Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
55
Siguröur í níu
hlutverkum
samtímis?
„ÉG GET ekki sagt hvort
er skemmtilegra, að leika
fyrir framan myndavélar,
eða á sviði, það er svo
gjörólíkt, en hvort tveggja
er skemmtilegt,“ sagði Sig-
urður Sigurjónsson leikari
í spjalli nú fyrir helgina. Á
föstudaginn verður kvik-
myndin Land og synir
frumsýnd í Reykjavík og á
Dalvík, en þar fer Sigurður
einmitt með aðalhlutverk-
ið.
„Ég er sjálfur ekki búinn að
sjá myndina í endanlegri gerð“
sagði Sigurður ennfremur, „en
bíð spenntur, og jafnframt
kvíðinn!"
Sigurður sagðist annars
þessa dagana vera að æfa í
leikritinu Sumargestur eftir
Maxim Gorki í Þjóðleikhúsinu,
en auk þess er hann að leika í
þremur leikritum, Stundarfriði,
Hvað sögðu englarnir? og
Kirsiblóm á Norðurfjalli. Til
skamms tíma var hann svo
einnig með hvorki meira né
minna en fjögur hlutverk í
leikritinu Við borgum ekki, sem
sýnt var í Austurbæjarbíói.
Sýningum á því hefur hins
vegar verið hætt nú um stund-
arsakir að minnsta kosti. — En
fari svo, að leiksýningar hefjist
á ný á því verki, og að ekki
verði hætt að sýna leikritin
þrjú í Þjóðleikhúsinu áður en
það fjórða verður frumsýnt, þá
má á sama tíma sjá Sigurð í níu
hlutverkum samtímis í
Reykjavík! — Fimm leikrit, ein
kvikmynd, alls níu hlutverk! —
Það skal raunar tekið fram að
Sigurður taldi afar ólíklegt að
svo færi, enda væri þá ef til vill
orðið einum of mikið að gera.
Sigurður Sigurjónsson í hlutverki sínu í kvikmyndinni Land og synir, ásamt einni aðalleikkonunni.
Guðnýju Ragnarsdóttur.
1
I
I
Jón Sigurbjörnsson í
hlutverki KGB-manns
Hér er Jón Sigurbjðrnsson, í hlutverki sovésks KGB-manns i kröppum dansi með skammbyssu í
hönd i einu atriðanna, sem tekið var upp við Reykjavíkurhöfn. Hósm: Á*ást BaMwssoti.
Á miðvikudagskvöldið verð-
ur sýnd í sjónvarpinu fyrsta
myndin aí þremur úr sakamála-
myndafiokknum Út i óvissuna,
eins og sagt var frá hér á
sunnudaginn var. Væntanlega
biða sjónvarpsáhorfendur
spenntir eftir að sjá myndir
þessar, enda ekki á hverjum
degi sem tækifæri gefst til að
sjá sakamálamyndir sem gerast
á íslandi með fjölda islenskra
leikara í stórum hlutverkum.
Meðal þeirra sem leika í
myndinni eru Jón Sigurbjörns-
son, en hann fer með hlutverk
sovésks leyniþjónustumanns,
eða KGB-manns eins og þeir
heita víst á fagmáli. Lék Jón
hlutverkið með miklum ágætum,
og þurfti sjaldan að taka upp
oftar en einu sinni eða tvisvar
þær senur sem hann var í.
Út i óvissuna fjallar annars
um það, er Alan Stewart, fyrr-
verandi starfsmanni bresku
leyniþjónustunnar, er þröngvað
til að fara með böggul til ís-
lands, ella verði erkióvini hans
frá fornu fari, rússneska njósn-
aranum Mennikin, sagt hvar
hann geti fundið Alan og gamla
vinkonu hans íslenska, Elínu,
sem búsett er í Reykjavík.
Heiðursmenn í verslunarmannastétt
+ Flestir Reykvíkingar, að minnsta kosti þeir sem eru orðnir þurrir bak við eyrun eða vel það,
kannast vel við Sveinbjörn Árnason kaupmann. Sveinbjörn rak um árabil verslunina Haraldarbúð,
eða í um tuttugu ár. Áður hafði hann unnið þar í fjörutíu ár hjá Haraldi Árnasyni. Eins og áður hefur
verið skýrt frá i Morgunblaðinu var Sveinbjörn fyrir skömmu sæmdur gullmerki Kaupmannasamtak-
anna fyrir verslunarstörf í sextíu ár, og áður hafði hann verið sæmdur gullmerki Verslunarmannafé-
lags Reykjavikur.
+ Sveinbjörn Árnason kaupmaður í góðum félagsskap: Talið frá vinstri: Ólafur Maríusson í PÓ.
Björgvin Þorbjörnsson hjá Gjaldheimtunni, Sveinbjörn og Pétur Sigurðsson í PÓ. Allir voru þeir um
langt árabil samstarfsmenn i Haraldarbúð. Myndina tók Emilía Björg Björnsdóttir.
Hjalti Rögnvaldsson leikari í hlutverki hins lamaða og ósjálf-
bjarga manns sem á sér þá ósk heitasta að fá að deyja. en getur
ekki. Með Hjalta á myndinni er Harald G. Haralds leikari í
hlutverki sinu. — Leikritið nefnist Er þetta ekki mitt líf?
Liggur í rúminu
alía súninguna
LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýn-
ir um þessar mundir leikritið
ER ÞETTA EKKI MITT LÍF? í
Iðnó, og fer Hjalti Rögnvalds-
son með aðalhlutverkið í þessu
kunna ádeiluverki scm fjallar
um rétt manns yfir eigin lífi.
Það þykir að sjálfsögðu ekki
sérstökum tíðindum sæta, að
Hjalti skuli fara með stórt
hlutverk í Iðnó, en hitt er
óvenjulegra, að hann liggur í
rúminu allan tímann! Á meðan
aðrir leikarar hlaupa fram og
aftur um sviðið liggur Hjalti
grafkyrr í rúminu, og hreyfir
ekkert nema talfærin eða því
sem næst! Hlýtur að vera erfitt
að fara með slíkt hlutverk, en
Hjalti leikur ungan mann sem
slasast hefur illa í bíjslysi. —
Það er svo ekki fyrr en í lok
sýningarinnar, þegar
áhorfendur þakka leikurum fyrir
leik þeirra, að Hjalti snarast
fram úr rúminu, — sumum
áhorfendum til mikillar furðu og
ef til vill nokkurs léttis!