Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.09.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983 19 Morgunbladið/ Kristján Einarsson SUersta togvinda sem vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf. hefur fram- leitt er til sýnis á iðnsýningunni í Laugardaishöll. Með vindunni stóru á myndinni eru, frá vinstri talið, Sigurþór Jónsson, framkvæmdastjóri, Sigurð- ur Sveinbjörnsson, forstjóri, Sveinbjörn Þormar, aðstoðarmaður á sýningu og Þórir Ingvason, tæknifræðingur. Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnsson hf.: Lægð í vindu- framleiðslunni - segir forstjórinn, Sigurður Sveinbjörnsson Á iðnsýningunni í Laugardalshöll sýnir Vélaverkstæði Sigurðar Svein- björnssonar hf. stærstu togvindu sem fyrirtækið hefur framleitt hing- að til, en verkstæðið hefur framleitt togvindur og annan vindubúnað í á fjórða hundrað íslensk fiskiskip á stærðarbilinu 12 til 300 rúmlestir. Forstjórinn, Sigurður Svein- björnsson, sagði við blaðamann Mbl. að nokkur lægð hefði verið í vinduframleiðslunni undanfarin ár, sem rekja mætti til slæmrar stöðu útgerðarinnar. Og Sigurður bætti við: „Fyrir þremur árum var sett af stað raðsmíðaverkefni á fiskiskip- um. Þá skildist okkur að þetta ætti að verða íslenskt iðnþróunar- verkefni, enda áttu stjórnvöld í iðnaði hlut að máli. Við reiknuð- um með því að eiga góða mögu- leika á vindusmíðinni í skipin. Var unnið ötullega að þessu hjá okkur, til að geta boðið jafngóða eða betri vöru en innflutta, enda fengum við staðfest að okkar tilboð væru fyllilega samkeppnisfær við er- lendu tilboðin, bæði verð og gæði. Ekkert hefur þó enn verið pantað og er ástæðan sú að stöðvarnar gátu fengið mjög hagstætt norskt lán að því tilskildu að þær keyptu öll tæki í skipin frá Noregi." Ástæða til að athuga aðstæður til jarðgangnagerðar Kom fram á þingi Fjórðungssambands Vestfirðinga Sem kunnugt er var Fjórðungs- þing Vestfirðinga haldið nýlega á Reykjanesi við ísafjarðardjúp. Var þar mikið rætt um atvinnumál og önnur sem tengjast byggð á Vest- fjöröum og viðhaldi hennar. Sam- göngur voru einnig til umræðu, enda eru Vestfírðir sá landshluti sem hvað mesta erfiðleika hefur átt í þeim málum vegna snjóþyngsla og vetrarhörku. í framsöguerindi sem Bjarni Einarsson flutti undir yfirskrift- inni „Vestfirðir í framtíðarþjóðfé- laginu" sagði hann m.a. að svo virtist sem Vestfirðir stæðu verst að vígi gagnvart stóriðju- og iðn- aðarþróun og benti á „staðar- valstilhneiginguna" og væntan- lega uppbyggingu iðnaðar við Eyjafjörð og á Austfjörðum máli sínu til stuðnings. Sagði hann litl- ar líkur á að stórar virkjunar- framkvæmdir eða orkufrekur iðn- aður kæmi á Vestfirði í bráð, en minnti á að grundvallarskilyrði fyrir áframhaldandi byggð væri að íbúarnir finndu að framfarir á heimaslóðum þeirra væru í sam- ræmi við það sem gerist í öðrum landshlutum. Þá vék Bjarni að samgöngumál- um og sagði það skoðun sína að á íslandi væru skilyrði ekki verri til jarðgangagerðar en í Færeyjum. Hefðu athuganir á vegum Orku- stofnunar farið fram í sumar vegna þessa. „Ef unnt væri að búa til 6.000 manna Vesturborg á Vestfjörðum úr Flateyri, Suður- eyri, Bolungarvík, lsafirði og Súðavík með því sem næst örugg- um heilsárssamgöngum á milli þessara staða er til orðinn nægi- íega öflugur kjarni til að gera öra þjónustuuppbyggingu og auðvelda almenna iðnþróun verulega. Við þetta vil ég bæta við,“ sagði Bjarni í ræðu sinni, „að sú reynsla sem nú er fengin af notkun mjög stór- virkra tækja við vegagerð, undan Ölafsvíkurenni, bendir til þess að vegagerð slík sem er yfir Dýra- fjörð sé mun ódýrari en talið hef- ur verið." Þá kom einnig fram í ræðum annarra fundarmanna að ástæða þætti til að athuga náið aðstæður til jarðgangnagerðar á Vestfjörð- um. « Gódan daginn! -------------*-------.JUl I- IHB,-' S,till 1.'. •fTT-Tr Gerpla — Gerpla — Gerpla — Gerpla — Gerpla Kvennaleikfimi Þjálfun slökun jass gufa Ijós Þriöjudaga kl. 19.30 og 20.30 Fimmtudaga kl. 19.30 og 20.30 Morguntímar Karlaleikfimi Þjálfun slökun Ijós gufa Mánudaga kl. 20.30 Miövikudaga kl. 20.30. Gleymið ekki laugardögunum! Kvenna-afslöppun laugardaga kl. 13.00. Karla-upphitun laugardaga kl. 14.30 Innritun í Gerpluhúsi s: 74925 — 74907 TlZKUBLAÐ — FASHION MAGAZINE ARMULA 18 105 REYKJAVIK SIMI 82300 er ekki tími til kominn, að þú gerist áskrifandi? líf er svolítið öðruvísi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.