Morgunblaðið - 19.04.1979, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
Víetnamar
halda
áfram
Peking. 18. aprfl. AP.
DAGBLAÐ alþýðunnar í Pek-
ing sagði í dag að Víetnamar
hefðu haldið áfram árásum
inn fyrir landamæri Kína í
héruðunum Kujfsi og Yunnan
þrátt fyrir yfirstandandi við-
ræður landanna í Hanoi.
Víetnamar löjfðu til í viðræð-
unum í daK að komið yrði á fót
vopnlausu svæði meðfram
landamærunum o« að báðir
aðilar hörfuðu með herlið sitt
3-5 km.
Skemmdir
á Lenín-
líkneski
Varxjá, 18. aprfl. AP.
LENÍN-LÍKNESKI skemmdist
í sprenginifu í gærkvöldi í
Nowa Huta nálægt Kraká í
Póllandi. Skemmdir urðu einn-
ÍK á nálægu fjölbýlishúsi og
fimm menn slösuðust að sögn
Pólsku fréttastofunnar.
Ovinir
Amins
klofna
Nairobl, 18. aprfl. AP.
KLOFNINGUR kom upp í daií
f liði andstæðinKa Idi Amins
ok fréttir bárust um að stuðn-
iniísmenn hans hefðu drepið
fólk hliðholt stjórninni í
Austur-Uifanda.
Leiðtogi andstæðinifa Amins
í Ujfanda saifði í skjali að
landflótta samverkamenn
þeirra hefðu við myndun
stjórnarinnar útilokað þá sem
„hcfðu hætt lífi sínu, eignum
og fjölskyldum" í baráttunni
gegn Amin.
Þúsundir hermanna
stjórnarinnar sóttu í dag í
norður og austur frá Kampala
og reyna að hreinsa veginn til
Kenya. Sótt er fram í tveimur
fylkingum og sagt að vonað sé
að þær mætist eftir rúman
mánuð til lokabaráttu gegn
norðursvæðunum þaðan sem
Amin er ættaður.
Nýtt eldgos
á St. Vincent
Kingaton. St. Vlncent.
18. aprfl. AP.
NÝTT GOS varð í eldfjallinu
Soufriere á eynni St. Vincent í
Vestur-Indíum í gærkvöldi og
15.000 manns neyddust til að
flýja heimili sfn.
Eldgosið var álfka öflugt og
eldgosin á föstudag og laugar-
dag og jafnvel öflugra.
Engan hefur sakað síðan eld-
gosið hófst og síðasta goshrin-
an hefur ekki stofnað mannsiíf-
um í hættu. Hópur eldfjalla-
fræðinga dvelst um 12 km
suðaustur af eldfjallinu.
Tannis innanríkisráðherra
staðfesti að um 40 manns væru
enn á svæði nálægt eldfjallinu
og hafi neitað að fara. Þrjár
þyrlur frá bandarísku strand-
gæzlunni eru hafðar til taks til
þess að flytja fólkið burt ef það
óskar þess.
Alls hafa rúmlega 15.0(X) af
um 100.000 eyjarskeggjum
verið fluttir frá heimilum sín-
um að sögn Tanners, en aðrir
embættismenn segja að langt-
um fleiri hafi veriö fluttir
burtu.
í>etta gerdist
19. apríl
1975—Fyrsta gervihnetti Indverja
skotið með sovézkri eldflaug.
1971—Charles Monson og þrjár
konur dæmd til dauða fyrir morð-
in á Sharon Tate og sex öðrum.
1964—Samsteypustjórn Laos
steypt í hægribyltingu hersins.
1963—Spánverjar neita að náða
kommúnistaleiðtogann Julian
Grimau Garcia (líflátinn daginn
eftir).
1956—Rainier fursti af Monako
kvænist Grace Kelley.
1951 —MacArthur hershöfðingi
kemur fyrir Bandaríkjaþing og
ræðst á stjórn Trumans.
1928—Japanir taka Shantung í
Kína.
1921—Lögin um stjórnskipun Ir-
lands taka gildi.
1917—Tyrkir hrinda sókn Breta í
annarri orrustunni um Gaza.
1911—Aðskilnaður ríkis og kirkju
í Portúgal.
1898—Bandaríkjamenn setja
Spánverjum úrslitakosti út af
Kúbu.
1859—Austurríki setur Sardiníu
úrslitakosti.
1783—Bandaríkjaþing lýsir yfir
að frelsisstríðinu sé lokið.
1775—Frelsisstríð Norð-
ur-Ameríku hefst með ósigri Breta
í Lexington.
1587—Floti Sir Francis Drakes
ræðst á Cadiz á Spáni.
Afmæli: Edward Pellew, enskur
aðmíráll (1758—1823). — David
Ricardo, enskur hagfræðingur
(1772—1823). — August Wilhelm
Iffland, þýzkur leikritahöfundur
(1759-1814).
Andlát: Leo páfi IX 1054. — Anton
van Diemen, landkönnuður, 1645.
— Kristin Svíadrottning 1689. —
Byron lávarður, skáld, 1824. —
Benjamin Disraeli, stjórnmála-
leiðtogi, 1881. — Charles Darwin,
líffræðingur, 1882. — Konrad
Adenauer, stjórnmálaleiðtogi,
1967.
Innlend: Hauksnesbardagi: Þórð-
ur kakali vann mestu orrustu á
íslandi fyrr og síðar (d. Brandur
Kolbeinsson) 1246. — d. Tumi
(yngri) Sighvatsson 1244. — Þuríð-
ur príor 1285. — 24 bæir í Ölfusi og
Flóa hrynja í jarðskjálfta 1706. —
Jóhann Sæmundsson félagsmála-
ráðherra biðst lausnar 1943. —
Fyrsta íslenzka óperettan frum-
flutt 1944. — Lög um gengisfell-
ingu 1949. — Fundur sérfræðinga
um handritaskrá í Kaupmanna-
höfn 1961. — f. Magnús Kjaran
1890. — Barbara Árnason 1911. —
Halldór Laxness tekur við Sonn-
ing-verðlaununum 1969.
Orð dagsins: Þorparastrik eiga sér
takmörk; heimska ekki —
Napoleon Bonaparte Frakkakeis-
ari (1769-1821).
Þetta gerdist 20. apríl
1978 — Rússar neyða
suður-kóreska farþegaflugvél að
lenda nálægt heimskautsbaug.
1977 — Mótmælaaðgerðir gegn
Bhutto forsætisráðherra í
Pakistan.
1972 — Geimfararnir í Apollo 16
lenda á tunglinu.
1970 — Nixon forseti kunngerir
brottflutning 150.000 hermanna
frá Suður Víetnam
1968 — Trudeau verður forsætis-
ráðherra Kanada.
1967 — Bandarískar loftárásir á
orkuver nálægt Haiphong.
1962 — Salan, leiðtogi OAS
(Leynisamtaka hersins), handtek-
inn í Algeirsborg.
1945 — Rússar sækja gegnum
varnir Berlínar.
1943 — Afríkuher Rommels ræðst
á Tobruk.
1923 — Egyptar fá stjórnarskrá.
1919 — Nikulási konungi steypt í
Montenegro sem sameinast
Júgóslavíu.
1908 — Auðjöfuðurinn Garnegie
gefur 1.5 milljónir dala til smíði
friðar hallar í Haag.
1854 — Austurríki og Prússland
mynda varnarbandalag gegn Rúss-
landi.
1792 — Frakkland segir Austur-
ríki stríð áhendur.
1775 — Norður-Ameríkumenn
hefja umsátrið um Boston.
1770 — James Cook finnur Nýju
Suður Wales.
Afmæli. Pietro Aretino, ítalskt
skáld (1492—1557) — Louis
Napoleon (Napoleon III)
(1808-1873) - Adolf Hitler,
þýzkur nazistaleiðtogi
(1889—1945) — Joan Miro,
spænskur listmálari 1893—).
Andlát. Arthur Young, land-
búnaðarbrautryðjandi, 1820.
Innlent Einokun hefst 1602 — d.
Kristján X 1947 — Þjóðleikhúsið
vígt 1950 — Konungsbréf um
flutning biskupsstóls, dómkirkju
og skóla í Skálholti til Reykjavíkur
1785 — Dalfjall fer að gjósa við
Mývatn 1728 — Hlutabréf íslend-
inga í Almenna verzlunarfélaginu
seld til lúkningar skuld 1770 — 45
skipbrotsmenn af þýzku hvalveiði-
skipi komast í land á Skaga 1821
— Tilskipun um bæjarstjórn í
Reykjavík 1872 — Sparisjóður í
Reykjavík 1872 — Jónas Jónasson
og Einar Árnason fá lausn 1932 —
f. Brynleifur Tóbíasson 1890 —
Sigurður Grímsson 1896 — Ragn-
heiður Brynjólfsdóttir tekur opin-
bera aflausn 1662.
Orð dagsins. Svartsýni: þar sem
allt er slæmt hlýtur að vera gott
að þekkja það versta —. F. H.
Bradley, enskur höfundur
(1846-1924).
Erfitt hjálpar-
starf á jard-
skjáiftasvæðinu
Titosrrad, JÚKÓslavíu,
18. apríl. AP. Reuter.
STÖÐUGAR rigningar
hafa hamlað björgunar-
starfi eftir jarðskjálftann í
Júgóslavíu og aukið eymd
tugi þúsunda heimilis-
lausra og nýir kippir sem
hafa fylgt í kjölfarið hafa
ekki bætt úr skák.
Hundum og sérfræðing-
um búnum hlustunartækj-
um hefur ekki tekizt að
finna fleiri sem hafa
komizt lífs af. Talsmaður
stjórnarinnar í Monte-
negro segir að aðeins hafi
borizt 5.000 fjögurra
manna tjöld af þeim 20.000
sem þörf er á.
Skortur er ekki á matvælum, en
dreifing vatns er erfiðleikum
bundin. Yfirvöld hafa skorað á
eigendur sumarbústaða á strönd-
inni að leyfa heimilislausum að
hafast við í þeim. Opinberlega er
enn sagt að 101 hafi týnt lífi þótt
Belgrad-blaðið Bevernje Novosti
segi að, 121 lík hafi fundizt.
Fréttir frá Albaníu herma að
þar hafi 35 farizt eins og tilkynnt
var í upphafi, en nú er talið að 370
hafi slasazt þar og 10.000 hús
eyðilagzt.
Hjálp hefur borizt frá mörgum
Akureyri 9 skýjaó
Amsterdam 12 skýjað
Apena 19 heiðskírt
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 8 lóttskýjað
BrUssel 9 skýjað
Chicago vantar
Frankfurt 8 heiðskírt
Genf 11 skýjað
Helsinki 3 heiðskírt
Jerúsalem 23 skýjað
Jóhannesarb. 21 léttskýjað
Kaupmannah. vantar
Lissabon 22 léttskýjað
London 8 léttskýjað
Los Angeles 18 heiðskírt
Madríd 20 léttskýjað
Malaga 20 heiðskírt
Mallorca 17 skýjað
Miami 25 léttskýjaö
Moskva 0 heiðskírt
New York 12 heiðsklrt
Ósló 7 lóttskýjað
París 9 skýjaö
Reykjavík 9 úrkoma í
grennd
Rio De Janeiro vantar
Rómaborg 15 skýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Tel Aviv 24 skýjað
Tókýó 17 léttakýjað
Vancouver 12 skýjað
Vínarborg 11 skýjað
löndum, þar á meðal Bretlandi og
Vestur-Þýzkalandi. En dreifing
hjálpargagna gengur hægt vegna
veðurs. Rafmagn er aftur komið á
í helztu bæjum þar sem tjón varð í
jarskjálftanum. En embættismenn
óttast að drepsóttir geti gosið upp,
aðallega frá hræjum dýra sem eru
grafin í rústunum.
Embættismenn segja að tjónið
sé ægilegt, meira en svo að hægt sé
að meta það. Ferðamannaiðnaður-
inn á ströndinni hefur orðið fyrir
alvarlegu tjóni og mörg hótel eru
óbyggileg.
Nýbyggð höfn í Bar, þar sem
hundruð þúsunda ferðamanna
koma með ferju frá Ítalíu á hverju
ári, varð fyrir miklu tjóni.
Embættismenn telja að tapið i
ferðamannaiðnaðinum á þessu ári
verði 50 milljónir dollara. Iðnaður
og kaupsiglingar urðu einnig hart
úti og efnahagslífið á ströndinni er
í rústum.
Rúmlega 150 kippir hafa fundizt
síðan í jarðskjálftanum, sá síðasti
6,5 stig á Mareallikvarða. Heil-
brigðisráðherra, Branko Percar,
segir að bólusetning gegn sjúk-
dómum verði látin sitja í fyrir-
rúmi. En mörg sjúkrahús hafa
eyðilagzt og bifreiðar eiga erfitt
með að komast leiðar sinnar þar
sem vegir eru víða ófærir.
Portisch í
efsta sæti
í Montreal
Montreal. 18. aprfl.
Reuter. AP.
PORTISCH frá Ungverjalandi hefur
forystuna á alþjóðaskákmótinu í
Montreal og er með fimm vinninga
eftir fjórar umferðir. en Karpov
heimsmeistari er í öðru til fjórða
sæti ásamt Ljubomir Ljubojevich og
Mikhail Tal, með fjóra og hálfan
vinning.
Ljubojevich sigraði Kavalek,
Bandaríkjunum, í 59. leik í biðskák úr
fjórðu umferð. Hort gerði jafntefli við
Timman.
Roberg Hiibner er í fimmta sæti
með þrjá vinninga, en síðan koma
Spassky, Timman og Hort með tvo
vinninga. Larsen hefur einn og hálf-
an.
Skákskýrandinn Camille Caudari
sagði í viðtali í dag að „Karpov væri
enn sigurstranglegastur þótt hann
væri með hálfan vinning minna en
Portisch."
Hann sagði að fjórir efstu menn
hefðu allir teflt óaðfinnanlega til
þessa og gerði ráð fyrir að Karpow og
Portisch skildu sig frá hinum í næstu
umferðum. Hann bætti því við að
Karpov. hefði teflt örugglega og
Portisch hefði iíka teflt mjög vel, en
ekki væri eins öruggt að treysta
Ljubojevich sem þó gæti komið á
óvart og unnið alla. Tal sagði hann að
virtist vilja sætta sig við jafntefli í
stað þess að keppa um efstu sætin.
Mondale ræðir
við Jörgensen
Kaupmannahöfn, 18. aprfl
Reuter. AP.
WALTER Mondale varaforseti
lýsti í dag áhyggjum út af aukn-
um kjarnorkuvígbúnaði Rússa að
loknum viðræðum við Anker
Jörgensen forsætisráðherra og
Henning Cristopherson utan-
ríkissráðherra í
Kaupmannahöfn.
Hann sagði að NATO þyrfti að
bregðast við þessari ógnun og
koma sér upp nýtízkulegri
hergögnum. Hann sagði
blaðamönnum að hann teldi ekki
að valdajafnvægið á Eystrasalti
hefði breytzt þótt hann teldi
aukinn hernaðarmátt Rússa ógn-
vekjandi. „Norðurvængurinn hefur
úrslitaþýðingu í starfi NATO,“
sagði hann.
Fjöldi mála var tekin fyrir í
viðræðum Mondales og danskra
ráðherra en sérstök áherzla lögð á
áhyggjur Dana út af auknum
hernaðarumsvifum Varsjárbanda-
lagslandanna á Eystrasaltssvæð-
inu og lítilli hlutdeild bandalags-
ríkjanna í Evrópu í Salt-viðræðun-
um.