Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 47 þar sem var talað við okkur við ýmis tækifæri, uppi á herbergjum eða þegar við vorum úti að borða og þessu skeytt saman við sjálfa keppnina. Þessi upptaka verður tilbúin eftir áramótin og við fáum allar sent eintak af henni, og síðan verður henni sjónvarpað víða um heim. En það er misskilningur að keppninni hafi verið sjónvarpað beint. Það átti upphaflega að gera það, en var hætt við þar sem keppnina bar upp á „Thanksgiving day“, sem er einhvers konar frí- eða helgidagur í Ameríku. En varðandi þessa sænsku þá fannst mér furðulegt að hún skyldi geta laumast svona af hót- elinu án þess að nokkur tæki eftir. Mikill fjöldi lögregluvarða fylgd- ist með okkur, og svona nokkuð átti að vera nánast útilokað. En hún var í herbergi með stelpunni frá Noregi og eitt kvöldið þegar við vorum í kokteil-partíi, vorum við norska stelpan að tala eitthvað saman og hún hafði þá á orði að þær væru mjög óánægðar með þetta allt og væru að hugsa um að láta sig hverfa. Ég tók eftir að sú sænska mætti ekki í partíið og seinna um kvöldið uppgötvaðist að hún var horfin af hótelinu. Hún hafði þá farið ein í leigubíl til New York, hálfpeningalaus og illa tal- andi á ensku þannig að þetta var algjört rugl allt saman. En hvað um það, mér fannst hún bæði frá- hrindandi og leiðinleg. Annars var þetta góður og sam- stilltur hópur og mjög góður andi á milli okkar stelpnanna og einnig þeirra sem stóðu að keppninni. Þetta var samt gífurleg vinna og þreytandi til lengdar og stelpurn- ar tóku þetta miðsjafnlega alvar- lega. Sumar voru að fara yfirum á taugum og hámuðu í sig róandi töflur og grétu á æfingunum. En svo voru aðrar, eins og ég, sem var alveg sama og litu bara á þetta eins og skemmtilegt ævintýri. Ég fann aldrei fyrir stressi og var svo afslöppuð á æfingunum að ég var látin koma fram í öllum hópunum ásamt þeirri frönsku, sem var heldur ekkert að stressa sig út af þessu. Reyndar sögðu þeir við mig í gríni að ég ætú ekki að gera neitt annað en stússa í einhverju svona, ég væri alveg fædd í þetta. Annars skal ég viðurkenna að eftir þessa reynslu líst mér mjög vel á fyrir- sætustörf og gæti vel hugsað mér að prófa þetta frekar. Mér fannst alveg æðislega gaman að koma þarna fram, alveg ofsalega gam- an.“ Víkingastúlka í gæruklæðum „Annars kom ýmislegt upp í sambandi við þetta. Einu sinni var bankað upp á hjá mér og það voru þá fréttamenn frá CBS-sjón- varpstöðinni. Þeir höfðu mikinn áhuga á gærufatnaðinum, sem ég notaði m.a. í keppninni, og mynd- uðu hann í bak og fyrir og á með- an var ég látin segja frá hvers vegna ég hefði valið íslensku ull- ina í þennan búning. Þetta hefur því sennilega verið ágætis kynn- ing á íslenskum ullarvörum, en þetta var sýnt í kvöldfréttum CBS-sjónvarpsins. Svo var ég í viðtölum í nokkrum blöðum, þann- ig að það var talsvert umstang í kringum þetta. í Atlantic City var ég í herbergi með stúlku frá Ítalíu, Pamelu, og við urðum góðar vinkonur. Hún talar ekki stakt orð í ensku og það skildi enginn hvernig við gátum verið saman á herbergi, en þó var sagt um okkur að við værum bestu herbergisfélagarnir. Við töluðum saman með höndunum og andlit- inu, og svo kenndi hún mér nokkur orð í ítölsku og ég henni nokkur orð í íslensku og ensku og þetta gekk ágætlega. Samtölin fóru þannig fram að hún kannski benti á mig og sagði: Marilyn Monroe og síðan benti hún á sjálfa sig og sagði: Sophia Loren, og svo hlóg- um við eins og vitleysingjar. Ann- ars varð kunnáttuleysið í ensku henni að falli í keppninni. Það voru flestir á því að hún ætti sig- urinn skilið, en hún varð í fjórða sæti. Það var hins vegar talið mjög þýðingarmikið að sú sem sigraði gæti gert sig skiljanlega á ensku. Það var eins í þessari keppni og flestum fegurðarsam- keppnum að það er ekki nóg að hafa bara útlitið. Stúlkurnar verða að hafa eitthvað fleira til brunns að bera ef þær eiga að komast áfram. En mér fannst samt Pamela verðskulda sigurinn og það fannst fleirum." En hvað með þessa dönsku sem sigraði, kynntist þú henni eitthvað? „Já, ég kynntist henni ágætlega. Hún var ágæt en kannski svolítið kærulaus. Það var til dæmis búið að áminna okkur um stundvísi í Ef stúlkurnar þurftu að skreppa eitthvað var stór limúsína til reiðu og hér er Margrét í bílnum, sem eins og sjá má er með sjónvarpi, bar og síma. sambandi við æfingarnar, en hún fór ekki alltaf eftir þeim reglum. Svo var hún alltaf með „vasa- diskó" á eyrunum, sem var stranglega bannað, og þar af leið- andi fylgdist hún ekki alltaf nógu vel með. Það var búið að segja okkur að allt svona yrði tekið með í reikninginn, en það virðist ekki hafa verið gert í hennar tilfelli, og það voru margir hissa þegar hún var valin, ekki síst hún sjálf." Hvernig fór sjálf keppnin fram? „Við komum þrisvar fram. Fyrst kom ég fram í síðkjól sem var saumaður sérstaklega hér á landi, en það verk annaðist Krist- ín Jónsdóttir. Síðan komum við fram í sundbolum, sem ítalski tískuhönnuðurinn Oleg Cassini gerði sérstaklega fyrir keppnina. Loks kom ég svo fram í búningi úr íslenskri gæru, sem Eggert Jó- hannsson sneið sérstaklega fyrir mig að beiðni ritstjóra Samúels. í þessu atriði áttum við allar að koma fram í einhverju sem minnti á land og þjóð og ég var kölluð „víkingastúlkan" og lýsti því hvernig ullin hefði haldið hita á íslendingum í gegnum aldirnar. Það ríkti auðvitað mikil spenna í salnum á meðan á þessu stóð. Ég fann hins vegar ekki fyrir stressi heldur naut þess bara að upplifa þetta. Þetta var stórkostleg upp- lifun. Inn í þetta var svo fléttað söngvum og dönsum á milli þess sem Andy Gibb og „Miss World" kynntu. Og jafnvel þótt ekkert komi út úr þessu var það þess virði, bara að upplifa það að taka þátt í þessu." Jákvæð reynsla „Annars fékk ég nokkur tilboð um fyrirsætustörf og m.a. frá Ferrari-fyrirtækjasamsteypunni. En ég hef ekkert ákveðið hvað ég geri. Okkur var sagt að eftir að keppninni yrði sjónvarpað gætum við búist við að tilboðum færi að rigna yfir okkur. En eins og ég sagði skiptir það ekki öllu máli. Aðalatriðið var bara að fá tæki- færi til að taka þátt í keppninni og upplifa þetta ævintýri." Nú eru sumar þeirrar skoðunar að fegurðarsamkeppnir séu niðurlægj- andi fyrir konur, hvað finnst þér um það? „Mér finnst ekkert athugavert við að stúlkur taki þátt í fegurð- arsamkeppni ef þær eiga þess kost. Það geta fylgt þessu mörg spennandi tækifæri, ferðalög og svo kynnist maður mörgu skemmtilegu fólki úr öllum heims- hornum. Mér finnst alveg sjálf- sagt að notfæra sér slíkt ef kostur er á.“ En hvað finnst þér um Pent- house-tímaritið, varst þú reiðubúin að fylgja þeim kvöðum að láta taka af þér svokallaðar „djarfar" myndir ef þú hefðir sigrað? „Ég bjóst aldrei við að vinna og hugsaði þar af leiðandi aldrei út í það. Við vorum margar í keppn- inni sem hugsuðum aldrei svo langt að við þyrftum að gera þetta upp við okkur. Við bara komum þarna til að taka þátt í keppninni og hafa gaman af þessu. Og sumar hugsuðu fyrst og fremst um tæki- færin sem þetta gæti gefið þeim í tískubransanum. En það verður að segjast eins og er að fólk hlýtur að hugsa sig um tvisvar áður en það hafnar milljón dollurum, þótt með þessu sé ég ekki að segja að ég hafi gert mér einhverjar vonir um að hreppa þessi verðlaun. En þessu fylgir líka mikil vinna og þessi danska, sem vann, byrjaði strax að vinna eftir keppnina. Ég er ekki viss um að þetta hefði hentað mér, en það á örugglega ágætlega við hana. Hún hafði talað um að hennar æðsti draumur væri að verða „international“ kvikmynda- stjarna og hún fékk strax mörg kvikmyndatilboð, þ.á m. um að leika í James Bond-mynd. Þannig að það má segja að með þátttöku í keppninni hafi hún fengið ósk sína uppfyllta. Um Penthouse-tímaritið get ég lítið sagt. Ég held þó að þetta sé mjög vandað tímarit þrátt fyrir „djörfu“myndirnar og það er mjög víðlesið. Til gamans get ég nefnt að við hittum margar fyrrverandi fyrirsætur blaðsins í samkvæm- unum og ég var alveg hissa þegar ég sá þær, því maður hafði búist við hálfgerðum „gleðikonum" úr svona starfi. En þær voru þvert á móti mjög aðlaðandi og glæsilegar stúlkur og t.d. umsjónarkona mín var sérstaklega elskuleg kona. Hún heitir Dominique Mauré, og er fyrrverandi fyrirsæta hjá Penthouse. Maður gerir sér svo oft rangar hugmyndir um fólk og lífið almennt, en mín reynsla af þessu fólki er mjög jákvæð. Það voru all- ir afskaplega elskulegir og skemmtilegir í kringum þetta." Og hvað er svo framundan hjá þér? „Ég veit það ekki enn. En eins og ég sagði hefur þetta vissulega kveikt í mér áhugann fyrir mód- elstörfum og ég ætla að athuga þá möguleika. Ég hefði t.d. áhuga á að kynnast fyrirsætustörfum hér heima og svo getur verið að maður geri eitthvað varðandi þessi tilboð og eins ef fleiri berast eftir að sjónvarpsþátturinn verður sýnd- ur. En mig vantar pening eins og stendur og er því að hugsa um að fá mér vinnu og stunda tungu- málanám í kvöldskóla í vetur. Svo sér maður til.“ — Sv.G. Pet of the Year Lasi weckand. ihe 78 conieæ lants partlclpated In a preltml- nary competltloo in a smtll Sand* baliroom They wore otie and two-ptece swtmsults of the type thal women on tbe Rlvtera wore heíore tbey declded to chnck the mnts altogether Though outrighl nndity tt prohlhtted at the pa(- eant. a two-hoer verttoo of which witt he televtsed throeáhoef tha. world IB Sanuary. MUa Ittty - Mfflrt OrtygecloWr (lcefand) meaeurea 12-72-32 and epends a lot of nme thinklng about this later the's n ber room. stering sullenly m the. inirror. "God." she br.tih.-s “I srtth I nsd booha " Another moment: a "Pet eort" tells her. "Sorry. liona. wc lon't have any " Any what’ "Body (lue For nipplccaps " ■ Miss GcnBany. Carola Winler. mis •n hcr hcd. naked. "In Gcrmany. is rccr." Shc shnws p*» an old ptcsport •tuare Ifefy. Winicr hloomed at tv <ow at Jl - -I say 21. bacatise I flg •rc I luct five yfcarv" — she's livlag a Ircam 'lwpt model in Germany. ind onc <Ut I was t( a irain In Oussel- lorf and thts llollywood prodpcer omcs up " Ha kept calllng. Winier inally accepted htt planc llckal. "for i wtsif. is all." Three mnnlhs In Molly vood. and shc's alrcady bccn namcd 4lss Hollywood Intarnailonal Sllll. runway Io a salt ihai oí dotbiog Ib name only Tha mea In the tudWnce groBbed. Só wtll the censors wbo must reOt her for Amertcaa TV Miss Aaeríca haa iu ttlent seg- ment The Penihoute pageani haa Its fantasjy coatumaa On ttmdaT night. Mlss South Afrtca. Jllly Hutchlnfs. came on **a*e aa I fairy godmother. dreaaad ooly Id sheer ballet skin and pastica D'lemos. came as the "Purrrríect PH." wetring a ttght black papiV sult. biack ftthnet slocklBgs and * beavy chaia ihat rmn from her ■ ptgeaai s co-produc 'We're bo* mytng. tlka Mtts Am ua about y Talk to « „ her and tnyw yom want to he a mrse. The tmth tt wc don t lcaref (See PET <■ M» Margret Orlygsdottir, Mtss lceland. Talsvert var fjallað um keppnina í blöðum vestra og hér eru tvær úrklippur með rayndum af Margréti. Margrét ásamt herbergisfé- laga sínum, Pamelu frá ít- alíu. MISSICELAND Margrcrf OHygsdottk tkjs: IV ►j*> Wtttl: iS' '6' Xf ;*** k a pqfMhWfc skidecit whO erýovs ixdet <jr*1 txy**Mhoí: She 'v» ocWO rt ciovs rjt w kxxt F«fott' ond and ócrces 7HE StCXXO $ w ENTHOUSE PET OF THE YEAR Eigandi Penthouse, Bob Guccione, krýn- ir sigurvegarann, Jeanette Dyrkjær frá Danmörku. Svipmynd af sviðinu. Lengst til hægri er Miss World. Margrét er í öftustu röð til hægri. (Myndir úr keppninni: Jón Gerald.) Andy Gibb var kynnir í keppninni og hér stendur hann á sviðinu fyrir aftan Margréti. Slappað af á railli æfinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.