Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 36

Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 36
36 Verktakasamband Islands kynnir nýja stefnuskrá: BLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 Útboð verklegra framkvæmda verði meginstefnan. I. Aðgerðir inn á við Framleiðni í samræmi við einkunnarorð V.I. verður að vinna markvisst að því að auka framleiðni íslensks verktakaiðnaðar. Framleiðni hér er lægri en í nágrannalöndum okkar, sem við kjósum að miða okkur við. Framleiðni verði aukin m.a. með: 1. Nánu samstarfi við starfsmenn um bættar og afkastahvetjandi aðferðir. 2. Lögð sé áhersla á bætt sam- starf fyrirtækja sem hafa sér- hæft sig þannig að sérhæfing nýtist sem best. 3. Verktakaiðnaðurinn styrki í orði og á borði Rannsóknar- stofnun Byggingariðnaðarins Othar örn Petersen, framkvæmdastjóri Verktakasambands íslands, (t.h.) og Ármann örn Ármannsson, formaðurr sambandsins, kynna stefnuskrána á fundi með blaðamönnum. Þess má geta að Ármann var einróma endurkjörinn formaður Verktakasambandsins á aðalfundi þess nýlega. Frjáls íslenzkur verk- takaiðnaður einn höfuð- atvinnuvegur þjóðarinnar íslenzkur verktakaiðn- aður hefur verið í sviðs- ljósinu að undanförnu. Framkvæmdirnar við Hrauneyjafossvirkjun, sem að meginhluta eru unnar af íslenzkum verk- tökum og starfsmönnum þeirra, hafa sýnt það ljós- lega að frjáls íslenzkur verktakaiðnaður er þess megnuðugur að takast á við flókin og stór verkefni, sem unnin eru við erfiðar aðstæður í óbyggðum landsins. Lengi vel höfðu menn vantrú á því að íslenzkur verktakaiðn- aður væri í stakk búinn til að takast á við slík verk- efni og var því erlendum verktökum falið að byggja upp stórvirkjanir. En breyting varð á þegar Hrauneyjafossvirkjun var undirbúin. Þá var útboðs- þáttum skipt niður í smærri einingar svo að íslenzkir verktakar gætu boðið í þá og sýnist mönnum að sú stefna ætli að vera happasæl. Fyrir nokkru kynntu fprystu- menn Verktakasambands Islands nýja stefnuskrá sambandsins á fundi sem haldinn var við Hraun- eyjafossvirkjun en um leið var kynnt sú stórbrotna mannvirkja- gerð, sem þar er unnið að. Þeir Ármann Örn Ármannsson, for- maður Verktakasambandsins, og Othar Örn Petersen, fram- kvæmdastjóri, kynntu stefnu- skrána og sögðu, að fundarstaður- inn væri táknrænn, ef stefnu- breyting hefði ekki orðið sætu blaðamennirnir ef til vill á svipuð- um fundi hjá erlendum verktökum en ekki íslenzkum. Þeir Ármann og Othar ræddu um mikilvægi verktakastarfseminnar og umfang og nefndu nokkrar tölur máli sínu til stuðnings. Kom m.a. fram í máli þeirra, að 12% af vinnuafli þjóðarinnar hefðu starfað í verk- takaiðnaði í fyrra og launagreiðsl- ur fyrirtækja innan Verktakasam- bandsins voru þá 4—5000 milljón- ir króna. Þessar tölur sýndu og sönnuðu, að verktakaiðnaðurinn væri einn af höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar. Stefnuskráin Verktakaiðnaður nefnist einu nafni öll skipuleg starfsemi í byggingariðnaði, jarðvinnu- og mannvirkjagerð hvers konar þar sem beitt er nútímaaðferðum við stjórnun og framleiðslu. Markmiðið er að frjáls íslenzkur verktakaiðnaður verði undirstaða hagkvæmra verklegra fram- kvæmda á íslandi og einn höfuð- atvinnuvegur þjóðarinnar. Meginleiðir 1. Verkefni séu tryggð til að starfa að, þannig að atvinnuör- yggi sé tryggt og verktakaiðn- aður nái að þroskast og þróast. í því skyni verði opinberar framkvæmdir boðnar út í ríkari mæli en nú er. 2. Starfsaðstaða verktakaiðnaðar- ins verði bætt þannig að hún verði sambærileg við starfs- aðstöðu annarra atvinnuvega, erlendra keppinauta og er- lendra verktaka á íslandi. 3. Rekstur íslenskra verktakafyr- irtækja verði bættur, þannig að hann verði sambærilegur við rekstur erlendra verktaka við svipaðar aðstæður. 4. Undirbúningur verklegra fram- kvæmda verði bættur stórlega bæði tækni- og fjárhagslega. svo hún sé fær um að gegna hlutverki sínu. 4. Gert sé átak í að Verktakaiðn- aðurinn notfæri sér til fulls tækni í áætlanagerð svo sem C P M. 5. Komið sé á fót innlendum upplýsingabanka um aðferðir og lausnir sérstakra verkefna á vegum V.í. eða R.B. Starfsmenn Lögð sé á það áherslá að þeim hæfu starfsmönnum, sem við verktakaiðnað starfa, sé undan- tekningarlaust búin viðunandi starfsaðstaða. V.í. beiti sér fyrir því að jafn sjálfsögð mannréttindi eins og upphituð matar- og kaffi- aðstaða svo og hreinlætisaðstaða sé ætíð fyrir hendi. V.í. hafi forgöngu um að öryggisráðstafan- ir séu gerðar. Mál þessi hafa því miður verið oft á þann veg að iðnaðinum er til skammar. Mennt- unarmál iðnaðarins verði endur- bætt raunhæft. Þeirri endurskoð- un, sem nú stendur yfir á iðn- fræðslu í byggingariðnaði verði hraðað og V.I. beiti sér fyrir því að almenn menntun verði efld og sérmenntun sniðin að þörfum iðn- aðarins. Aukin verði eftirmenntun og sérnámskeið fyrir starfsmenn og þau gerð að hluta námskerfis- ins í samvinnu við iðnfræðsluráð. Tekið sé- til sérstakrar athugunar að kynna verktakaiðnaðinn sem framtíðarstarf í efstu bekkjum grunnskóla í samvinnu við fræðsluyfirvöld. Markaðsmál Leggja skal stóraukna áherslu á almanna tengsl. Verktakar verða að gera öðrum atvinnugreinum það ljóst, að sérhæfing er í öllum tilvikum hagkvæmari. Samstaða Gera verður öllum þeim, sem að verktakaiðnaði standa, ljóst hvers virði samstaða innan iðnaðarins er. Skilgreina verður betur en nú er hverjir teljast til verktakaiðn- aðar og vinna síðan markvisst að samstöðu allra þeirra, sem í verk- takaiðnaði starfa, bæði fyrirtækja og starfsmanna þeirra. Vinna ber markvisst að samstöðu þeirra samtaka, sem vinna að hliðstæð- um málefnum eins og Meistar- asambandi Byggingamanna, Fé- lagi Vinnuvélaeigenda, Félagi ísl. iðnrekenda og Verktakasambands íslands. Aðgerðir út á við Hið opinbera ræður því hvort frjáls verktakaiðnaður lifir eða deyr. Gott samstarf við ríki og sveitarfélög hlýtur að vera megin viðfangsefni verktaka og þá um leið Verktakasambands íslands. Það er algerlega undir því opin- bera komið hvort íslensk fyrirtæki geta framkvæmd innlendar stór- framkvæmdir t.d. virkjanir eða hvort kalla þurfi til erlend fyrir- tæki frá löndum, sem betur búa að sínum verktakaiðnaði. Island á að vera eitt markaðssvæði. Það er algerlega undir ríkisvaldinu kom- ið hvort íslenskur verktakaið- naður getur orðið útflutningsiðn- aður eins og í nágrannalöndum okkar. Til þess að ná því markmiði, sem fram er sett, bendir Verk- takasamband íslands á eftirfar- andi leiðir: Verklegar framkvæmdir Það er viðurkennd staðreynd að verk, sem framkvæmd eru að undangengnu útboði (gjarnan að viðhöfðu forvali) eru ódýrari en aðrar aðferðir. Þær knýja einnig þann, sem býður út, til þess að skipuleggja verk til enda, sem verður til þess að verk komast fyrr í notkun og fara að skila arði. Það ber því að vinna markvisst að því að hið opinbera bjóði allar opinberar framkvæmdir út. Sjá greinargerð. Tollamál Hin gífurlega gjaldtaka hins opinbera af tækjum til verktaka- iðnaðar útiiokar m.a. allan hreyf- anleika tækjanna milli landa og þá um leið samkeppnisaðstöðu íslenskra verktaka að verulegu leyti erlendis. Mikill hluti tækja í verktakaiðnaði er notaður við op- inberar framkvæmdir og gerir þær aftur dýrari en ella þyrfti að vera. Það, sem er þó einna alvar- legasta afleiðing hárra aðflutn- ingsgjalda (50—100%) er þó, að tæki á Islandi eru nýtt mun lengur en hagkvæmt getur talist með óhóflegu viðhaldi. Viðhald eins og það er stundað hér á landi heldur bæði niðri framleiðni með mikilli óarðbærri vinnu og leiðir til óhag- stæðra innkaupa því það er al- kunna að varahlutir í tæki eru ætíð mun dýrari en tækin sjálf. Söluskattur Eitt alvarlegasta misræmi, sem beint vinnur gegn framleiðni og allri hagkvæmi í íslenskum verk- takaiðnaði, er sú staðreynd að söluskatt skuli greiða, ef vara er framleidd í verksmiðju eða starfs- stöð verktaka en undanþegin hon- um ef hún er framleidd á bygg- ingarstað. Söluskattsmál verk- takaiðnaðar eru raunar orðin svo mikill hrærigrautur, að við slíkt verður ekki unað. Öll vinna á byggingarstað á að vera sölu- skattsfrjáls samkvæmt lögum, en í raun er hún það ekki ef verktaki hefur tæki án byggingarstað. Vinna manns sem handgrefur skurð er á söluskatts en ef notuð er vélgrafa skal greiða söluskatt. Ef mótafleki er handlangaður af 4—5 mönnum er sú vinna sölu- skattslaus en ef krani hífir sama fleka skal greiða söluskatt. Veltuskattar Veltuskattar, sem hafa stórauk- ist á síðustu árum, vinna beint gegn aukinni framleiðni í verk- takaiðnaði. Aukin framleiðni kall- ar á sérhæfingu og þá oftast á þann veg að fyrirtæki sérhæfa sig í ákveðnum verkþáttum. Ef nýta á slíka sérhæfingu er nauðsynlegt að af sé létt margföldunaráhrifum veltuskatta þannig að þeir greiðist ekki oft af sama hlutnum. Dæmi af handahófi: Verktakafyrirtæki tekur að sér samkvæmt tilboði að byggja skóla með t.d. viðarklædd- um spónlögðum veggjum. Ef nýta á sérhæfingu eru veggir keyptir af sama fyrirtæki sem sérhæft er í spónlagningu en það fyrirtæki kaupir spóninn frá innflytjanda sem er sérhæfður til slíks. Með þessum eðlilega verkgangi er kom- v inn fjórfaldur veltuskattur á spóninn í veggina og ekki ólíklegt að af þeim orsökum sé orðið „hagkvæmt" fyrir verktakann að flytja sjálfur inn spóninn og spónleggja síðan tækjalaust (raunar óvandaðri vinng og meiri) á byggingarstað og losna þannig við % hluta veltuskattsins og söluskattinn. Lánamál Byggingarsjóður ríkisins Brýna nauðsyn ber til að út- greiðslum lána til verktaka, sem framleiða íbúðir á almennum markaði sé komið á þann veg að ekki vinni beint á móti hag- kvæmni eins og nú er og lánin nýtist. Sá háttur sem nú er hafður að úthluta lánum á u.þ.b. einu og hálfu ári eftir að bygging telst fokheld neyðir beinlínis byggjend- ur til að byggja mjög hægt og þá um leið þjóðhagslega óhagkvæmt. Með samvinnu við Húsnæðis- málastofnun ríkisins verður að koma þessum málum á þann veg að lán verki örvandi á framleiðni í íbúðabyggingum í stað þeirra letj- andi áhrifa, sem nú eru. Bent er á að framkvæmdalánaleiðin, sem nú er fyrir hendi, er einfalt að nota og leysa þessi mál þannig að verulegu leyti. Fjárfestingarlán Verktakasambandið ítrekar þá stefnu sína, að fjármagn atvinnu- veganna sé best komið í hinu almenna bankakerfi. Rekstrarlán jafnt og fjárfestingarlán er eðli- legt að komi frá bönkum landsins í.stað þess að hver atvinnugrein sé með sinn eigin sjóð og jafnvel marga. Brýn þörf er á að einfalda það fjármagnskerfi, sem nú er búið við og auka sveigjanleika þess með því að leggja niður sjóði í stað þess að stofna nýja. Verktakasamband íslands bendir á að ef ekki fæst breyting á núverandi kerfi er lágmarkskrafa að stofnlánasjóður iðnaðarins, Iðnlánasjóður, þjóni verktakaiðn- aðinum a.m.k. til jafns við aðrar atvinnugreinar. Bent er á að verktakaiðnaðurinn greiðir um fjórða hluta af gjöldum atvinnu- rekstrarins til Iðnlánasjóðs, en í hans hlut koma aðeins 12.6% af veittri lánsfyrirgreiðslu árið 1978. Setja verður þá kröfu að af áætluðu ráðstöfunarfé 1979, þrem- ur miljörðum, renni a.m.k. 759 milljónir til verktakaiðnaðarins. Meðan núverandi ástand varir er eðlilegt að þeir verktakar, sem hugsanlega eiga rétt á lánum úr öðrum sjóðum haldi þeim rétti. Verktryggingar Sú hefð hefur komist á að verktaki setji verkkaupa trygg-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.