Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 Ólafur konungur átt- ræður á laugardaginn Osló, 29. júní, frá Jan Erik I>aure, fréttar. Mbl. NORSKA þjóðin undirbýr sig af kappi þessa dagana fyrir 80 ára afmæli Ólafs Noregskonungs, sem er 2. júlí næst- komandi. Fjölda tiginna erlendra gesta er vænst og hátíða- höld verða mikil. Hátíðahöldin hefjast raunar strax á morgun, með miklu tón- leikahaldi í Osló og verða þar flestir frægustu hljóðfæraleik- arar Norðmanna, auk ýmissa erlendra gesta. Afmælisdagurinn, 2. júlí, verður konunginum eflaust erf- iður, enda í mörgu að snúast, en hann er afar sprækur þrátt fyrir að árin séu nú orðin áttatíu. Dagurinn hefst á því að konung- ur mun taka á móti gestum í konungshöllinni. Þar munu mæta ráðherrar, þingmenn, hæstaréttardómarar og lög- menn, auk fulltrúa fyrirtækja og stofnana. Mun ólafur hafa í nógu að snúast að opna gjafir sem honum verða þá færðar. Síðar, en þó fyrir hádegið, mun Ólafur ieggja blómsveig á norska minnisvarðann í Osló og síðan snæðir hann mikinn há- degisverð með mörgu því sama fólki og heimsækir hann í höll- ina á laugardagsmorguninn. Eftir hádegi gefst Norðmönn- um sjálfum kostur á að hylla kóng er hann mun ganga út á hallarsvalirnar klukkan 15 og heilsa löndum sínum, sem ef- laust munu fylla torgið. Þjóð- dansarar og hljóðfæraleikarar munu sýna og leika listir sínar á torginu og fleira verður þar auk þess til skemmtunar. Um kvöldið verða svo útisamkomur þar sem sungið verður og dansað fram á nótt. Á miðnætti hefst síðan mesta flugeldasýning sem haldin hefur verið í Noregi. Meginhluta hátíðahaldanna verður sjón- varpað beint um allan Noreg. Qlíulekinn við Persaflóa: Vita ekki hvar olíubrákin er! Manama Kahrain, 29. júní. AP. Olíuflekkurinn mikli sem flotið hefur fram og til baka um Persaflóa, strandríkjum þar til hins mesta ama, er enn til umræðu, því enn lekur úr olíulindum írana við Nowruz. Sér- fræðingar hafa setið og skrafað um hvernig best væri að vinna bug á vandamálinu, en eitt mikilvægt at- riði stendur í veginum fyrir hvaða hugmynd sem er. Það veit nefnilega enginn lengur hvar olíubrákin er. Khaled Farhko, formaður 8-landa nefndar sem fjallað hefur um vandamálið, sagði í gær, að ekki einu sinni sjálfir íranir gætu gefið upplýsingar um staðsetningu stærstu olíuflekkjanna eða það olíu- magn sem búast mætti við að hafi sturtast í sjóinn. Saudi-Arabía, Kuwait, Quatar og Bahrain hafa fengið olíuflekki upp að ströndum sínum, en þeir hafa ekki verið nema, að því að talið er, brot af því olíu- magni sem talið er að sé á sveimi um Persaflóa. Farkho sagði að nefndin hefði nokkurn veginn komið sér saman um baráttuaðferð gegn olíunni, þeg- ar hún finnst, en einn hængur er á því að hafist verði handa. Hann er sá, að áætlaður kostnaður er talinn um 10 milljónir dollara og ósætti er um hvernig skipta eigi kostnaðin- um. • Ólafur Noregskonungur á Þingvöllum, er hann kom í heimsókn til fslands árið 1974. Mikið um dýrðir f Noregi: IgjjjÉ á ....... Harrier-þotan komin heim Mynd þessi sýnir hvar Harrier-þota úr breska flotanum sem lenti á spænsku flutningaskipi er hún varð eldsneytislaus á Atlantshafi, er flutt frá borði bresks herskips í Portland í sfðastliðinni viku. Saumuðu handlegg- inn á á ný Salisburv Knglandi 29. júní. AP. í ANNAÐ skiptið á sama sól- arhringnum, saumuðu lækn- ar handlegg á mann sem hafði lent í slysi. Hér var um hinn 34 ára gamla David Kuffel að ræða, en í gær- morgun lenti hann í því að flækja handlegginn í vélsög í trésmiðjunni sem hann starf- ar hjá. Sögin sýndi enga vægð, tók af manninum handlegg- inn við olnboga og var Ruff- el drifinn í skyndi á sjúkra- hús þar sem handleggurinn var saumaður á. Læknar á sjúkrahúsinu í Salisbury vildu ekki tjá sig að svo stöddu um hvernig til hefði tekist, enda ótímabært. Sem fyrr segir, er þetta í annað skiptið á um það bil sólarhring að slík aðgerð fer fram í Bretlandi. Frá hinni var greint í Mbl. í gær, þar stm heybindivél reif handlegg af manni við öxl og stauiaðist sá með handlegg sinr. á annan kíló- metra til að leita sér að- stoðar. Það tók lækna 10 klukkustundir að sauma á hann handiegginn, en fréttaskeyti gre'ndu ekki frá því hversu kng síðari aðgerðin var. Víetnamar segja Kín- verja vera ógnvaldinn Bankok, 28. júní. AP. VÍETNAMAR hafa ákveðið að neita að kalla herlið sitt aftur um 30 kílómetra frá landamærum Thailands og Kamhódíu, komi fram ósk um slíkt á fundi þjóða suðaustur Asíu, sem nú þinga. Talið er, að ósk þessa efnis kunni að verða lögð fram sem skilyrði fyrir því, að hægt verði að taka lausn deilunnar um vandamál Kam- bódíu til umfjöllunar. Kom þetta fram í frétt í málgagni víetnamska kommúnista- flokksins í dag. Þetta eru fyrstu viðbrögðin, sem vit- að er um af hálfu stjórnarinnar í Ví- etnam. Thailendingar lögðu fram beiðni á utanríkisráðherrafundi ríkja suðaustur Asíu fyrir skemmstu um að skorað yrði á Víetnama að draga herlið sitt til baka um 30 km frá landamærum Thailands og Kambódíu. I fréttinni var þess um leið getið, að ljóst væri að aðildarþjóðir fundarins hefðu ekki gert sér grein fyrir því að aðalhættan stafaði af Kínverjum. Kínverjar væru hin raunverulegi ógnvaldur Thailendinga, en ekki Víet- namar. Ghana: Uröu eldi að brád Accra, (ihana, AP. ELDUR kom upp í ferju nokkurri, sem var að taka eldsneyti í hafnarbænum Assouinde á Fílabeinsströnd- inni í dag og hvolfdi henni með þeim afleiðingum að að minnsta kosti 34 Ghana-búar létust, að því er segir í fregn- um útvarpsins í Ghana. Svartsýni í Belgrad Bclgrad, 29. júní. AP. FULLTRÚAR iðn- og þróunarríkja á Þróunar- og viðskipta- ráðstefnu Sameinuöu þjóöanna í Belgrad vöruðu við því í dag að gera of mikiö úr árangri ráðstefnunnar í þetta sinn. Aðild- arríkin hafa nú setið að samningaborði í þrjár vikur og líkur ráðstefnunni á fimmtudag. „Við höfum reynt að ná sam- komulagi um aðferðir frekar en markmið varðandi lausn á efna- hagsvanda heimsins," sagði fulltrúi í stjórn Efna- hagsbandalagsins, Ivan Klaric frá Belgíu, við fréttamenn í dag. „Hvað snertir einstök markmið ber okkur allt of mikið á milli," bætti hann við. Þróunarlöndin hafa mælzt til þess að þeim verði veitt bein fjárhagsaðstoð til að greiða aft- ur skuldir og bæta upp fyrir tekjumissi af völdum óviðun- andi hráefnaverðs á heims- markaði. Iðnríkin hafa neitað að verða við þessum kröfum og benda á að aukin viðskipti séu vænlegri til úrlausnar vandans en bein fjárhagsaðstoð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.