Morgunblaðið - 22.02.1984, Page 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984
Viljum við
— eftir Þuríði Vilhjálmsdóttur
1984 eru menn stoltir yfir að
eina að baki 15 ára „friðartíma".
Já, „friðartíma" þar sem 3 millj-
ónir manna hafa verið drepnar að
ótöldum slösuðum, heimilislaus-
um og landflótta. Borgir, bæir og
héruð hafa verið lögð í rúst. Bræð-
ur, systur, feður, mæður og aðrir
ástvinir hafa horft á sína nánustu
deyja í hinum vitfirrta stríðsdansi
friðartímanna svokölluðu.
Jafnaðarmerki er sett á milli
„friðartíma" annars vegar og und-
irlægjuháttar, fjöldamorða,
ofbeldis og blóðugra byltinga hins
vegar. Fyrir mér er þetta ekki
friður. Ég kalla það heldur ekki
frið þegar menn þvinga hverjir
aðra, virða ekki skoðanir hvers
annars, hagnast hver á öðrum og
berja hver annan. Á meðan þessi
ófriður á milli manna varir líður
mönnum ekki vel. Manninum líður
vel þegar hann getur lifað í sátt og
samlyndi við alla menn, hvort sem
þeir eru hvítir, svartir, kommar,
íhald, kaþólikkar, múhameðstrúar
eða kristnir. Þegar honum er
sama hvort háraliturinn er rauð-
ur, svartur eða hvítur og þegar
honum er sama um hvort menn-
irnir í kringum hann eru kven-
kyns, karlkyns eða hvorugkyns.
Honum líður vel þegar hann
treystir öðrum og sjálfum sér.
Þegar samskipti hans eru góð og
byggjast á virðingu fyrir því sam-
eiginlega á milli manna og því sem
aðskilur, þá líður honum vel og þá
finnur hann til friðar. Ekki bara
innra með sér heldur í öllu sínu
umhverfi. Og þegar honum líður
vel kemur honum ekki til hugar að
fara með ófrið á hendur öðrum
mönnum eða þjóðum vegna þess
að hann veit hvað það er vitlaust.
Hvað varðar stóru sprengjuna
sem vofir yfir mannkyninu, þá er
hún aðeins tæknileg framlenging á
löðrungi. Og löðrungur verður til
vegna slæmra samskipta.
Þetta er ekki mjög flókið og
þetta er verkefni Samhygðar í 50
löndum í dag. Árangur er þegar
orðinn. T.d. áttu Samhygðarfélag-
ar í Argentínu sterkan þátt í því
að lýðræðisöfl komust aftur að
eftir margra ára herforingja-
„Ekki segja: „Mér
kemur ekki viö hvernig
öörum þjóðum eða
ókunnugu fólki líður.
Það eina sem skiptir
mig máli er að ég og
mínir hafi það gott.““
stjórn. í desember sl. fór fram í
Argentínu, á vegum Samhygðar,
undirskriftasöfnun til afnáms
herþjónustu. Á fimm vikum söfn-
uðust milljón undirskriftir.
Samhygðarfélagar í nágranna-
landi Argentínu, Chile, söfnuðu
um sama leyti 520 þúsund undir-
skriftum til að efla frið á milli
þessara tveggja þjóða, sem hafa
lengi átt í ófriði.
í þessum tveimur löndum er
Samhygð orðið félagslegt afl, sem
þýðir að friðarvilji Samhygðar er
farinn að sýna árangur.
En hvað kemur okkur á Fróni
það við sem gerist suður í hafi?
Okkur kemur þetta við m.a. vegna
þess að hugmyndin að þessum
undirskriftasöfnunum er komin
frá fslandi. (Dagur án ofbeldis 4.
maí 1983.) Aðrar þjóðir taka sem
sé okkur til fyrirmyndar í þetta
sinn þó að oftast séum það við sem
öpum eftir öðrum þjóðum og þá
stærri. Reyndar skiptir ekki máli
hvaðan jákvæðar fyrirmyndir
koma en þetta skýrir e.t.v. það að
Samhygðarfélagar um allan heim
vinna saman sem ein heild og hjá
þeim skiptir framlag lítillar þjóð-
ar norður í hafi ekki minna máli
en framlag stórþjóðanna.
ísland er kallað velferðarríki (af
fslendingum). Þar er sem sagt sett
jafnaðarmerki á milli „Velferðar-
ríkis“ og aukinnar fíkniefnaneyslu
og afbrota, æ fleiri sjálfsmorðs-
tilfella, metaðsóknar á geðdeildir,
aukins ofbeldis og óhamingju
manna. f „Velferðarríkinu" eru
ailir að fara yfir um. Jafnvel börn
og unglingar eru flúin á náðir eit-
urlyfja (sjálfsflótta) og sum hver
fara lengra í flóttanum með því að
skera sig á púls eða taka of stóran
pilluskammt. Hjónaskilnaðir
aukast, samskipti versna og van-
líðan og óánægja eykst stöðugt.
Þekkir þú einhvern sem er að
kikna undan álaginu eða jafnvel
einhvern sem hefur ekki aðeins
flúið land heldur flúið líf? Ein-
hvern í fjölskyldunni, á heimilinu,
í götunni eða í hverfinu? Einhvern
góðan vin eða kunningja? Líklega
þarftu ekki að hugsa þig lengi um
og þess vegna spyr ég þig: Kemur
þér þetta við? Ef svar þitt er nei er
það annað hvort vegna þess að þú
ert blindur og heyrnarlaus eða
vegna þess að þú hefur hagsmuni
af ofbeldinu og því sem fylgir því
og styður það þ.a.l.
Ekki segja: „Mér kemur ekki við
hvernig öðrum þjóðum eða ókunn-
ugu fólki líður. Það eina sem
skiptir mig máli er að ég og mínir
hafi það gott. Ég hef alveg nóg
með mig.“ Svona svör eru siðlaus
og ein meginástæðan fyrir ásig-
komulagi „velferðarríkisins" ís-
lands. Ef fólk heldur áfram að
snúast aðeins um sjálft sig og láta
sig engu varða líðan annarra, þá
halda vandamálin áfram að
hrannast upp og ófriðurinn að
aukast. Og þar að auki er það ekki
einu sinni hagkvæmt að vera eig-
ingjarn, vegna þess að eigingirnin
bitnar verst á eigingirniseggnum
því hann býr jú í þvi umhverfi sem
hann skapar sér.
Það er okkar, mitt og þitt, að
snúa blaðinu við og taka til við að
gera eitthvað sem virkar fyrir
manninn. Ef við vinnum skipulega
að því að auka vináttu, traust og
hjálpsemi okkar á milli þarf ekki
mikla orku til að leysa vandamál
mannsins, ÓFRIÐINN.
Þuríður Vilhjálmsdóltir er leið-
beinandi í Samhygð.
AÐALFUNDUR VERZLUNARRAÐS ÍSLANDS 1984
- þriðjudaginn 28. febrúar, Átthagasal Hótel Sögu -
Dagskrá:
Mæting og móttaka fundargagna.
10:15-10:30
10:30-11:00
11:00-11:45
11:45-12:00
12:10-13:30
13:30-14:15
14:15-14:45
14:45-15:15
15:15-15:30
15:30-16:00
16:00
17:00-19:00
Setningarræða,
RagnarS, Halldórsson, formaðurVÍ
VERKLÝÐSFÉLÖGIN OG STJÓRNMÁLIN
- Hlutverk ríkisvalds og verklýðsfélaga í viðnámi
gegn verðbólgu -
1. Erindi, dr. ÞorvaldurGylfason, prófessor
2. Fyrirspurnir
StarfsemiogfjárhagurVÍ 1982-1983,
Árni Árnason, framkvæmdastjóri VÍ
Hádegisverður í Súlnasal
Styrkveiting úr Námssjóði Vl
ATVINNULÍFIÐ OG STJÓRNMÁLIN
1. Erindi, Arthur Shenfleld, prófessor
2. Almennar umræður og fyrirspurnir
STÖRF, STEFNA OC SKIPULAG Vl 1984-1985
1. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun
Almennarumræður
2. Laga- og skipulagsbreytingar
Almennar umræður
FRAMFARASJÓÐUR ÍSLANDS
- kynning á undirbúningi
KOSNINCAR
1. Kosning formanns VÍ
2. Úrslit stjórnarkjörs
3. Kosning kjörnefndar
4. Kosning endurskoðenda
Önnurmál
Fundarslit
Móttaka í Húsi verslunarinnar, 7. hæð
Fundarstjóri: Haraldur Sveinsson framkvæmdastjóri
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir kl. 12.00,
23. febrúar næstkomandi, í síma: 83088.
Helgi Laxdal, formaður Véistjórafélagsins, tekur við gjöf frá kvenfélaginu
Keðjunni, sem Sigríður Smith afhenti fyrir hönd félagsins. Vinstra megin á
myndinni má sjá þá þrjá menn sem gerðir hafa verið að heiðursfélögum
Vélstjórafélagins, þá Örn Steinsson, Daníel Guðmundsson og Ingólf S. Ing-
ólfsson.
Vélstjórafélag íslands 75 ára:
Vel sóttur hátíðar-
fundur um helgina
Vélstjórafélag íslands varð 75 ára í
gær, mánudaginn 20. febrúar, en Sig-
urjón Kristjánsson stofnaði fyrsta vél-
stjórafélagið árið 1909 og var jafn-
framt formaður þess til írsins 1912.
Félagið minntist þessara tímamóta nú
um helgina í Borgartúni 18, þar sem
aðalskrifstofa félagsins er til húsa. Á
laugardaginn var boðið til hátíðar-
fundar, þar sem öllum fyrrverandi
stjórnarmönnum félagsins var boðið,
og á sunnudaginn var opið hús, öllum
félagsmönnum og velunnurum Vél-
stjórafélagsins.
Sigurjón Kristjánsson stofnaði,
sem fyrr segir, fyrsta vélstjórafé-
lagið árið 1909 og var eitt af fyrstu
verkefnum félagsins að beita sér
fyrir setningu laga um atvinnurétt-
indi vélstjóra. Á árunum 1942—1968
störfuðu tvö landsfélög samhliða,
Vélstjórafélag íslands og Mótorvél-
stjórafélag Islands, en árið 1%8
sameinuðust þessi tvö félög í nýju
félagi sem hlaut nafnið Vélstjórafé-
lag íslands. Formaður þess nú er
Helgi Laxdal og hélt hann setn-
ingarræðu á hátíðarfundinum, þar
sem hann rakti sögu félagsins, af-
henti heiðursskjöl og tók á móti
gjöfum fyrir hönd félagsins.
Heiðursfélagarnir þrír sem fengu
afhent heiðursskjöl á fundinum eru
Daníel Guðmundsson, sem var for-
maður Mótorvélstjórafélagsins á ár-
unum 1958—1968, Ingólfur S. Ing-
ólfsson, formaður Vélstjórafélags-
ins frá 1970—1984, og örn Steinsson
en hann var formaður Vélstjórafé-
lagsins frá 1%2—1970 og jafnframt
fyrsti formaður Vélstjórafélags Is-
lands eftir sameiningu félagana
tveggja árið 1968.
Vélstjórafélaginu bárust margar
gjafir, sem afhentar voru á fundin-
um. Sparisjóður vélstjóra færði fé-
laginu málverk eftir Svein Björns-
son, Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagið Aldan færði því loftvog, Ing-
ólfur S. Ingólfsson færði Vélstjóra-
félaginu mynd af Sigurjóni Krist-
jánssyni, fyrsta formanni félagsins,
í tilefni þeirra tímamóta, að nú eru
liðin 75 ár frá því Sigurjón stofnaði
fyrsta vélstjórafélagið. Margar
fleiri gjafir bárust á fundinum, svo
sem landabréfabók, silfurbréfahníf-
ur, klukka, blómagjafir og fleira.
Kvenfélagið Keðjan færði Vél-
stjórafélaginu peninga að gjöf,
10.000 krónur, sem ráðgert er að
nota til að bæta aðstöðu við orlofs-
hús sem félagið á við Laugarvatn.
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé-
lagsins, sagði að í sumar stæði til að
byggja sundlaug á útivistarsvæði fé-
lagsins við Laugarvatn. Sjóður til
þess verkefnis yrði fljótlega stofn-
settur og yrði stofnféð þær 10.000
krónur sem kvenfélagið Keðjan af-
henti á fundinum.