaforseti
Bandaríkjanna, í heimsókn á
þennan sama stað. Árnagarð,
tæplega 7 árum eftir að Rogers
var þar á ferð. I frásögn Morgun-
blaðsins í gær, þar sem frá þessu
er skýrt, segir svo: „Að loknum
fundum í ráðherrabústaðnum,
skoðaði Walter Mondale stofnun
Árna Magnússonar í fylgd Ólafs
Halldórssonar handritafræðings
og Ragnars Arnalds mennta-
málaráðherra. Þar skoðaði
Mondale m.a. Konungsbók Eddu-
kvæða, Flateyjarbók og Möðru-
vallabók. Heyra mátti að vara-
forsetinn var sæmilega vel að sér
í sagnaritun norrænna manna til
forna og handritagerð, enda
sjálfur af' norsku fólki kominn. I
gestabók Árnastofnunar í lok
heimsóknarinnar, reit Mondale:
„Hafið þakkir fyrir þá innsýn,
sem ég hef fengið í hina miklu
sögu forfeðra vorra.“
Eins og í dagskrá heimsóknar
Rogers fór Mondale síðan til
Bessastaða að hitta forseta
íslands. Hann fékk ólíkt betri
viðtökur en utanríkisráðherra
lands hans hafði fengið 7 árum
áður.
„Þar er svo góður gestur sem
húsbóndinn."
J Aösúgur geröur aö bíl utanríkisráöherra Bandaríkjanna hinn 2. maí 1972.
Þannig leit Árnagaröur út, er gestina bar aö.