Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 TÓNLISTARSKÓLI HAFNARFJARÐAR Innritun fer fram á skrifstofu skólans, mánudaginn 5. til föstudagsins 9. sept. kl. 1—5. Skólastjóri. Blaðburöarfólk óskast! Kópavogur — Austurbær Álfhólsvegur frá 54—135 Grenigrund Kópavogur— Vesturbær Skjólbraut Úthverfi Nökkvavogur Langholtsvegur frá 110—150 Gnoöarvogur frá 14—42 Gnoöarvogur frá 44—88 Barðavogur Skeiðarvogur Austurbær Lindargata frá 40—63A JWof'fuwlíWili Tvær Amsterdam - París Vikuferð 30. sept. Nú sláum við saman tveimur skemmtilegustu borgum megin- landsins og kynnumst því besta sem hvor um sig hefur upp á að bjóða. Verðkr. 16.550.- miðað við gistingu í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting í 3 næturá Victoriahóteli i Amsterdam, 4 nætur á Mondial hóteli í París, skoðunarferðir um París og til Versala, rútuferð Amsterdam-París-Amsterdam og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur kr. 4000.- Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 ll Málari frá Akureyri Myndlist Bragi Ásgeirsson Listsýningar norðlenzkra myndlistarmanna eru frekar fátíðar hér á höfuðborgarsvæð- inu. Á ég þá við þá, sem búsettir eru á Akureyri, eða annars stað- ar nyrðra en kenna sig ekki ein- vörðungu við þessa staði, þótt fluttir séu á höfuðborgarsvæðið fyrir áratugum og villa þannig á sér heimildir að vissu marki. Aðalsteinn Vestmann, sem þessa dagana sýnir í Gallerý Lækjartorg er hreinræktaður Akrueyringur, málarameistari að iðn en lauk einnig teiknikenn- araprófi við Handíða- og mynd- listaskólanum hér í borg (nú Myndlista- og handíðaskóli ís- lands) árið 1951. Starfar nú sem teiknikennari við Barnaskóla Akureyrar og hefur gert í tvo tugi ára. Myndverkin í Gallerý Lækjar- torg bera að sjálfsögðu merki þess, að menntun Aðalsteins á myndlistarvettvangi er mjög af skornum skammti þótt hæfileik- ar og upplag séu fyrir hendi. Ég minnist þess hve fær og hug- myndaríkur Aðalsteinn var í Handíðaskólanum, en hann var þar samtíða mér um tíma. Þess konar skopmyndir teljast einnig til myndlistar þótt vanmetnar væru af ýmsum listpáfum hér á hjara veraldar. Ég hef oft minnst á þetta áður og vil minna á það reglulega. Minni einnig á að meistari Daumier var van- metinn af sinni samtíð. Myndirnar á sýningu Aðal- steins eru æði misjafnar að gæð- um og þannig þykir mér akryl- myndin „Morgunstund í stiga- gangi“ (I) bera af öðrum mynd- um í þeirri tækni hvað uppbygg- ingu og litrænt samræmi snert- ir. Flestar myndirnar á sýning- unni eru unnar í vatnslit og þar þykir mér myndin „Gamli Kaldbakur" einna sterkust í byggingu, einnig myndirnar „Við bryggjupollann" (26) og „Við Torfunesbryggju" (9). I ofan- greindum myndum þykir mér Aðalsteinn leggja mesta ein- lægni og gefa mest af sjálfum sér. Landslagsmyndirnar eru sýnu daufari í útfærslu en þar má þó sjá ágæt tilþrif í myndum eins og „Haustdagur" (14), „Klappabyggðin" (18) og „Sól- skin í hrauni“ (23). í heild virkar þetta ekki sterk sýning en vafalítið er það nokk- ur lífsreynsla fyrir listamanninn að sýna hér syðra, sem hann hef- ur ávinning af í áframhaldandi vinnu, og þá er tilganginum náð. Allt er fyrst... Sverðfiskurinn eftir Osman Necmi Giirmen Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Osman Necmi Giirmen: S\erðfiskurinn Norsk þýðing eftir Kjell Olaf Jensen Útg. H. Ashehough & Co. Það er ekki ýkja oft að tyrkn- eskar skáldsögur rekur á fjörur okkar, en það mega frændur okkar í Noregi og Danmörku eiga að þeir eru iðnir við að sinna því að þýða þekkta erlenda höfunda yfir á Norðurlandamál. Osman Necmi Gíirmen er fædd- ur 1927, í Istanbul, en nú búsettur í París. Ekki er ýkja Iangt síðan hann sendi frá sér fyrstu bók sína, eða árið 1976, og síðan hefur hann skrifað þrjár bækur. Eftir því sem mér skilst er þetta fyrsta bók hans sem kertiur út á Norðurlandamál- um, en bækur hans njóta hylli í Frakklandi. Hér segir frá Tyrkjanum Kani sem er fjárbóndi og Grikkjanum Yanni sem er fiskimaður. Þeir búa í þorpinu sínu og milli þeirra er vinátta og gagnkvæmt trúnað- artraust, sem er lýst á verulega fallegan og ljóðrænan hátt. Sverð- fiskurinn — hin tæra fegurð — sefur í vatnsskorpunni og er tákn eyjarinnar þeirra, Kýpur, sem er að vísu aldrei nefnd. En þetta Ijúfa og einfalda líf tekur endi. Nýr tími er að renna upp og börn þeirra beggja láta hrífast með af gróðasjónarmiðum og braski, nú- tímatækni og stjórnmálum sem er þeim Kani og Yanni svo framandi og í þeirra augum er nýi tíminn fráhrindandi og það sem honum fylgir beinlínis til þess fallið að spilla og eyðileggja gömul og gild verðmæti. Bókin dregur upp mynd af bræðraþeli Grikkja og Tyrkja þeg- ar það getur bezt verið — og eins og það var á norðurhluta Kýpur fyrir innrásina 1974. Það eru ekki litlu mennirnir í þjóðfélaginu, sem skapa fólki vond örlög, þar kemur til makk og hagsmunastreita úr efri byggðum og þeir fá þar engu ráðið. í þessari bók er mikið sagt á einfaldan og Iátlausan hátt. Og hlýtur að vekja forvitni lesanda að kynnast fleiri bókum Gurmens. Einu sinni var - en lengur er það ekki Hljóm- plotur Finnbogi Marinósson Stuðmenn Grái fiðringurinn Bjarmaland hf. Ég man að einn vinur minn sagði við mig að lítið væri hann hrifin af þeirri hugmynd að endurvekja Stuðmenn. Hanr> vildi halda því fram að þeir hefðu lifað sína tíð og vanda- samt væri að taka upp þráðinn. En saman urðu við sammála um, að vel hefði tekist til eftir út- komu plötunnar „Með allt á hreinu". Hástemmt lof, frábærar viðtökur, þokkaleg kvikmynd og afbragðs plata. En þetta gat ekki verið svona gott og o.k. Það hlaut að koma að því að ímyndinni yrði nauðgað og nafnið skrumskælt. Þetta og ekkert annað hefur gerst með út- komu nýju sex laga plötunnar, „Grái fiðringurinn". Þrátt fyrir að lögin séu aðeins sex er hér ruglingslegt samansafn af léleg- um lögum, sem virðast hafa þann einn tilgang að eiga að selj- ast. Eða er það rangt að leggja saman tvo og tvo og sjá í gegnum Blindfullan rétt fyrir verslun- armannahelgi? Það er ekkert hægt að því að finna, að hljómlistarmenn reyni að haga hlutunum þannig að j>eir höfði til fjöldans, en þegar það er gert undir fölsku flaggi og með glataðri hugsjón, þá ættu menn að setja sig af. Eftir nokkra hlustun voru fyrstu lög beggja hliða orðin svo leiðinleg að yfir þau var hlaupið þegar platan var sett á. Annars er platan unnin af mikilli kost- gæfni, sándið er gott og sem fyrr afbragðs hljóðfæraleikur. En það sem allt eyðileggur er laga- valið og að mínu viti tilgangur þeirra. Einu sinni sagði íslenskur hljómlistamaður að annar hljómlistamaður væri tónlist- armella, vegna þess að hann semdi sölutónlist, en hefði áður gert annað. Þessi orð hafa gleymst og kannski er óþægilegt að rifja þau upp. Hinsvegar er ekki hægt að komast hjá því þeg- ar borin er saman sú tónlist sem Stuðmenn sendu frá sér einu sinni og þá sem rennur í gegn á nýju plötunni. Sem betur fer er platan bara sex laga og megi hún gleymast sem fyrst. Það var erfitt að taka upp þráðinn í fyrra, svo vel væri en það tókst. Og eitthvað stór- kostlegt má gerast, ef takast á að bæta fyrir hræðilegan gráan fiðring. FM/AM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.