Morgunblaðið - 20.10.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.10.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983 Norðurland vestra: Kaupmanna- félag stofnað Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson. Gáfu Landssamtökum hjartasjúklinga 40 þús. kr. Starfsfólk Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og Mjólkursamlagsins í Búðardal söfnuðu á einni dagstund kr. 40.300, sem fulltrúar þeirra afhentu stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga sl. þriðju- dag. Tilefni gjafarinnar var, að einn starfsmanna Samsölunnar hafði fengið alvarlegt hjartaáfall en náð bata. Myndin er tekin er gjöfin var afhent, en Útgerðarfélag Akureyringa: Gerir tilboð í Hafþór á henni eru talið frá vinstri: Björn Bjarman, Sig- urveig Halldórsdóttir, Ingólfur Viktorsson, for- maður samtakanna, þá Þórður Jóhannsson sem afhenti gjöfina, Gunnar Sigurjónsson, Helgi Jóns- son og Páll P. Jónsson. Þess má geta að á þeirri rúmu viku frá því samtökin voru formlega stofnuð hafa þeim borist gjafir hvaðanæva af landinu. Akureyri, 19. október. ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hf. samþykkti á stjórnarfundi sem haldinn var síödegis í dag, að senda inn tilboð í skuttogarann Hafþór, sem Hafrannsóknastofnun hefur auglýst til sölu. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út á miðnætti í nótt, þannig að ekki mátti stjórnin vera seinni á sér. Hafþór er 800 tonna skuttogari af sömu gerð og Ögri og Vigri, sem reynst hafa ein bestu fiskiskip ís- lenska togaraflotans. Skipið mun vera í mjög góðu ástandi, m.a. mun aðalvél skipsins ekki vera keyrð nema um 20 þúsund tíma, sem er u.þ.b. 3ja ára vélarnotkun Akureyrartogaranna. Þó er áætl- að að verja þurfi um 10—15 millj- ónum í viðgerðir og endurbætur á skipinu og myndu að sögn fróðra manna fara um 6—8 vikur í þær breytingar. Útgerðarfélagið þarf nauðsyn- lega á 5. skipinu að halda, eins og í ljós hefur komið að undanförnu, því síðustu fjórar vikurnar hefur ekki verið unnið að meðaltali meira en 4 daga í viku í frystihúsi félagsins. Morgunblaðinu tókst ekki að afla upplýsinga um áætlað verð Hafþórs, en reikna má með að ÚA eigi góðan möguleika á að hreppa skipið, þó ekki sé nema vegna þess fyrirmyndarrekstrar sem verið hefur á félaginu og lýsir sér m.a. í ummælum forráðamanna Bæjar- útgerðar Reykjavíkur í þá veru að stefnt sé að því að allur rekstur þar færist í sama horf og hjá Út- gerðarfélagi Akureyringa. — G.Berg. KAUPMANNASAMTÖK íslands gengust hinn 8. október síðastliðinn fyrir stofnun kaupmannafélags á Norðurlandi vestra, en félagssvæði þess er Skagafjarðar- og Húna- vatnssýslur. Stofnfundurinn var haldinn á Hótel Blönduósi og hófst hann kl. 14.00. Um 20 manns sóttu fundinn, að því er segir í fréttatil- kynningu frá KÍ. í upphafi fundar greindu for- maður Kaupmannasamtaka ís- lands, Sigurður E. Haraldsson og Magnús E. Finnsson, fram- kvæmdastjóri, frá starfi Kaupmannasamtakanna. Þar kom m.a. fram að KÍ hafa að undan- förnu beitt sér fyrir stofnun kaup- mannafélaga á landsbyggðinni, svo sem á Vestfjörðum, Austfjörð- um, Akureyri, Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum. Nokkrar umræður fóru fram á fundinum um stöðu smásöluversl- unarinnar á landinu og lögðu fundarmenn sérstaka áherslu á að aðstöðumunur samvinnufyrir- tækja og kaupmanna yrði jafnað- ur, en eins og kunnugt er nýtur samvinnuverslun ýmissa forrétt- inda fram yfir kaupmannaverslun, svo sem í skattamálum, lánamál- um o.fl. í stjórn félagsins voru kjörnir eftirtaldir kaupmenn: Formaður Karl Sigurgeirsson, Versl. Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga; aðrir stjórnar- menn: Einar Þorláksson, Blöndu- ósi, Pétur Valdimarsson, Sauð- árkróki, Sveinn Jóhannsson, Varmalæk og Elín Grímsdóttir, Blönduósi. Fulltrúi í fulltrúaráð KÍ var kjörinn Pétur Valdimars- son frá Sauðárkróki. Fyrirlest- ur um jarð- vísindi FIMMTUDAGINN 20. október kl. 16.15 flytur prófessor Jason Morgan frá jarðvísindadeild háskólans í Princeton, New Jersey, fyrirlestur í stofu 157, húsi verkfræði- og raun- vísindadeildar HÍ við Hjarðarhaga. Fyrirlesturinn nefnist Hotspots and the Iceland-Faeroe Ridge. Próf. Morgan hlaut nýlega verð- laun Evrópska jarðvísindasam- bandsins (European Union of Geosciences) fyrir framlag sitt til jarðvísinda, en hann er einn af helstu frumkvöðlum flekakenn- ingarinnar og kenningarinnar um „heita reiti" (hotspots). Keppt er um þína framtíð STAÐUR: ÍSLAND TÍMI: NÚNA LÝÐRÆÐI ALRÆOI Þremur hjólum stolið frá Framnesvegi 20B AÐFARANÓTT miðvikudags 19. október var þremur reiðhjólum stolið frá húsinu númer 20B við Framnesveg, tveimur kvenhjólum og einu karlmannshjóli. Eitt hjólanna var Romain, rauðbrúnt á litinn, alsett límmiðum, annað Raleigh, blátt; karlmannshjólið var grænt Mars. Stuldur hjólanna kemur eigend- um þeirra afar illa, því þau voru mikið notuð til ferða innanbæjar. Þeir sem kynnu að hafa orðið var- ir við mannaferðir við Framnes- veg 20B þessa nótt eða vita hvar hjólin eru niðurkomin eru vin- samlegast beðnir að hafa sam- band við lögregluna í Reykjavík, hringja í síma 26482 eða skila þeim aftur á sinn stað. Montesquieu Adam Smtth Alexbt de Tocquevfite Kar Popper Thomas Jefferson Augusto Pínochet Jón Portéttsson Brynjóifur Bjamason Bentto Mossoiiní Fétag Vaka vínstrimanna LechWaiesa Wo|crech Jarusetski Ráðstefna um þarf- ir sjúkra unglinga SAMNOKRÆNT félag áhuga- fólks um þarfir sjúkra bama held- ur ráðstefnu á Hótel Loftleiðum dagana 21.—23. október nk. Ráö- stefnan hefst á föstudaginn kl. 17.00 og lýkur síðdegis á sunnu- dag. Félag áhugafólks um þarfir sjúkra barna eru þverfagleg samtök heilbrigðisstétta á Norðurlöndum með það mark- mið, að auka Norðurlanda og al- þjóðlega samvinnu, upplýsa og hafa áhrif á skerf hins opinbera og almennings til handa sjúkum börnum. Um 85 þátttakendur frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og íslandi hafa skráð sig á ráðstefnuna. Aðalviðfangsefni ráðstefn- unnar verður umönnun sjúkra unglinga og eldri barna. Flutt verða allmörg erindi af íslensk- um og erlendum vísinda- mönnum og munu þeir skýra frá rannsóknaniðurstöðum sín- um. Ólafsfjörður: Fyrsta sfld- in komin Ólafsfírdi, 19. október. í MORGUN kom fyrsta sfldin á haustinu hingaö til söltunar. Það var Guömundur Olafur Óf sem kom hingað með 90 tonn af ágætri sfld sem hann veiddi austur á Mjóafirði. Er saltað hér í dag hjá tveimur söltunarstöðvum, en það er hjá Stíganda og Guðmundi ólafssyni. Er síldin mjög góð til söltunar þrátt fyrir 20 tíma siglingu af miðunum. John Locke Vladírmr Lenin A. Solzhenitsyn Niccolo Machiavellia J6n Sigurðsson Mao Tse-Tung Ætlar þú bara að vera hlutlaus áhorfandi ....EÐA VILT ÞÚ LEGGJA EITTHVAÐ AF MÖRKUM? VAKA FÉLAG LÝÐRÆÐISSINNAÐRA STÚDENTA SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12,3. HÆÐ - SIMI22465 Mynd þessi er af veggspjaldi, sem Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta hefur látið gera í tilefni kosninga til hátíðarnefndar 1. desember, sem fram fer í Háskóla íslands í dag. Sjá ennfremur frétt á miðopnu. — Jakob.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.