Morgunblaðið - 30.08.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.08.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1983 3 Anna Björns og Malcolm McDowell í hlutverkum sínum á hátíðinni miklu á gamlárskvöld 1983. Get Crazy frumsýnd hér fyrst Evrópulanda Anna Björns og Malcolm McDowell leika aðalhlutverkin KVIKMYNDIN Get Crazy verður frumsýnd í Bíóhöllinni fyrrihluta september og er ísland fyrsta landið í Evrópu sem myndin verður frum- sýnd í. Er þetta vegna sérsamninga við Sherwood Productions og vegna þess að íslensk leikkona, Anna Björns, leikur eitt aðalhlutverkanna. Þetta er söngva- og rokkmynd sem samtvinnuð er með miklu gríni. Anna Björns ætti ekki að vera ókunn slíkum myndum, eftir að hún lék í íslensku myndinni Með allt á hreinu. í þessari mynd fær Anna sitt stærsta hlutverk í amerískri mynd til þessa, en hún leikur kærustu Malcolm McDowell. Myndin gerist á gamlárskvöld 1983, og fyrri utan leikara kemur fram í myndinni fjöldi þekktra hljómlistarmanna. Malcolm McDowell er þekktast- ur fyrir leik sinn í myndunum Clockwork Orange, Royal Flash og Cat People. Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum 5. ágúst sl. 12.000 nemendur í grunnskólum í ár SENN FER að líða að því að skólar hefji göngu sína á ný eftir sumarfrí og mörg börn stíga sín fyrstu skref á menntabrautinni. Mbl. hafði sam- band við skrifstofu fræðslustjóra og fékk þar uppgefið að um 12.000 börn muni sitja á skólabekk í grunnskól- um landsins í ár. „Það eru nú ekki komnar ná- kvæmar tölur um fjölda nemenda í grunnskólum næsta vetur, en það verða um 12.000 börn,“ sagði Þrá- inn Guðmundsson hjá Fræðslu- skrifstofu Reykjavíkur, í samtali við Mbl. Af þessum 12.000 börnum eru um 1.100 sem sækja skóla í fyrsta sinn. Tveir skólar taka inn 5 ára nemendur, skóli ísaks Jóns- sonar og Álftamýrarskóli. Mbl. hafði tal af Ragnari Júlíus- syni, skólastjóra Álftamýraskóla og sagði hann að þetta væri í fyrsta sinn sem 5 ára börn væru tekin inn í skólann. Þau yrðu í einni deild og yrði kennt 4 kennslustundir á dag. Einhver lenging verður á skólatíma for- skólabarna, og verður þeim kennt 18—20 tíma á viku. Lést í umferðar- slysi á Fagradal Kgilsstöðum, 28. ágúst. SÍÐASTLIÐNA nótt fór lítil fólks- bifreið út af þjóðveginum á Fagradal með þeim afleiðingum að ökumaður bifreiðarinnar beið bana og fimm far- þegar slösuðust. Slysið átti sér stað skömmu eftir miðnætti rétt ofan við Egilsstaða- skóg. í bifreiðinni voru sex ung- menni á leið sinni til Egilsstaða frá Reyðarfirði — og mun ökumaður- inn hafa misst stjórn á bifreiðinni í beygju. Ökumaðurinn, 17 ára Hér- aðsbúi, mun hafa látist nær sam- stundis. Hann hét Pálmar Dvalinsson, til heimilis að Vörðubrún, Hallgríms- stöðum í Jökulsárhlíð í N-Múla- sýslu. Pálmar heitinn var fæddur 18. janúar 1966. Farþegarnir slösuðust allir og voru fjórir þeirra fluttir í sjúkra- hús á Akureyri og Neskaupstað til frekari rannsóknar eftir að gert hafði verið að sárum þeirra í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. Meiðsli þeirra munu þó hafa verið minni en á horfðist í fyrstu að sögn Pálmar Dvalinsson lögreglu. Þá kvað lögreglan bifreið- ina mjög illa farna ef ekki ónýta. Ólafur Þú gerir ekki betri bflakaup í dag Frá kr. 255.000 (og þú greiöír þaö verð, sem við auglýsum) Viö eigum eftir örfáa Charmant gæöabíla á þessu verði Viðurkennd gæði og þjónusta gera Daihatsu nr. 1 í endursölu. Daihatsu-umboöið ÁRMÚLA 23.5.5587S — 51733 I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.