Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.12.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 43 systirin umvöfðu hana ást og um- hyggju. Þau tóku höndum saman, sem einn maður og báru þjáning- una með henni. Nú er baráttunni lokið og þjáningin horfin. Gunna, vinkona mín, hafði yndi af ferðalögum. Hún ferðaðist mik- ið um heiminn með eiginmanni sínum og börnum. Nú er hún farin í ferðina, sem við öll eigum fyrir höndum. Hún fór ein að þessu sinni, við hin komum seinna. Ég er fullviss um að það hafa beðið hennar vinir í varpa. Móðir hennar og faðir hennar, sem tók á móti henni, er hún fæddist í þenn- an heim, hafa tekið á móti henni í hinum nýju heimkynnum. Nú ríkir sorg og söknuður í vinkvennahópnum. Júlla, Kiddý, Rut, Ninna, Karen, Sigrún og Þóra þakka henni ljúfar samverustund- ir og senda innilegar samúðar- kveðjur til Jónasar og barnanna. Þar er söknuðurinn mestur og missirinn óbætanlegur, og orð mega sín lítils. Eg og fjölskylda min þökkum Gunnu vináttuna og samfylgdina og ég bið góðan Guð að sefa sorg eiginmanns hennar, barna og systur og blessa þeim og öllum ættingjum hennar og vinum minningu hennar. Edda Þórarinsdóttir Aðfaranótt 25. nóvember sl. lést í Landspítala íslands Guðrún Hinriksdóttir, Sunnubraut 35, Kópavogi. Mig langar með fátæklegum orðum að minnast þessarar ágætu konu, en eins og oftar á kveðju- stund mega orð sín lítils. Óteljandi minningar fylltu huga minn við þær sorgarfréttir að Gunna væri látin aðeins 47 ára gömul og mér fannst erfitt að trúa að þetta væri satt. Eftirlifandi eiginmaður Gunnu er Jónas Run- ólfsson og börn þeirra þrjú, öll í foreldrahúsum. Þau eru Hinrik (f. 1960), Kristín (f. 1%5) og yngst er Hulda (f. 1972). Það má nærri geta að missir fjölskyldunnar er meiri en nokkur orð fá lýst. Kynni okkar hófust fyrir rúm- um tólf árum. Þá átti Gunna von á sínu yngsta barni og var ekki allt- af vel frísk og var ég því fengin til að hjálpa henni nokkra tíma í viku við heimilisstörfin, en ekki leið á löngu þar til mikill vinskapur tókst með okkur. Mér eru minnisstæðar margar samverustundir sem við áttum saman, til Gunnu var alltaf gott að koma. Hún hafði þann einstaka hæfileika að smita aðra með sinni léttu lund. Fyrir þessar samveru- stundir, sem ég fékk að eiga með henni, er ég þakklát. Heiðarleiki, snyrtimennska, traust og trú voru einkenni hennar ásamt einlægni og elsku. Gunna var vel greind kona sem hafði ákveðnar skoðanir og lét skoðanir sínar óhrædd í ljós. Hún kom alltaf hreint fram. Þannig var Gunna. Gunna átti margar góðar stundir í garðinum sínum. og jafnframt mörg handtök þar, hann bar þess líka merki svo fal- legur sem hann var. Mig langar sérstaklega að þakka fyrir dóttur mína, Elísabetu. Henni reyndist hún sem besta amma og kenndi þeirri stuttu strax að kalla sig Gunnu ömmu. Eftir að Kristín, dóttir Gunnu, fór að passa fyrir mig á sumrin og oft þess á milli fékk Beta litla oftar að vera hjá Gunnu ömmu og stundum fékk hún líka að taka með sér náttföt í poka og vera nótt. Það voru góðir dagar því Gunna amma hafði allt- af svo góðan tíma og mikla þol- inmæði fyrir Iitla telpu. í vor stóð mikið til hjá fjöl- skyldunni á Sunnubrautnni. Þau höfðu ákveðið að dvelja erlendis um sumarið. Jónas hafði fengið finnu þar og fór út á undan til að gera klárt áður en fjölskyldan kæmi. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Gunna var kölluð í rann- sókn á Landspítalann sem svo leiddi til þess að hún var send til London í hjartaaðgerð. Jónas sneri strax heim og fylgdi konu sinni utan og var úti með henni allan tímann. Ég talaði við Gunnu stuttu eftir að hún kom heim úr aðgerðinni og oft síðar. Allt virtist hafa gengið vel og allir voru bjart- sýnir á framtíðina en skyndilega dró ský fyrir sólu og dvölin hér varð styttri en okkur óraði fyrir. Maðurinn með ljáinn var kominn. Söknuðurinn er sár, en þung- bærastur er þó missir eiginmanns og barna, en minningarnar tekur enginn frá okkur. Þær munu lifa og ylja okkur um hjartaræturnar um ókomna tíð. Er þakklæti mitt mikið fyrir þá hjálp og umhyggju sem Gunna sýndi mér og fjölskyldu minni, hún var alltaf boðin og búin ef hennar þurfti með. Ráðum hennar gat ég alltaf treyst. Ég er forsjón- inni þakklát fyrir það að hafa fengið að kynnast slíkri konu sem Gunna var. Elsku Jónas og börn, ég og fjöl- skylda mín vottum ykkur af heil- um hug okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja ykk- ur og blessa á þessari erfiðu kveðjustund. Nú ertu leidd mín ljúfa, lystigarð drottins í, þar áttu hvíld að hafa hðrmung’ og rauna frí við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unun og eilif sæla er þín lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín sofðu vært, hann sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært þú lifir góðum Guði, í Guði sofnar þú í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (H. Pétursson) Blessuð sé minning Gunnu. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Inga t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför GUNNLAUGSJÓNSSONAR frá Felli, Vopnafiröi. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför SÓLVEIGAR ÁRNADÓTTUR PETERSEN. Kriatín og Martfn Petersen. t Innilegar hjartansþakkir fyrir auösýnda samúö og hluttekningu við andlát og jaröarför systur okkar, Systur MARÍU ELÍSU, Jósefssystur. Fullveld- isfagnaður Suomi- félagsins Suomifélagið efnir til fagnaðar þriðjudaginn 6. desember nk. í til- efni af fullveldisdegi Finna. Fer hann fram í Norræna húsinu og hefst kl. 21. Áður en samkoman hefst leikur Hornaflokkur Kópa- vogs undir stjórn Björns Guð- jónssonar. Formaður félagsins, Barbro Þórðarson, setur samkom- una. Hátíðarspjall flytur dr. Jónas Kristjánsson forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar. Þá flytur finnska leikkonan Sin- ikka Sokka vísnadagskrá ásamt jasspíanóleikaranum og tónskáld- inu Eero Ojanen. Tónlistin er m.a. eftir Kaj Chydenius. Listamenn- irnir flytja einnig finnsk þjóðlög. Sinikka Sokka er leikkona við Kom-teatteri í Helsinki og kom hér á listahátíð 1980 í leikhópi frá nefndu leikhúsi. Eero Ojanen hef- ur einnig komið hingað áður. Hann lék af list á slaghörpuna á listahátíð 1970. Allir eru velkomnir á fullveld- isfagnaðinn meðan húsrúm leyfir. Fródleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Basar Hringskvenna í Hafnarfirði Kvenfélagið Hringnrinn í Hafnarfirði heldur basar í dag í Sjálfstæðishús- inu við Strandgötu og hefst hann klukkan 15. Á boðstólum verða margir fallegir munir, jóla- og gjafavörur og einnig laufabrauð. Vetrarstarf Hringskvenna hófst 29. september síðastliðinn og síðan hafa verið vinnu- fundir á hverju fimmtudagskvöldi. 13. október sáu Hringskonur um „opið hús“ og sunnudaginn 16. október héldu félagskonur skemmtun/tískusýn- ingu í félagsálmu íþróttahússins. ARNARBAKARÍ Brauð á besta neyslustigi. Þegar þú tekur við ilmandi og mjúku brauðinu yfír borðið hjá okkur eru liðnar 20 - 2* klst. frá því það kom úr ofni. Sannir sælkerar leggja mikla áherslu á þetta atriði. Þú getur einnig fengið nýbökuð brauð og kökur í úrvali. Við stefnum ótrauð að því að teljast landsins besta bakarí svo þér er óhætt að gera kröfur. Notum eingöngu náttúruleghraefni. Við viljum benda fólki á innihaldslýsingarnar. Við erum stolt af framleiðslunni og uppskriftirnar eru okkar. lE/n Æ mLjii um lijd o l/zux lAKÍARBAKARÍi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.