Morgunblaðið - 11.01.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.01.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1984 23 íslenzkt sjómanna almanak komið út Ungmennafélag Gnúpverja: Lukkuriddarinn frum- sýndur í Aratungu ÚT ER kominn 59. árgangur ís- lcnzks sjómannaalmanaks, 1984. Út- gefandi er Fiskifélag íslands, tölvu- deild Jónas Blöndal og tæknideild Emil Ragnarsson. í almanakinu eru flestar þær upplýsingar, sem sjófar- endum eru nauðsynlegar. Má þar meðal annars nefna lög og reglur um siglingar og veiðar, öryggismál, skipaskrár og fleira. í formála almanaksins segir fiskimálastjóri, Þorsteinn Gísla- son, meðal annars, að fyrst hafi Leiðrétting ÞAU MISTÖK urðu í frásögn af haftyrðlum hér á landi að rangt var farið með nafn mannsins, sem fann fuglinn. Hann heitir Þorvald- ur Ólafsson. Mbl. biður velvirð- ingar á þessum mistökum. Félagsmálaráðherra Alexander Stefánsson hefur skipað eftirtalda aðila í stjórnarnefnd um málefni fatlaðra frá 1. janúar 1984 til næstu fjögurra ára. Sigurfinnur Sigurðsson, skrif- stofumaður, sem jafnframt er for- maður nefndarinnar. Varamaður: Theódór A. Jónsson, framkvæmda- stjóri. Ingimar Sigurðsson, deild- arlögfræðingur. Varamaður: Jón Sæmundur Sigurjónsson, deildar- hagfræðingur. Magnús Magnús- son, sérkennslufulltrúi. Varamað- ur: Leifur Eysteinsson, fulltrúi. Húnbogi Þorsteinsson, sveitar- stjóri. Varamaður: Magnús E. Stykkishólmur: Erfið færð StykkLshólmi, 9. janúar. SAMGÖNGUR hafa verið mjög erfiðar í dag. Gerir það bæði hálka á vegum, hríðarveður og erfiðir skaflar. Ekkert áætlunarflug var í dag. Áætlunarbíllinn, sem fór úr Reykjavík í morgun kl. níu, kom ekki til Stykkishólms fyrr en um fjögur- leytið í dag og er það um 2—3 tímum lengur en á venjulegum degi. Ferð- ina sem átti að fara suður í kvöld varð að fella niður en reynt verður að fara á morgun kl. tíu. Ánnar bfll, sem fór héðan kl. tíu í morgun áleið- is til Reykjavíkur, var á fimmta tíma i Borgarnes. almanakið komið út á vegum Fiskifélagsins 1925, en 1914 hafi fyrsta sjómannaalmanakið verið gefið út á vegum stjórnarráðsins. Samkvæmt reglum sé öllum skip- um, 12 brúttórúmlestir og stærri, gert skylt að hafa sjómannaalm- anakið um borð. Þá segir hann að almanak þaö, sem nú komi út, marki viss tíma- mót í útgáfunni, því nú sé mestur hluti efnis tölvusettur í tölvu Fiskifélagsins og sendur símleiðis til prentsmiðju (Steindórsprents), þar sem efnið er offsetprentað. Stefnt er að því að allt efni alman- aksins verði tölvusett í framtíð- inni enda skapar það mikið hag- ræði, því þannig er ávallt hægt að setja inn og leiðrétta lög og reglur, að ógleymdri skipaskrá, svo og annað efni strax og breytingar verða. Guðjónsson, framkvæmdastjóri. Ólöf Ríkarðsdóttir, fulltrúi. Baldur Kristjánsson, þjóðfélagsfræðing- ur. Ásgerður Ingimarsdóttir, deildarstjóri. Varamenn fyrir Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag íslands: Guð- mundur Ragnarsson, viðskipta- fræðingur, Arnþór Helgason, deildarstjóri, Jóhann Guðmunds- son, læknir. UNGMENNAFÉLAG Gnúpverja frumsýndi 28. desember sl. írska leikritið Lukkuriddarinn eftir J.M. Synge í þýðingu Jónasar Arnasonar. Leikritið gerist á írlandi um síðustu aldamót og segir af fá- tæku bændafólki í Mayo-héraði. Er mikið af írskum þjóðlögum í leikritinu svo og gráu gamni. Leikstjóri er Edda V. Guð- mundsdóttir, en leikendur eru þrettán talsins. Þá eru undir- leikarar, Loftur S. Loftsson á harmonikku og Helga G. Loftsdóttir á gítar. Næsta sýning á Lukkuriddar- anum verður á morgun, Heracules í Háskólabíói í HÁSKÓLABÍÓI verður frumsýnd í dag kvikmyndin Heracules sem fjallar um samnefnt heljarmenni sem Seifur, hinn forni guð Grikkja, sendir til jarðarinnar til að berjast við Mínos konung og hina illu dóttur hans Aríönnu. Feðginin hyggjast ná yfirráðum á jörðinni og heljarmennið Herac- ules getur einn stöðvað þau. Verða á vegi hans prinsessur og fagrar seiðkonur sem aðstoða hann í bar- áttunni við illmenni og ófreskjur sem feðginin gera út af örkinni í þeim tilgangi að stöðva Heracules. Heracules leikur líkamsræktar- maðurinn Lou Fereigno. Úr fréUatilkynninxu. fimmtudag, í Aratungu, en fyrirhugað er að sýna leikinn víðar á Suðurlandi. t r frétutilkynninfpi. Hríðarveður tefur fyrir samgöngum SÍÐDEGIS í gær skall á hríðarveður víða um Suður- og Vesturland, sem tafði mjög fyrir samgöngum, bæði í lofti og á láði. Flug gekk þó sæmilega fram eftir degi, en ekkert var flogið á Vestfirði eða til Vestmannaeyja, auk þess sem fresta varð flugi á milli nokkurra staða á Norðurlandi. A.m.k. 400 manns bíða eftir flugi í dag. Á landi var fært um Þrengslin, austur um firði og um Suðurlands- undirlendið víðast hvar. Það opnuð- ust vegir um Snæfellsnes og í Reyk- hólasveit í Austur-Barðastrandar- sýslu. Það stóð til að opna norður- leiðina í gær, en vegna mikillar hríðar á Holtavörðuheiði var mokstri frestað. Samkvæmt veðurspánni átti veð- ur að ganga niður í morgun og fara í sunnanátt með snjókomu og éljum síðdegis sunnan- og vestanlands. Spáð er björtu veðri á Norður- og Austurlandi. Víðast hvar á landinu verður 6—7 stiga frost og vindhæðin 3—4 stig sunnanlands. SKEÐ Stefán Gunnlaugsson listmálari heldur námskeið í almennri myndlist dagana l9.janúarog 9. febrúar. Námskeiðið er haldið í rúmgóðri vinnustofu Stefáns að Ármúla 5. Innritun hefst 13. janúar. Tekið verður við umsóknum í síma 85426, milli kl. 3—4 á virkum dögum. Skipuð stjórnarnefnd um málefni fatlaðra Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 Erum að fá 2 stk. Ramcharger SE árgerð 1984, 8 cyl., 318 ci, sjálfskiptur, aflstýri, aflhemlar, læst drif, Royal SE innrétting. Litir: svartur og koksgrár. Ath.: Fáum aðeins 2 bila. Verð aðeins kr. 1.080.000,00 JÖFUR HF. þegar kraftur, gæði og styrkur skiptlr máll velur þú CHRYSLER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.