Morgunblaðið - 27.07.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1984
15
Hafmeyjan á Hafnarreisu
FÓLK HÉLT niAri í sér andanum, þegar rísakraninn Herkúles lét krókinn
falla og kippti í „Lithi hafmejjuna", þegar hafizt var handa um að flytja
hana í koparsteypuna þar sem græða itti höndina i hana aftur.
Kn ihjggjurnar voru að istæðulausu. Herkúles getur nefnilega Ijft 220
tonnum, og sú litla vegur aðeins fjögur tonn með steininum.
Það var stórkostlegt að horfa á hana svifa um, hangandi í löngum
vírum, alla leið frá Löngulínu um höfnina að Norður-tollbúð. Og það
voru svo sannarlega „öðruvísi" myndir af hafmeyjunni litlu sem ferða-
fólkið náði þarna. Sjálf tók hún þessari hafnarreisu með stakri ró;
rólaði sér þó hægt til beggja hliða, því að það er nú ekki á hverjum degi,
sem hún bregður á leik.
Síðan steig hún áfallalaust upp i björgunarbil. Á leiðinni i kopar-
steypuna fékk hún tækifæri til að sjá bæði Austurbrú, Norðurbrú og
Friðriksberg, nýju hringvegina og úthverfin, þar sem aðeins voru græn-
ar grundir, þegar hafmeyjan var ung.
Eftir u.þ.b. viku verður hún svo komin heim á ný, heil á húfi. Er
áætlað, að kostnaðurinn við flutning cg viðgerð nemi um 40.000 d. kr.
(u.þ.b. 117 þús. isl. krónum) og það lendir á ungu mönnunum tveimur,
sem skemmdarverkið unnu, að borga brúsann.
Samtök gegn
Sandinistum
Piuu, 2S. júli. AP.
LEIÐTOGAR tveggja skæniliðahópa sem berjast gegn vinstri stjórninni í
Nicaragua, samþykktu í gær að bindast samtökum gegn Sandinistum.
Flokkarnir tveir, lýðræðisflokk-
ur Nicaragua og byltingarbanda-
lag lýðræðissinna, samþykktu að
koma á samvinnustjórn i Nicar-
agua, þar sem helsta takmarkið
yrði að koma á lýðveldi i landinu.
Þeir segja að áætlun þeirra muni
ná hámarki f lok ársins i frjálsum
kosningum, en Sandinistar hafa
skipulagt kosningar 4. nóvember
nk.
Samkomulagið kalla þeir „Pan-
ama sáttmálann" og þar stendur
að hóparnir muni berjast gegn
andstæðingunum og einvaldssinn-
um. Nýja stjórnin mun viður-
kenna mannréttindi allra Nicar-
aguabúa og varðveita lýðræði
landsins.
Stjórnarandstaðan hefur sam-
þykkt að taka ekki þátt í forseta-
kosningunum í nóvember þar sem
stjórnin hafði ekki gefið jákvætt
svar við kröfum um að leyfa upp-
reisnarhópunum gegn Sandinist-
um að taka þátt í kosningunum.
Enn rignir bók-
um um Watergate
— og allar renna út eins og heitar lummur
New York, 25. júlí. AP.
Watergate-hneykslið bandaríska
varð til þess að margir þeirra sem
komu við sögu gerðust rithöfundar og
bækur sumra þeirra seldust vel.
Meira að segja Nixon sjálfur ritaði
bók um reynslu sína og alls komust
12 bækur um Watergate í hóp mest
seldu bóka á útgáfutíma. Og enn
koma út bækur um Watergate.
Kunnust er trúlega bók Wood-
wards og Bernsteins, sem afhjúp-
uðu hneykslið, „All the President’s
Men“. Eftir henni var gerð sam-
nefnd kvikmynd og hún seldist í
rúml. 4,8 milljónum eintaka. Þá
græddi John Dean, ráðgjafi Nixons,
yfir milljón dollara á bókinni
„Blind Ambition". Dean sendi síðan
frá sér aðra bók um málið, „Lost
Honor“. Woodward og Bernstein
sendu einnig aðra bók frá sér, „The
Final Days“.
Og enn koma út bækur um Wat-
ergate, síðast „Secret Agenda: Wat-
ergate, Deep Throat and the CIA“
eftir Jim Hongan, „Washinton
Journal" eftir Elizabeth Drew og
„Exile: the unquiet oblivion of Rich-
ard M. Nixon“, eftir Robert Anson.
Síðast nefnda bókin er gefin út af
bókaútgáfunni „Simon and Schust-
er“, en talsmaður þeirra, Julia
Knickerbocker, sagði að bókin rok-
seldist. „Það morar allt af fólki sem
er með Nixon-dellu, fólk sem les
hvern einasta staf sem birtist um
þann mann.“
Turner lofar að leiða
þjóðina á nýja braut
Toronto, Kanadm, 26. júli. AP.
JOHN Turner, forsætisráðherra
Kanada, sagði í rökræðum við helstu
keppinauta sína í kosningabarátt-
unni, að hann myndi leiða Kanada á
njja braut, koma efnahaginum á
réttan kjöl og þjóðinni til starfa.
Aðalkeppinautur Turners,
íhaldsmaðurinn Brian Mulroney,
sagði að ef þjóðin vildi raunhæfar
breytingar, yrði að byrja á þvi að
koma frjálslyndum frá völdum í
Kanada, en Frjálslyndi flokkurinn
hefur verið við völd sl. 21 ár, að
undanskildum hluta ársins 1979-
80. Turner hefur ekki gegnt emb-
ætti forsætisráðherra nema í tæp-
an mánuð, en hann tók við af Pi-
erre Trudeau 30. júní sl.
Munurinn á helstu stefnumál-
um Turners og Mulroneys er ekki
mikill, en báðir segjast hafa einu
lausnirnar á efnahagsvanda þjóð-
arinnar, sem berst við 11,2% at-
vinnuleysi og háa vexti. Kosningar
eru í Kanada 4. september nk.
Fékk 20
milljón
dollara
vinning
New York, 26. júli. AP.
„ÉG TRÚÐI þessu ekki," sagði 63
ára gamall trésmiður, sem hættur
er störfum, þegar forráðamenn
New York-happdrættisins tjáðu
honum í dag, að hann hefði fengið
stærsta happdrættisvinning, sem
nokkurn tfma hefði fallið á einn
miða í heiminum.
Vinningshafinn heitir Venero
Pagano og ólst upp á Ítalíu.
Hann sagðist hafa fylgst með
því i sjónvarpinu, þegar dregið
var á miðvikudagskvöld og siðan
grannskoðað þetta aftur og aft-
ur, hvort þetta gæti verið rétt,
„og þó trúði hann þessu ekki,“
sagði talsmaður happdrættisins.
Pagano var á blaðamanna-
fundi ásamt konu sinni, tveimur
sonum og fjögurra ára gömlum
sonarsyni. Hann fær um 952
þúsund dollara á ári í 21 ár, en
þá á eftir að draga skatta frá
upphæðinni.
Sækir um sinn 26. lögskilnað!
Blyth. Kaliforníu. 26. júlt. AP.
GLYNN „Scotty" Wolfe, sem við-
urkenndur er í heimsmetabók
Guinnes sem sá maður sem oftast
hefur gengið í hjónaband, hefur nú
sótt um lögskilnað við 26. eigin-
konu sína. Scotty karlinn er 76
ára, en frúin, Christina, er 38 ára.
„Þessar ungu konur nenna
ekki að vaska upp, sjá um þvott-
inn eða elda mat, þær vilja bara
skemmta sér. Christina er aldrei
heima, ég held helst að kynslóða-
bilið hafi eyðilagt hjónaband
okkar," sagði Scotty, sem er 40
barna faðir með 25 konum. Hann
á ekkert barn með núverandi
konu sinni.
Scotty sagðist þegar vera far-
inn að leita að nýrri eiginkonu,
sem verður frú Wolfe númer 27.
„Hingað til hefur sönn ást dregið
mig að altarinu með eiginkonum
mínum, ég er veikur fyrir kven-
fólki. Eg sé nú að það gengur
ekki að miða eingöngu við slíkt.
Næst ætla ég að vanda valið bet-
ur. Það sem ég þarfnast nú, er
alvöru eiginkona, sem vill og get-
ur hugsað um mig,“ bætti Scotty
við að lokum.
Viðskiptavinir athugið
Breytt símanúmer okkar er 611991 og 611933
Wrigley’s umboöiö
ÓLAFUR GUÐNASON HF. HEILDVERSLUN, AUSTURSTRÖND 3.
íwaící!
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 7. ágúst
City of Hartlepool 27. ágúst
Bakkafoss 25. sept.
City of Hartlepool 24. sept.
NEW YORK
Bakkafoss 8. ágúst
City of Hartlepool 28. ágúst
Bakkafoss 4. sept.
City of Hartlepool 25. sept.
HALIFAX
Bakkafoss 11. ágúst
Ðakkafoss 8. sept.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 29. júli
Álafoss 5. ágúst
Eyrarfoss 12. ágúst
Alafoss 19. ágúst
FELIXSTOWE
Eyrartoss 30. júlí
Álafoss 6. ágúst
Eyrarfoss 13. ágúst
Alafoss 20. ágúst
ANTWERPEN
Eyrarfoss 31. júlf
Alafoss 7. ágúst
Eyrarfoss 14. ágúst
Álafoss 21. ágúst
ROTTERDAM
Eyrarfoss 1. ágúst
Álafoss 8. ágúst
Eyrarfoss 15. ágúst
Álafoss 22. ágúst
HAMBORG
Eyrarfoss 2. ágúst
Álafoss 9. ágúst
Eyrarfoss 16. ágúst
Alafoss 23. ágúst
GARSTON
Qrundarfoss 6. ágúst
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 27. júlí
Dettifoss 3. ágúst
Mánafoss 10. ágúst
Dettifoss 17. ágúst
KRISTIANSAND
Mánafoss 30. júli
Dettifoss 6. ágúst
Mánafoss 13. ágúst
Dettifoss 20. ágúst
MOSS
Mánafoss 31. júli
Dettifoss 3. ágúst
Mánafoss 14. ágúst
Dettifoss 17. ágúst
HORSENS
Dettifoss 8. ágúst
Dettifoss 22. ágúst
GAUTABORG
Mánafoss 1. ágúst
Dettlfoss 8. ágúst
Mánafoss 15. ágúst
Dettifoss 22. ágúst
K AUPMANNAHÖFN
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
HELSINGJABORG
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
HELSINKI
Etbström
GDYNIA
Elbström
ÞÓRSHÖFN
Mánafoss
LEIXOES
Vessel
BILBAO
Vessel
LISSABON
Íl Vessel
H N. KÖPING
Elbström
•ft—:
2. ágúst
9. ágúst
16. ágúst
23. ágúst
3. ágúst
10. ágúst
17. ágúst
24. ágúst
6. ágúst
13. ágúst
11. ágúst
8. ágúst
9. ágúst
27. ágúst
8. ágúst
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla manudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP