Morgunblaðið - 05.03.1980, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
54. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sakharov meinað að sitja
f undi vísindaakademíunnar
Moskvu, 4. marz. AP.
ANDREI Sakharov, Nóbelsverðlaunahafinn og andófsleiðtoginn
heimsfrægi, sem nú dvelur í útlegð í rússnesku borginni Gorky,
sakaði sovézku vísindaakademíuna i dag um að meina sér að njóta
þeirra réttinda, sem honum bæri sem félaga í akademiunni.
Sakharov sagði í yfirlýsingu,
sem Liza Alekseyeva, unnusta
stjúpsonar hans, kom til frétta-
manna, að sér hefði verið meinað
að sækja fundi akademíunnar,
sem hófust í Moskvu í dag.
Sakharov óskaði eftir því í skeyti
12. febrúar, að fá að koma til
Moskvu til að sækja fundi aka-
demíunnar. í svarskeyti frá
stjórn akademíunnar í gær
sagði, að þar sem ekki væri
„fyrirsjáanlegt," að Sakharov
yrði í Moskvu á næstunni væri
honum boðið að senda tillögur
sínar um umræðuefni í pósti.
Sakharov hefur ekki verið
formlega sviptur sæti sínu í
akademíunni, en í henni sitja 248
menn. Tvo þriðju hluta atkvæða
í leynilegri kosningu þarf til að
svipta mann þar sæti, og er talið
að Sovétstjórnin óttist að hún
hafi ekki nægilegan meirihluta
meðal meðlima akademíunnar
til að fá honum vikið úr henni.
Sakharov var sviptur öllum
heiðursmerkjum sínum, þegar
hann var sendur í útlegð í janúar
sl.
Einkennisklædd lögregla var
við íbúð Sakharov-hjónanna í
Moskvu í dag, þegar vestrænir
fréttamenn komu þar að til að
hitta Lizu Alekseyevu. Var
fréttamönnunum vísað frá íbúð-
inni og varð Liza að koma
yfirlýsingu Sakharovs til þeirra
símleiðis.
Robert Mugabe fagnar kosn-
ingasigri sinum í Zimbabwe-
Rhódesíu á fundi með frétta-
mönnum í gær. Mugabe sagði að
hjartað í sér hefði tekið kipp,
þegar honum urðu úrslitin ljós
og á myndinni lýsir hann því
fyrir fréttamönnum. (Símamynd
AP).
heillaóskir víða að í dag, m.a. frá
Olof Palme, formanni sænska
Jafnaðarmannaflcdíksins, sem nú
er staddur í Reykj'avík.
Mugabe átti í dag fundi með
Smith, leiðtoga hvítra manna, og
Peter Walls hershöfðingja, yfir-
manni hers landsins. Mugabe til-
kynnti í dag, að hann hefði falið
Walls að hafa yfirumsjón með
sameiningu hers Rhódesíu og
skæruliðaherjanna. Mugabe full-
vissaði hvíta yfirmenn hersins og
hátt setta embættismenn um það í
dag, að þeir myndu halda stöðum
sínum.
Iran:
Ný skilyrði fyrir
fundi með gíslunum
Teheran, 4. marz. AP.
MANNRÆNINGJARNIR, sem
halda um 50 gíslum í bandaríska
Sigraði Iíennedy
í Massachusetts?
Boston, 4. marz. AP.
LÍTIL þátttaka var fram eftir
degi í forkosningunum í
Massachusetts, sem fram fara
í dag. Búizt er við því, að
Edward Kennedy sigri Carter
forseta í forkosningum Demó-
krataflokksins, en talið er að
George Bush og Ronald Reag-
an verði mjög jafnir í kosning-
um repúblikana. Starfsmenn
Kennedys telja, að hann muni
fá a.m.k. 60% atkvæða, en
Massachusetts er heimaríki
hans. Stjórnandi kosningabar-
áttu Carters sagði, að Kenn-
edy yrði að fá 75% atkvæða til
að geta haft roð við Carter í
síðari forkosningum.
Forval kjörmanna, sem
velja munu fulltrúa á þing
flokkanna í sumar, fer einnig
fram í Vermont í dag og eru
úrslitin þar talin mjög óvís.
Bandaríkin:
Vextir í
17,25%
New York, 4. marz. AP.
CHASE Manhattan banki hækkaði í
dag vexti á lánum til beztu við-
skiptavina sinna úr 16,75% í 17,25%
og hafa vextir í Bandaríkjunum
aldrei verið hærri. Þessir vextir
voru hækkaðir í 16,75% sl. föstudag
og hafa vextir í Bandaríkjunum nú
hækkað um tvö prósentustig frá því
15. febrúar.
Morgan Guaranty Trust bankinn
fylgdi þegar fordæmi Chase Man-
hattan og hækkaði vexti sína í
17,25% og búizt er við að aðrir
bankar fylgi brátt í kjölfarið.
Vaxtaþróunin í Bandaríkjunum er
tekin til marks um verðbólguna þar í
landi, sem mjög hefur vaxið undan-
farið.
sendiráðinu í Teheran, settu i
dag ný skilyrði fyrir því, að
rannsóknarnefnd Sameinuðu
þjóðanna, sem kannar feril fyrr-
um íranskeisara fengi að hitta
gislana.
Talsmaður mannræningjanna
tilkynnti, að rannsóknarnefndin
yrði að kynna Sameinuðu þjóðun-
um niðurstöður sínar og samtökin
að fallast á þær, áður en íhugað
yrði, hvort nefndin fengi að hitta
gíslana.
Ghotzbadeh utanríkisráðherra
írans tilkynnti hins vegar í dag, að
byltingarráðið í landinu hefði
ákveðið að nefndin fengi að hitta
gíslana og hefði Khomeini trúar-
leiðtogi veitt samþykki sitt fyrir
því. Fundartími hefði ekki verið
ákveðinn.
Ljóst virðist af þessum gagn-
stæðu yfirlýsingum, að ágreining-
ur fari vaxandi milli mannræn-
ingjanna í sendiráðinu og stjórnar
Bani Sadr.
Að loknum ráðherrafundi í Ráðherrabústaðnum í gær. Þar voru til umræðu orkumál og möguleikar á
nánari samvinnu Norðurlandanna á þvi sviði. Á myndinni eru forsætisráðherrarnir Maouno Koivisto,
Finnlandi, Anker Jörgensen, Danmörku, Gunnar Thoroddsen, Thorbjörn Fálldin, Sviþjóð og Odvar
Nordli, Noregi. (Ljósm. Emilia).
„Skora á ykkur öll .
að gleyma fortíðinni
— sagði Mugabe verðandi forsætisráðherra Zimbabwe
Salisbury, 4. marz. AP.
ROBERT Mugabe, sem í dag fékk umboð til að
mynda ríkisstjórn í Zimbabwe-Rhodesíu, sagðist
i kvöld ætla að mynda styrka stjórn svartra
manna og hvítra, sem leiða mundi landið til fulls
sjálfstæðis. „Ég skora á ykkur öll, hvíta menn
jafnt sem svarta, að heita því með mér að gleyma
fortíðinni,“ sagði Mugabe í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar í kvöld.
Carrington lávarður, utanríkis-
ráðherra Breta, hvatti í dag til
þjóðareiningar og sátta í Rhódesíu
í kjölfar kosninganna. Hann fagn-
aði hógværum yfirlýsingum Mug-
abes, en sagði jafnframt, að of
snemmt væri að fagna góðum
árangri fyrr en séð yrði hvað
gerðist á næstunni í hinu nýja
Zimbabwe. Ýmsir þingmenn
íhaldsflokksins í Bretlandi réðust
harkalega á Carrington í þinginu i
dag og sökuðu hann um að bera
ábyrgð á því að marxísk stjórn
hliðl.oll Sovétríkjunum tæki nú
við völdum í Rhodesíu.
Hodding Carter, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
Flokkur Mugabes, Zanu, sigraði með yfirburð-
um í þingkosningunum, sem fram fóru í landinu
í síðustu viku, og fékk 57 af 80 þingsætum
blökkumanna. Zapu, ílokkur Joshua Nkomos,
fékk 20 þingsæti, en flokkur Muzorewas biskups,
fyrrum forsætisráðherra, fékk 3 sæti. Hvítir
menn hafa 20 þingsæti og ræður flokkur Ian
Smiths, fyrrum forsætisráðherra, þeim öllum.
ins, fagnaði í dag „fyrstu lýðræð-
islega kjörnu stjórninni" í Rhód-
esíu og sagði Bandaríkjastjórn
hlakka til góðrar samvinnu við
sigurvegarann og stjórn hans.
Talsmaður Waldheims, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, lét einnig í ljósi ánægju með
kosningarnar. Mugabe bárust