Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 Það var eins og stórstjörnur væru á ferð • f • * * Rabbað við Margreti Orlygsdóttur um Penthouse-keppnina í Bandaríkjunum (Ljósm. Mbl. Friðþjófur). „Það var stórkostlegt ævintýri að taka þátt í þessari keppni og ekkert ósiðsamlegt í sambandi við þetta,“ segir hún brosandi og dregur myndir og blaðagreinar upp úr pússi sínu. Viðmælandi okkar er Margrét Örlygsdóttir, fjörleg og blátt áfram stúlka úr Njarðvíkum, sem var fulltrúi Islands í alþjóðlegri keppni tímaritsins Penthouse um „stúlku ársins“, sem haldin var í Atlantic City í Bandaríkjunum nú nýverið. Margrét er 18 ára gömul, borin og barnfædd í Njarðvíkum, dóttir hjónanna Ernu Agnarsdóttur og Örlygs Þor- valdssonar, og hún hefur að undanförnu stundað nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á tungumálasviði. „Ég tók mér hálfs árs frí úr skólanum og ætla að hugsa minn gang í vetur,“ sagði hún og bætti því við, að þátttakan í Penthouse-keppninni kynni að hafa einhverjar breytingar í för með sér á högum hennar. En við byrjum á byrjuninni og víkjum aftur að þátttöku Margrétar í keppninni. Keppni þessi nefndist á ensku „One million dollar pet of the year“, sem þýða má: „Milljón dollara gæludýr árs- ins“, og eins og nafnið gefur til kynna fékk stúlkan sem sigraði eina milljón dollara (30 milljónir ísl.) í verðlaun um leið og hún skuldbatt sig til að starfa sem fyrirsæta hjá Penthouse í eitt ár. Samkvæmt blaðaskrifum um keppni þessa er hún af mörgum talin einhver glæsilegasta fegurð- arsamkeppni sem haldin hefur verið og víst er að verðlaunin hafa hvergi verið meiri, fyrir utan öll tilboðin sem á eftir kunna að fylgja fyrir þátttakendur. Við spyrjum Margréti fyrst hvernig það atvikaðist að hun tók þátt í þessari keppni: „Tímaritið Samúel, sem stóð fyrir vali fulltrúa héðan, auglýsti eftir uppástungum um þátttak- endur og vinir mínir bentu þeim á mig. Ég hafði ekki hugmynd um það og kom því af fjöllum þegar hringt var í mig frá Samúel og ég beðin um að koma í viðtal. Ég hafði ekki velt þessu fyrir mér, en ákvað að slá til og prófa þetta, kannski mest af forvitni. Síðan fór ég í viðtalið og þá voru einnig teknar myndir, og dómnefndin valdi síðan út frá myndunum og viðtalinu þá stúlku, sem gæti kom- ið til greina sem fulltrúi íslands í Penthouse-keppnina. Þremur vik- um áður en ég fór út í keppnina var hringt í mig og Ólafur Hauks- son, ritstjóri Samúels, tilkynnti mér að ég hefði verið valin. Mér dauðbrá, því það var svo langt um liðið síðan ég fór í viðtalið að ég var eiginlega búin að gleyma þessu. Síðan var ég á fullu við að undirbúa mig þangað til ég fór út. Ég fór ein til -New York og á vellinum þar sá ég konu með spjald sem á stóð: „Margrét Ör- lygsdóttir, Iceland", svo þetta var í rauninni ekkert mál. Ég var í mik- illi seinkun og þegar ég kom sagði konan mér að móttökuveislan væri byrjuð, svo ég skyldi bara drífa mig inn á klósett og skipta um föt og það gerði ég og fór svo beint af vellinum í partýið. Þá strax sá ég hvað glæsileikinn var mikill í kringum þetta allt saman, en veislan var haldin í einu fínasta veitingahúsinu í New York og við vorum keyrðar á milli í limúsín- um, svo eitthvað sé nefnt." Með frægu fólki „Við dvöldum í þrjá daga í New York og ég var þá í herbergi með stúlku frá Noregi. Á daginn skoð- uðum við borgina og á kvöldin sóttum við samkvæmi og blaða- mannafundi á vegum Penthouse og við vorum umsvermaðar af fólki úr fyrirsætubransanum, sem var að leita fyrir sér með nýjar fyrirsætur. Það sama var einnig upp á teningnum eftir að við kom- um til Atlantic City, en þangað fórum við í æðislega flottri rútu með klósetti og öllu. Við bjuggum á Sands-hótelinu í Atlantic City og það er fallegasta hótel sem ég hef séð. Þarna var allt sem hægt var að hugsa sér og í rauninni hefði maður aldrei þurft að fara út af hótellóðinni. En þegar við fórum eitthvað biðu limúsínur tilbúnar fyrir framan hótelið og í þeim var bar, sjónvarp og sími, þannig að það var eins og einhverjar stjórstjörnur eða þjóð- höfðingjar væru á ferðinni. Maður lifði sem sagt algjöru kóngalífi og sótti veislur með frægu fólki á kvöldin, að loknum æfingum. Veislurnar voru taldar mjög þýð- ingarmiklar, alla vega fyrir þær sem vildu komast í sambönd í tískuheiminum. Ef einhverjar vildu t.d. hvíla sig eftir æfingarn- ar sögðu umsjónarkonurnar yfir- leitt: Þú ræður því auðvitað, en þarna verður „very important people“, og það varð auðvitað til þess að maður lét sig hafa það að mæta. Ég man sérstaklega eftir einu partíinu, sem var haldið hjá eig- anda Penthouse, Bob Guccione. Hann bjó í stórri höll og á veggj- um voru málverk eftir klassíska málara frá fyrri öldum. Þarna var innisundlaug og ég held bara að klósettið hafi verið úr gulli. Maður þorði varla að setjast á það. En hvað með það, þarna í veislunni kom til mín maður, sem sagðist vera kvikmyndaframleiðandi og byggi í Beverley Hills í Hollywood, og hann fór eitthvað að tala um að ég ætti hiklaust að fara út í leik- list, ég væri með svo svipsterkt andlit. Hann bætti því reyndar við að hann væri að gera mynd í Hollywood og ég v.æri upplögð í myndina. Síðan spurði hann mig hvort hann mætti bjóða mér í dinner kvöldið eftir eða eitthvert annað kvöld sem ég væri laus, en ég afþakkaði að sjálfsögðu þetta ágæta boð. Þegar hann svo kvaddi sagði hann eitthvað á þessa leið: „LA og Hollywood munu elska þig ef þú kemur." Þótt maður tæki mátulegt mark á svona tilboðum var skemmtilegt að hitta svona menn og fylgjast með því hvernig svona hlutir ganga fyrir sig í þess- um bransa. En skemmtilegasti hlutinn af þessu öllu var þó að taka þátt í æfingunum. Þar var líka allt fullt af frægu fólki, eins og t.d. Andy Gibb, sem var kynnir í keppninni ásamt „Miss World" frá því í fyrra eða hitteðfyrra. Þau voru alltaf á æfingum með okkur og maður var farin að þekkja þau eins og góða kunningja. Eins var með dansar- ann fræga Peter Genero, sem æfði dansana með okkur." Sumar grétu á æfingunum „Upphaflega vorum við 29 sem áttum að taka þátt í keppninni, ef með er talin þessi frá Svíþjóð sem stakk svo af frá öllu saman. Það er kannski rétt að taka það fram, að það sem haft var eftir henni í blöðum, og birtist meðal annars í frétt í Morgunblaðinu, að það hefði átt að taka af okkur ein- hverjar vafasamar myndir, er al- gjör della. Það var aldrei minnst á svoleiðis myndatöku og í rauninni fór þetta fram eins og venjuleg fegurðarsamkeppni. En annað hvort hefur einhver logið þessu í hana eða þá hún hefur ímyndað sér að það ætti að taka vídeó- myndir af okkur í „hinum ýmsu stellingum", eins og það var orðað. Sannleikurinn var sá, að það var gerð vídeóupptaka frá keppninni,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.