Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.06.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1983 39 Aðalheiður Elsa Óskarsdóttir sjúkra- liði — Minning Við storminn mega slofnar háir glíma, þó stráin falli. Allt hefur sinn tíma. Davíð frá Fagraskógi. Misjafnt er stríðið sem menn- irnir heyja. Fyrir tæpum tveimur árum kvaddi á dyr hjá vinkonu minni sjúkdómur sem mönnum hefur reynst erfitt að vinna bug á. Vin- kona mín, Aðalheiður Elsa Óskarsdóttir, var dóttir hjónanna óskars Pálssonar og Þórunnar Guðmundsdóttur og var hún yngst sex systkina, þar af dóu tvær syst- ur í barnæsku. Aðalheiður fæddist 23 nóvember 1952 í Reykjavík. Hún giftist ung og eignaðist tvö börn, Óskar Þór, sem er 13 ára og Guðrúnu Ögnu, sem er 8 ára. Mega þau nú sjá af ástkærri móður og er söknuðurinn sár og erfiður svona ungum börnum. Ég kynntist Aðalheiði 1978 í forskóla Sjúkraliða, hófust þar fljótt með okkur góð kynni sem urðu að enn betri vináttu. Báðar vorum við áhugamanneskjur um hesta og eru margar góðar minn- ingar tengdar þeim. Ennfremur lá áhugi okkar í náminu og hjálpuð- umst við þar að og hvöttum hvora aðra. Því erfitt gat verið að sam- ræma heimili, vinnu og nám. En þetta tókst og við útskrifuðumst úr Sjúkraliðaskóla íslands í sept- ember 1980. Þann dag vorum við hressar og litum björtum augum til framtíðarinnar. En aðeins ári síðar gripu örlögin í taumana hjá Aðalheiði. Hún fékk að vita að hún væri með krabbamein og ætti aðeins stuttan tíma eftir ólifaðan. Þegar hún fékk þessa vitneskju um hvað beið hennar og hvers hún mætti vænta, þá sagði hún: Fyrst á mennina er lagður þessi sjúk- dómur verður einhver að bera hann. Þá átti ég ekkert andsvar en hugsaði: Hversvegna hún, svona ung og full af lífsorku og gleði. Þarna hóf hún baráttuna og hóf hana svona jákvæð og endaði hana eins. Aldrei gafst hún upp og aidr- ei kvartaði hún. Sumir hafa ótrú- lega mikinn styrk, en hennar styrkur var meiri en annarra. Hún hóf strax eftir útskrift störf á Arnarholti, sem er endur- hæfingar- og vistheimili fyrir geðsjúka. Þarna var áhugi hennar, hjá þeim sem minna máttu sín. Var hún dáð og virt af sjúklingum og samstarfsfólki. Sjúkdómi hennar fylgdu stuttar spítalalegur með jöfnu millibili. Það lýsir henni vel að hvort sem var nótt eða dagur, var hún hlaup- in út af spítalanum eftir hverja meðferð. Því það var algjör tíma- sóun að eyða stund þar lengur en þurfti. Og var hún þá óðar komin á fullt að sinna heimili, vinnu og áhugamálum. Enginn gat séð að henni hefði fallið verk úr hendi, þvílíkan drífandi kraft hafði hún. Þótt oft hafi hún verið sárþjáð. Hún hafði frá fyrstu tíð gert sér grein fyrir að allar þær meðferðir sem hún gengi í gegnum voru að- eins tilraunir til að stöðva sjúk- dóminn, en ekki loforð um bata. Meðal annars fór hún til Svíþjóðar í meðferð sem hún og allir gerðu sér vonir um að stöðvað gæti framvindu hans. Með einstöku jafnaðargeði tókst hún á við örlög sín, varð sér út um hnúð á stýrið á bílnum svo hún gæti ekið. Einnig varð hún sér úti um önnur hjálp- artæki til að geta haldið heimilinu í horfinu. Hún var ekki sú manngerð sem lagði árar í bát, heldur lagði sitt af mörkum. Svona þrjóskaðist hún og þráaðist gegn öllum lögmálum og vann stóra sigra. Eitt sinn varð mér að orði: Aðalheiður, ég hef aldrei séð þig gráta. Hún svaraði: Sara mín, að gráta færir aðeins fjölskyldu minni meiri sorg og hver heldur þú að vildi svo heim- sækja mig eða umgangast, sívol- andi. Þarna var henni rétt lýst, aðrir fyrst, svo hún. Eins sagði hún: Ég ætla mér að verða þrítug, og það varð hún. Þá bætti hún við, jólin ætla ég líka að lifa og þannig tók hvert takmarkið við af öðru. Enda sögðu þeir sem hana þekktu og hjúkruðu: Hún er hetja. Betri eftirmæli getur engum hlotnast. Aðalheiður var mikið fyrir ferðalög, bæði innanlands og utan. Hún var svo heppin að eiga systur og mág í Lúxemborg og þangað fór hún eins oft og hún gat. Hér á landi á hún aðra systur og mág, sem fyrstur vakti áhuga hennar á hestamennskunni. Átti hún góðar minningar frá þeim tíma. Enn- fremur átti hún bróður og mág- konu, sem voru henni mjög góð. í Aðalheiði eignaðist ég góðan vin og sannan. Allar samveru- stundir þakka ég og alla góðu tím- ana. Eftir lifir minning hennar sem var hlý og björt. Minning um ein- stæða manneskju sem aldrei gafsl upp. Ég sendi hennar elskulegum foreldrum og ungum börnum, Óskari Þór og Guðrúnu Ögðu, mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Einnig sendi ég systkinum hennar og mökum þeirra og eftirlifandi manni sam- úðarkveðjur. Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum óldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Kahil Gibran Spámaðurinn Sara B. Ólafsdóttir Minning: Sigurður Bjarna- son skipstjóri Fæddur 26. júlí 1941. Dáinn 21. júní 1983. Mikill atorku- og drengskapar- maður er fallinn í valinn langt um aldur fram og óhætt að fullyrða að skarð er fyrir skildi þar sem Sig- urður Bjarnason, skipstjóri á Isa- firði, skipaði sæti. Hann lést í sjúkrahúsi í London 21. júní sl. eftir mikla aðgerð vegna hjartasjúkdóms. Dauða hans bar þó ekki alls óvænt að garði, en allt um það jafn sárt og miskunnarlaust. Sigurður var Arnfirðingur að ætt og uppruna, fæddur á Bíldudal 26. júlí 1941, sonur hjónanna Sig- ríðar Lovísu Guðmundsdóttur Þórðarsonar og Bjarna Jörunds- sonar Bjarnasonar frá Dufansdal. Sá hörmulegi atburður gerðist að móðir Sigurðar lést þegar hann var 8 mánaða gamall og fékk sveinninn þá athvarf hjá afa sín- um, Guðmundi, og ömmu, Þuríði Þórarinsdóttur, en móðursystir hans, Gíslína, og Friðrik ólafsson tóku hann í fóstur 5 ára og ólu hann upp sem son sinn upp frá því. I uppvexti Sigurðar bar snemma á þeim hæfileikum og manndómi sem setti svo áberandi svip á lífs- hætti hans og samskipti við annað fólk og gerðu hann að traustum og kjarkmiklum skipstjórnarmanni. Nítján ára gömlum var honum falin skipstjórn á vélbúnu fiski- skipi og fórst honum það með af- brigðum vel úr hendi og leiddi auðvitað til þess, að honum var trúað fyrir stærri hlutum síðar. Hann aflaði sér fullra skipstjórn- arréttinda og lauk prófi úr Stýri- mannaskólanum vorið 1966. Á ár- unum bæði fyrir og eftir veru sína í Stýrimannaskólanum stýrði hann skipum frá Tálknafirði og Bíldudal, og átti þá þegar, sem jafnan síðar, kost á mannvali á skip sitt og fylgdi honum árum saman. Það atriði segir sína sögu án mikilla skýringa. 1964 kvæntist Sigurður Urði Ólafsdóttur, dóttur hjónanna Sig- ríðar Davíðsdóttur og Ólafs Þ. Sigurðssonar, sem búa hér í borg- inni. Guð gaf þeim fjögur börn, Úlfar, Guðmund, Ólaf og Sigríði, sem nú er 10 ára. Þau hjónin fluttu frá Bíldudal þar sem þau höfðu komið sér vel fyrir í húsinu Orrastaðir til ísafjarðar árið 1973 og þar tók Sigurður við skipinu Orra, sem er um 300 tonna fiski- skip. Þar gerðist sama saga og fyrr. Hann reyndist sérlegur afla- maður, kjarkmikill en gætinn stjórnandi, hlýr í viðmóti og skiln- ingsríkur við skipshöfn sína og samstarfsfólk, en tók ábyrgð sína sem yfirmaður mjög alvarlega. Hann undi hag sínum vel á ísa- firði, reisti myndarlegt einbýlis- hús og helgaði allar frjálsar stundir heimili og ástvinum og fann þar allt yndi. Hugur hans var þó ávallt bundinn tryggðarbönd- um við æskustöðvarnar í Arnar- firðinum, ættfólkið þar og sam- ferðafólk. Gagnkvæmt mun það vera, að við Arnfirðingar minn- umst Sigurðar jafnan með merki- ngarfullum lofsyrðum. 1979 kenndi hann harkalega hjartasjúkdóms, sem dró sig þó í hlé um stund en lá eins og falinn eldur þar til sl. vetur, að hann heltók líf og fjör þessa vaska manns og dró hann að lokum til dauða. Margs er að sakna en þeim mun meira að þakka, virða og lofa. Aðstandendum öllum eru hér með sendar hjartanlegar samúð- arkveðjur. Andrés Davíðsson Góð húsgögn á lægsta verði og bestu kjörum sem hugsast geta. Úrval á 5000 fm. HÚS6AGNAHÖLI1IN BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.