Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 33

Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐUX-FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 33 Sigrún Gísladóttir skrifar frá Stokkhólmi: SÆNSKIR SKÓLAR V Síðustu ár skólaskyldunnar, 7. 1 8. og 9. bekkur, eru mjög frá- 1 brugðin barnaskólanum. Nem- endum frá fleiri barnaskólum er nú safnað saman í stóra og fjólmenna unglingaskóla. Höfuðáhersla er lögð á að nemendur hafi sem flesta val- möguleika milli hinna ýmsu námseininga. Við skipulag og byggingu skólanna hefur sú stefna verið alls ráðandi. Þegar í sjöunda bekk velja nemendur milli fjögurra mismunandi sviða: verslunar, tækni, lista og tungumála (þýska, franska). Að auki velja þeir milli þess að vera í þyngri eða almennri stærð- fræði og eins er í tungumálun- um. Bekkurinn er því skiptur í nær þriðjungi kennslustunda. Þetta fyrirkomulag gerir það að verkum, að bekkirnir geta ekki haft eigin kennslustofu, heldur eru það námsgreinarnar, sem hafa fastan samastað, en nem- 1 endur flakka á milli. Má segja að eini fasti punktur nemanda í skólanum sé skápurinn hans! Hver nemandi hefur sinn litla | læsta skáp, þar sem hann geym- Iir yfirhöfn og bækur. í frímínút- um er þröng á þingi við skápana 1 að skipta um bækur, en skóla- töskur er nokkuð, sem þessi aldursflokkur virðist ekki vilja 1 nota. Nú þykir sýnt að skólabygg- ingar þessar hafa marga ókosti. Aðalgallarnir eru of stórir og fjölmennir skólar, slæm um- gengni og rótleysi nemendanna. Skólamálaráðherra, Britt Mogárd, hefur sagt að í fram- tíðinni skuli stefnt að minni skólum og að bekkirnir hafi sína eigin kennslustofu, þó það óhjá- kvæmilega muni skerða mögu- I leika þeirra á námsgreinavali. íslenskar skólastúlkur í Svíþjóð Síðan í september sl. hafa þær Alda Ólafsdóttir og Ingibjörg Þorsteinsdóttir verið í ungl- ingaskóla í Suður-Stokkhólmi. Láta þær nokkuð vel af dvölinni, þó margt sé öðruvísi en í skólan- um heima á íslandi. Til þessa hefur aðalvandamálið verið sænskan. Það að skilja daglegt mál kom mjög fljótt, en að tala, geta lesið og tileinkað sér náms- efni unglingadeildanna tekur lengri tíma. Fyrir systkini þeirra, sem eru í yngri deildum barnaskólans, hefur aðlögunin verið mun auðveldari. Sænskan, sem þau eiga við að glíma, er létt og auðskilin (þ.e.a.s. fyrir íslend- inga) og þeim hefur reynst auðveldara að kynnast sænskum börnum. Fyrstu dagana í skólanum áttu þær stöllur í miklum erfið- leikum með að finna kennslu- I stofuna, sem vera átti í hverju sinni, þar eð bekkirnir hafa enga fasta stofu og í valgreinum Ingibjörg og Alda viö skólann sinn í Svíþjóð. mtm Unglingastig Við skápana þar sem nemendur geyma Algengt er að nemendur fii sjálfir að mála og skreyta veggi skólans. bækur sínar og yfirhafnir. skiptist hópurinn. Þær furða sig á hve lítið er fylgst með mæt- ingu nemenda. Nafnakall er ör- sjaldan og þá helst í teikn. og leikfimi. Þrátt fyrir það koma krakkarnir oftast í skólann, en stundum hanga þau frammi á göngum eða úti í verslunarhúsi, í stað þess að mæta í tímum. Eru sammála um að það séu aðeins sumir kennarar, sem hafi reglu á mætingu nemendanna. Leikfimistímarnir ollu þeim miklum vonbrigðum. Þá eru tveir bekkir saman (bæði kynin) og kennararnir eru tveir karl- kennarar. Tímarnir urðu þess vegna gerólíkir því sem þær höfðu vanist. Við þetta bættist búningavandamál. Krakkarnir eru öll í æfingagöllum, íþrótta- skóm, bómullarskyrtum og íþróttasokkum. Ekki þýddi ann- að en verða sér úti um allan útbúnað, en þeim ofbauð verðið og sögðu það vera mun hærra en á íslandi. Undanfarið hefur einn leikfimistími (af þremur vikul.) verið nýttur til þess að fara á skauta og með vorinu verður útitímum fjölgað. En sund er ekkert og söknuðu þær þess að fá ekki sund. Þær láta vel af skólamatnum, en bættu við að alltaf væri hægt að fá súrmjólk og hrökkbrauð, ef þeim litist ekki á matinn. Ensk- an hefur verið þeim erfið, þar eð sænsku krakkarnir höfðu þegar lært ensku í fimm vetur. Það eru engin jóla- eða vorpróf, heldur eru próf með jöfnu millibili allt skólaárið. Heimavinna er mjög lítil, a.m.k. setja kennarar sjald- an fyrir. Það væri algjörlega undir nemandanum sjálfum komið hvort hann læsi heima eða ekki. Það sem af er hafa þær fengið fjóra aukatíma í sænsku á viku og jafn marga tíma hjá íslenskum kennara, sem bæði kennir íslensku og hjálpar þeim i öðrum námsgreinum. í Alby-skólanum eru rúmlega sex hundruð nemendur. Um 45% þeirra eru útlendingar af tutt- ugu mismunandi þjóðernum. Flestir koma frá Finnlandi, Tyrklandi og Suður-Ameríku, en aðeins þær tvær frá íslandi. Aðalfundur Ferðafélags Islands: 10% fleiri far- þegar á sl. ári 53. AÐALFUNDUR Ferðafélags Islands var haldinn 4. marz sl. á Hótel Borg. Forseti félagsins Davíð Ólafs- son, setti fundinn og bauð fund- armenn velkomna og minntist þeirra Rúnars Más Jóhannssonar, kennara, sem lést af slysförum á sl. hausti, en hann var einn af fararstjórum Ferðafélagsins og Þorgeirs Inga Jóelssonar, sem lést 23. febr. sl. Þorgeir var um áraraðir einn af fararstjórum félagsins og lét sér mjög annt um hag þess, var hann m.a. afar ötull við að afla nýrra félaga. Fyrir velvild og hlýhug til Ferðafélags- ins hafði Þorgeir verið gerður að kjörfélaga á sjötugsafmæli hans þ. 11. des. sl. og átti að afhenda honum skírteini þar að lútandi á aðalfundinum. Fundarmenn risu úr sætum í virðingarskyni við hina látnu. Fundarstjóri var kosinn Hákon Bjarnason fyrrverandi skógrækt- arstjóri og fundarritari frú Þór- unn Þórðardóttir. Forsetinn flutti skýrslu ársins 1979, þar kom fram að byggð voru 2 ný sæluhús á árinu og sett niður við Álftavatn á Syðri-Fjallabaks- leið, er annað 20 manna hús og er liður í húsakeðjum á gönguleið- inni Landmannalaugar — Þórs- mörk. Hitt er 38 manna hús með viðbyggingu, því húsi er ætlað að taka við þeim, sem á bílum ferðast. Ennfremur var byggt hús og flutt í Þórsmörk og er notað þar sem verzlunar- og geymslu- hús. Göngudagur 15. júní Alls voru farnar 233 ferðir með 7508 farþega og er það 10% aukning frá fyrra ári á farþega- fjölda, en 3 ferðum færra. Lengd ferðanna var frá nokkrum klukku- stundum til 12 daga. Gerð var tilraun til að örva fólk til göngu- ferða með því að hafa sérstakan „göngudag" á dagskránni. 10. júní var valinn, sem slíkur áróðursdag- ur. Gengið var frá Kolviðarhóli Hellisskarð, Innstadal, niður Sleggjubeinsskarð og aftur að Kolviðarhóli. Var leiðin merkt með stikum ef eitthvað brigði út af með skyggnið, enda varð sú raunin á, skömmu eftir að þeir fyrstu lögðu af stað fór að rigna og hélst það allan daginn, þétt rign- ing, strekkingsvindur og afar lé- legt skyggni. Þrátt fyrir það tóku 217 manns þátt í göngudeginum. Á þessu ári eða nánar tiltekið 15. júní verður aftur „göngudagur" F.í. og verður gengin sama leið og síðast. Á aðalfundinum voru þrír félag- ar heiðraðir. Frú Margrét Árna- dóttir var gerð að kjörfélaga, en þeir Lárus Öttesen, forstj. og Páll Jónsson, bókavörður voru gerðir að heiðursfélögum. Lárus sat í stjórn Ferðafélagsins í 40 ár eða lengur en nokkur annar og var framkvæmdastjóri félagsins í 12 ár. Páll sat í stjórn í 30 ár, ritstjóri Árbókar hefur hann verið frá 1968, í ljósmyndanefnd og ritnefnd miklu Iengur. Forseti Ferðafélagsins þakkaði þessu vel- gerðarfólki fyrir störf þess í þágu félagsins. Framkvæmdastjóri félagsins. Þórunn Lárusdóttir, las upp end- urskoðaða reikninga félagsins. Þá fór fram stjórnarkjör. Úr stjórninni áttu að ganga Sveinn Jakobsson, varaforseti félagsins og Kristinn Zophoníasson, Tómas Einarsson og Þórunn Þórðardóttir meðstjórnendur. Gáfu þau öll kost á sér áfram, ekki höfðu komið nein önnur framboð og voru þau því sjálfkjörin. Endurskoðendur voru endur- kjörnir en þeir eru Gunnar Zoéga og Jón Snæbjörnsson, löggiltir endurskoðendur og til vara Oskar Bjartmarz. I fundarlok var sýnd kvikmynd, sem fengin var að láni hjá Norska Ferðafélaginu og sýndi hún hvern- ig klæðast skal í vetrarferðum. Um 90 manns sóttu fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.