Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 Nafiiið Jesús eftir dr. Sigurbjörn Einarsson biskup Árni Böðvarsson tók fyrir nafnið Jesú í einum þátta sinna um daglegt mál, skýrt og skil- merkilega. Það var þakka vert. En vanþökk eina hefur hann fengið opinberlega. Það má hann þó vita, að það hlióð kom úr ein- angruðu horni. Eg á við pistil þann, sem sr. Bjartmar Krist- jánsson birti í Velvakanda skömmu eftir að Árni flutti þáttinn. Það var vígaleg og gustmikil aðför, víst öðrum ætl- uð fremur en Árna. Sr. Bjartmar staðhæfir þar, að „skaðsemdar- verk“ hafi verið framið á hinu helga nafni frelsarans, að því hafi verið „umturnað", að tvö þúsund ára hefð um meðferð þess hafi verið brotin. Þessi ill- virki eiga þeir að hafa unnið sem gengu frá texta nýju biblíuútgáf- unnar og Sálmabókarinnar. Reyndar hafði nú Sálmabókin verið í almennri notkun í áratug áður en presturinn hafði upp- götvað þessi „lýti“ á henni og var það þá annar maður, sem vakti athygli hans á þessu. Handbókin nýja er sama marki brennd að þessu leyti, þó að sr. Bjartmar geti hennar ekki. Á hann kannski eftir að lesa hana? Þessi stóru skot sr. Bjartmars hæfa engan, þeim er skotið út í geiminn á bletti, sem eru ekki til nema i augum hans sjálfs. En hann meiðir sjálfan sig í þessum látum. Það þykir mér miður, því mér er vel við hann. Hann gerir aðför að sinni eigin greind, þeg- ar hann segir, að tvö þúsund ára hefð hafi verið rofin í nýlega prentuðum íslenskum bókum. Svo gömul er ekki kristnin á ís- landi, þótt gömul sé, né íslenskt kirkjumál. Sama máli gegnir um grískukunnáttuna, sem hann auglýsir. Grísk málfræði á lítið erindi í umræðu um íslensk nöfn. Og íslensk eru nöfn frels- arans i munni fslendinga og i íslensku ritmáli, hvað sem upp- runa þeirra líður, en nöfnin hans bæði, Jesús Kristur, eru ekki gfisk, heldur arameisk, réttara sagt hebresk. Væru þau rituð eða borin fram í sinni tvö þús- und ára gömlu mynd, yrðu fáir að bættari. Ég skal ekki fortaka nema ein- hverjir séu til, sem halda að sérkennilegur eldmóður prests- ins sr. Bjartmars hljóti að eiga eitthvað skylt við skynsemi eða kristilegt vandlæti. Áð visu hef ég ekki orðið var við það. En i þessum svifum bárust mér til- mæli, sem ég tek mark á, um að skýra með nokkrum orðum málavexti, og það vil ég gjarnan gera, ef einhverjir þyrftu á að halda eða vildu nýta. í þeim bókum kirkjunnar, sem nefndar voru, Biblíu, Sálmabók og Handbók, er nafnið Jesús haft í nefnifalli í ávarpi (þú Jesús), eins og öll önnur íslensk nöfn að fornu og nýju, þar með talið hið annað nafn frelsarans, Kristur, eins og það hefur verið notað í rituðu og mæltu máli um langan aldur. Og þolfallið er Jesú, (ekki Jesúm). Hvaða rök eru til þessa? Rifjum það upp, að nöfn frels- arans eru tvö, Jesús Kristur. Þau tóku óhjákvæmilega nokkurri svipbreytingu um stöfun og beygingu, þegar þau voru lögð á varir griskumæiandi manna og aðlöguð grísku máli. Og þegar Ritningin var þýdd á latínu gerðist hið sama, nöfnin voru beygð að latneskum hætti. Sú aðferð að hneigja þessi helgu nöfn að lögmálum þeirrar tungu, sem kristnar ritningar voru þýddar á, er m.ö.o. jafngömul kristninni. ólíkustu þjóðir hafa frá öndverðu og til þessa dags tileinkað sér nöfnin á þann veg. Sigurbjörn Einarsson sem best samþýddist tungu þeirra. Þau eru samt auðþekkj- anleg hverjum sem heyrir eða sér, oft hið eina, sm maður skil- ur í máli framandi þjóðar. það er engin önnur almenn kristin hefð til í þessu en sú, að hver þjóð fer um framburð og beygingu að lögum síns máls. En latínan varð áhrifamikil í Evrópu, einnig á Islandi. Lærðir voru þeir taldir, sem kunnu lat- ínu. Þeir námu allt af latínubók- um og kenndu síðan öðrum. Nöfn frelsarans eru Iesus Christus á latínu. Þannig voru þau lengi rituð í íslenskum textum og beygð í föllum að latneskum hætti (önnur biblíunöfn líka, Paulus, Petrus o.s.frv.). Alþýða manna vandist þessu. Menn sungu: „Dýrðlegi kóngur Christe". En líka kemur fyrir ávarpið Jhesus Christus. Og stundum er ritað Christur. Fleira mætti nefna, sem gefur til kynna að hér var ekki full sam- kvæmni. En latneskur ritháttur og beygingar voru algengastar í guðsorðabókum, m.a. i passíu- sálmum og Jónsbók. Menn lærðu þar að segja Jesúm Kristum (Christum, þolfall), Jesú Kristó (þágufall), Jesú Kristí (eignar- fall). En latínan hefur fleiri föll en íslenskan, m.a. ávarpsfall. í ávarpi eru nöfnin samkvæmt latneskri reglu Jesú Kriste (oft ritað Kristi í stað Kriste, sbr. t.d. iagboðann „Kær Jesú Kristi“). Það er langt síðan að Christus varð kristur í íslensku máli og allir eru fyrir löngu hættir að beygja það nafn i latneskum föllum. Ég veit ekki, á hvaða landshorni þeir hafa verið stað- settir, sem „umturnuðu" þessu helga nafni á þann veg. Én það má ég fullyrða, að enginn hefur talið það til helgispjalla né skemmda á íslenskri tungu. þvert á móti. Það var heilbrigð íslensk málkennd, sem færði þetta nafn að fullu i íslenskan búning. Latnesk beyging hefur loðað nokkru lengur við nafnið Jesús að þvi leyti að þolfall þess hefur verið Jesúm og ávarpsfaliið Jesú. Ég endurtek og undirstrika, að hvort tveggja er latína, hvorugt ís- lenska. Það heyrir því ekki undir íslenska málvernd að halda i þessar myndir nafnsins. Fyrir mitt leyti hef ég lengst af haldið barnsvana mínum og notað þessi föll. Eldri kynslóð er auðvelt að fara rétt með nafnið samkvæmt þessari reglu. En öðrum ekki. Meira að segja prestar ruglast i þessu rimi i seinni tíð. Einkum verður mönnum hált á því sem von er að gera greinarmun á nefnifalli og ávarpsfalli. Ávarpsfall er ekki til í íslensku. íslendingar nota nefnifall i ávarpi. Það eru engin rök fyrir því að gera undantekningu með það, þegar frelsarinn er ávarp- aður. Ef því væri haldið til streitu ætti væntanlega sama regla að gilda um bæði nöfnin, sem tíðast eru notuð saman og óaðskiljanleg, en varla kemur neinum í hug að hverfa aftur til þeirrar venju að segja Kriste í ávarpi. Það er og greinilegt, að latneska ávarpsfallið Jesú var á leiðinni að útrýma nefnifallinu Jesús. Það er eðlilegt, ef haldið er i þessa latínu, þvi oft er Jesús ávarpaður og mönnum er það hulinn leyndardómur, af hverju þurfi að breyta nafni hans, þeg- ar talað er til hans. Þolfallsendingin -um er ekki íslenskuleg. Það er staðreynd, að þessar latnesku beygingar eru fyrndar leifar, dauð erfð. það hefur verið dregin eðlileg álykt- un af þeirri staðreynd í þeim bókum kirkjunnar, sem komið hafa út á síðustu árum. Og það hefur verið miðað við þá beyg- ingu, sem nú er almennust og eftir atvikum íslenskust. Jesús í nefnifalli, óbreytt í ávarpi, eins og öll önnur íslensk nöfn, hin föllin þrjú Jesú. Það varð aldrei ofan á hér á landi að beygja nafnið Jesús eins og önnur er- lend heiti, sem enda á -ús. Og það verður ekki úr þessu. Nafnið er samt rótfast í íslensku máli, þjált og meðfærilegt, þegar óeðlilegt latínuhrúður hefur ver- ið fellt af því. Auðvitað hefði mátt reyna að halda í útlendar beygingar- myndir hins helga nafns og sjálfsagt mætti takast að berja það inn í einhver ungmenni, að þeir megi ekki taka sér fyrra nafn frelsarans í munn nema beygja það upp á latfnu (þó að síðara nafnið megi að ósekju beygjast eins og hestur). Én kirkjunni er fullerfitt að skýra mikilvægari leyndardóma, þótt hún létti þessu af sér. Og prestar og aðrir uppfræðendur geta var- ið tíma og kröftum til sálu- hjálplegri hluta. Sýslufundir Mýra- og Borgarfjarðarsýslu: Hvetja til stórátaks til endurreisnar Reykholtsstaðar Borgarnesi, 22. júní. AÐALFUNDIR sýslunefnda Mýra- og Borgarfjarðarsýslu voru haldnir nýlcga í Borgarnesi. Á fundunum voru af- greiddir reikningar sýslusjóða og sýsluvegasjóða fyrir síðasta ár og gerð- ar fjárhagsáætlanir fyrir yfirstandandi ár, segir í fréttatilkynningu frá sýslu- nefndunum. Heildarútgjöld sýslusjóðs Mýra- sýslu á þessu ári eru áætluð 1,1 millj. króna. Stærstu útgjaldaliðirnir eru vegna þátttöku í byggingu safnahúss Borgarfjarðar, lögbundinna útgjalda til atvinnumála og heilbrigðismála, hlutafjárkaupa í Skallagrími hf., auk ýmissa rekstrarstyrkja til félagasamtaka í héraðinu, s.s. UMSB, Sögufélags Borgarfjarðar, Búnaðarsambands Borgarfjarðar, safnanna o.fl. Heildarútgjöld sýsluvegasjóðs Mýrasýslu á þessu ári eru áætluð 1,6 millj. króna, þar af er 1,1 millj. til viðhalds og heflunar sýsluvega og 400 þúsund til nýbygginga. í Borgarfjarðarsýslu eru heildar- útgjöld sýslusjóðs á þessu ári áætluð 750 þúsund krónur. Stærstu út- gjaldaliðirnir eru vegna þátttöku í byggingu safnahúss Borgarfjarðar, lögbundinna útgjalda til atvinnu- mála og heilbrigðismála, hlutafjár- kaupa í Skallagrími hf„ auk ýmissa rekstrarstyrkja til félagasamtaka í héraðinu. Heildarútgjöld sýsluvegasjóðs Borgarfjarðarsýslu eru áætluð 1,3 millj. króna, en þar af eru 875 þús- und ætlaðar til viðhalds og heflunar vega og 300 þúsund til nýbygginga. A sýslufundunum voru gerðar samþykktir um hagsmunamál hér- aðsbúa í vegamálum, símamálum o.fl. Talið var að Vesturlandskjör- dæmi hefði orðið afskipt á síðari ár- um hvað varðar nýbyggingu vega og lögn á bundnu slitlagi, og var hvatt til aukinna framlaga í þessum efn- um. Þá var mótmælt þeirri breyt- ingu á vegalögum, sem gerð var í vor, að undanskilja vegaskatti sumarbústaði og orlofsheimili, enda rýrði þessi breyting tekjumöguleika sýsluvegasjóðanna verulega. Sam- þykkt hafði verið á aðalfundum sýslunefndanna í fyrra að gera áætl- un um aukið viðhald vega að sumar- bústaðahverfum, en sú samþykkt verður nú tekin til endurskoðunar, vegna þessara breyttu forsendna. Itrekuð var samþykkt síðustu að- alfunda um að skora á yfirvöld Pósts og síma og alþingismenn kjördæmis- ins að sjá til þess að gjaldskrá fyrir símaþjónustu verði notendum sem hagkvæmúst og að héraðið verði allt gert að einu gjaldskrársvæði. Sýslunefndirnar samþykktu að skora á Alþingi og stjórnvöld að gera nú stórátak til endurreisnar Reykholtsstaðar í Borgarfirði. Reyk- holt væri á hverju ári sótt heim af fjölda fólks, innlendu og erlendu, og væri ekki annað sæmandi en að staðnum væri sýndur sá sómi, sem honum hæfði, hvað varðar viðhald mannvirkja og alla umhirðu. Ýmis önnur mál voru tekin fyrir á sýslufundunum. HBj. PURINA kattafóðrið fæst í helstu MATVÖRUVERSLUNUM NÆRING VIÐ HÆFI - RANNSÓKNIR TRYGGJA GÆÐI PURINA Umboðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.