Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 Stjarna Helmut Schmidts skín skærar erlendis en heima fyrir LE IR SKILJA Stýriflaugarnar og Persh- ing II eldflaugarnar, sem kynt hafa undir friðar- hreyfingunni og varnar- málaumræða í Vestur- Evrópu hefur fyrst og fremst snú- ist um undanfarin fjögur ár, eru farnar að berast til álfunnar frá Bandaríkjunum. Vestur-þýska þingið samþykkti á þriðjudag í fyrri viku með 60 atkvæða mun að koma meðaldrægu eldflaugunum fyrir þar sem Bandaríkjamenn og Sovétmenn hafa ekki komist að samkomulagi í Genf um verulega fækkun sovésku SS 20 eldflaug- anna, sem þegar er beint gegn Vestur-Evrópu. Sósíaldemókratar greiddu atkvæði á móti samþykkt- inni og sneru þar með baki við fyrri stefnu flokksins í þinginu. Helmut Schmidt, fv. kanslari og leiðtogi flokksins í 9 ár, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Hann gerði það til að þurfa ekki að greiða at- kvæði á móti sínum flokki, sem hann hefur stutt í næstum 40 ár. Schmidt er nú í algjörum minni- hluta í flokknum. Sérstakur flokksfundur um varnarmál, sem haldinn var í Köln 18. og 19. nóv- ember sl. samþykkti með yfir- gnæfandi meirihluta að beita sér gegn komu eldflauganna. Rúmlega 400 manns sátu fundinn og aðeins 15 greiddu atkvæði gegn sam- þykkt hans. Schmidt var í hópi þeirra og hann var einnig einn af 5 gegn 27 í miðstjórn flokksins þeg- ar hún greiddi atkvæði á móti eldflaugunum. Schmidt ávarpaði flokksfundinn og rakti á yfir 90 mínútum sögu samþykktar Atl- antshafsbandalagsins og gerði grein fyrir afstöðu sinni. Þetta var væntanlega síðasta stórræðan sem Schmidt flutti flokkssystkin- um sínum. Ræðunni var kurteisis- lega tekið en Schmidt tókst ekki að vinna marga yfir á sitt band. Stjarna hans á stjórnmálahimnin- um virðist fallin, en hann heyrðist segja þegar hann fór af fundar- stað: „Þessi ræða verður lesin með athygli eftir 10 ár.“ Varnarstaðan endurskoðuð Schmidt hafði verið kanslari Vestur-Þýskalands í tæp þrjú ár þegar Jimmy Carter tók við emb- ætti forseta Bandaríkjanna af Gerald Ford í janúar 1977. Honum samdi vel við Ford og Henry Kiss- inger, utanríkisráðherra hans. Þeir höfðu svipaðar skoðanir á utanríkismálum og voru t.d. sam- mála um að rétt væri að SALT II samningaviðræður Bandaríkja- manna og Sovétmanna næðu til meðaldrægra eldflauga Sovét- manna og skorðuðust ekki við langdrægar eldflaugar beggja þjóðanna. Carter og Zbigniew Brzezinski, öryggismálaráðgjafi hans, voru á öðru máli og það var ekki fjallað um SS 20 eldflaugarn- ar í SALT II viðræðunum. Schmidt tók þeirri ákvörðun illa og ákvað að gagnrýna Carter- stjórnina opinberlega. Hann samdi ræðu um varnarmál, sem nú er fræg, og flutti hana í London í október 1977. Schmidt krafðist þess að vopnaójafnvægið, sem rík- ir á evrópska hernaðarsvæðinu, yrði leiðrétt, helst með samninga- viðræðum en ef þær dygðu ekki til þá með nægilegum vopnaforða Atlantshafsbandalagsins. Schmidt gekk opinberlega í lið með harðjöxlum f utanríkismálum með þessari ræðu og nokkrum mánuðum seinna, eða í mars 1978, lofaði stjórn hans Carter að koma neutronsprengjum fyrir í V-Þýskalandi ef Carter hæfi framleiðslu á þeim. Neutronsprengjan átti að eyða lífi en láta byggingar og vélabún- að standa, ef til styrjaldar kæmi. Carter ákvað hins vegar nokkru síðar, þegar hann var á veiðiferð í heimaríki sínu, að láta ekki fram- leiða sprengjuna. Harðjaxlar gagnrýndu þessa ákvörðun og svo virtist sem Carter vissi ekki hvað hann vildi í varnarmálum. Hann varð að sýna meiri festu og ákveðni til að róa óánægjuraddir innan Atiantshafsbandalagsins og Bandaríkjamenn ákváðu að endurnýja kjarnorkuvígbúnað V-Evrópu. í byrjun janúar 1979 héldu þjóð- arleiðtogarnir Carter, Schmidt, James Callaghan, þv. forsætis- ráðherra Bretlands, og Giscard d’Estaing, þv. forseti Frakklands, með sér óvenjulegan fund á eyj- unni Guadeloupe í Karíbahafinu. Carter skýrði þeim frá áformum sínum um ný vopn í V-Evrópu en Callaghan stakk uppá að fyrst yrði rætt við Sovétmenn. d’Est- aing átti hugmyndina að því að ræða við Sovétmenn én jafnframt hefja rannsóknir og framleiðslu á hinum nýju vopnum. Schmidt hafði áhyggjur af hvaða áhrif þetta kynni að hafa á slökunar- stefnuna og bjóst einnig við and- stöðu í sínum flokki. í apríl sama ár var ákveðið hversu mörgum stýriflaugum (464) og Pershing II eldflaugum (108) skyldi komið fyrir í V-Evrópu fyrir lok ársins 1988 og „tvíþáttaákvörðunin" var samþykkt á ráðherrafundi Atl- antshafsbandalagsins f Brussel I desember 1979. Sósíaldemókratar „studdu“ Schmidt Andstaða við ákvörðun Atl- antshafsbandalagsins átti eftir að koma í ljós innan Sósíaldemókrat- aflokksins, eins og Schmidt óttað- ist á Guadeloupe. Vinstri vængur flokksins lýsti sig þegar andvígan ákvörðuninni á landsfundi flokks- ins í Berlín 1979. Schmidt var þá kanslari og meirihluti flokksins fylgdi stefnu hans. Klofningur hafði þó myndast í flokknum og eitt sinn hótaði Schmidt að segja af sér kanslaraembættinu ef flokksmenn hans sameinuðust ekki að baki hans. Schmidt eyddi mikilli orku í að haida flokknum góðum eftir þing- kosningarnar 1980. Hann þurfti að endurtaka sömu rökin í sifellu, beita gagnrýnendur sína klækjum og biðja um traustsyfirlýsingu þingflokksins. En óánægjan í flokknum minnkaði ekki og gagn- rýnin varð stöðugt háværari. Fyrir landsfundinn í Múnchen 1982 var ákveðið að fresta ákvörð- un um stefnu flokksins í eld- flaugamálinu fram á haust 1983 og móta hana þá í samræmi við stöðuna í samningaviðræðum stórþjóðanna. Heitar umræður áttu sér þó stað í Múnchen. Þar kom mjög skýrt fram að flokkurinn var að fjarlægjast samþykktina frá 1979 og vildi nú aðeins leggja blessun sína yfir annan þátt „tvíþátta- ákvörðunarinnar" eða yfir samn- ingaviðræður Bandaríkjamanna og Sovétmanna. Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, var þó ekki tal- inn hafa mikinn áhuga á afvopnun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.